Morgunblaðið - 12.09.1981, Page 38

Morgunblaðið - 12.09.1981, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1981 Útför KRISTBORGAR ELÍSDÓTTUR, Grandavegi 37, fer fram frá Fossvogskirkju 14. september kl. 15. Óskar Jónaaon. Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför ÖNNU VIGFUSDÓTTUR frá Brúnum, Eyjafjöllum. Vandamenn. Viö sendum innilegar þakkir öllum þeim sem sýndu okkur samúö og vinarhug við andlát og jaröarför GUÐMUNDAR SVEINBJÖRNSSONAR frá Bjargarstööum. Jón S. Guömundsson, Sveinbjörn M. Guómundsson. Systir okkar, ANNA SIGURÐARDÓTTIR, áður að Hellubraut 6, Hafnarfirði, lést í Cleveland, Ohio, miövikudaginn 9. seþt. Systkinin. t Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, SIGRÍÐUR E. ÞORLEIFSDÓTTIR, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 15. sept. kl. 15.00. Elín Jörgensen, Guðmundur Bergþórsson, María Jörgensen, Helgi Jakobsson, Elísabet Jóhannsdóttir, Olafur Þórðarson, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, ANDERS STEFÁNSSON, Blesugróf 32, Reykjavík, andaöist á heimili sínu aöfaranótt 3. sept. Jaröarförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hins látna. Þökkum innilega veitta samúö og hlýhug. Asdís Pálsdóttir, Bára Anderadóttir, Þór Vígfússon, Edda Andersdóttir, Bjarni Ásgeirsson, Anders Þráinsson, Vigfús Þórsson. Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar. tengdafööur. afa og langafa, ÞÓRARINS SIGURÐSSONAR, Litlageröi 14. Guö blessi ykkur öll. Guóbjörg Arnadóttir, Arni Þórarinsson, Guórún Þórarinsdóttir, Helga Þórarinsdóttír, Unnur Þórarinsdóttír, Gíslína Þórarinsdóttir, Guðmundur Ingi Þórarinsson, Ásta Þórarinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Anna Magnúsdóttír, Björn Berndsen, Gestur Kristjánsson, Haraldur Einarsson, Gunnar Magnússon, Helga Þóröardóttir, Bírgir Guöjónsson, ATHYGLI skal vakin á því, aö afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Mœðgina minnst: Jóna Auður Guðmundsdóttir og Viktor Sigurðsson Auður: Fædd 14. júlí 1962. Dáin 5. september 1981. Viktur: Fæddur 19. mars 1980. Dáinn 5. september 1981. LauKardaginn 5. september bár- ust þau voðalegu tíðindi um Grindavík að Auður Guðmunds- dóttir og Viktor litli, sonur henn- ar, hefðu farist í bifreiðaslysi þennan sama dag. Það varð skyndilega kalt, og það dimmdi í kringum okkur. Gat þetta verið satt? Við vildum ekki trúa þessu. En þetta var ísköld staðreynd. Og við spurðum: Hver getur tilgang- urinn verið, þegar ungu fólki er kippt burt á augabragði? Við lítum í hljóðri bæn upp til Hans sem allt veit. Hann einn veit svarið, Hann einn veit hver til- gangurinn er. Jóna Auður var fædd 14. júlí 1962 í Keflavík, næstyngst af 6 börnum hjónanna Bjarneyjar Jó- hannesdóttur og Guðmundar Har- aldssonar. Eg man fyrst eftir Auði sem smátelpu, þegar foreldrar hennar bjuggu í Keflavík. Hún var sér- staklega fallegt barn, brosmild með hrokkna lokka. Fyrir u.þ.b. 13 árum fluttist fjölskyldan hingað til Grindavíkur og hef ég getað fylgst með Auði á uppvaxtarárum hennar, séð hana verða að upp- kominni stúlku. Ég sá hana líka verða móður sem geislaði af ham- ingju með barnið sitt í fanginu. Viktor fæddist 19. mars 1980. Framtíðin var björt í augum Auðar, enda var hún ung og hraust. Auður var tígúleg í fasi, en það sem mér fannst einkenna hana var kurteisin og hlýjan sem andaði á móti öllum sem komu á heimili foreldra hennar. Alltaf viðbúin að veita manni góðgerðir, enda ekki langt að sækja gestrisn- ina, því foreldrar hennar eru rómaðir fyrir gestrisni og gott viðmót. Það var líka yndislegt að sjá litlu drengina tvo á gólfinu að leik, en systursonur Auðar, Guðmund- ur, 2ja ára, átti líka heima hjá ömmu og afa í Heiðarhrauni 15. Þar nutu þeir ómældrar ástar allra á heimilinu og voru sólar- geislar þeirra. Nú þegar annar sólargeislinn er farinn til æðri heima og móðirin líka, þá eru engin orð til sem megna að lýsa sorg fjölskyldunnar í Heiðar- hrauni 15. En dýrmætar minn- ingar frá þessum ungu mæðginum bera smám saman smyrsl á sárin, með Guðs hjálp. Mig langar að endingu til þess að þakka elsku Auði og Viktor litla fyrir óteljandi hlý bros og gott viðmót og óska þeim gæfu í æðri heimum. Einnig vottum við Sigurði, föður Viktors, og ömmu hans fyrir vestan innilega samúð. Ég bið Guð að styrkja og blessa Bjarneyju og Guðmund, foreldra Auðar og systkini og alla vanda- menn. Blessuð sé minning Auðar og Viktors litla. „Stundum verdur vetur verold hjartans í. Láttu fra* þín lifa Ijússins >fud. í því. (■ef oss þitt sumar solu þinni frá. kristur. kom ok sÍKra. kom þú oft ver oss hjá." (Frostenson — SÍKurhjorn Einarsson.) Margrét Sighvatsdóttir Jóna Auður Guðmundsdóttir og sonur hennar Viktor Sigurðsson fórust í bílslysi laugardaginn 5. september síðastliðinn. Það snerti okkur starfsfélagana djúpt að frétta lát þessarar hugljúfu, kátu og ötulu stúlku og drengsins hennar, sem við nýlega höfðum endurnýjað kynni við eftir starfshlé frá í júní í vor. Gleðin geislaði af þessari ungu móður þegar hún sýndi okkur soninn, sem jiafði dafnað vel í sumar. Ekki fór hun varhluta af örðug- leikum lífsins þó ung væri, nýbyrj- uð í danskennaranámi varð hún ófrísk af syninum, missti þó ekki móðinn en hélt ótrauð áfram námi, enda naut hún góðs stuðn- ings foreldra sinna og systkina sem önnuðust soninn í fjarveru hennar á veturna. Með henni var gott að starfa, hún sýndi sérstaka þolinmæði og hlýhug í kennslu. Oft var það úti á landsbyggðinni sem skyldustörfin bundu hana vikum saman, langt frá syninum unga. Við geymum minninguna um Auði, þar sem hún fyrir fáeinum dögum sýndi okkur stolt myndir af syninum heima hjá ömmu í Grindavík og munum við ávallt minnast hennar sem stúlku, sem ætlaði að byggja upp framtíð sína og sonarins með eigin dugn- aði. Það var eins og hún fyndi á sér að tíminn væri naumur, slíkan ofuráhuga er hún sýndi síðustu vikuna, sem eingöngu var helguð námi hennar sjálfrar til undirbún- ings fyrir danskennsluna. Við þökkum Auði fyrir sam- fylgdina, sem var gjöful, þó allt of, stutt og vonum að henni og syninum kæra farnist vel yfir móðuna miklu. Foreldrum og ættingjum færum við hugheilar samúðarkveðjur. Starfsfólk Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar. Hendrikka ir Finsen - Kveðja frá Kvcnfélagi Akra- ness. Sunnudag 28. mars 1926 komu nokkrar konur saman á fund í Báruhúsinu á Akranesi samkv. áður auglýstu fundarboði, í þeim tilgangi að ræða stofnun kvenfé- lags er sérstaklega skyldi hafa á stefnuskrá sinni hjúkrunar- og uppeidismál og önnur mannúðar- og menningarmál. Stofnfundur var síðan haldinn 11. apríl 1926. Einn af stofnendum og síðar heiðursfélagi Kvenfélags Akra- ness, frú Hendrikka Olafsdóttir Finsen, er nú kvödd hinstu kveðju. Hún var dóttir hjónanna frú Ingibjargar og Ólafs Finsen, fyrrv. héraðslæknis á Akranesi, f. 18.07. 1900 og dáinn 04.09. sl. Ung hefur hún kynnst á sínu æskuheimili aðstöðu og aðbúnaði fólks vegna veikinda og fátæktar vegna þess hve mörg slík mál komu oft við sögu hjá héraðslækni og inn á heimili þeirra. Ef til vill hefur það hvatt hana og systur hennar til að standa saman í félagsskap, er hefði mannúðar- og menningarmál á sinni stefnuskrá, enda hafa þær systur verið alia tíð og eru enn í þeim sterka stofni, Ólafsdótt- Minning sem Kvenfélag Akraness hefur vaxið af. Hendrikka var áreiðanlega fé- lagslynd kona því hún kom víðar við en í Kvenfélaginu. I mörg ár var hún ásamt manni sínum í Kirkjukór Akraness og með eig- inkonum manna í Karlakórnum Svönum starfaði hún mikið. Hún hefur áreiðanlega verið ákveðin og skoðanaföst kona og gengið ákveð- in til þeirra verka, sem hún vildi að næðu fram að ganga. Oft er talað um að konur hafi sig lítt í frammi og taki lítinn þátt í gangi þjóðmála. Það kemur mér alltaf til að hugsa um hvað sumu fólki tekst vel að horfa fram hjá störfum allra þeirra kvenfélags- kvenna sem starfa í landinu og þeirra stóru verkum. Stofnendur þessara félaga töluðu ekki einung- is um hvað vantaði, heldur stóðu upp og hófu starf máli sínu til framdráttar. Þær saumuðu föt og gáfu á heimili efnalítilla, glöddu aldraða með gjöfum o.fl. o.fl. Alla tíð hefur Sjúkrahús Akraness verið óskabarn félagsins og þessar konur stóðu fyrir skemmtunum með veitingasölu og þær hófu kartöflurækt til fjáröflunar. Síðar er þjóðfélagshættir breytast og konur fara að vinna úti, sjá þessar konur þörf á dagheimili. Þá kjósa þær nefnd til að vinna að málinu og koma því í höfn. í öllu þessu og mörgum öðrum málum vann Hendrikka að, ásamt öðrum fé- lagskonum. Er hægt að segja að sú kona, sem hefur tekið þátt í starfi kvenfélaga, taki ekki þátt í upp- byggingu þjóðfélagsins? Hvernig er hægt að segja að konur séu kúgaðar og verk þeirra séu ekki metin af því að þær séu heima- vinnandi húsmæður og taki ekki þátt í pólitískum störfum? Hvern- ig gátu þessar konur og geta enn unnið svona stórum málum nema af því að þær eru frjálsar konur, sem eiga maka og börn, sem meta þær og verk þeirra og styðja þær í verki og þeirra málefni. Frú Hendrikka Ólafsdóttir Finsen var ein þeirra frjálsu kvenna sem hafði skoðun og kom fram af virðuleik og bar ísl. þjóðbúninginn eins og konur gera bezt, og hefur tekið þátt í upp- byggingu síns sveitarfélags á sviði menningar- og mannúðarmála. Fyrir hönd Kvenfélags Akra- ness vil ég þakka henni öll hennar störf og hlýhug til félagsins alla tíð. Manni hennar, Jóni Sig- mundssyni, börnum, tengdabörn- um og systkinum, votta ég samúð og bið heimilum þeirra allrar blessunar. F.h. Kvenfélags Akraness, K.G.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.