Morgunblaðið - 26.07.1981, Blaðsíða 4
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ1981
Ekkert
húsanna f
raðhúsalengiunni
eins
AD NÁ FRAM KOSTUM
EINBÝLISHÚSANNA
Valdís Bjarnadóttir arkitekt er
höfundur skipulagsins í Öskjuhlíö-
inni. Aöspurö nánar um skipulag
raöhúsanna sagöi hún, aö meö
þessu fyrirkomulagi væri veriö aö
ná fram sem flestum kostum
einbýlishúsanna auk þess aö gefa
fólki, sem vill búa saman, til dæmis
foreldrum og uppkomnum börnum
þeirra, tækifæri til aö byggja
saman.
Einnig heföi þessi leiö veriö farin
til aö skapa meiri fjölbreytni í
byggöinni í Öskjuhlíö og gera hana
Irflegri.
Sagt frá nýstárlegum
hugmyndum hvaö
varðar raöhúsagerö
í Reykjavík og víöar
NÝTIR FÓLK SÉR
MÖGULEIKANA?
Þaö hefur áöur veriö farin sú
leiö, aö leyfa húsbyggjendum I
Reykjavík sjálfum aö ákveöa gerð
húsa sinna, en þaö var viö skipulag
míösvæöis Seljahverfis á árunum
1977—1978.
Sagöi Guörún Jónsdóttir í því
sambandi, aö reyndin þá heföi
oröiö sú, aö minna heföi oröiö úr
því aö húsbyggjendur nýttu sér
þessa möguleika. Annaöhvort
heföi fólk ekki veriö ánægt meö
stærö húsa sinna og viljaö stækka
þau eöa þaö sá fram á aö þaö gæti
sparaö sér töluveröa fjármuni meö
því aö nota sömu teikninguna.
Viö spuröum Valdísi Bjarnadótt-
ur aö því hvort ekki væri hætta á
því aö sama sagan endurtæki sig í
skipulagi Öskjuhlíöar?
Sagöi Valdís, aö fólk heföi tekiö
mjög vel í þær hugmyndir, sem
komu fram á fundi, sem haldinn
var með húsbyggjendum í öskju-
hlíð. En sú hætta væri auövitað
alltaf fyrir hendi, aö fólk geröi sér
ekki nógu vel grein fyrir þeim
möguleikum, sem um væri aö
ræöa. Sagöi hún, aö þaö gætti líka
tilhneigingar hjá fólki, aö horfa í
kostnaö á hönnun húsa sinna,
síöur hugsaö út í þaö, aö hús sem
hannaö er eftir þörfum hverrar
fjölskyldu hlýtur aö vera mikils
viröi, og vel hannað hús getur
sparaö ýmsan annan kostnaö.
Valdís sagöi ennfremur, aö víöa
erlendis, þar sem slíkar byggöir
Það vakti athygli þeirra, sam aóttu um
lóðir í Öskjuhlíðinni siðastliðinn vetur, að
ýmsar nýstárlegar hugmyndir komu fram
hvað varöar hönnun raðhúsa þar.
Sú hugmynd, sem einkum þótti nýlunda
var að inn í raöhúsalengju koma eitt eða
fleiri tvíbýlishús.
Það vakti líka eftirtekt, aö í skipulagi
raðhúsanna er gefin upp ákveðin há-
marksstærð og útlínur aðalbyggingar, en
húsbyggjendum bent á og þeir hvattir til
að hafa sjálfir áhrif á endanlegar útlínur
húsa sinna með útbyggingum og innbygg-
ingum. Þetta þýðir að raðhús í sömu lengju
þurfa engan veginn að vera öll eins og
mega gjarnan vera misstór. Það verður þó
að gœta vandlega ákveðins samrœmis í
hönnun ytra útlits, svo að hús með ólíkar
grunnmyndir stingi ekki í stúf hvert viö
annaö.
í samtali við Guðrúnu Jónsdóttur, for-
stöðumann Borgarskipulags Reykjavíkur,
um þessi mál, kom fram, að þarna gœfist
hverri fjölskyldu tækifæri til að láta hanna
húsnæði eftir eigin þörfum. Húsbyggjend-
ur gætu spurt sjálfa sig: „Hvað er þaö sem
við höfum þörf fyrir og hvernig getum viö
komíð okkur sem best fyrir innan þess
rýmis, sem viö höfum til umráða?
Mynd af líkani sömu raöhúsa og kemur glögglega í Ijós
mismunandi stærð og hvernig hægt er að nota útbyggingar og
innbyggingar til afmörkunar á garði.
þ E 3
u □ □.
.. 1
Teikning af raðhúsi, sem sýnir mismunandi útlit og stærð húsa.
Höfundur Valdís Bjarnadóttir.
MITSUBISHI
MOTORS
Colt-inn hefur hlotió alþjóða viðurkenningu, — ekki eingöngu
fyrir sérstaka sparneytni heldur og fyrir útlit sitt, aksturs-
eiginleika, frábæra hljóðeinangrun, vandaðan frágang, og
fullkominn innri búnað.
Ennfremur er Colt-inn tæknilega hábróaður, framhjóla-
drifinn blll og býður upp á aksturseiginleika sport-
bflsins og hagkvæmni fjölskyldubllsins.
Þetta eru háttstemdar fullyróingar, en þvf ekki að
koma, skoða hann og reynsluaka Coltinum.
[hIHEKLAHF
JjjLaugavegi 170-172 Sími 21240
STÆRSTA OG FJÖLH/EFASTA FYRIRTÆKI JAPANS