Morgunblaðið - 07.07.1981, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ1981
r
McEnroe sneri taflinu við
• Tvær hliðar á nýja
Wimbledon-meistaran-,
um John McEnroe. Á
myndinni til vinstri er
hann á fleygiferð, ein-
beittur og ákveðinn. Á
myndinni til hægri má
með sanni segja að hann
sé þar einnig á fleygi-
ferð. Veslings spaðinn.
Myndin er frá fyrstu
umferðinni í Wimble-
don-keppninni, en eitt
sinn er honum þóttu
dómararnir vera vondir
við sig, lét hann reiði
sína bitna á spaða sín-
um. Áður en yfir lauk
hafði hann mölvað spað-
ann og varð að gera hlé
á keppninni þar til
hann hafði sótt vara-
spaða.
- sigraöi Björn Borg 3—1 og rauf þar
meö fimm ára einokun sænska kappans
Bandarikjamaðurinn John
McEnroe gerði sér lítið fyrir ojf
sigraði Björn Borg frá Sviþj<)ð i
úrslitaleik einliðaleiksins i
tennis á Wimhledon-leikunum á
laugardaginn. Þar með Iauk 41
ieiks sigurgöngu Björn Borgs á
móti þessu, en hann hefur unnið
einliðaleikinn fimm siðustu ár-
in. Flestir töldu hann sigur-
stranglegri aðilann gegn
McEnroe. sem hefur einkum
vakið á sér athygli fyrir illa
hegðun og framkomu. f öllum
umferðunum fram að úrslita-
leiknum lenti McEnroe i meiri
og minni útistöðum við dómara
og línuverði. Einn linuvörðinn
sagði hann vera blett á mann-
kyninu. sagði einn dómara vera
fífl og fávita og indverskan
linuvörð sakaði hann um hlut-
drægni, einnig að hann sæi
ekkert út á völlinn fyrir höfuð-
skrauti sínu, en hann var með
umfangsmikinn „túrban“ á
höfðinu. Var McEnroe sektaður
hvað eftir annað fyrir fram-
komu sina, þvi i öllum tilvikum
þótti framkoma hans vægast
sagt ofsafengin og mönnum var
hulin ráðgáta hvernig hann fór
að þvi að einbeita sér nóg til
þess að vinna alla leiki sína.
Stormasamt var einnig í kring
um McEnroe þegar hann var
ekki að keppa, til dæmis endaði
einn blaðamannafundur hjá
honum með skelfingu, banda-
rískir og evrópskir blaðamenn
létu þá hnefana tala og logaði
allt í slagsmálum um tíma.
McEnroe hafði fram að því átt í
vök að verjast spurningum
ensku blaðamannanna, en land-
ar McEnroe í blaðamannastétt-
inni reyndu að einhverju ieyti að
verja hann. Þegar einn Bretinn
spurði McEnroe: „Telur þú þig
eiga möguleika gegn Birni Borg,“
svaraði bandarískur blaðamaður
um hæl: „Þetta er barnaleg
spurning," og sauð þá allt upp
úr. McEnroe spratt loks á fætur,
öskraði: „Ég er búinn að fá mig
fullsaddan af ykkur, þið eruð
lygarar og aumingjar,“ og
strunsaði út.
En í úrslitaleiknum gegn Borg
hafði McEnroe hemil á skapi
sínu. „Það var vegna þess að ég
ber virðingu fyrir Birni og einn-
ig fyrir keppninni þrátt fyir það
sem á undan er gengið. Eg vissi
að ætti mér að takast að sigra
Björn yrði ég að einbeita mér af
alefli. Ég hefði ekki ráð á að
glíma við önnur vandamál í einu.
Og það tókst, ég er stoltur af því
að vera Wimbledon-meistari,
sérstaklega þar sem ég sigraði
einn af fremstu tennisleik-
mönnum allra tíma til að vinna
titilinn," sagði McEnroe við
fréttamenn eftir keppnina enar
hann sigraði Borg 3—1 í æsi-
spennandi viðureign.
Hinir 14.000 áhorfendur voru
frávita af spenningi meðan á
viðureign þeirra félaga stóð og
þegar McEnroe tryggði sér loks
sigur, eftir rúmlega 3,% klukku-
stundar keppni, spratt skarinn á
fætur og hyllti Bandaríkja-
manninn, allt var gleymt. En
þegar þeir félagarnir tóku á móti
verðlaunum sínum fór þó ekki
milli mála hvor átti hug og
hjörtu allra, það var Björn Borg.
Borg hafði betur í fyrstu hrin-
unni og sigraði 6—4 án teljandi
erfiðleika og töldu margir þá að
sýnt væri hver úrslit yrðu. Borg
sigraði McEnroe 3—2 í úrslitun-
um í fyrra og var viðureign
þeirra þá æsispennandi. En
McEnroe tók tvær næstu hrin-
urnar 7—6 í geysilega spennandi
keppni og hafði þar með náð
2—1 forystu. Á ýmsu gekk í
fjórðu rimmunni, þeir unnu upp-
gjöfina til skiptis, en illa gekk að
hala inn stigin. McEnroe hafði
þó betur eins og áður er komið
fram, hann sigraði 6—4 í síðustu
lotunni og hafði þar með tryggt
sér eftirminnilegan sigur.
Chris Evert Lloyd
öruggur sigurvegari
BANDARÍSKA stúlkan Chris
Evert Lloyd sigraði í einliðaleik
kvenna í Wimbledon-keppninni
i tennis og var þvi laugardagur-
inn eftirminnilegur fyrir
bandarísku keppendurna.
Lloyd sigraði nefnilega i ein-
liðaleik, Pam Shriver sigraði i
tviliðaleik ásamt landa sinum
Martinu Navratilovu, sem
reyndar er af tékknesku bergi
brotin, John McEnroe sigraði i
einliðaleik eins og kemur fram
hér á siðunni, auk þess sem
hann varð einnig meistari i
tvíliðaleik ásamt landa sinum
að nafni Smith.
Chris Evert Lloyd mætti
tékknesku stúlkunni Hönnu
Mandlikovu í úrslitunum og var
það létt verk og löðurmannlegt
hjá Kibbu, hún sigraði örugglega
6—2 og aftur 6—2.
Navratilova og Schriver
mættu Anne Smith og Kathy
Jordan í úrslitum og var þar ívið
jafnari viðureign. Navratilova
og Schriver sigruðu 2—0, nánar
tiltekið 6—3 og 7—6.
„Hef ekki orðaforða
John McEnroes"
• Björn Borg lék vel, en allt kom fyrir ekki.
EINS og fram hefur komið, var
John McEnroe ekki beinlinis
vinsælasti keppandinn á
Wimbledon-leikunum. Þegar
keppni lýkur er jafnan haldið
umfangsmikið uppskeruhóf,
þar sem sigurvegarar mæta
ásamt öðrum keppendum og
aðstandendum. Er venjan að
sigurvegarar haldi ræður,
snæði kvöldverð og dansi síðan
fram á rauðan morgun. Það
vakti óskipta athygli. að John
McEnroe mætti ekki i lokahóf-
ið, hvort heldur vegna óánægju
með framkomu i sinn garð eða
vcgna þess að hann skammaðist
sín fyrir eigin framkomu. Það
vissi enginn.
Chris Evert Lloyd, sigurvegar-
inn í einliðaleik kvenna og landi
McEnroe, gerði hins vegar
stormandi lukku þegar hún h<
ræðu sína. Hún sagði m.a.: „M
þykir leitt að John skuli ek
hafa séð sér fært að vera m
okkur í kvöld. Því var skotið
mér að ég yrði fyrir vikið ;
halda tvær ræður, eina fyrir m
og aðra fyrir hann. Ég held i
verði að halda mig við eina, i
bý ekki yfir sama orðaforða i
John."