Morgunblaðið - 12.09.1981, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1981
25
Ungir sem
aldnir á
skólabekk
Nú eru skólarnir að byrja
og það er ekki aðeins
yngri kynslóðin, sem sest
á skólabekk heldur einnig
sú eldri, því í okkar flókna
nútímaþjóðfélagi verður
fólk sífellt að vera að
endurmennta sig til að
mæta kröfum breyttra
tíma.
Viðskiptaviðræðum við Sovétmenn lokið:
Höfuðáherzla lögð á við-
bótarsamning fyrir freð-
fisk, saltsíld og lagmeti
- segir í frétt frá viðskiptaráðuneytinu
ÁRLEGAR viðskiptaviðræður
við Sovétmenn fóru íram í
Moskvu vikuna 7. —11. septem-
ber sl. Var þar rætt um fram-
kvæmd viðsk'ptasamning.s, sem
gildir 1981 tii 1985, að báðum
árum meðtöldum, og þá sér-
staklega leiðir til að auka sölu
íslenzkra afurða. Þetta kemur
fram í fréttatilkynningu við-
skiptaráðuneytisins.
— Frá því að núgildandi
samningur tók gildi um síðustu
áramót hefur útflutningur til
Sovétríkjanna aukizt verulega,
einkum vegna aukinnar sölu á
saltsíld og freðfiski. Á fyrra
misseri ársins var útflutningur-
inn til Sovétríkjanna meiri að
verðmæti heldur en innflutning-
ur þaðan. Hins vegar verður
verulegur vöruskiptahalli á öllu
árinu, þar eð búið er að afgreiða
mest af þeim vörum, sem búið
var að semja um, og innflutning-
ur á olíuvörum frá Sovétríkjun-
um verður meiri á seinna misseri
en því fyrra.
I viðræðunum var af íslands
hálfu lögð höfuðáherzla á nauð-
syn þess, að gera viðbótarsamn-
inga fyrir freðfisk, saltsíld og
lagmeti. Sá árangur náðist, að
Síldarútvegsnefnd gerði samning
um sölu á 50.000 tunnum af
saltsíld til viðbótar þeim 100.000
tunnum, sem áður hafði verið
samið um.
Ennfremur seldi Sölustofnun
lagmetis 10.000 kassa af gaffal-
bitum og Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna og Sjávarafurðadeild
Sambands íslenzkra samvinnufé-
laga 500 tonn af frystum flökum.
Um leið var ákveðið að viðræð-
ur um nýja samninga fyrir freð-
fisk og lagmeti skyldu fara fram
í nóvemberlok.
Einnig ræddu íslenzku og sov-
ézku viðskiptanefndirnar um
drög að samskonar samningi um
efnahagssamvinnu og flest önnur
Vestur-Evrópulönd hafa gert við
Sovétríkin. Þeim samningavið-
ræðum lauk ekki, enda ekki gert
ráð fyrir því, og verður þeim
haldið áfram síðar, segir loks í
fréttatilkynningu viðskiptaráðu-
neytisins.
Borun gengur
vel við 18.
Kröfluholuna
BORUN gengur vel við KróHu.
en þar er nú verið að bora holu
númer 18. Sú hola er staðsett í
suðurhlíðum Kröflu og er fjórða
holan á þvi svæði. Búið er að bora
um 1850 metra. en fyrirhugað er
að holan verði rúmlega 2 þúsund
metrar.
Samkvæmt upplýsingum Mbl. _
virðist hola 17 á svæðinu ætla að
verða mjög góð og líkur eru á, að
hún gefi yfir 5 megawött. Hola 16,
sem einnig var boruð í sumar, er
hins vegar léleg og gefur um 2
megawött. Nú er verið að skipta
um spaða í rafli virkjunarinnar,
m.a. vegna tæringar, en eftir
þessa viðgerð er búist við betri
orkunýtingu í Kröfluvirkjun.
Fyrstu rétt-
ir á morgun
FYRSTU réttir á haustinu verða á
morgun er réttað verður á þremur
stöðum norðanlands, þ.e. í
Hraunsrétt í Aðaldal, Hrútatungu
í Hrútafirði og Laufskálarétt í
Hjaltadal. Á mánudag verður
réttað í Brekkurétt í Norðurárdal.
Lenging á
skólatíma
sex ára
barna athuguð
TILLAGA frá Fræðsluráði um að
kennslumagn til 6 ára skóla-
barna yrði aukið á skólaárinu
1981—82 var lögð fyrir borgar-
ráð sl. þriðjudag. Var þar sam-
þykkt eftirfarandi:
Borgarráð samþykkir að fela
borgarstjóra að gera kostnaðar-
áætlun um aukið kennslumagn 6
ára barna, er nema 18 og 22
kennslustundum í viku. Jafnframt
felur borgarrráð borgarstjóra að
taka upp viðræður við mennta-
málaráðuneytið um málið.
Þingmenn
heimsækja
Færeyjar
Þórshöfn. 11. scptember.
SJÖ íslenzkir þingmenn. ásamt Jóni
Helgasyni forseta Sameinaðs þings,
eru staddir í Færeyjum um þessar
mundir í boði Lögþingsins.
Þingmannanefndin átti i dag við-
ræður við leiðtoga færeysku stjórn-
málaflokkanna og voru þar einkum
rædd mál er snerta sameiginlega
hagsmuni íslendinga og Færeyinga.
svo sem fiskveiðimál og norræna
samvinnu.
Þingmennirnir islenzku skoðuðu
hið nýja útvarpshús Færeyja, en
fyrsta hæð hússins var tekin í notkun
í sumar. Útvarpshúsið verður að
fullu tilbúið í febrúar. Jafnframt
skoðuðu þingmennirnir framkvæmd-
ir við Norræna húsið í Þórshöfn, sem
valinn hefur verið staður við hlið
útvarpshússins.
I ráði var að þingmennirnir færu
til Suðureyjar í dag, en vegna slæms
veðurs varð að aflýsa heimsókn
þeirra þangað. Á morgun, laugardag,
fara þingmennirnir til Austureyja,
Klaksvíkur og Vidareidi.
Þingmennirnir sjö eru: Jón Helga-
son, Sverrir Hermannsson, Helgi F.
Seljan, Karl Steinar Guðnason, Sal-
óme Þorkelsdóttir, Stefán Guð-
mundsson og Guðrún Helgadóttir.
— Arge.