Morgunblaðið - 07.07.1981, Side 44

Morgunblaðið - 07.07.1981, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ1981 HÖGNI HREKKVlSI „ Aiö £RU Öll Ö>£55/ MSDIÓ& / ' Húsnæði og ríkisforsjá Gamall íbúðareigandi skrif- ar: Eg las mér til mikillar furðu í dálkum Velvakanda um daginn klausu frá GS um leiguíbúða- skortinn. Sá góði maður lét sér helst detta það í hug að taka íbúðirnar af því gamla fólki, sem á sínum tíma kom sér upp íbúð fyrir sig og fjölskyldu sína og hefur nú rúmt um sig í þeim, þegar aðrir úr fjölskyldunni eru látnir eða búnir að koma sér upp eigin heimilum. Skyldu „opinberir aðilar" taka af fólk- inu íbúðirnar og ráðstafa þeim, þannig að flytja aðra inn í þær. Færa fólkið saman, eins og GS vill. Alveg datt yfir mig þegar ég sá þetta. Að til skuli fólk, sem vill að „opinberir aðilar" ráðsk- ist þannig með einstaklingana að þeir telji þá, mæli upp fermetrana sem þeir búa í, deili svo með fjöldanum og flytji fólk saman holt og bolt. Út af fyrir sig er þetta svo mikil fjarstæða, að varla er ástæða til að ræða það — allra síst við Islendinga, sem ekki er enn búið að berja svo í kerfi, að þeir geta nokkuð ráðið sínu lífi. Og þó? Ég fór að hugsa um það, hvort raunverulega væri búið í valdabaráttunni að lauma inn á okkur Islendinga ríkisforsjár- hugsunarhætti í svo ríkum mæli, að til væru orðnir ein- staklingar sem vilja helst að ríkið taki þá að sér og hafi í „búri“ eða „stíu“, þar sem þeir þurfa ekkert að hugsa, fá bara rétt nægilegt viðurværi til að tóra og ráða engu um sitt líf. Ég á bágt með að trúa því, að sé til fólk á íslandi, sem vill það. Samt virðist oft að kröfuhópar af ýmsu tagi átti sig ekki á þessu, þegar þeir eru að fá ríkisvaldinu allt sitt ráð, fyrir einhver svolítil hlunnindi, sem þeir sækjast eftir í það sinn. Og ef maður lítur í kringum sig nú síðustu 2—3 árin, þá er greinileg stefna yfirvalda í þá átt að koma slíku helsi á einstaklingana. Að minnsta kosti að koma á þá bandi, svo að yfirvöld geti sjálf ákveðið hve langt þau gefa svo út tauminn. Maður verður þá eins og lax á færi, brýst um þegar séð er að hverju stefnir, en það er sá sem um stöngina heldur sem hefur allt manns ráð í hendi sér. Þannig er þetta greinilega orðið í húsnæðismálum. Það er smám saman með reglugerðum og lögum búið að búa svo um hnútana að einstaklingar geta ekki komið sér upp íbúðum, ekki nema fá fyrir velvilja eða kunn- ingsskap við einhvern ráða- mann „félagslega íbúð“ með sínum kvöðum. Öll viðráðanleg íbúðalán fara til þess háttar íbúða, og þarmeð er verið að ná öllum á krókinn. Og þá er kannski ekki svo langt þangað til farið er að draga inn. Raunar þegar byrjað með því að leggja svo há fasteignagjöld á íbúðar- húsnæði, að þeir sem hafa sparað og komið sér því upp, geta ekki haldið íbúðum sínum. Ef fólk brýst ekki um og reynir að losna af króknum, sýnist mér að lítið verði orðið af frelsi einstaklinganna, það dýrmætasta sem við eigum í þessu landi. Ég er hrædd um að við, sem getum unnt íslenzkri þjóð ein- hvers annars en að einstakl- ingarnir verði þannig settir í hólf og mataðir þar af ríkis- valdi, sem hefur allt manns ráð í hendi sér, verðum að fara að taka til hendi og andæfa. Ann- ars verður þetta hlutskipti barna okkar. Enn um Suðurheim Þorsteinn Guðjónsson skrifar: í grein í Velvakanda 27. júní, gegn stuttu bréfi mínu í sömu dálkum hálfum mánuði fyrr, segir Rakel Viggósdóttir, að ferða- skrifstofa nokkur hafi boðið blaðamönnum til suðurlanda að líta á hótel og dvalarstaði, en síðan hafi „tilviljun" ráðið því, að báðir skrifuðu um sömu fjölskyld- una þar búsetta, á mjög líkan hátt. Er svo að sjá, að R.V. telji mjög ámælisvert fyrir mig að hafa ekki látið mér skiljast að um „tilviljun" hafi verið að ræða. — Engu að síður er það enn ætlun mín, að þetta hafi ekki verið nein tilviljun, heldur hljóti þarna að hafa komið til ábending frá veit- andanum, um efnisval, og jafnvel, að í þeirri ábendingu hafi falizt fleira en í fyrstu sýndist. Ég hygg, að dæmið (öskubuskuævintýrið) hafi af hans hendi verið valið sem hið fyrsta af mörgum, sem átti að fara að sýna, um farsæl hjóna- bönd á suðurlöndum — í ákveðn- um tilgangi að sjálfsögðu. Aðalsetningin í hinni stuttu grein minni 14. júní var þessi: „Auglýsingastarfsemi ferða- skrifstofa er orðin að þjóðfélags- vandamáli hér á landi". Þetta er skoðun mín, og ég ítreka hana hér með. Greinarhöfundurinn 27. júní talaði þarna m.a. um „þá fyrirlit- legu rógferð (rógsherferð?), sem a.m.k. sumar ferðaskrifstofur „nota til að ota sínum tota“. Auðsætt er að hún hefur mjög ákveðna afstöðu til aðila sam- keppninnar á þessu sviði. Rakel Viggósdóttir hefur gert grein fyrir sjónarmiði sínu, og er það vel. En, — mættum við lesendur Velvakanda eiga von tignari gesta?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.