Morgunblaðið - 12.09.1981, Side 20

Morgunblaðið - 12.09.1981, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1981 „Enn ein kraftsins ör hefur verið lögð á íslenzka fossa“ „Nú hefur enn ein kraftsins ör verið lögð á íslenska fossa. og það er óskandi að hún verði til þess að bæta kjör lands og lýðs,“ sagði Gunnar Thoroddsen for- sætisráðherra að Hrauneyja- fossi í gær, eftir að forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, hafði lagt hornstein orkuvers- ins að Ilrauneyjafossi. Horn- steinninn var lagður við hátið- lega athöfn að Hrauneyjafossi, þar sem saman voru komnir ráðherrar, þingmenn, borgar- fulitrúar, sveitarstjórnarmenn, fulltrúar verktaka á virkjunar- staðnum og starfsmenn við virkjunarframkvæmdirnar. Innan fárra vikna mun fyrsta aflvél virkjunarinnar taka að snúast, sú næsta á árinu 1982 og sú þriðja árla árs 1983. Samtals verður afl þessara véla 210 megawött. I ávarpi sínu minntist dr. Gunnar Thoroddsen þess er Ein- ar Benediktsson skáld stofnaði fossafélagið Titan, en hann hafði m.a. mikinn áhuga á að virkja stórt á vatnasvæði Þjórsár. „Hugsýnir hans og draumsýnir í virkjunarmálum koma fram í kvæðum skáldsins," sagði dr. Gunnar og vitnaði í kvæðið um Dettifoss, vísupart, er var fyrir- mynd þeirra orða forsætisráð- herra, sem vitnað er til í upphafi. Jóhannes Nordal stjórnarfor- maður Landsvirkjunar flutti ávarp áður en Vigdís Finnboga- dóttir lagði hornstein að orku- verinu. Jóhannes sagði að þar sem öllum meginþáttum verksins væri að verða lokið, væri þess skammt að bíða, að máttugur flaumur jökulfljótsins yrði beizl- aður til þess að knýja aflvélar virkjunarinnar, og að hann veitti aukinni orku um allar landsins byggðir. Allt útlit væri fyrir að fyrsta aflvél virkjunarinnar yrði tekin til starfa fyrir 1. nóvember nk. Jóhannes minntist þess, að í sumar hefðu verið liðin 15 ár síðan hafizt var handa við virkj- un Þjórsár við Búrfell, fyrstu virkjun hinnar gífurlegu orku, sem fólgin væri í jökulám ís- lands. Nú væri senn lokið þriðju stórvirkjuninni á vatnasvæði Tungnaár og Þjórsár, og að Hrauneyjafossvirkjun fullgerðri, myndu þessar þrjár stórvirkjanir framleiða þrjá fjórðu hluta all- rar raforku, sem notuð væri í landinu. Erfitt væri að gera sér í hugarlund, hvar íslendingar væru á vegi staddir í orku- og atvinnumálum, ef ekki hefði ver- ið hafizt handa við virkjun Þjórs- ár, áður en landsmenn sigldu inn í öldurót orkukreppu og alþjóð- legrar verðbólgu. Ef litið væri til framtíðarinn- ar, sagði Jóhannes Nordal, væri um margar leiðir að velja til að nýta hinar miklu óbeizluðu orkulindir íslendinga. Eftir þá uppbyggingu, sem orðið hefði á Þjórsársvæðinu, væri æskilegt vegna öryggis og jafnvægis í orkumálum, að ráðizt yrði í stórvirkjanir í öðrum landshlut- um. Yrði hins vegar þróun orkufreks iðnaðar hér á landi með þeim hraða, sem flestir virtust nú vilja stefna að, ætti jafnframt að vera hagkvæmt að halda áfram samfelldum fram- kvæmdum á Tungnaár- og Þjórs- Frá virkjunarsvæðinu að Hrauneyjafossi. Stöðvarhúsið í forgrunni. Ljósm. Mbi. KrístjAn. ársvæðinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.