Morgunblaðið - 07.07.1981, Page 13

Morgunblaðið - 07.07.1981, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1981 13 Eiga útlendingar að kynna íslenska menn- ingu fyrir íslendingum? BlaAinu hefur borist eftirfar- andi ályktun, sem samþykkt var á fundi stjórnar Rithöfundasam- bands tslands 30. júní: Sunnudaginn 21. júní sl. sýndi sjónvarpið þátt um Snorra Hjart- arson sem danska sjónvarpið hafði látið gera og bauð fram á vettvangi Nordvision. Þátturinn var að sjálfsögðu miðaður við danskar aðstæður þar sem Snorri er óþekktur. Ljóð hans hafa ekki verið þýdd á dönsku og því hafa danskir sjónvarpsáhorfendur ekki átt neinn kost á að kynnast þeim. Af þessum sökum var áðurgreind- ur þáttur vitskuld með öllu ófull- nægjandi fyrir íslenska sjónvarps- áhorfendur og átti lítið erindi við þá. Af þessu tilefni vaknar sú spurning hvort það sé i samræmi við menningarhlutverk íslenska sjónvarpsins að flytja íslending- um danskar kynningar á islensk- um skáldum og list þeirra. Hefði nú ekki verið nær lagi að íslenska sjónvarpið hefði látið gera mynd- arlega dagskrá i tilefni af því að Snorri Hjartarson hlaut bók- menntaverðlaun Norðurlandaráðs og það hefði boðið slíkt efni fram í dagskrárskiptum Nordvision? Eða er niðuriæging islenska sjón- varpsins orðið slík að forystu- mönnum Ríkisútvarpsins finnist ef til vill ofur eðlilegt að útlend- ingar kynni íslenska menningu fyrir íslendingum? Stjórn Rithöfundasambands ís- lands vill minna á að tilgangur íslensks sjónvarps hlýtur að vera íslensk dagskrárgerð. Nú er hins vegar svo komið að íslenskur hluti dagskrárinnar er aðeins þriðjung- ur hennar, og er þó ýmislegt talið íslensk dagskrárgerð sem hæpið er að kalla slíku nafni. Hér hefur orðið hrein afturför í starfsemi sjónvarpsins, sem þegar í stað verður að ráða bót á. Skorar stjórn Rithöfundasambandsins á útvarpsstjóra, útvarpsráð, ríkis- stjórn og alþingismenn að beita sér nú þegar fyrir því að strax á næsta ári verði íslensk dagskrár- gerð sjónvarpsins stóraukin svo að hún nemi að minnsta kosti helm- ingi dagskrárinnar. Jafnframt skorar stjórn Rithöf- undasambandsins á útvarpsráð að láta gera röð sjónvarpsþátta um íslenska listamenn og verk þeirra og bjóða þá fram í dagskrárskipt- um Nordvision. Ungmennafélagsferð um Borgarland MiÚhúsum á Harúaströnd. 6. júli. Á SUNNUDAGINN stóð Ung- mennafélagið Afturelding í Reykhólasveit fyrir vel heppn- aðri ferð um Borgarland. en það er nesið milli Króksfjarðar og Berufjarðar. bar er eitt fegursta landslag hér á landi. og mjög fróðlegar jarðmyndanir. Má þar minna á Bjartmarsstein, eða Pjattarstein öðru nafni. I Borgarlandi eru sennilega frjósömustu tjarnir og mýrar á Vestfjörðum. Margar tegundir fugla verpa þar, og má minna á flórgoða og jaðrakan, sem eru hér á ystu mörkum útbreiðslu sinnar. Hér áður var því trúað að álfar og huldufólk kysu frekar að búa í Borgarlandi en á öðrum stöðum vestur hér, enda ekki í kot vísað. Leiðsögumaður í ferðinni var Brynjólfur Jónsson áður bóndi í Borg, og formaður Ungmennafé- lagsins er frú Lilja Þórarinsdóttir, Grund. — Sveinn Kaupiö þakefnið hjá fagmanninum ÞAKSTAL FRA BREIÐFJORD Topp-stál Köllum viö nýja þakefniö frá VERFORM í Noregi. Stáliö er gleiö báraö meö íslegnum hnúöum til aö brjóta stóra þakfleti og gera þá ásjálegri. Efniö hefur fengiö góöar viötökur arkitekta sem kærkomin tilbreyting frá hefö- bundnum þakklæöning- um. Viö sníöum og beygj- um síöan slétt efni í sama lit á kanta, í þakrennur, skotrennur o.fl. Verform hefur yfir aö ráöa full- komnustu og nýjustu vél- um plötuframleiöenda á Noröurlöndum ! GJAFVERM SG-270H Breidd 540 mm. Hæð 138 mm. Dýpt 397 mm. Hátalarar: Breidd 230 mm. Hæð 375 mm. Dýpt 193 mm. □□ fyrir betri DOLBY upptökur. Útgangsorka 2X32 Wött(MPO) Meiriháttar t steríó samstæöa 3tækiíeinu, meö hátölurum í vinsæla ,,silfur“ útlitinu. i>^»a *-*U •• • M * 8 _ 3ET ... jðL.’fS: ari,jetuffi js. ats smt— — A1ETAL APSS 'v™ Sjáifvirkur metal kassettur . ‘ ... lagaveljari. ■1 Verðkr.: 5.225 HLJÓMTÆKJADEILD m KARNABÆR ^f LAUGAVEGI 66 SÍMI 25999 Útsölustaðir: Karnabær Glæsibæ — Fataval Keflavík — Portið Akranesi — Eplið Isafirði — Álfhóll Siglufirði — Cesar Akureyri — Hornabær Hornafirði — Eyjabær Vestmannaeyjum — M.M.h/f. Selfossi. Patróna Patreksfirði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.