Morgunblaðið - 26.07.1981, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 1981
47
Attræö:
Marta Guðmunds-
dóttir frá Laufási
Marta Guðmundsdóttir er fædd
í Stykkishólmi 27. júlí 1901, dóttir
hjónanna Guðrúnar Jónsdóttur og
Guðmundar Lárussonar. Hún
flutti með foreldrum sínum árið
1902 til Bíldudals og 1913 fluttu
þau í Bakkadal í Ketildalahreppi.
Þar bjuggu þau að Vinaminni, en
Guðmundur stundaði sjósókn
ásamt smábúskap svo sem títt var
á þeim tímum.
Marta giftist 19. nóvember árið
1921 Þórhalli Guðmundssyni og
eiga þau því 60 ára brúðkaupsaf-
mæli í haust. Þórhallur er fæddur
að Setbergi í Fellum, N-Múla-
sýslu, og voru foreldrar hans
Guðmundur Hallsson og Margrét
Einarsdóttir. Ungu hjónin reistu
Sænskir bræður skrifa og óska
eftir pennavinum:
Stefan Anderson (12 ára),
Serenadgatan 23,
214 73 Malmö,
Sverige.
Peter Anderson (14 ára),
Serenadgatan 23,
214 73 Malmö,
Sverige.
Sextán ára japönsk stúlka óskar
eftir að fræðast um land og þjóð
og skrifast á við íslenzka jafn-
öldru sína:
Emiko Takao,
669 Kamiiwanari Miyuki chyo,
Fukuyama city,
Hiroshima,
720 Japan.
Fjórtán ára japönsk stúlka sem
áhuga hefur á tónlist og skrifar
á ensku, eins og reyndar allir
þeir Japanir sem skrifa til Mbl. í
þeirri von að eignast pennavini:
Michiko Nakajima,
399-2 Kuiseke Kosyoku City,
Nagano,
387 Japan.
Tveir átján ára skólapiltar frá
Ghana skrifa. Þeir hafa marg-
vísleg áhugamál, svosem borð-
tennis og póstkortaskipti:
Cebiba Sylvester,
Box 84 Berckum,
Chana.
K. Manu Alexander,
Box 84 Berckum,
Ghana.
Frá Bretlandi barst bréf frá 32
ára konu sem starfar í verk-
smiðju. Hún dundar sér helzt við
prjónaskap, póstkortasöfnun og
bréfaskriftir:
Susan Pearson,
58 Berry Landsroad,
Moreton, Wirral, L46 7UA,
England.
Breti nokkur skrifar og óskar
eftir að skipta á 50 frímerkjum
við einhverja lesendur Mbl.
Hann býður upp á aðild að
svokölluðum „50 frímerkja
klúbbi", en hún er ókeypis og
eintak af félagaskrá, en tilgang-
ur klúbbsins er að koma á
frímerkjaskiptum einstakiinga í
hinum ýmsum heimshornum:
Warren Edwardes,
58 Colin Park Road,
Colindale,
London NW9,
England.
sér bú að Laufási í landi Bakka
ásamt öðrum ungum hjónum,
Kristjönu Ólafsdóttur og Bjarna
Árnasyni, og nefndu þau bæinn
Laufás.
Þórhallur stundaði sjómennsku
ásamt búskapnum og var tíðum
fjarverandi á vertíð eða við aðra
vinnu til fanga fyrir heimilið.
Kom það því oft í hlut Mörtu að
sjá um búið, þótt lítið væri, ásamt
stórum hópi barna. Mörtu fórst
hvorttveggja vel úr hendi og kom
henni þar að góðum notum hennar
helstu eiginleikar, mikið þrek og
létt lund. Mörg voru handtökin
innanhúss og utan og ekki voru
nútímaþægindi til að létta undir,
og varð hún að búa sem mest að
sínu.
Marta og Þórhallur eignuðust
níu börn og lifa sjö þeirra í dag.
Guðmundur, frumburður þeirra,
fórst með bv. Sviða 2. des. 1941, 19
ára gamall. Öll börn þeirra fædd-
ust í Laufási en þaðan fluttu
Marta og Þórhallur til Bíldudals
árið 1947. Þegar öll börnin voru
flutt að heiman, ýmist til náms
eða starfa annars staðar, fluttu
þau frá Bíldudal, árið 1957. Hafa
þau búið í Reykjavík síðan, að
undanskildu einu ári. Marta hefur
notið þess að vera nálæg börnum
sínum og vinum en hún hefur
jafnan verið vinamörg og munu
margir þeirra heimsækja hana að
Furugerði 1, þar sem Marta tekur
á móti gestum í samkomusalnum
sunnudaginn 26. júlí nk.
Árna ég Mörtu til heilla með
afmælið og megi vinir og vanda-
menn njóta samvista hennar í
mörg ókomin ár.
Guðjón Ó. Hansson ökukennari
er sextugur í dag sunnudag 26. júlí
1981. Guðjón er fæddur í Olafsvík
og alinn þar upp til tólf ára
aldurs. Tveggja ára missti hann
móður sína en var hjá ömmu sinni
til tíu ára aldurs, eftir það var
hann hjá vandalausum hjónum í
þrjú ár og fluttist síðan í Borgar-
fjörð. Frá þrettán ára aldri hefur
hann unnið fyrir sér, daginn eftir
ferminguna fór hann í vegavinnu
að aka hestvögnum og var búið í
tjöldum með skrínukost. Guðjón
hefur því kynnst harðri lífsbar-
áttu sem mótað hefur hans hörðu
Sextugur:
Guðjón O. Hans-
son ökukennari
baráttu í ýmsum málum. Þegar
Guðjón var í Borgarfirði var hann
í Reykholti í tvo vetur. Það er eina
skólaganga hans sem þætti ekki
mikið í dag, en hinn harði skóli
lífsins hefur verið hans Háskóli. í
Reykholti kynntist hann ung-
mennafélagshreyfingunni og tók
hann mikinn þátt í íþróttum. Á
þessum árum var hann sérstak-
lega í frjálsum íþróttum í Ung-
mennafélaginu Borg. í stríðsbyrj-
un fluttist hann til Reykjavíkur og
hefur búið þar síðan. Þegar Guð-
jón kom til Reykjavíkur réðst
hann í vinnu hjá hernum og vann
að auki í ýmsri annarri vinnu.
1944 tók Guðjoi. bílpróf og meira-
próf og hefur stundað leigubíla-
akstur síðan eða í 37 ár, fyrst á
Litlu bílastöðinni og gerði þá út
marga bíia á stöðinni, síðan á
Hreyfli þegar Litla bílastöðin var
sameinuð Hreyfli. 1954 hóf Guð-
jón ökukennslu og hefur verið einn
af umsvifamestu ökukennurum
síðan og starfað mikið að umferð-
armálum. Margur ökumaðurinn
hefur fengið sínar fyrstu leiðbein-
ingar í akstri og umferðarreglum
hjá Guðjóni, en hann hefur kennt
á þriðja þúsund manns á bíl.
Guðjón hefur unnið milkið að
félagsmálum og var formaður
ökukennarafélagsins í 12 ár auk
þess sat Guðjón lengi í umferðar-
ráði og vann mikið að hægribreyt-
ingunni þegar breytt var úr
vinstri umferð í hægri umferð hér
á landi. Guðjón hefur setið í stjórn
Hreyfils og í ýmsum nefndum þess
félagsskapar (nú Frami) og svo í
Samvinnufélaginu Hreyfli.
Ekki er vafi á að Guðjón býr
yfir ýmsum fróðleik úr starfi sínu
í gegnum árin og er það áreiðan-
lega efni í margar bækur eins og
„79 af stöðinni".
Guðjón hefur unnið mikið í
Sjálfstæðisflokknum, sat meðal
annars í stjórn Óðins í mörg ár og
ýmsum nefndum og ráðum innan
flokksins, hann hefur verið í
fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík árum saman og setið á
mörgum landsfundum og aldrei
farið troðnar slóðir en talist til
frjálslyndari manna í flokknum.
Oft hefur hann tekið til máls á
fundum, komið með nýjar tillögur
í lýðræðisátt og fylgt þeim eftir af
sínu alkunna kappi. Þá hefur
Guðjón ekki sofnað á verðinum
hafi honum þótt flokksforustan
komin út af línuni og bent á það
sem betur mætti fara í flokks-
starfinu og fengið stundum heldur
óblíða gagnrýni fyrir, en Guðjón
hefur aldrei vikið frá stefnunni og
oftast reynst sannspár þegar fram
liðu stundir. Fjölmargt af því sem
flokkurinn hefur í sinni stefnu-
skrá er komið frá Guðjóni. Það
hafði kannski ekki alltaf fengið
hljómgrunn í byrjun en seinna
orðið að baráttumálum flokksins.
Ég kynntist Guðjóni Hanssyni í
Sjálfstæðisflokknum fyrir aldar-
fjórðungi, allan þennan tíma hef-
ur hann verið á fullri ferð í
sjálfboðavinnu fyrir flokkinn og
hef ég engum manni kynnst í
flokknum sem hefur haft jafn
mikinn áhuga á málefnum flokks-
ins og alltaf verið tilbúinn í að
vinna fyrir flokkinn, t.d. man ég
vel eftir hlutaveltunum í Lista-
mannaskálanum hér áður fyrr en
þá var Guðjón á fullri ferð að
útvega vinninga og í fjáröflun
fyrir flokkinn. Það er ómetanlegt
fyrir Sjálfstæðisflokkinn að hafa
slíka starfskrafta. Frá því að
Guðjón fór að vinna fyrir sér 13
ára gamall hefur hann aldrei
skort fé, allt hefur orðið að
peningum í hans höndum. Hann
hefur hjálpað mörgum manninum
í gegnum árin sem hafa átt í
tímabundnum erfiðleikum, með
alls konar aðstoð og greiðasemi og
hefur maður oft undrast þá miklu
starfsorku sem hann hefur. 1950
giftist Guðjón Hansson Guðrúnu
Brynjólfsdóttur frá Sólheimum í
Hrunamannahreppi og eiga þau
fiögur uppkomin börn.
Innilegar hamingjuóskir á af-
mælisdaginn.
Kristján Guðbjartsson.
Guðjón Hansson tekur á móti
gestum í Ilreyfilshúsinu eftir kl.
18.00 á sunnudaginn 26. júli
1981.
KENNY
komin út ný
hljómplata með banda-
ántrýsöngvaran-
um Kenny Rogers.
Sjaldan hefur kappan-
um tekist jafn vel upp
og nú, og á þessari
plötu kemur vel Ijós af
hverju Kenny er jafnan
kallaður konungur
kántrýsöngvaranna.
Fæst í öllum
hljómplötuversl-
unum
KENINY R0GERS -
Y0UR
FALKINN
Suðurlandsbrau
LaUgavegi24 —
Austurveri — síi
8 — sími 84870
sími 18670
i 33360
ni
L0VE