Morgunblaðið - 07.07.1981, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1981
39
Minning:
Ingólfur Asmundsson
fyrrv. skrifstofustjóri
Fæddur G. júli 1906.
Dáinn 26. júní 1981.
„AA hryKKjast ok KloAjast hór um fáa daxa.
aA hoilsast ok kvoAjast. þad or lífsins saxa.“
segir í gamalli, þekktri vísu. Sá,
sem lengi lifir, á það víst, að
kveðja marga vini sína hinztu
kveðju og sjá á bakþeim í gröfina,
einum af öðrum. I dag kveð ég
fornvin minn, Ingólf Ásmundsson,
fyrrverandi skrifstofustjóra hjá
Eimskipafélagi íslands, er lézt 26.
júní eftir erfiða sjúkdómslegu á
75. aldursári. Við áttum langa
samleið.
Við ólumst upp á Akureyri og
var vinátta með fjölskyldum
okkar. Kolbeinn Árnason, fóstur-
faðir Ingólfs, kaupmaður á
Oddeyri, var góðkunningi og
starfsbróðir föður míns, Kristjáns
Árnasonar, kaupmanns í Bótinni.
Ásmundur, faðir Ingólfs, hafði
hinsvegar verið föður mínum sam-
tíða á Grund í Eyjafirði áður en
Ingólfur fæddist. Ásmundur var
smiður góður og smíðaði Grund-
arkirkju. Hann missti konu sína,
móður Ingólfs, fríðleiks- og efn-
iskonu, og fluttist vestur um haf
eftir að hann varð ekkill, og tóku
hjónin, Kolbeinn Árnason og kona
hans, frú Sigríður Jónsdóttir frá
Miklagarði í Eyjafirði, drenginn
að sér, ættleiddu hann og ólu hann
upp. Ingi Kolbeins var hann því
kallaður í æsku af félögum sínum.
Móðir Ingólfs, Þóra Jó'nasdóttir
frá Svínaskála í Fáskrúðsfirði var
orðlögð fyrir fegurð og stundum
kölluð in fagra eins og Helga
Þorsteinsdóttir forðum. Ásmund-
ur var myndarlegur maður, hagur,
eins og áður var getið, og hugljúf-
ur öllum sem þekktu hann, að því
er mér hefir verið sagt. Hann
kvæntist á ný í Ameríku og
eignaðist þar syni.
Eg minnist Ingólfs sem drengs á
Akureyri. Hann var svartur á hár,
móeygður, með suðrænu yfir-
bragði, vel vaxinn og vel á sig
kominn, ágætlega til þess fallinn
að stunda íþróttir og láta að sér
kveða á því sviði. Dáðist ég mjög
að fræknleik hans, er þeir sýndu
íþrótt sína, hinir ungu íþrótta-
garpar, í fimleikahúsi Gagnfræða-
skólans á Akureyri. Man ég sér-
staklega eftir Ingólfi, hve léttilega
hann stökk yfir „hestinn" og kom
aldrei við! Það voru ekki margir
sem léku það eftir honum. En er
hann fluttist með fósturforeldrum
sínum til Reykjavíkur, opnuðust
honum nýir möguleikar til
íþróttaiðkana og var hann eftir-
sóttur hjá mörgum félögum. Hann
gerðist liðsmaður með Víkingum í
knattspyrnu og keppti með þeim.
Inga Kolbeins mátti þar aldrei
vanta.
Ég fékk að fara suður eitt
sumar og búa hjá þeim Kolbeini
og Sigríði á Bergstaðastræti 2, þar
sem þau voru þá til húsa. Mitt
erindi var það að læra á píanó
sumarlangt hjá dönskum manni,
Söegaard að nafni, er skemmti
gestum á kaffihúsinu „Iðnó“ með
léttum lögum, sem hann lék ásamt
fiðluleikara, landa sínum. Ingólfur
tók við „sveitastráknum", félaga
sínum að norðan, og var eitt hans
fyrsta verk að fara með mig í
Haraldarbúð og dubba mig upp.
Fékk ég þá í fyrsta sinn mansétt-
skyrtu, gekk í jakkafötum með
flibba og bindi og þóttist nú
heldur maður með mönnum, þótt
ég kynni engan veginn að bera mig
rétt til. En Ingi var fyrirmyndin
og reyndi ég að haga mér eftir
honum. Hann leiðbeindi mér í
borginni og fræddi mig um margt,
sem var mér hugleikið, svo sem
um tónlistarmenn sem komið
höfðu til Reykjavíkur og hann
hafði hlustað á. Bar þar hæst
Harald Sigurðsson. Við fengum
reyndar að heyra saman tónleika
hjónanna Haralds og Dóru í Nýja
Bíói og er það einn af merkisvið-
burðum ævi minnar.
Ingólfur var þá sjálfur nemandi
í píanóleik hjá Markúsi Krist-
jánssyni meðfram starfi sínu hjá
Eimskipafélagi íslands, og notaði
hvert tækifæri og meira að segja
matartímana til að æfa sig. Hann
gat þó stundum ekki stillt sig um
að grípa niður í einhverja sögu-
bókina, sem hann var að lesa, eftir
Jules Verne, Dumas, Oppenheim,
Marryat eða einhvern annan höf-
und spennandi skáldsagna, sem
hann benti mér á að kynnast af
eigin raun.
Annars var starfið hjá Eim-
skipafélagi íslands, fyrst sem
sendill, en að lokum sem hægri
hönd og trúnaðarmaður forstjór-
ans, það starf, sem mest mótaði
Ingólf og varð æ umsvifameira
eftir því sem hann lét meira til sín
taka um stjórn Eimskipafélagsins.
Það varð hans ævistarf, og mun
áhrifa hans hafa gætt þar lengi á
hinn heillavænlegasta hátt. En
þann æviþátt hans munu aðrir
rekja.
Ingólfur var útivistarmaður af
lífi og sál. Hann eignaðist sumar-
bústað við Þingvallavatn, sem var
athvarf hans og unaðarland um
langa hríð frá erilsömu starfi. Þar
fékk ég iðulega að dvelja með
honum og á ég þaðan margar og
góðar minningar, sem aldrei fyrn-
ast. Mér eru ekki sízt eftirminni-
legar gönguferðir okkar — oft í
fylgd með Birni Ólafssyni fiðlu-
leikara — um Grafninginn eða í
heiðinni og hjöllunum þar inn af.
Þar ríkti hin fullkomna kyrrð og
urðum við sem nýir menn í faðmi
náttúrunnar. Hygg ég, að Ingólfur
hafi á þessum ferðum okkar sagt
mér meira af högum sínum og
verið opinskárri en annars staðar
var kostur. Á rökkurstundum voru
lesnar fornsögur við lampaljós í
kofanum okkar, upphátt, og var
það Ingólfi mikil skemmtan, enda
átti það vel við staðinn og þá
hugarkyrrð er ríkti hér í hjarta
landsins. Ingólfur var annars dul-
ur maður og ekki fyrir það gefinn
að flíka tilfinningum sínum við
aðra menn. Hér, í hinni fögru
Þingvallasveit, naut hann sín til
fulls, hér fékk hugur hans vængi,
er gátu iyft honum hátt yfir
lífsstrit hversdagsleikans, sem oft
var honum andstætt. Hann hefði
átt að setjast að í „nýja heimin-
um“, hugsaði ég stundum. Þar
hefði framtakssemi hans og for-
sjálni getað komið að gagni svo
um munaði. En hvað um það:
tónlistarhneigðin, sem sennilega
var ríkasti þátturinn í eðlisfari
Ingólfs hefði hlotið þar betri
aðhlynningu en hann fékk notið
hér heima á uppvaxtarárum sín-
um. En þótt hann yrði fremur
leikur en lærður í tónlistinni, var
það ekki minna um vert, því
enginn þjónar henni betur og af
óeigingjarnari alúð en einmitt
listvinurinn. Hans kærleikur til
listarinnar er hreinn og óbland-
inn.
Með þessum fátæklegu minn-
ingarorðum vildi ég mega votta
ekkju Ingólfs, frú Guðrúnu Páls-
dóttur, og börnum þeirra samúð
mína og þökk fyrir tryggð og
trúfesti á langri ævileið. Hann
skilur eftir sig skarð hjá mér, hinn
dáni vinur, en nú er hann kominn
til hvíldar. Hvíli hann í friði!
Árni Kristjánsson
Ingólfur Ásmundsson, fyrrum
skrifstofustjóri Eimskipafélags
Islands, lézt í Borgarspítaianum í
Reykjavík föstudaginn 26. júní.
Hafði hann fengið aðsvif röskum
þrem mánuðum áður, og þá flutt-
ur meðvitundarlaus í spítala. Þar
hlaut hann hina beztu læknismeð-
ferð og hjúkrun, en komst aldrei
til meðvitundar aftur.
Ingólfur Ásmundsson var fædd-
ur á Akureyri 6. júlí 1906. Voru
foreldrar hans hjónin Ásmundur
Bjarnason, trésmiður, ættaður frá
Fáskrúðsfirði og Þóra Jónasdóttir
frá Svínaskála í Eskifirði. Höfðu
foreldrar hans þá fyrir skömmu
flutzt búferlum frá Austfjörðum
til Akureyrar. Þegar Ingólfur er
enn kornungur og óskírður fellur
móðir hans frá. Var hann þá
tekinn í fóstur af Kolbeini Árna-
syni kaupmanpi, og konu hans,
Sigríði Jónsdóttur, en vinfengi og
nábýli var þar á milli. Höfðu
foreldrar Ingólfs fengið á leigu
húsnæði hjá þeim Kolbeini og
Sigríði, þegar þau fluttu til Akur-
eyrar.
Ingólfur elst upp hjá fósturfor-
eldrum sínum til fullorðinsára og
flyzt með þeim til Reykjavíkur
árið 1920. Skömmu eftir að hann
kemur til Reykjavíkur ræðst hann
til starfa sem sendill hjá Eim-
skipafélagi Islands frá 1. júlí 1920,
þá 14 ára að aldri. Vann hann
síðan að ýmsum störfum á skrif-
stofu félagsins til 1. janúar 1926,
og aftur frá 1. júlí 1929 til 1. maí
1962. Er tímar liðu voru honum
falin æ viðameiri störf, og 24. apríl
1945 var hann ráðinn skrifstofu-
stjóri hjá félaginu og gegndi hann
því starfi til 1. maí 1962, er hann
lét af störfum að eigin ósk.
Þegar Ingólfur gerir hlé á störf-
um sínum hjá Eimskipafélagi Is-
lands í byrjun árs 1926, flyzt hann
til föður síns, sem þá bjó í
Minneapolis í Bandaríkjunum.
Hafði Ásmundur flutzt vestur um
haf nokkrum árum eftir lát konu
sinnar, fyrst til Kanada og síðar
Bandaríkjanna. Giftist Ásmundur
í annað sinn í Kanada, konu af
íslenzkum ættum. Áttu þau saman
tvo syni, sem enn eru á lífi og
búsettir vestra.
Ingólfur dvaldist með föður
sínum í Minneapolis í tæp þrjú og
hálft ár. Stundaði hann þar verzl-
unar- og endurskoðunarnám, og
jafnframt vann hann þar skrif-
stofustörf með náminu. Er ekki að
efa, að nám hans og störf í
Bandaríkjunum hafa reynzt hon-
um nytsöm síðar, er hann kemur
aftur til starfa hér heima hjá
Eimskipafélagi Islands. Þar fær
hann að kynnast tveimur tímum í
rekstri félagsins, annars vegar
erfiðleikum kreppuáranna fyrir
stríð og hinsvegar uppbyggingu í
starfsemi félagsins eftir styrjöld-
ina, þegar hann er orðinn skrif-
stofustjóri félagsins, hægri hönd
framkvæmdastjórans og stað-
gengill í fjarveru hans. Hann var
þá orðinn þaulkunnugur öllum
þáttum í rekstri félagsins, og átti
hann upp frá því drjúgan þátt í að
móta starfsemina undir handar-
jaðri framkvæmdastjórans. ÖIl
störf hans hjá félaginu mótuðust
af eðlislægri háttvísi hans og
snyrtimennsku, og naut hann
óskerts trausts jafnt viðskipta-
manna þess, opinberra aðila sem
og starfsmanna á sjó og landi.
Félagið og starfsmenn þess þakka
honum nú að leiðarlokum fyrir
forystu hans og leiðsögn á löngum
og farsælum starfsferli hjá félag-
inu.
Ingólfur Ásmundsson var mikill
áhugamaður um íþróttir. Hann
lék með meistaraliði Víkings í
knattspyrnu í allmörg ár við
góðan orðstír. Einnig lék hann
badminton að staðaldri um ára-
tuga skeið og varð íslandsmeistari
í tvíliðaleik oftar en einu sinni. Þá
var hann og mjög fær bridgespil-
ari, og varð sveit hans margsinnis
íslandsmeistari í þeirri grein. í
íþrótt og spili gekk Ingólfur ætíð
til hvers leiks í frísku keppnis-
skapi og sönnum íþróttaanda.
Ingólfur unni góðri tónlist og
var vel menntaður á því sviði.
Hann nam píanóleik og tónfræði
hjá Markúsi Kristjánssyni, Emil
Thoroddsen og Páli ísólfssyni, og
einnig mun hann eitthvað hafa
stundað tónlistarnám á meðan
hann dvaldi í Bandaríkjunum.
Hann var mjög fær píanóleikari
og hafði yndi af að leika á píanó
heima hjá sér á degi hverjum,
fyrir fjölskyldu sína og góða vini.
Hann sótti tónleika hvenær sem
færi gafst, en sjálfur mun hann
ekki hafa haft áhuga á að leika
opinberlega.
Ingólfur giftist, 21. júní 1930,
Guðrúnu Pálsdóttur Eggerts
Ólafssonar, dr. phil, og eignuðust
þau þrjú börn, Eddu, Kolbein og
Þóru. Þau urðu fyrir þeirri sáru
sorg, að yngsta dóttir þeirra, Þóra,
féll frá í blóma lífsins, aðeins 25
ára áð aldri, frá eiginmanni og
ungum börnum.
Við samstarfsmenn Ingólfs
Ásmundssonar munum lengi
geyma minningu hans. Við hjónin
sendum eiginkonu hans, börnum
og öðrum ástvinum innilegar sam-
úðarkveðjur.
Valtýr Hákonarson
Við, nokkrir vinir Ingólfs Ás-
mundssonar, urðum þeirrar
ánægju aðnjótandi að eiga með
honum skemmtilegar samveru-
stundir, sumir okkar um langt
árabil, aðrir skemur.
Fyrir þær viljum við nú þakka,
er á leiðarenda er komið. Okkur
miðlaði hann margs af reynslu
sinni og þekkingu. Allt slíkt gerði
hann á einkar ánægjulegan hátt.
Hann var mjög viðræðugóður
maður og víðlesinn.
Tónlistin átti hug hans og
hjarta alla tíð. Hann var maður
tónlistarinnar í þess orðs bestu
merkingu. íþrótta- og útivistar-
maður var hann, „Víkingur" allt
til hinstu stundar. Hann var og
einn fremsti badmintonleikari
bæjarins um árabil. Hann hafði og
mikla ánægju af því að taka í spil
og tók þátt í bridgekeppnum hér á
árum aður. Sat hann einmitt að
spilum ásamt nokkrum gömlum
spilafélögum sínum er hann veikt-
ist skyndilega og var fluttur í
sjúkrahús. — Þaðan átti hann
ekki afturkvæmt.
Er leiðir hafa skilið með okkur
og Ingólfi þökkum við honum
samfylgdina og góða viðkynningu.
— Hans ljúfmannlegu, yfirlætis-
lausu og frjálslegu framkomu
þökkum við honum.
Minningin um svo mætan mann
verður ætíð haldgott nesti hverj-
um manni, í daglegu lífi og starfi
og í samskiptum við aðra. Fjöl-
skyldu Ingólfs og ættingjum hans
nær og fjær sendum við innilegar
samúðarkveðjur.
Vinir.
— 1982
Bifreiðavinningar, kr. 30.000
6455 21536 33945 36359
10001 22235 34828 50100
Utanlandsferðir eftir vali, kr. 10.000
166B 22170 36119 47458 67211
15137 25730 38216 56500 74328
15761 26807 38425 58297 74522
16220 31816 46619 62014 78935
20769 35103 46962 67103 78972
Húsbúnadur eftir vali, kr. 2.000
5636 14508 30131 41062 59280
5946 14675 30289 41667 59654
7610 18480 30596 44027 62832
10907 21524 30940 47918 63524
11117 22459 32153 50815 72458
11927 25966 34810 53756 75208
12388 26074 35600 58081 77234
1444 1 26609 40847 59186 77541
Húsbúnadur eftir vali, kr. 700
20 7804 15411 24585 31128 39770 47140 55225 63342 71778
34 8065 15694 24609 31271 39789 47381 55289 63379 72425
133 8172 15732 24733 31354 40021 47395 55402 63408 72537
748 8181 15815 24770 31517 40049 47397 55517 63653 72634
1024 8294 15945 24782 31717 40301 47583 55766 63900 72783
1055 8694 15985 24864 31729 40386 47671 56006 63987 72906
1113 8743 16007 25069 31779 40550 47833 56279 64138* 73256
1142 8961 16210 25129 31859 40663 47864 56455 64239 73832
1194 8962 17025 25215 32071 40749 47V66 56762 64309 73845
1216 8982 17253 25270 32116 40763 48292 56862 64424 73919
1229 9316 17627 25336 32222 40907 48423 57132 64623 73952
1260 9481 18035 25470 32291 40953 48800 57267 64942 74083
1360 9885 18199 25690 32292 40977 48863 57549 65117 74110
1536 9936 18651 25850 32380 41102 43967 57764 65268 74213
1667 9970 18695 25863 32538 41135 48880 57850 65429 74568
1785 10322 18724 26076 32682 41565 49022 58269 65565 74586
1892 10478 18945 26096 32771 41736 49302 50441 65581 74735
1966 10891 19186 26129 32919 42131 49820 58622 65631 74794
2091 11315 19358 26263 32988 42297 49833 58822 65702 75302
2096 11338 19426 26655 33071 42345 30072 58860 65773 75314
2294 11626 19549 26846 33482 42364 50355 59016 65970 75373
2343 11686 19713 27130 33547 42517 30629 59229 66401 75385
2384 11831 19719 27456 34241 42563 50673 59491 66413 75456
2538 11909 19755 27526 34500 42650 50820 59944 66426 75502
2683 11988 19789 27753 34523 42916 50832 59972 66430 76126
2684 12290 19805 27867 34593 42951 51017 60136 67033 76143
3022 12313 19936 27934 34629 43176 51056 60231 67148 76240
3197 12770 20014 28173 34763 43292 51064 60285 67311 76293
3409 12781 20026 28185 35072 43419 51286 60322 67475 76319
3439 12879 20176 28188 35155 43589 51335 603U2 67804 •76369
3448 13108 20186 28193 35341 43680 51483 60390 68148 77280
3627 13127 20242 28233 35354 43/22 51521 60458 68297 77334
3727 13388 20397 28237 35417 43825 52172 60676 68313 7 7363
3786 13402 20682 28253 35724 44048 52335 60961 68471 77463
3797 13512 21111 28285 35879 44282 52917 60993 68627 7 7582
4370 13905 21159 28317 36178 44572 53110 61113 68673 77777
4557 13932 21502 28349 36433 44691 53181 61256 68745 78009
4828 14198 21513 28509 36612 44935 53193 61266 68764 78518
4930 14270 21544 28590 36702 45092 53231 61357 68967 78808
5026 14277 21683 28786 36869 45358 53239 61452 69267 78957
5046 14312 22186 28948 36998 45450 53416 61600 69286 79016
5142 14319 22366 29110 37036 45977 53483 61648 69813 79024
5201 14713 22521 29145 37398 46161 53585 61657 700R6 79133
5203 14819 23344 29297 37444 46170 53671 61792 70280 79412
5352 14924 23575 29412 37924 46303 53729 61820 70388 79415
5619 15087 23658 29717 37987 46522 53730 61874 70499 79462
5944 15100 23776 29846 38609 46566 53881 62105 70659 79534
6626 15160 23811 29881 38644 46666 53957 62136 70677 79544
7345 15178 23829 29906 38932 46692 54004 62250 70903 79613
7451 15191 23852 30019 39143 46899 54090 62316 70967
7488 15284 23937 30264 39279 46911 54531 62715 71236
7514 15285 24136 30345 39322 46923 54844 63127 71342
7765 15372 24217 30922 39326 46947 55026 63162 71604
VINNINGAR
i HAPPDRÆTTI
3. FLOKKUR 1981
Sumarbústaður, kr. 350.000