Morgunblaðið - 07.07.1981, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ1981
VARÐARFERÐ
í SÓL OG BLÍÐU
VEÐURGUÐIRNIR brugðust ekki Varðarfélög-
unum, sem síðastliðinn laugardag fóru sína
árlegu Varðarferð, frekar en fyrri daginn. Var
haft á orði að bezta tryggingin fyrir góðu veðri
væri að ákveða Varðarferð. I blíðskaparveðri,
sól og hita, lögðu um 500 manns upp frá Valhöll
árla morguns. Ekið var til Þingvalla og fyrsti
áningarstaðurinn var við rætur Armannsfells í
Bolabás, þar sem morgunkaffi var drukkið og
ungviðinu gafst tækifæri til að spretta úr spori.
Guðmundur Jónsson, formaður ferðanefndar
Varðar, bauð menn velkomna og gerði grein
fyrir tilhögun ferðarinnar, en Einar Þ. Guð-
johnsen, aðalleiðsögumaður, lýsti nágrenni og
staðháttum.
Þegar menn höfðu notið veðurblíðunnar og
margunkaffis var haldið áfram sem leið liggur
framhjá Hofmannaflöt og Meyjarsæti um
Uxahryggjaleið og niður Lundarreykjadal.
Áfram var ekið um Bæjarsveit framhjá flug-
vellinum við Stóra-Kropp, sem mikið er notaður
vegna nútímasamgangna Borgfirðinga, um eitt
mesta jarðhitasvæði landsins við Kleppjárns-
reyki og upp í Reykholtsdal. Þaðan var haldið
yfir í Hálsasveit og ekið meðfram Hvítá, þar
sem stansað var skamma stund til að ferðalöng-
unum gæfist kostur á að sjá þá miklu
nátturufegurð, sem birtist við Hvítá, þar sem
Hraunfossar koma undan Hallmundarhrauni
og sameinast ánni. Síðan var ekið upp í
Húsafell, þar sem hádegisverður var snæddur.
Friðjón Þórðarson, dóms- og kirkjumálaráð-
herra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins á
Vesturlandi, bauð menn velkomna til Vestur-
lands. í ræðu sinni fjallaði Friðjón um
uPPbyggingu á Vesturlandi og starfsemi Sjálf-
stæðisflokksins þar. Hann lýsti ennfremur
sögufrægum slóðum Borgarfjarðar- og Mýra-
sýslu. Síðan flutti formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, Geir Hallgrímsson, ræðu, sem birt er á
öðrum stað í blaðinu.
Einar Þ. Guðjohnsen lýsti næsta nágrenni
Húsafells og gerði grein fyrir örnefnum staðar-
ins. Að hádegisverði loknum var ekið framhjá
Kalmannstungu og niður Hvítársíðu og Staf-
holtstungur til Borgarness. Þar var ekið um
bæinn og síðan sem leið liggur yfir Borgarfjarð-
arbrúna og fram fyrir Hafnarfjall um Leirár-
sveit og Svínadal og yfir á Hvalfjarðarströnd.
Síðasti áningarstaður ferðarinnar var í Brynju-
dal, þar sem menn fengu kvöldverð við ána. Þar
heiðraði formaður ferðanefndar elsta ferða-
langinn, Jón Þorsteinsson, bifreiðastjóra, en
hann er 88 ára og hefur farið með í flestar
Varðarferðir. Þórir Lárusson, formaður Varðar,
þakkaði síðan samfylgdina og hvatti menn til
dáða á komandi vetri, þar sem borgarstjórnar-
kosningar væru að vori. Síðasti spölur leiðar-
innar lá um Kjósarskarð til Reykjavíkur og
heim var komið í jafn fögru veðri og lagt hafði
verið af stað í um morguninn, þreyttir en
ánægðir Varðarfélagar.
Sveinn Skúlason, framkvæmdastjóri fulltrúaráðsins i Reykjavik,
ræðir hér við Geir Hallgrímsson og Biörgu Einarsdóttur, formann
Ilvatar, i baksýn má sjá Markús Orn Antonsson, Vilhjálm Þ.
Vilhjálmsson og Birgi ísl. Gunnarsson.
Ferðalangar voru á öllum aldri. Hér má sjá framkvæmdastjórann,
Kjartan Gunnarsson, með þeim Borgari Þór Einarssyni og Iliu önnu
Haarde, en hún var yngst þeirra, sem þátt tóku i ferðinni, þriggja ára.
Geir Hallgrimsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Erna Finnsdóttir ásamt
barnabörnum þeirra.
Áð i kjarrivöxnum lautum Húsafells i glampandi sól og hita.
Handagangur i öskjunni. þegar matarpökkunum var úthlutað.
Vala og Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra, i hópi sjálfstæðismanna i Húsafelli.