Morgunblaðið - 04.10.1981, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1981
35
Axel Bjömsson
bryti - Minning
Fæddur 10. marz 1911.
Dáinn 24. september 1981.
Fyrir rúmum 60 árum lék sér
lítill drengur í fjörunni á Eyri við
Fáskrúðsfjörð og horfði út á sjó-
inn með þrá í augum. Hann horfði
á öldurnar berast að landi og
brotna við fjöruna, berandi með
sér óm frá hinu fjarlæga og
ókunna. Ekki liðu mörg ár, þar til
hann lagði frá landi og hóf lífs-
starf sitt.
Axel Björnsson var fæddur í
Víkurgerði við Fáskrúðsfjörð 10.
marz 1911, sonur hjónanna Sigríð-
ar Jónsdóttur og Björns Þor-
steinssonar, er bjuggu þar þá og
síðar m.a. á Fögrueyri og síðast í
Reykjavík. Fimmtán ára gamall
fór Axel að heiman til að vinna
fyrir sér og gerðist sjómaður í
Vestmannaeyjum. Skömmu síðar
réðst hann sem léttadrengur á
gamla Gullfoss. Þar vaknaði löng-
un hans til að læra matreiðslu,
sem varð svo hans lífsstarf.
Hann hélt til Kaupmannahafn-
ar til að nema þá iðn. Þar dvaldi
hann um nokkurra ára skeið og
lauk meistaraprófi í iðninni. A
þeim árum vann hann víða í
Danmörku og einnig í Austur-
Asíu á vegum meistara síns.
Að loknu námi og vinnu erlendis
kom Axel heim og hóf aftur störf
á skipum Eimskipafélagsins. Síð-
an starfaði hann í ailmörg ár sem
matsveinn á togurum og síðan aft-
ur sem bryti á Fossunum. Öðru
hverju vann hann í landi, aðallega
á hótelum. Einnig var hann einn
af stofnendum verzlunarinnar
Kjöt og grænmeti í Reykjavík og
vann við hana um skeið.
Hinn 12. júní 1934 kvæntist Ax-
el Katrínu Júlíusdóttur úr Reykja-
vík. Foreldrar hennar voru Jó-
hanna Jóhannesdóttir og Júlíus
Bjarnason, trésmiður. Þau Katrín
og Axel bjuggu í Reykjavík og
eignuðust þau sjö börn. Elzta
barnið, Júlíus Viðar, drukknaði, er
togarinn Jújí fórst á Nýfundna-
landsmiðum í byrjun árs 1959.
ÖniHTr börn þeirra eru: Auður, Jó-
hanpa, Axel, Sigrún, Edda og
Björn. Barnabörnin éru 14 og 2
barnabarnabörn. Þau Katrín og
Axel slitu samvistum.
Axel var mjög fær og listfengur
í sínu starfi. Hann var höfðingi
heim að sækja og hrókur alls
fagnaðar, þegar það átti við. Söng-
maður var hann góður og unnandi
tónlistar. Græskulaus kímni var
honum eðlislæg, og skemmtileg
frásagnarlist var honum sérlega
lagin. Hann var traustur maður
og raungóður og vildi ætíð greiða
götu þeirra, sem áttu í erfiðleik-
um.
Mig langar til að þakka tengda-
föður mínum okkar stuttu en góðu
kynni, nú þegar hann er kominn
að landi, og öldur lífsins hafa bor-
ið hann til hins ókunna.
Snorri Sigurjónsson
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og
minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi
á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga.
Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal
einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um
hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum
Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
Hraðlestrar-
námskeið
Næsta hraðlestrarnámskeiö hefst 13. okt. nk. Nám-
skeiöið stendur yfir í 6 vikur og veröur kennt 2 klst.
einu sinni í viku frá kl. 20—22.
Heimavinna er 1 klst. á dag á meðan námskeiðið
stendur yfir. Námskeiðið hentar sérstaklega vel
skólafólki og öörum sem þurfa að lesa mikiö. Verð
kr. 1050. Skráning í síma 10046 kl. 13.00—17.00 í
dag og næstu daga. Leiðbeinandi er Ólafur H.
Johnson, viðskiptafræðingur.
Hraðlestrarskólinn.
Gerið
hagstæð
innkaup
muniö 10% afsláttarkortin, nýir félagsmenn fá af-
sláttarkort á skrifstofu Kron, Laugavegi 91, kl.
9—12 og 12.30—16.00 mánudaga til föstudaga.
Opið til kl. 22.00 á föstudag og hádegis á
laugardag.
Stormarkaðurinn
Skemmuvegi 4A, Kópavogi