Morgunblaðið - 12.09.1981, Side 48
Valur
Aston Villa
eftir 18 daga
jKgtmfrlftfeife
LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1981
5 krónur
eintakið
Samið um sölu á 500 t af frystum flökiim:
Þetta er í raun-
inni ekki neitt
„ÞETTA er í rauninni ekki neitt,“
sa)?ði Eyjólfur ísfeld Eyjúlfsson,
forstjóri SolumiAstöðvar hraðfrysti-
húsanna, í samtali við Mhl.. er hann
var inntur álits á nýxerðum við-
skiptasamninKÍ íslands ok Sovét-
ríkjanna. sem Kerir ráð fyrir sölu
500 tonna af frystum flökum frá
Sölumiðstöðinni ok Sambandinu.
„Við vorum með samning upp á
14.000 tonn fyrir þetta ár, og höfum
gert okkur vonir um að selja a.m.k.
5.000 tonn til viðbótar," sagði Eyjólf-
ur ísfeld Eyjólfsson.
Hefur þetta ekki í för með sér
töluverða birgðasöfnun? „Jú, en hins
vegar er hætt allri framleiðsiu fyrir
Rússland. Það er að meginhluta
karfaframleiðsla og sú framleiðsla
var stöðvuð við siðustu mánaðamót.
Því er hins vegar ekki að neita, að
töluverðar birgðir eru fyrir hendi,“
sagði Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson
ennfremur.
Aðspurður um aðra markaði, sagði
Eyjólfur ísfeld, að karfi hefði verið
seldur í nokkru magni til Bandaríkj-
anna og á þeim vígstöðvum væri nú
unnið.
Lesendaþjónusta Morgunblaðsins:
Spurt og svarað um
Sjálfstæðisflokkinn
í gær fór fram vígsla nýs stöðvarhúss við Hrauneyjafossvirkjun og lagði forseti íslands, Vigdís
Finnbogadóttir, í því tilefni hornstein að stöðvarhúsinu. Þau hjónin Dóra og Jóhannes Nordal tóku í
mót forseta, einnig þessi hýra snót, sem færði forsetanum blómvönd. Hún heitir Margrét Valgerður
Helgadóttir og er dóttir Helga Bjarnasonar verkfræðings. Sjá frásögn á bls. 20 og 21. LjÓNm. Mbl. Kristján.
Verðlækkun á öllum sildarmörkuðum:
Sjaldan jafn erfitt að
verðleggja síldina
- segir Ágúst Einarsson hjá Landssambandi íslenzkra útvegsmanna
Geir Hallgrímsson
svarar spurningum
lesenda blaðsins
MÁLEFNI Sjálfstæðisflokksins
eru að komast í brcnnidepli á
ný. enda landsfundur flokksins
framundan í lok októhermánað-
ar. Af því tilefni hefur Morgun-
blaðið óskað eftir því við Geir
Ilallgrímsson. formann Sjálf-
stæðisflokksins, að hann svari
spurningum. sem lesendur
Morgunblaðsins kunna að vilja
bera fram við hann um málefni
Sjálfstæðisflokksins nú á na stu
vikum. Geir Hallgrimsson hef-
ur orðið við þeirri ósk.
Þeir lesendur Morgunblaðsins,
sem hafa áhuga á að bera fram
spurningar við Geir Hallgríms-
son um málefni Sjálfstæðis-
flokksins eru beðnir um að
hringja í síma 10100 kl. 10—11
frá og með nk. mánudegi og
verða spurningar þeirra þá tekn-
NÆR EIN milljón gesta hafa
komið í íþróttamiðstöðina í Vest-
mannaeyjum, sundlaug og
íþróttasal, á þeim fimm árum
sem liðin eru síðan húsið var
tekið i notkun ári eftir að bygg-
ing hófst, en íþróttamiðstöðin
heldur upp á 5 ára afmæli sitt i
dag.
Samkvæmt upplýsingum Vignis
Guðnasonar, forstöðumanns
Mjög fjölsótt stórmót í sundi hafa
verið í íþróttamiðstöðinni.
Iþróttamiðstöðvarinnar, hafa ná-
kvæmlega 985.343 gestir komið í
húsið til dagsins í dag, en milljón-
asti gesturinn sem von er á innan
tiðar fær glæsileg verðlaun. Sá
heppni mun fá ókeypis aðgang að
öllum þáttum í starfi íþróttamið-
stöðvarinnar í heilt ár, aðgang að
sundlaug, gufubaði, sólbaðslömp-
ar niður og munu síðan birtast
ásarnt svörum Geirs Hallgríms-
sonar. Óskað er eftir, að spurn-
ingar séu bornar fram undir
fullu nafni. Morgunblaðið hvetur
lesendur sína til þess að bera
fram spurningar við formann
Sjálfstæðisflokksins um hvað-
eina, sem þeir kunna að hafa
áhuga á í sambandi við Sjálf-
stæðisflokkinn.
I um, pottum, íþróttasölum og lík-
I amsrækt.
„VH) hofum sjaldan eða aldrei
staðið frammi fyrir erfiðari verð-
lagningu á síld,“ sagði Ágúst
Einarsson hjá Landssambandi is-
len/kra útvegsmanna, i samtali
við Mbl.. er hann var inntur eftir
stöðunni í verðlagningu á síld.
„Það var fundur í verðlagsráðinu
í gær, sameiginlegur fundur salt-
enda og fiskideildarinnar, þ.e.
vegna frystu sildarinnar. Það kom
mjög giögglega í ljós á þessum
fundi, ið þetta er afskaplega erfitt
mál.
Það »ru ýmis atriði sem koma til,
eins og afskaplega veik staða Evr-
ópugjaldmiðlanna, sem verka á
verðlag á frystu síldinni, aukið
framboð á síld.
Þá eru það ýmis rekstrarleg
atriði. Það voru lögð fram gögn á
fundinum um bátsreikninginn,
frystingu og söltun. Miðað við þá
framlagningu er alveg ljóst, að
afurðaverðmætið dugir ekki til þess
að borga alla þessa hluti. Þá er i
raun búið að ákveða mjög stóran
hluta af þessum kostnaði löngu
fyrirfram, eins og flutningsgjöld
skipafélaganna, söltunarlaunin og
tunnuverðið. Það er því ansi lítið
eftir til skipta," sagði Ágúst Ein-
arsson.
Verulcg verðlækkun hefur orðið á
Rússlandsmarkaði og Finnlands-
markaði og Svíar hafa boðað veru-
lega lækkun hjá sér. Þegar hafa
verið seldar 150 þúsund tunnur á
Rússland og 20 þúsund tunnur á
Finnland og þar hefur orðið um 6%
lækkun í dollurum talið. Annað
hefur ekki verið selt ennþá.
Varðandi frystu síldina er ekki
óeðlilegt, að ekkert hafi enn verið
selt af henni, því hún hefur yfirleitt
verið seld jöfnum höndum og þá að
langmestu leyti til Þýskalands. Þar
er verið að ræða um sama verð og í
fyrra í mörkum talið, sem þýðir
lækkun í doliurum.
Eftir fundinn í gær var verðlagn-
ingunni vísað til yfirnefndar.
Banaslys við
Sundahöfn
SEXTÍU og fimm ára gamall
maður fórst i umferðarslysi við
Sundahöfn laust eftir hádegið í
gær. Slysið átti sér stað á nýja
svæðinu við höfnina, þar sem
svokölluð ekjuskip eru affcrmd.
Atvik voru með þeim hætti að
stórum vörubíl var ekið aftur á
bak eftir hafnarbakkanum og varð
maðurinn undir bílnum. Talið er
að hann hafi látist samstundis.
Maðurinn var starfsmaður Eim-
skipafélagsins.
Slæmt tíðarfar á Landmannaafrétti:
Féð rennur til byggða
Kemur hungrað og með blóðugar klaufir af vikursvæðum
„ÞAÐ IIEFUR vcrið slæmt tiðar-
far hér i viku. norðanrok og
iiggur við snjógangi. Alhvítt ei
orðið hér fyrir innan. Vegna
veðurfarsins hefur fé runnið til
byggða og orðið illa úti á vikur-
svæðisröndinni neðst i Land-
mannaafrétti þar sem ekki er
stingandi strá. Ekkert hefur
drepist enn þá, en féð er iila
farið, hungrað og með slitnar
klaufir, svo blæðir úr,“ sagði
Guðni bóndi Kristinsson á Skarði
í Landsveit, er Mbl. ræddi við
hann í gær.
„Þetta er eiginlega verra en í
fyrra, því þá var aska yfir vikrin-
um sem nú er fokin út í veður og
vind og gengin niður, svo egghvass
vikurinn er ber eftir. Það var
eiginlega lán í óláni, að vikurinn
er aðeins fremst á afréttinni, en
Guðni Kristinsson
féð neyðist af þeirri ástæðu til að
fara þarna yfir, þegar það leitar
til byggða,“ sagði Guðni einnig.
„Við förum í smalamennskuna
þann 18. þ.m. og réttum þann 24.
Við ætlum að rétta inn við Land-
mannahelli að þessu sinni, en
höfum ætíð réttað í Landréttum,
sem eru niðri í byggð. Við verðum
að keyra féð heim að þessu sinni."
Guðni sagði einnig, að þrátt
fyrir mat sérfróðra manna á að
eyðilegging afréttarins næmi um
63% teldu bændur að svo mikið
væri ekki ónýtt. Þá sagði hann að
bændur væru mjög óánægðir með
hversu litlu af þeim styrk, sem
veittur hefði verið til uppgræðslu
á öskusvæðunum, hefði verið varið
til Landmannaafréttar.
Iþróttamiðstöðin í Eyjum:
Milljónasti gesturinn
fær allt frítt í ár