Morgunblaðið - 26.07.1981, Side 14
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 1981
Pottarím
Umsjón: SIGRUN
DAVÍÐSDÓTTIR
í dag er bakstur á dagskrá.
Hér á eftir fylgja tvær upp-
skriftir, önnur að kjarngóðu og
bragðmiklu brauði, en sú síðari
að léttum og ljúffengum snúð-
u:n. Og vegna þess að væntan-
lega eru nú ýmsir í ferðahugleið-
ingum, sakar ekki að minna á að
svona gómsæti er góður ferða-
félagi og getur t.d. lífgað upp á
hugsanlega rigningardaga ...
Það er enn fremur rétt að minna
á að gerdeig er mjög skemmti-
legt í hendi og gaman að móta úr
því. Það er því ekki úr vegi að
bjóða yngra fólkinu að spreyta
sig við mótunina. Allt verður
þetta fallegt og girnilegt á að
líta, þegar úr ofninum kemur.
Góða skemmtun!
Ostabrauð
Þetta er matarmikið brauð og
hentar því ljómandi vel sem
meðlæti með mat, ekki sízt
súpum. En það er einnig gott eitt
sér, með eða án smjörs eftir
smekk. Hugmyndin að þessu
brauði er vafalaust komin sunn-
an að, þar sem osta- og krydd-
jurtamenning er mikil. Ein-
hverntíma hefði svona brauð
líklega þótt fullgild máltíð.
Enn og aftur minni ég á að
gerbakstur er bæði auðveldur og
skemmtilegur. Látið allar þjóð-
sögur um hið gagnstæða sem
vind um eyru þjóta. En munið að
gerdeig getur verið misjafnt
viðureignar og dyntótt, rétt eins
og bakarinn sjálfur. En það
verður alltaf bragðgott, það er
óhætt að treysta því. Og ekki
sízt þegar þetta brauð er annars
vegar. Það er fremur þétt, enda
vel í það borið. Ef ykkur sýnist
svo, getið þið sleppt feitinni. Og
þið notið auðvitað þær krydd-
jurtir sem þið náið í, hvað
annað...
25 gr pressuger eða þurrger
'k 1 mjólk, vatn, eða mjólk og
vatn til helminga
100 gr rifinn ostur, gjarnan
óðals- eða goudaostur
1 dós kotasæla
1—2 msk kryddjurtir, t.d. timi-
an og oregano
1 dl matarolía, t.d. sólbióma-
olía. eða 100 gr brætt smjðr
2 dl heilhveiti
11 dl óhvittað hveiti, eða annað
finmalað hveiti
1. Það fer eftir því hvort
ykkur liggur á eða ekki, hvort
þið notið kaldan eða volgan
vökva. Það er t.d. upplagt að
blanda og hnoða deigið 'k sólar-
hring áður en þið bakið það, og
geyma t.d. í kæliskáp. En ef þið
notið þurrger, þá farið þið eftir
leiðbeiningum á umbúðunum.
En alla vega þá myljið þið gerið
í skál, hellið vökvanum yfir,
ásamt olíu, kryddi og osti.
Stappið kotasælu saman við.
Það er fljótlegt ef þið eigið
rafmagnskvörn. Blandið kota-
sælunni í deigið.
2. Þá er það mjölið. Dembið
heilhveitinu út í og síðan 10 dl af
hveiti. Blandið og hnoðið deigið.
Vísast þurfið þið enn töluvert af
mjöli. Hnoðið eins og þið þurfið
af því í deigið þar til það loðir
vel saman. Setjið deigið í skál-
ina, eða í plastpoka, og látið það
nú lyfta sér undir dúk eins lengi
og ykkur hentar, en ekki skemur
en í 1 klst. En munið að laga
deigið að ykkar tíma en ekki
öfugt...
3. Þegar deigið hefur lyft sér
vel og þið hafið tíma, þá hnoðið
það enn. Mótið nú deigið í litlar
bollur eða 3—4 snittubrauð. Og
auðvitað er einnig tilvalið að
útbúa bollur úr helmingi deigs-
ins og snittubrauð úr hinum
helmingnum.
4. Setjið ofninn á 250°.
5. Þegar brauðið er orðið
fallega háreist, þá setjið það inn
í miðjan heitan ofninn og látið
það bakast þar í um 20—25 mín,
eða þar til ilminn leggur úr
ofninum, brauðið er fagurgyllt
og í því heyrist holt hljóð, þegar
bankað er í það. Þá er tími til
kominn að taka það úr ofninum
og gæða sér á því, eða geyma til
betri tíma. Þetta brauð er tilval-
ið að frysta og grípa til þegar
tækifærið kallar, eða þegar ykk-
ur langar í eitthvað verulega
gott
Ef ykkur sýnist svo getið þið
sleppt kotasælunni. Undanrenna
er einnig ágætur bakstursvökvi,
sem vert er að minna á. En
vatnið er alltaf handhægt, ekki
satt...
Leikskólasnúðar
Þessi uppskrift varð til um
daginn, þegar átti að gefa skóla-
félögum í leikskólanum eitthvað
gott. Þess var eindregið óskað að
þetta góða ætti að vera snúðar
með súkkulaði. Ymsum þótti
þeir nokkuð góðir, svo það er
ekki úr vegi að leyfa öðrum að
njóta þeirra. Þetta eru kanel-
snúðar með súkkulaðisósu á, svo
þetta er vægast sagt klístrað
góðgæti, í gamalli og nýrri
merkingu þess orðs. Snúðarnir
eru Iangbeztir heitir eða volgir,
beint úr. ofninum. Einnig getið
þið fryst þá og hitað, þegar þið
berið þá fram. Setjið þá ekki
súkkulaðið á, fyrr en þeir eru
bornir fram. Og svo er bezt að
hafa nóg af servíettum við
hendina. En allra gagnlegast er
þó að hafa þurrundið handklæði
til taks ...
25 gr ger
'k 1 vatn
1 dl hunang eða púðursykur
2 dl rúgmjöl, gjarnan gróft
1 msk kanell
(VA msk nýsteytt kardimomma,
eða tilbúið duft)
1 egg (má sleppa)
10 dl óhvittað hveiti, eða venju-
legt hveiti
1. Um hitastigið á vatninu, sjá
hér að ofan. Þið blandið pressu-
geri eða þurrgeri í vatnið, hun-
angið eða púðursykurinn, rúg-
mjölið, kryddið og eggið. Hellið
svo 10 dl af hveiti saman við og
hnoðið þessu saman. Vafalaust
þurfið þið svo meira hveiti, þar
til deigið loðir vel saman. Nú á
það að lyfta sér vel, gjarnan um
nótt um kæliskáp.
2. Fylling:
2—3 dl púðursykur
2 msk kanell
1 dl matarolia eða 50 gr mjúkt
smjör (það þarf ekki eins mikið
ef smjör er notað)
3. Nú er deigið flatt út og
fyllingunni smurt á. Það er
þægilegast að gera það með því
að skipta deiginu í tvennt.
Smyrjið fyrst feitinni á deigið,
blandið síðan saman púðursykri
og kanel og stráið yfir. Rúllið
deiginu og gerið úr því vafning
og skerið hann í 2—3 cm þykkar
sneiðar, og setjið þær á smurða
plötu. Þar eru komnir snúðar.
Látið þá nú lyfta sér þar til þeir
eru orðnir bústnir og pattara-
legir. Það tekur um 30 mín.
4. Setjið ofninn á 250°
5. Bakið snúðana í um 20 mín.,
eða þar til þeir eru greinilega
bakaðir. Þið munið að bakara-
ofnar eru nokkuð mismunandi,
svo það er bezt að fylgjast vel
með gangi mála í ofninum, ekki
satt...
6. A meðan snúðarnir eru að
lyfta sér, snúið þið ykkur að
sósugerðinni. Eg verð að segja
eins og er, að mér leizt ekki
meira en svo á þetta samkrull,
snúða og súkkulaði, en varð
nokkuð undrandi þegar til kom.
Ég átti ekki súkkulaði og sauð
sósu úr kakói, sem ég nota
annars oft t.d. á ís. (Mér leizt
ekkert vel á kakósósuna þegar
mér var gefin hún í fyrsta skipti
en síðan ber ég ekki við að búa
til íssósu úr súkkulaði. Það má
betrumbæta hana á ýmsa vegu,
og hún getur þá orðið býsna
ljúffeng.) Hér er hún eins og
hún var notuð á snúðana:
1 dl kakó
1 dl vatn
xk dl sykur
lk dl púðursykur
Þetta er soðið saman svo að
sósan verði nokkuð þykk. Þegar
snúðarnir koma úr ofninum,
sætlega ilmandi, er sósunni
jafnað á þá. Ég get lofað því að
þið fáið hýrt bros fyrir ykkar
snúð, þegar þið berið snúðana
fram ...
í stuttu máli
í KRON-búðunum fæst gott
og frekar ódýrt, óhvíttað sænskt
hveiti, Juvei. í Heilsuhúsinu á
Skólavörðustíg er býsna gott
kryddúrval, bæði heilt krydd,
mulið og steytt. I Jurtinni við
Lækjartorg fæst alveg sérstakt
síróp, mösursíróp (maple-syrup),
sem er tappað af amerískri
trjátegund. Það er í fallegum
krukkum og því tilvalið til gjafa.
Það gerir pönnukökur, klatta
vöfflur að hátíðarmat.
Bragðið er handan og
ofan við bragð af
öðru sírópi.
var hægfað fá bilaleígubíl
í London
ítvodaga
fyrir aðeins £22
Það er hægt ennþá!
Margir halda að bílaleigubílar séu
svo dýrir, að það sé venjulegum
ferðamanni ómögulegt að nota þá í
Bretlandi. Þetta er mikill misskilning-
ur.
Hér einu sinni var hægt að fá leigðan
bíl í tvo daga t.d. laugardag og
sunnudag, og greiða í leigu u.þ.b.
£25 sterlingspund. Þetta er hægt
ennþá, þrátt fyrir verðhækkanir og
verðbólgu.
Þú getur fengið Ford Fiesta eða Mini
Metro fyrir £11,00 á dag, og 100 mílur
innifaldar. Á sama hátt kostar Fiat
Strada £12.00 á dag.
Svo eru sumir sem segja að England
sé dýrt land.
Þú þarft ekki að gera langar áætlanir
fyrirfram. Við bókum þig á fyrsta
gististaðinn, en móttökustjórinn þar
sér um að bóka þig á það næsta - og
síðan koll af kolli. Þú ákveður vega-
lengdina, sem þú ætlar að aka í einu,
og átt vísan gististað þegar þú
kemur á staðinn. Allt eftir þínu eigin
vali.
Eitt geturðu bókað. Gamla, góða
London breytist stöðugt með tíman-
um, en England heldur áfram að vera
hrífandi. Þú kynnist því best á bíla-
leigubíl á viðráðanlegu verði. Apex
fargjaldið til London með Flugleið-
um kostar aðeins kr. 2.465.-
FLUGLEIÐIR
Traust fólk hjá góóu félagl