Morgunblaðið - 07.07.1981, Page 48
r
Síminná QQnQQ
algreiðslunni er OOUOO
ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ1981
Stuðningur við N-Atlantshafsflugið:
Jákvæð afstaða
í Lúxemborg?
SENDINEFND frá Lúxem-
borjí með Josy Barthel sam-
Könguráðherra í hroddi fylk-
inttar kemur til íslands í dax
til viðræðna við islenzk
stjórnvöld um áframhald að-
stoðar við rekstur Norður-
AtlantshafsfluKs FluKleiða,
en á sl. ári var slík aðstoð
ákveðin til eins árs í senn.
Var hársbreidd
frá því að
hreppa bifreið
KARL Jóhannsson var hárs-
hreidd frá því að vinna
Chrysler-bifreið á GR-mót-
inu í Kolfi sem haldið var á
Grafarholtsvellinum um
helgina.
Þannig var mál með vexti,
að Chrysler-bifreiðin átti að
falla í hlut þess kylfings sem
væri svo heppinn að slá holu
í höggi á 17. braut.
Og Karl var ótrúlega ná-
lægt því að vinna afrekið,
teigskot hans stefndi beint á
holuna án þess að hrökkva
ofan í.
Hafnaði kúlan loks 228
sentimetra frá holunni og
fékk Karl þó alltént auka-
verðlaun fyrir að komast
næst holunni í einu höggi. En
varla hafa skiptin verið góð.
Ríkisstjórn Lúxemborgar tók
málið fyrir á ríkisstjórnarfundi
sl. föstudag, en að þeim fundi
loknum var ákveðið að sam-
gönguráðherra, flugmálastjóri
Lúxemborgar og fulltrúar úr
samgöngu- og utanríkisráðuneyt-
unum héldu til íslands til við-
ræðna um málið.
Steingrímur Hermannsson
samgönguráðherra sagði í sam-
tali við Mbl. í gærkvöldi, að
stjórnvöld í Lúxemborg hefðu
ekki tilkynnt um afstöðu sína, en
Steingrímur kvað allar líkur
benda til að þeir kæmu með
jákvæða niðurstöðu um áfram-
haldandi aðstoð þar sem þeir í
fyrsta lagi hefðu ákveðið að koma
til viðræðna og að sú ákvörðun
hefði verið tekin eftir ríkisstjórn-
arfundinn sl. föstudag.
Um 300 börn frá Hafnarfirði gerðu sér dagamun í gær og héldu hátíð við Urriðakotsvatn. Voru það
þátttakendur i íþrótta- og leikjanámskeiði, skólagörðum og starfsvöllum sem grilluðu sér kjöt á teini
og dvöldu daglangt við leiki og skemmtun skátafélagsins Hraunbúa. Sjá nánar á bls. 30. Ljmm. Emiiía.
Flakasala Coldwater
7% meiri en í fyrra
Er ekki i vafa um, að núverandi verðlag er á föstum grunni, segir Þorsteinn Gíslason
„FLAKASALA okkar er yfir 7%
umfram það. sem hún var i fyrra.
og er heldur vaxandi. Birgðastað-
an er góð og birgðir i eðlilegu
hlutfalli við sölu,“ sagði Þorsteinn
Gislason. forstjóri Coldwater Sea-
Raett um gerð rammasamn-
ings og skiptingu fískistofna
VIÐRÆÐUNEFND frá Efna
hagsbandalagi Evrópu kemur
hingað til lands i dag til embætt-
ismannaviðræðna um hafsvæðið
milli íslands og Grænlands og
munu viðræðurnar hefjast á
morgun.
Af íslands hálfu munu þeir
Hannes Hafstein, skrifstofustjóri
í utanríkisráðuneytinu, Jón L.
Arnalds, ráðuneytisstjóri í sjávar-
útvegsmálaráðuneytinu, Már El-
ísson, fiskimálastjóri og Jakob
Jakobsson, fiskifræðingur, ræða
við sendinefndina, en í henni eru 3
fulltrúar frá Framkvæmdastjórn
Efnahagsbandalagsins undir for-
sæti Mogens Marcussen, fulltrúi
frá skrifstofu ráðherraráðs
bandalagsins og 9 áheyrnar-
fulltrúar frá hinum ýmsu aðildar-
löndum.
Rætt verður um gerð ramma-
samnings, fiskverndun og
fiskveiðimál og jafnframt um
skiptingu fiskistofna, hvernig
hyggilegast sé að nýta þá og hvað
komi í hvers hlut. En að sögn
Hannesar Hafstein er þetta fjórði
fundur þessara aðilja og er það nú
fyrst, sem rætt verður um skipt-
ingu fiskistofna og nýtingu þeirra.
food Corporation. sölufyrirtækis
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna
í Bandaríkjunum. i samtali við
Mbl.. er hann var inntur álits á
hlaðaskrifum að undanförnu. þar
scm gefið hefur verið í skyn, að
nýlegar hækkanir á Bandarikja-
markaði standist ekki, m.a. vegna
þess, að Kanadamenn hafi á sama
tíma lækkað sina framleiðslu.
— Þótt fisksala sé enn háð nokk-
urri sölutregðu almennt, þá höfum
við enn ekki séð nein merki þess, að
nýlegar verðhækkanir standist ekki.
Þessar hækkanir voru ekki gerðar
fyrr en grundvöllur var orðinn fyrir
þeim, og viðskiptavinir okkar hafa
almennt tekið þeim sem eðlilegum
ráðstöfunum, enda engin merki
þess, að salan hafi liðið við það.
Kanadamenn hafa margir hækk-
að í hlutfalli við okkur, engir
lækkað, sem vitað er um. Yfirleitt er
verðið hjá Kanadamönnum 30 cent-
um á pund lægri en okkar, og við
erum orðnir talsvert vanir að selja í
samkeppni við þá á móti slíkum
verðmun.
Þá kom það fram hjá Þorsteini
Gíslasyni, að það verkaði ekki vel á
markaðinn, að heyra orðróm um að
verðlag okkar sé í óvissu. — Ég er
þó ekki í neinum vafa um að
núverandi verðlag er á föstum
grundvelli og flakasala muni halda
áfram, að vera eðlilegar á næstu
mánuðum. Óttinn um að við höfum
spennt bogann of hátt er einungis
hjá þeim, sem ekki eru vel upplýstir
um sölukerfi okkar.
Aðvörun barnalækna:
Ungbörn fái
ekki hunang
BARNALÆKNAR í Bandarikjun-
um hafa varað foreldra við að gefa
ungb<>rnum hunang þar sem i 10 til
15% af öllu hunangi hafa fundist
sporar af bakteriunni clostridium
botulini, sem framleiðir eiturefni
og valdið getur alvarlegum sjúk-
dómum. Sporar þessir geta þrifist i
Heimsmeistaraeinvígið í skák:
Hollendingar hefja aðgerð-
ir til stuðnings Friðriki
HOLLENSKA skáksambandið hcf-
ur nú hafið aðgerðir til stuðnings
ákvörðun Friðriks Ólafssonar að
jafnræði skuli ríkja meðal kepp-
enda í hcimsmeistaraeinviginu i
skák, en Friðrik hefur sem kunn-
ugt er. frestað einviginu til þess að
freista þess að fjölskylda Viktors
Korchnoi fái að fara frjáls ferða
sinna frá Sovétrikjunum áður en
Karpov og Korchnoi hefja taflið
um heimsmeistaratitilinn.
Hollenska skáksambandið mun
þegar hafa haft samband við öll
skáksambönd í Vestur-Evrópu, lið-
lega 20 talsins, en fulltrúi Hollend-
inga á þingi FIDE í Atlanta í
Bandaríkjunum í lok þessa mánað-
ar, verður dr. Euwe fyrrverandi
forseti FIDE og mun hann veita
Friðriki stuðning sinn þar.
Finnska skáksambandið mun
vera í einhverri kiemmu með að
taka afstöðu í málinu vegna þrýst-
ings frá granna sínum í austri og
danska skáksambandið vill hvorki
taka afstöðu í málinu né veita
umboð sitt, en að öðru leyti munu
norrænu skáksamböndin fylgja
stefnu Friðriks Ólafssonar í mál-
Fjögur aðildarsambönd Skák-
sambands Norðurlanda, Skáksam-
band íslands, Skáksamband Fær-
eyja, Skáksamband Noregs og
Skáksamband Svíþjóðar, leggja
fast, í samþykkt sem þau hafa gert,
að FIDE og Skáksambandi Sovét-
ríkjanna að þau geri allt, sem í
þeirra valdi stendur til þess að
tryggja, að áskorandanum, Korc-
hnoi verði leyft að fá fjölskyldu
sína til sín, þannig að skákmenn-
irnir mætist við sanngjarnar og
jafnar aðstæður. Sjá frétt á miðsíðu
og viðbrögð Friðriks við samþykkt
skáksambandanna.
meltingarvegi ungbarna allt að
eins árs gömlum. en ekki i fullorðn-
um og við ákveðin skilyrði fram-
leiða þeir eitur sem veldur sýk-
ingu.
Morgunblaöið sneri sér til Árna
V. Þórssonar barnalæknis og sagði
hann að við víðtækar rannsóknir
m.a. í Bandaríkjunum hefðu áður-
greindar bakteríur komið fram í 10
til 15% af því hunangi sem rannsak-
að var. Sporar bakteríunnar fram-
leiddu við ákveðin skilyrði eiturefni
og fram til þessa hefði það aðallega
komið fram í matvælum, en nú væri
komið í ljós að skilyrði gætu virzt
fyrir hendi í meltingarvegi ung-
barna. Sporarnir þola hins vegar
ekki meltingarveg fullorðinna og
sagði Árni ekki fullnaðarskýringar
á því fundnar.
Árni V. Þórsson sagði menn hafa
sett skyndidauða ungbarna, sem
ekki hefðu fundizt skýringar á,
nokkuð í samband við þetta eitur-
efni, en í ákveðnum tilvikum hefðu
fundizt merki um það. Sagði hann
að meðal helztu einkenna barna, er
hefðu fengið þessa bakteríur, væru
hægðatregða og slappleiki. Ekki
kvað Árni hafa fundizt nein tilfelli
um þessi veikindi hjá íslenzkum
börnum, en full ástæða væri til að
vara fólk við að gefa ungbörnum
innan eins árs hunang.