Morgunblaðið - 12.09.1981, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1981
33
.. en við erum öll
jafnmikils virði“
HIN SÍÐARI ár hcfur það færst
æ meira í vöxt að fræðsluyfir-
völd hafa viðurkennt þörf og
rétt fatlaðra harna til náms og
menntunar ei«i síður en heil-
brigðra. Um leið hefur verið
farið inn á þá braut að hafa
sérdeildir hreyfihamlaðra
barna í hinum almennu skólum,
þar sem börnunum er einnix
Kert kieift að sækja einstaka
tíma hjá heilbrÍKðum börnum i
hóp og er reynt að haga þeim
tímum sem mest til góðs ok
þroska fyrir báða aðila.
Hér á landi er það Hlíðaskól-
inn í Reykjavík, sem hefur tals-
verða reynslu í þessum efnum,
en hann hefur undanfarin ár
rækt sérdeildir fyrir fötluð börn
þótt aðstæður séu þar vægast
mjög erfiðar.
Þó held ég að þær tilraunir
sem þar hafa verið gerðar séu
allar mjög jákvæðar og er þar
mikið fyrir að þakka ágætu fólki
sem að vinnur ásamt auknum
skilningi yfirvalda á erfiðu
vandamáli sem þarf að leysa í
menntuðu þjóðfélagi.
Við Tovshojskole sem er al-
mennur skóli í einu af úthverf-
um Arósa í Danmörku hafa um
árabil verð starfræktar sérdeild-
ir fyrir hreyfihömluð börn. Upp-
haflega var skólinn byggður méð
tilliti til hreyfihamlaðra.
Ut frá aðalbyggingu skólans
eru lítil hús, sem öll tengjast
henni, en innan hennar er fyrir
hendi sameiginleg aðstaða litlu
húsanna, þar er matstofa, eld-
hús, bókasafn, kennarastofur,
leikfimissalur, sundlaug og heil-
brigðisþjónusta.
I hverju af litlu skólahúsunum
eru fimm kennslustofur, þar sem
fjórar stofur eru fyrir heilbrigð
þörn, en ein fyrir fötluð börn.
Við hvert húsanna er sér leik-
svæði.
Á síðastliðnu skólaári lagði
Tovshojskole mikla áherslu á að
auka skilning heilbrigðra nem-
enda á hinum miklu vandamál-
um fjölfatlaðra jafnaldra þeirra.
Öllum 6. bekkjadeildum skólan
svar falið að vinna sameiginlega
að verkefni, sem bar heitið „Við
erum ekki eins, en við erum öll
jafnmikils virði".
Fyrst heimsóttu sérdeilda-
nemendur, ásamt kennurum sín-
um og iðjuþjálfum, 6. bekkjar
nemendur. Þar fór fram fræðsla
um hinar ýmsu tegundir fötlun-
ar barnanna úr sérdeildinni.
Ræddar voru orsakir fötlunar
hvers og eins og afleiðingar þær
sem fötlunin hafði í för með sér
fyrir hvern einstakling. Þá var
hinum heilbrigðu nemendum
kynnt notkun á hinu svonefnda
„bliss-merkjakerfi" sem er notað
til tjáskipta fyrir þann sem ekki
getur tjáð sig í tali. Nemendum
var einnig gefinn kostur á að
reyna þau hjálpartæki sem fötl-
uð börn nota daglega, eins og
hjólastóla, hækjur, hjól, o.m.fl.
Nemendur kynntust því, að
þótt fatlaðir geti ekki notað
hendurnar til að skrifa, er þeim
gert kleift að nota ritvélar marg-
víslega útbúnar, þar sem þau
nota tærnar, ennispinna, eða
sérstakan tækniútbúnað til
skrifta. Og sannarlega komust
nemendur í kynni við, að það
kostar mikla þrautseigju og ein-
beitni að geta skrifað á þennan
máta.
Eftir fyrstu kynningardagana
var samvinna aukin á þann veg
að einn dag í viku eyddu heil-
brigðu nemendurnir öllum
kennslustundum sínum í sér-
deildarstofum (3 í einu). Þeir
tóku virkan þátt í kennslunni
þar og aðstoðuðu hina fötluðu
nemendur eftir þörfum.
Aðra daga vikunnar komu þeir
í hverjum frimínútum til hjálp-
ar og voru þannig daglega sam-
vistum við hina fötluðu skólafé-
laga.
Virðist þessi samvera til gleði
og ánægju fyrir alla aðila. Þrátt
fyrir góð áform hafa tilraunir í
þá átt að hafa fötluð börn og
ófötluð saman í deildum ekki
gefist eins vel og skyldi. Félags-
Ieg einangrun hinna fötluðu hef-
ur ekki rofnað.
En Tovshojskole tókst ótrú-
lega vel að rjúfa þessa einangrun
með verkefni því er lagt var fyrir
6. bekkjar nemendur.
Myndaðist þar með varanlegt
samband milli barnanna. Þau
heilbrigðu fundu að þörf var
fyrir hjálp þeirra í skólanum —
þeim var treyst og margir góðir
eiginleikar nemenda, sem áður
nutu sín engan veginn, komu í
ljós og sköpuðu á allan hátt
skilningsríkara og hlýrra and-
rúmsloft innan skólans.
(Heimild: Skólablað Tovshoskól-
ans, Árósum.)
Fjallaskáli Austur-
leiðar í Þórsmörk
AUSTURLEIÐ byggði i sumar
fallegan bjálkabyggðan fjalla-
skála með skemmtilegu svefnlofti
i mynni Húsadals á Þórsmörk,
þar blasir Markarfljótsdalurinn
og Grænaf jall við augum.
I haust verður haldið uppi
ferðum inn á Þórsmörk á laugar-
dögum. Mörgum þykja Merkur-
ferðirnar einna skemmtilegastar á
þeim árstíma þegar vel viðrar og
landið ljómar í litadýrð.
Upplýsingar um Þórsmerkur-
ferðirnar og aðrar ferðir Austur-
leiðar eru veittar í Umferðarmið-
stöðinni við Hringbraut.
Um eitt þúsund manns hafa
farið á vegum Austurleiðar inn í
Þórsmörk nú í sumar.
Ejsig nr. 220, bæsaöur askur. Lengd 255 cm hæö, 178
cm, dýpt á neöri skáp 49 cm, á efri skáp 29 sm.
Sendum um allt land yöur aö kostnaöarlausu á
vöruflutningastöö. Sendum myndalista.
Bústoð h/f
Keflavík
sími 92-3377.