Morgunblaðið - 07.07.1981, Page 12
X 2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JULÍ1981
Sveigjanleg-
ur afgreiðslu-
og vinnutími
eftir Hjalta Geir
Kristjánsson,
formann Verzlunar-
ráðs Islands
Að undanförnu hefur mikið
verið rætt um afgreiðslutíma
verzlana. Þótt afgreiðslutími
verzlana sé málefni, sem Verzlun-
arráð íslands hefur látið sig tölu-
vert skipta, hefur það kynnt sjón-
armið sín og unnið þeim fylgi í
kyrrþey til þessa. Umfang og eðli
þeirra umræðna og atburða sem
gerzt hafa undanfarið, gera það þó
nauðsynlegt, að Verzlunarráðið
komi sjónarmiðum sinum opin-
berlega á framfæri.
Stefna Verzlunarráðsins
Haustið 1979 fjallaði Verzlun-
arráðið töluvert um afgreiðslu-
tíma fyrirtækja og stofnana.
Ræddi allstór hópur félagsmanna
úr ýmsum greinum viðskiptalífs-
ins þetta mál. í hnotskurn var
niðurstaðan eftirfarandi stefnu-
mörkun:
1. Afgreiðslutími fyrirtækja á að
vera frjáls.
2. Afgreiðslutímann er óeðlilegt
að takmarka í kjarasamningum
við stéttarfélög.
3. Geri bæjarfélög samþykktir um
afgreiðslutíma sölubúða eiga
þær einungis að miða að því að
tryggja frið í íbúðarhverfum.
Þessa stefnu kynnti Verzlunar-
ráðið nefnd þeirri, sem vann að
endurskoðun á reglugerð Reykja-
víkurborgar um afgreiðslutíma
verzlana. Einnig var rætt við
ýmsa borgarfulltrúa, og kynnt þau
sjónarmið Verzlunarráðsins, að ný
reglugerð yrði sem frjálslegust og
skapaði verzlunum sem mestan
sveigjanleika til að aðlaga af-
greiðslutímann þörfum neytenda,
væri hann ekki gefinn frjáls, enda
eru þarfir neytenda og möguleikar
verzlana til að sinna þeim mjög
mismunandi frá einum stað og
tíma til annars. Einnig ræddi
Verzlunarráðið við fulltrúa Kaup-
mannasamtaka íslands og Verzl-
unarmannafélags Reykjavíkur um
það, hversu langt þessi samtök
væru tilbúin að ganga til að
rýmka afgreiðslutíma verzlana.
Ný reglugerð
Um tíma horfði svo, að mjög
frjálst val yrði gefið til að hafa
verzlanir opnar á kvöldin og á
laugardögum, jafnvel að svo langt
yrði gengið, að afgreiðslutíminn
yrði gefinn frjáls. Svo varð þó
ekki, og fékkst það einungis fram,
að verzlunum var heimilað að
velja tvo daga í viku, frá mánudegi
til föstudags, frá kl. 18.00—22.00,
að hámarki átta tíma í heild. Áður
var þessi sami afgreiðslutími
bundinn við þriðjudaga og föstu-
daga. Eftir breytinguna hafa nú
ýmsir félagar Verzlunarráðsins
riðið á vaðið og aukið afgreiðslu-
tímann með því að hafa opið á
fimmtudögum, en þriðjudagarnir
höfðu alls ekki nýtzt sem verzlun-
ardagar á kvöldin. Nýja reglu-
gerðin er því ekki alvond.
Með reglugerðinni náðist einnig
fram heimild til að halda vörusýn-
ingar utan venjulegs afgreiðslu-
tíma. Heimildin er að vísu óeðli-
lega skilyrt, en borgarstjórn gerði
hana þó frjálslegri en tillögur
nefndarinnar gerðu upphaflega
ráð fyrir. Forðar þessi heimild
vonandi framvegis árekstrum og
lögregluafskiptum af vörusýning-
um verzlana sem áttu sér stað,
áður en breyting varð. Loks má
nefna þá rýmkun, að verzlanir, ein
til tvær í hverri grein, geti fengið
heimild borgarráðs með samþykki
VR og Kaupmannasamtakanna að
hafa opið á laugardögum frá kl.
12.00—16.00, nema yfir sumartím-
Hjalti Geir Kristjánsson
Til þessa hafa einung-
is kjarasamningar
takmarkað rétt félaga
VR í Reykjavík til að
vinna þessa laugar-
daga, en kaupmenn
gátu haft verzlanir
opnar og unnið þar
með f jölskyldu sinni.
Nú var sá réttur tak-
markaður.
ann. Þessum möguleika eru þó sett
svo ströng og óeðlileg skilyrði, að
mjög vafasamt er, að hann verði
nokkurn tíma nýttur.
Atvinnuírelsi
í einu og nú umdeildu tilviki er
nýja reglugerðin þrengri en sú
eldri, þar sem borgarstjórn bann-
aði að hafa verzlanir opnar á
laugardögum yfir sumarmánuð-
ina. Til þessa hafa einungis kjara-
samningar takmarkað rétt félaga
VR í Reykjavík til að vinna þessa
laugardaga, en kaupmenn gátu
haft verzlanir opnar og unnið þar
með fjölskyldu sinni. Nú var sá
réttur takmarkaður. Sást mörgum
yfir, að sú breyting var gerð, en
líklegt er að hún fái vart staðist
samkvæmt þeim lögum, sem gilda
um samþykktir um lokunartíma
sölubúða.
Samkvæmt 3. gr. þeirra laga
þurfa bæjarstjórnir staðfestingu
félagsmálaráðuneytisins á sam-
þykktum sínum. Er ráðuneytinu
skylt að kanna, hvort slíkar sam-
þykktir gangi „of nærri rétti
manna eða atvinnufrelsi" og sýn-
ist því svo vera, skal ráðuneytið
synja að staðfesta samþykktina.
Mér er ekki kunnugt um, hvort
ráðuneytið kannaði reglur Reykja-
víkurborgar sérstaklega með tilliti
til þessa atriðis, áður en þær hlutu
staðfestingu. Virðist svo sem
ákvæði stjórnarskrárinnar hafi
lítið og takmarkað gildi, þegar
lýðkjörnir fulltrúar sýna réttind-
um almennings yfirgang. Ljóst er,
að reglur um afgreiðslutíma verzl-
ana í Reykjavík takmarka at-
vinnufrelsi manna og þjóna ekki
hagsmunum neytenda.
Sveigjanlegur afgreiðslu-
og vinnutími
Því er oft haldið fram, að lengri
afgreiðslutími þýði lengri vinnu-
tíma hjá afgreiðslufólki og hærra
vöruverð. Svo þarf alls ekki að
vera. Með vaktavinnu, starfsfólki
sem vinnur hluta úr degi, eða með
samningum um breytta frídaga
má oft lengja afgreiðslutímana,
án þess að launakostnaður og
vinnuálag aukist. Einnig kunna
verzlanir að vilja lengja af-
greiðslutímann á kvöldin og á
laugardögum en stytta hann á
öðrum dögum. í þessu efni eru
óskir neytenda, verzlana og laun-
þega svo margbreytilegar, að
ógerlegt er að lögleiða tiltekinn
afgreiðslutíma, sem hentar öllum.
Þær ábendingar sem hér eru
settar fram eru ekki nýjar af
nálinni, heldur hafa þær reynzt
vel bæði hér og erlendis. Á sínum
tíma voru t.d. bæði starfsfólk og
stjórnendur Silla og Valda mjög
ánægð með þá tilhögun að skipta á
vinnu á föstudagskvöldum og
laugardögum gegn frídegi í miðri
viku. Forsvarsmenn Hagkaups hf.
hafa einnig, svo að annað dæmi sé
tekið ítrekað sagt, að þeir vilji
hafa verzlanir sínar opnar lengur
en nú er, og enginn hörgull sé á
fólki, sem vill vinna. Þótt launa-
kostnaður hækki, lækkar annar
kostnaður hlutfallslega, atvinnu-
tækifærum fjölgar, án þess að
vinnuálag aukist og þjónusta við
neytendur batnar.
Sveigjanlegri og í sumum tilvik-
um lengri afgreiðslutími verzlana
hefur marga kosti. Hjón geta þá
gert sameiginleg innkaup, verzlun
dreifist jafnar en nú er sem
dregur úr umferðarálagi og mikið
sparast annars staðar í atvinnulíf-
inu, þegar starfsfólk fyrirtækja
þarf ekki sérstakt frí úr vinnu til
að geta verzlað og ekki má gleyma
því, að verzlunarfólkið sjálft þarf
líka að geta verzlað og sinnt sínum
þörfum. Breytingar á afgreiðslu-
tíma verzlana tengjast einnig til-
raunum með sveigjanlegan vinnu-
tíma, en sú tilhögun hefur valdið
mjög breyttum viðhorfum til
vinnu og frítíma. Vafalaust munu
atvinnuvegirnir, einkum fyrirtæki
með verzlunar- og skrifstofufólk í
þjónustu sinni, nýta betur í fram-
tíðinni þá möguleika, sem slík
tilhögun skapar.
Afgreiðslutími verzlana í
Reykjavík er mun þrengri og
ósveigjanlegri en í nágrannalönd-
um okkar eða nærliggjandi sveit-
arfélögum. Slíkt fær að sjálfsögðu
ekki staðizt, enda ríkir nú margs
konar mismunun milli verzlana
þar sem einn má selja það sem
öðrum er bannað á sama tíma.
Gildir það ekki bara milli verzlana
í Reykjavík og á öðrum stöðum á
landinu, heldur einnig innan borg-
armarka Reykjavíkur. Má nefna
mörg dæmi 'um slíkt. Loks er rétt
að nefna, að stór þáttur í ferða-
þjónustu er verzlun við ferða-
menn. Þetta þekkir landsbyggðin.
í Reykjavík fá ferðamenn hins
vegar ekki jafngóða þjónustu.
Lokaorð
Þegar málum er svo komið, að
lögreglu er beitt til að hindra
eðlileg samskipti og viðskipti
borgaranna, er settur ljótur blett-
ur á samfélagið. Auðvitað er
sjálfsagt að kæra þá, sem taldir
eru gerast brotlegir, og vísa til
meðferðar dómstóla, en við skul-
um ekki gleyma því að verzlunin
er þjónusta við íbúa hvers lands
og því andstætt eðlilegri þróun að
setja lög og reglur sem ganga
þvert á þarfir og óskir íbúanna.
Vonandi drögum við þó þann
Iærdóm af þessu máli, að opinber
afskipti af verzlun landsmanna
eru fyrir löngu komin út í öfgar,
og tökum að tileinka okkur það
frjálsræði, sem verzlun nágranna-
landanna býr við. Það ætti ekki að
tilheyra nútímanum, að verzlunin
þurfi leyfi opinberra aðila til að
inna þjónustustarf sitt af hendi.
Sumarferð sjálfstæðis-
manna í Vestfjarðakjördæmi
KJÖRDÆMISRÁÐ Sjálfstæðis-
flokksins i Vestfjarðakjördæmi
efnir til helgarferðar um Dala-
sýslu og Snæfellsnes 24.-26. júlí
næstkomandi. Hópferðabifreið
fer frá ísafirði um ísafjarðar-
djúp og einnig fer bifreið frá
Flateyri með viðkomu í Flóka-
lundi.
En frá Bjarkarlundi verður far-
ið kl. 18 föstudaginn 24. júlí. Gist
verður að Laugum í Sælingsdal og
ekið kring um Snæfellsnes laugar-
daginn 25. júlí. Kvöldvaka og
dansleikur verður að Laugum um
kvöldið.
Ekið verður heim um Fells-
strönd sunnudaginn 26. júlí.
Formenn sjálfstæðisfélaganna
veita allar upplýsingar um ferð-
ina, en skrásetning þátttakenda
þarf að berast sem fyrst til
Engilberts Ingvarssonar (sími 94-
3111) og Guðmundar Þórðarsonar
(sími 94-3888).
Aðalfundur Félags for-
stöðumanna sjúkrahúsa
Aðalfundur Félags forstöðu-
manna sjúkrahúsa á íslandi var
haldinn nýlega og sóttu fundinn
nær allir forstöðumenn sjúkra-
húsa á landinu. Á fundinum kom
fram mikill áhugi um að auka
áhrif félagsins og gera það að
sterku afli hvað varðar stefnu-
mótun i islenskri heilbrigðisþjón-
ustu.
Félag forstöðumanna sjúkra-
húsa er í dag aðili að samstarfi
norrænna spítalastjóra og jafn-
framt Evrópusamtaka spítala-
stjóra.
Aðalstjórn félagsins var öll
endurkjörin, en hana skipa nú þeir
Davíð Á. Gunnarsson, Jóhannes
Pálmason, Sigurður Ólafsson,
Björn Ástmundsson, Hafsteinn
Þorvaldsson, Stefán Þorleifsson
og Ólafur Erlendsson.
Frá aðalfundi Félags forstöðumanna sjúkrahúsa á íslandi.