Morgunblaðið - 26.07.1981, Blaðsíða 30
62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ1981
ODYRAR OG VANDAÐAR
BULGARÍUFERÐIR
Nú komast allir ódýrt á
„Gullnu ströndina“ við Svartahaf
Vegna sérstaklega hagkvæmra samninga við ferðaskrifstofur í Amster-
dam getum viö nú boöiö upp á ódýrar og vandaöar sólarferöir á „Gullnu
ströndina" í Búlgaríu. 18 dagar á góðu baöstrandarhóteli meö morgunmat
og kvöldmat innifaliö og þrír dagar í Amsterdam ókeypis í kaupbæti.
Brottfarardagar: 6. og
20. igúst, 10. og 24. sept.
ISCARGO
Austurstræti 3. S. 12125 og 10542
A
FRÁ JÚCOSIAVIU
Höfum fengiö glæsilegt úrval af hús-
gögnum frá Júgóslavíu. Hjónarúm 1.80x2
metrar úr furu og brúnbæsuö. Einnig
eins manns rúm 0.90x2 m, úr furu og
einnig dökk. Barnakojur — Furusófasett
— Pinnastólar og bord. Sérlega hagstætt
verö. Gjörið svo vel og lítió inn.
Skafen-
Smiðjuvegi 6 - Sími 44544
Kjörgarði, Laugavegi 59 - Sími 16975
20 pundari á
flugu nr. 12!
Veiðin í Laugardalsá í Ögursveit
hefur verið frekar dræm að undan-
förnu, samkvæmt upplýsingum
Sigurjóns Samúelssonar bónda á
Hrafnabjörgum í Laugardal. Sig-
urjón sagði fremur lítið af laxi
hafa gengið að undanförnu, en
siðasta „holl“ hefði þó náð 19
löxum. Þyngsti laxinn sem veiðst
hefur vó 20 pund og tók sá flugu,
Teal and Black nr. 12, en sú er
gjöful silungafluga. Veiddist fisk-
urinn í Blámýrarfljóti en veiði-
maðurinn var Finnbogi Magnússon
frá Patreksfirði.
Að sögn Sigurjóns er nokkuð af
fiski í ánni, en hann er tregur til að
taka. í gær var rigning fyrir
vestan og vestanátt og gott vatn í
ánni. Laxinn er kominn um alla á,
m.a. veiddist fiskur á dögunum
fyrir ofan Laugarbólsvatn, á veiði-
stað sem Birnufoss heitir. Talsvert
veiðist nú á flugu i Laugardalsá og
sagði Sigurjón að litlar dökkar
flugur hefðu reynst fengsælastar.
Hátt á þriðja
hundrað fiskar úr
Laxá í Leirársveit
Talsvert af laxi er nú í Laxá í
Leirársveit og hefur veiðin gengið
nokkuð vel að undanförnu, að því
er Sigurður Sigurðsson bóndi í
Stóra-Lambhaga tjáði Morgun-
blaðinu. Nú hafa veiðst i Laxá hátt
á þriðja hundrað laxar, en laxinn
er kominn um alla ána og hefur
m.a. veiðst í Eyrarvatni. Hingað til
hefur laxinn í ánni verið vænn, en
nú er smálaxinn farinn að ganga
talsvcrt. Nú er þokkalegt vatn í
Laxá og hefur það verið að aukast,
en fyrir um það bil viku síðan var
það með minna móti. Stærsti
laxinn úr ánni vó 16 pund, að því er
Sigurður sagði, en veitt er á sjö
stengur í Laxá í Leirársveit.
Tekur illa í Norðurá
Heldur gengur veiðin treglega í
Norðurá í Borgarfirði um þessar
mundir, samkvæmt upplýsingum
sem Morgunblaðið fékk í veiðihús-
inu við ána. í gærmorgun komu t.d.
aðeins upp sjö fiskar sem þykir
heldur rýrt, en nú er veitt á 15
stengur í Norðurá. Nú eru komnir
710 laxar upp úr ánni og er það
heldur lakari veiði en var á sama
tima í fyrra. Talsvert er af fiski í
ánni, en hann er tregur til að taka
og einnig er talið, samkvæmt
upplýsingum sem fengust í veiði-
húsinu, að nú sé minna af fiski í
ánni en í fyrra. Nú er gott vatn í
Norðurá, en lítið vatn hefur háð
ánni að undanförnu. Talsvert er
farið að veiðast á flugu og eru
Collie Dog, Þingeyingur og Tveir á
kamrinum sagðar gjöfulastar um
þessar mundir.
Góð veiði í Elliðaánum
„Veíðin í Elliðaánum hefur
gengið ljómandi vel,“ sagði Friðrik
Stefánsson framkvæmdastjóri
Stangaveiðifélags Reykjavíkur í
spjalli við Morgunblaðið i gær, er
hann var inntur eftir því hvernig
veiðin gengi i Elliðaánum. Sagði
Friðrik að hátt í 600 laxar hefðu
veiðst, sem væri miklum mun betri
veiði en á sama tíma í fyrra. Miðað
við sumarið 1979 er veiðin heldur
betri nú í ár. Friðrik sagði að oft
hefðu yfir 30 laxar veiðst yfir
daginn i Elliðaánum og hefði
veiðin verið góð allt frá síðustu
mánaðamótum.
Flugan er nú skæðasta agnið í
Elliðaánum og sagði Friðrik að
Blue Charm, og Collie Dog hefðu
reynst vel.
- ÓJ.
Kynnist eigin landi
6 daga tjaldferð
1. Dagur: Reykjavík - Hvalfjöröur - Dragháls - Reykholt -
Hraunfossar - Kaldidalur - Þingvellir.
2. Dagur: Þingvellir - Laugarvatn - Geysir - Gullfoss - Stöng -
Hjálparfoss - Dómadalur - Landmannalaugar.
3. Dagur: Landmannalaugar - Fjallabak - Ófærufoss - Eldgjá.
4. Dagur: Eldgjá - Skaftártungur - Klaustur - Siða -
Lómagnúpur - Skaftafell - Öræfasveit - Jökullón -
Skaftafell.
5. Dagur: Skaftafell - Mýrdalssandur- Vík - Skógarfoss -
Eyjafjöll - Þórsmörk.
6. Dagur: Þórsmörk - Hella - Selfoss - Hellisheiði - Reykjavík.
Aöeins kr. 1.250,-
Innifalið í verði:
Tjaldgisting meö fullu fæöi, ásamt fararstjórn.
Allar nánari upplýsingar í síma 13499 og 13491 eöa á
skrifstofunni.
ÚLFAR
JAC0BSEN
FERÐASKRIFSTOFA AUSTURSTRÆTI9
SÍMAR13499 0G13491.