Morgunblaðið - 12.09.1981, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1981
19
Er tilefni til ofsafrétta af
atvinnuástandi á Akureyri?
- Eftir Ingvar Gísla-
son, menntamálaráð-
herra
Morgunblaðið hefur gert að
umtalsefni viðtal mitt við Dag á
Akureyri varðandi vandamál út-
flutningsiðnaðarins, einkum verk-
smiðja Sambands ísl. samvinnufé-
laga á Akureyri.
I þessu viðtali benti ég á þann
mikla vanda, sem útflutningsiðn-
aður á við að búa og nauðsyn þess
að úr vandanum verði bætt. Lagði
ég áherslu á að ríkisstjórnin yrði
að fjalla um þennan vanda og
upplýsti lesendur Dags um það að
þessi mál væru til úrlausnar innan
ríkisstjórnarinnar. Síðan taldi ég
upp ýmsar aðgerðir sem rikis-
stjórnin hefði staðið að til þess að
létta vandann að undanförnu,
þ.á m. niðurgreiðslur á ullarverði
og gengisaðlögun, og greindi frá
því að viðræður ættu sér stað við
Seðlabankann um viðurkennt
gengistap útflutningsiðnaðarins
síðan um áramót.
Einnig fór ég orðum um það, að
sú almenna stefna ríkisstjórnar-
innar að draga úr verðbólgu væri
útflutningsiðnaði til hagsbóta,
enda má á það minna að forystu-
menn iðnaðarins hafa lagt á það
ríka áherslu að verðbólgan sé
mesti ógnvaldur þessarar atvinnu-
greinar. Tek ég heilshugar undir
þá skoðun.
Ekkert er eðlilegra en að for-
ystumenn atvinnuvega geri grein
fyrir ástandi mála í einstökum
fyrirtækjum eða innan atvinnu-
lífsins í heild. Slíkar umræður eru
daglegt brauð í þjóðmálum hér
sem annars staðar. Það var því
sjálfsagður hlutur að forystumenn
verksmiðja SÍS á Akureyri kynntu
málefni fyrirtækja sinna þing-
mönnum, bæjarfulltrúum og fleiri
ráðamönnum á sérstökum fundi.
En fundarfyrirkomulag og kynn-
ingaraðferð skiptir máli í slíku
tilfelli ekki síður en öðrum.
I viðtalinu við Dag gagnrýndi ég
það, hvaða aðferðir forystumenn
samvinnuiðnaðarins kusu að við-
hafa í kynningu sinni á tíma-
bundnum erfiðleikum fyrirtækja
SÍS. Kynningaraðferðin (fundur
þar sem almennar umræður voru
ekki leyfðar) hafði þann ann-
marka að hún hlaut að leiða til
ofsafrétta, hvort sem mönnum
líkaði betur eða verr eða hvort
menn ætluðust til þess eða ekki.
Préttir af kynningarfundi SÍS á
Akureyri fæddu þvi miður af sér
þá trú hjá blaðalesendum, út-
í viðtalinu við Dag
gagnrýndi ég það,
hvaða aðferðir forystu-
menn samvinnuiðnaðar-
ins kusu að viðhafa í
kynningu sinni á tíma-
bundnum erfiðleikum
fyrirtækja SÍS. Kynn-
ingaraðferðin (fundur
þar sem almennar um-
ræður voru ekki leyfð-
ar) hafði þann ann-
marka að hún hlaut að
leiða til ofsafrétta,
hvort sem mönnum lík-
aði betur eða verr, eða
hvort menn ætluðust til
þess eða ekki.“
varpshlustendum og sjónvarps-
áhorfendum að 500 — 900 manns
væru að missa atvinnuna. Ef frétt
af þessu tagi ætti við rök að
styðjast myndi það verða slíkt
stóráfall í atvinnumálum að varla
verður við neitt jafnað. Hér var
alltof hátt reitt til höggs. Þetta
var í sannleika sagt „varhugaverð-
ur“ málflutningur, eins og ég
leyfði mér að orða það í viðtalinu
við Dag. Ég tel að það sé ábyrgð-
arhluti, þegar forystumenn at-
vinnulífsins boða verkafólki
fjöldauppsagnir og atvinnuleysi af
engu tilefni. Slíkar aðferðir heita
ekki að „vara fólk við“ heldur að
vekja ótta hjá verkamönnum, sem
eiga allt sitt undir fyrirtækjunum,
sem þeir vinna hjá. Mér þykir
fyrir því að þetta fréttaslys skyldi
henda forystumenn Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga. Þeir hafa
jafnan verið þekktir fyrir að vera
gætnir menn og umfram allt
ábyrgir orða sinna og gerða. En
öllum getur yfirsést, satt er það.
í viðtali mínu við Dag kvað ég
skýrt upp úr með það, að umrædd
kynningaraðferð Sambandsmanna
hefði einnig verið til þess fallin að
gefa ranga hugmynd um afstöðu
ríkisstjórnarinnar til vandamála
iðnaðarins. Það er að vísu talsvert
annað mál heldur en sú hin fyrri
villan að vekja ótta hjá verkafóiki
við fjöldauppsagnir og innræta
landslýð þá skoðun að atvinnulífið
sé að hruni komið á Akureyri, —
en þó hlýt ég að leggja á það
áherslu, hr. ritstjóri, að ríkis-
stjórnin gerir sér fulla grein fyrir
við hvaða vanda er að stríða hjá
útflutningsiðnaðinum og mun leit-
ast við að koma til móts við
réttmætar kröfur í því samhandi.
Hins vegar er ólíklegt að málsvar-
ar ríkisstjórnarinnar sitji þegj-
andi undir hvaða málflutningi
sem er. Ég áskil mér a.m.k. rétt til
að finna að því sem aðfinnsluvert
er, hvort sem um er að ræða efni
máls eða aðferðir við að koma
málefnum á framfæri. Ég veit
ekki til að ágreiningur sé milli
mín og forystumanna SÍS um eðli
þess vanda, sem iðnaðurinn á við
að stríða. Hins vegar sætti ég mig
ekki við þá kynningaraðferð, sem
ágætir skoðanabræður mínir og
góðkunningjar beittu í þessu sér-
staka tilfelli. Að henni beinist
gagnrýni mín.
Með þökk fyrir birtinguna.
Ingvar Gíslason
Garðurinn að Melabraut, sem veitt var verðlaun fyrir fegurð.
V erðlaunagarður
á Seltjarnarnesi
Á Seltjarnarnesi hafa verið
veitt verðlaun fyrir garð ársins
1981.
Að þessu sinni var sá háttur
hafður á, að leitað var til íbúa
bæjarins og þeir beðnir að benda
á fallega garða, sem til greina
gætu komið. Mæltist þessi að-
gerð prýðilega vel fyrir og barst
fjöldi ábendinga, sem unnið var
úr.
Fyrir valinu varð garðurinn að
Melabraut 78 og eru eigendur
hans hjónin Valborg Bjarnadótt-
ir og Sigurður Friðriksson.
3901 skráður atvinnu-
leysisdagur í ágúst
SKRÁÐIR atvinnulcysisdagar i
ágústmánuði voru 3901, en það
samsvarar þvi að 180 íslend-
ingar hafi verið skráðir at-
vinnulausir allan mánuðinn.
Það er um 0,2% af áætluðum
mannafla á vinnumarkaðinum,
að því er segir i skýrslu frá
félagsmálaráðuncytinu.
Samkvæmt þessum tölum er
ástandið í þessum málum nánast
óbreytt frá fyrra mánuði, en þá
voru skráðir atvinnuleysisdagar
3936. Miðað við ágústmánuð í
fyrra, en þá voru skráðir at-
vinnuleysisdagar 9215, er um
5313 atvinnuleysisdaga fækkun
að ræða, en á þessum tíma í
fyrra lá starfræksla margra
frystihúsa niðri.
Miðað við landshluta eru
skráðir atvinnuleysisdagar á
höfuðborgarsvæðinu 1999, á
Vesturlandi 59, enginn á Vest-
fjörðum, 470 á Norðurlandi
vestra, á Norðurlandi eystra 867,
10 á Áusturlandi, 260 á Suður-
landi og 236 á Reykjanesi.
Tfatkf -ri»<k
HITACHI
Hitachi Denshi,Ltd.
VIDEO UPPTÖKUVÉLAR
OG MYNDSEGULBÖND
FP40S
Th»w SATICON' tub«s, Pn«r* optícv
Hitachi Denshi býður mikið úrval video
upptökuvéla, bæði fyrir almenning og atvinnumenn
sem gera kröfur.
Hitachi Denshi myndsegulböndin eru fyrir 3/4” U matic
snældur. Höfum bæði beranleg- og studio tæki.
Við bjóðum 16 gerðir upptökuvéla, með einum lampa
og þrem lömpum. Leitið nánari upplysinga
Einkaumboð á íslandi.
Cfr) Radíóstofan hf.
Þórsgötu 14, símar 28377 - 11314 - 14131
FP3060A
trí electtodé SATtCON* tulre
fP 1020A
Thrée SATICON* tubt»
GP7
Single iii-electroöe vitficon tube
FP20S
Three SATICON* tub«*, IPC