Morgunblaðið - 07.07.1981, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1981
í GRILLVEISLU MEÐ
GÓÐUM KRÖKKUM
Svolítil útihátíö var haldin fyrir yngstu krakkana í Vinnuskóla Hafnarfjarðar rétt ofan viö
Urriöavatn í gær. Þar voru settar upp tjaldbúðir, kjöt grillaö á teini og fariö í leiki viö mikinn
fögnuö hátíöargesta.
Útiskemmtun-Grillveisla. Þannig hljóöaöi yfirskrift á dreifi-
bréfi, sem Vinnuskólinn í Hafnarfiröi og Skátafélagið
Hraunbúar sendu yngstu krökkunum, sem veriö höföu á
námskeiðum hjá Vinnuskólanum undanfarnar vikur.
Þaö stóö semsagt mikiö til. Setja átti upp tjaldbúðir, grilla
pulsur og heilu lambaskrokkana á teini auk þess sem fara
átti í alls konar leiki.
Svæöiö, þar sem öll þessi ósköp áttu aö fara fram, var
túniö fyrir ofan Urriðavatn við Flóttamannaveg. Þar hafa
skátar í Hafnarfiröi komiö stundum saman undir berum
himni, enda er þar góö aöstaöa til hvers kyns útimóta.
Krakkana í Hafnarfiröi hlakkaði mjög til þessarar skemmt-
unar, en tilhlökkunin var blandin kvíöa um hvort veöriö yröi
nógu gott mánudaginn þann sjötta júlí, þegar skemmtunin
átti aö fara fram.
Þegar mánudagurinn rann loks upp brosti sólin sínu
blíöasta brosi og steikjandi hiti var úti. Krakkarnir fóru því í
léttan fatnaö eins og stuttbuxur, bómullarboli eöa íþrótta-
gallana sína og strigaskóna.
Þeir voru orðnir svangir krakkarnir úr Hafnarfirði eftir viöburðarríkan
morgun og tóku því vel til matar síns.
3
Vinnuskóli Hafnarfjaröar er und-
ir yfirstjórn Æskulýösráös Hafnar-
fjaröar. Þaö var einmitt Æskulýös-
ráö, sem fór þess á leit viö
Skátafélagið Hraunbúa, aö þeir
skipulegöu þessa ágætu úti-
skemmtun um leiö og þeir kynntu
starfsemi skátanna.
Sumir voru matvandir
Krakkarnir, sem tóku þátt í
útiskemmtuninni, hafa líklega veriö
um 400 talsins. Þeir foreldrar, sem
höfðu aöstööu til að taka þátt í
Hjóluöu í fylgd lögregl-
unnar á skemmtunina
Þau, sem ætluöu aö hjóla í fylgd
lögreglunnar á skemmtunina, en
þaö voru einkum krakkar, sem
höföu veriö á hjólreiöanámskeiöi
hjá lögreglunni í síöastliöinni viku,
fóru aö huga aö hjólum sínum.
Þessum glæsilegu stálhestum,
sem eru bæöi meö bjöllu og
bremsu og fleiri fínum „græjum“.
Hinir krakkarnir söfnuöust saman
viö rútubíl, sem átti aö flytja þau á
staöinn. Klukkan var 10 f.h. þegar
þetta var, en áætlaö var aö
krakkarnir kæmu aftur til baka
klukkan 3 um eftirmiödaginn.
Þegar á mótstaöinn var komið
tóku fiokksstjórar frá vinnuskólan-
um og foringjar úr skátafélaginu
Hraunbúum á móti þeim.
Hörkukeppni á milli Höföa-
valla og Víöisstaöa
Þaö var strax hafist handa viö
aö útbúa útigrill, krydda lamba-
skrokkana og setja þá á teina. Þá
skipulögöu skátaforingjarnir alls
konar leiki, eins og riddarahlaup,
nýliöakast og boöhlaup ýmiss kon-
ar. Þaö var gífurleg keppni í
boðhlaupinu á milli Höföavalla og
Víðisstaða, en þar eru aöalstöövar
íþrótta-leikjanámskeiöa vinnuskól-
ans. Krakkarnir þurftu aö hlaupa á
öörum fæti aö ákveönu marki, slá í
þaö af alefli, en þetta mark var
venjulega afturendinn á skáta, og
skríöa svo á fjórum fótum til baka.
Þetta var erfitt en krakkana mun-
aöi ekki um aö taka svolítiö á,
enda hraust og dugleg börn.
Krakkarnir voru óspör á aö hvetja
sitt fólk; áfram Höföavellir, áfram
Víðisstaöir mátti heyra þau hrópa
af miklum ákafa.
Það voru margir krakkar, sem
vildu taka þátt í þessum leikjum og
sögöu: „Má ég vera meö, má ég
líka vera meö?“ En þá sagöi
skátaforinginn: „Þeir krakkar, sem
nauöa um aö fá aö vera meö, fá
ekki aö taka þátt í leikjum, þetta er
bara svona hjá okkur.“
Enginn atvinnulaus ungl-
ingur í Hafnarfiröi
Vinnuskólinn í Hafnarfiröi hefur
gengist fyrir ýmsum skemmtileg-
um nýjungum í sumarstarfi fyrir
börn og unglinga. Þaö er meðal
annars fyrir tilverknaö vinnuskól-
ans aö Hafnfiröingar geta státaö af
því, aö engir unglingar ganga þar
atvinnulausir í sumar og geri önnur
bæjarfélög betur.
Vinnuskólinn hefur gengist fyrir
svokölluöum íþrótta-leikja-
námskeiöum, þar sem yngri ald-
ursflokkarnir læra ýmsar íþrótta-
greinar og leiki. Þá rekur vinnu-
skólinn dagheimili og svokallaö
Hæfingarleikhús, þar sem börn
læra aö útbúa leikbrúður og sýna
brúöuleikrit bæöi á dagheimilum
og á íþrótta-leikjanámskeiöunum.
Eldri krakkarnir í vinnuskólunum
starfa aftur á móti aö því aö
hreinsa og fegra Hafnarfjaröarbæ.
Þeir hiröa endurgjaidslaust garöa
öryrkja og ellilífeyrisþega auk þess
sem þau taka aö sér, fyrir gjald, að
hiröa lóðir annarra Hafnfirðinga.
Farið var í ýmias konar leiki og reyndi
mi^ið i hraða og snerpu, en hvern
munar um að reyna svolítið 6 sig í
skemmtílegum leik?
Grillað lamb og pulsur voru réttir dagsins, en sumir voru svo matvandir að þeir vildu ekki lambakjötiö.