Morgunblaðið - 04.10.1981, Síða 40

Morgunblaðið - 04.10.1981, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1981 r Tangagata Tangagata 22. Uti- dyrnar á bíslaginu eru eldgamlar að sögn Gunnlaugar og sagö- ist hún ekki ætla að skipta, því þessar væru „massívar" og úr kjörviði, en milljón króna nýjar hurðir væru aldrei til friðs. „Ekki á allra færi að byggja nýtt hús og búa í því á meðan“ „Þið eruð ekkert að trufla mijí. Ék var bara að prjóna. Það fylgir þessu húsi að prjóna leista og vettlinKa,“ sagði Gunn- lauK Jóhanna MaKnúsdóttir hressileKa, er við fylKjum henni inn um fornfáleKar útidyrnar á húsinu við TanKaKötu 22, en hús þetta Krípur strax auKU veKÍar- anda veKna framkvæmda sem verið er að vinna við það. „Það er sko ekki á allra færi að byKKja nýtt hús ok búa í því á meðan,“ saKði GunnlauK um framkvæmdirnar. „Við höfum húið hér í átta ár ok ákváðum að Kera þetta myndarleKa, fyrst við værum að þessu á annað horð. Við stækkum húsið um helminK úr 74 fermetrum i 150. Þetta er fimm ára áætlun.“ GunnlauK sagði upprunaleKa húsið vera 90—100 ára, en því hefði verið breytt mikið í gegn- um tíðina. „Hverjir bjuggu hér spyrðu. Það yrði löng upptalning, en lítið vitað hve lengi og hvenær upp á ár: Faðir Jóns Sigmunds- sonar, Marías, Bæring, Marías Þorvaldsson og áreiðanlega miklu, miklu fleiri." Endurnýjun hússins felst í að byggt er annað hús utan um hið gamla, en þó eru sumar hliðar þess nokkurn veginn látnar halda sér, þar sem það er unnt. Við spurðum hvort þetta væri ekki miklu dýrara en að byggja nýtt. „Það tel ég ekki. Það kostar bara heila fimm og hálfa gamla milljón að fá lóð, það er að grafa grunna, sökkla og allt það. Hérna er þó undirstaðan fyrir hendi og margt hægt að nýta. Ég neita því ekki að efnið er dýrt, en vinnan er að öllu leyti unnin af okkur sjálfum og tengdapabbi á hvað stærstan hluta þar að,“ sagði hún. Þá sagði Gunnlaug að ekki kæmi til greina að sínu mati að flytja í nýtt steinsteypuhús. „Þetta hús hefur sál, sem slík hús hafa ekki,“ útskýrði hún. — Hvað eða hvernig er sál húss? „Það er andrúmsloftið sem um ræðir. Hér fann ég að ég átti að eiga heima. Við skoðuðum mörg gömul hús, áður en við keyptum þetta. Ég fann strax þegar ég kom hingað inn að hérna var öðru vísi andrúmsloft en í öðrum húsum, hér átti ég að eiga heima. Síðar kom gömul kona til mín í svefni. Hún átti heima hérna. Ég þekkti hana ekki en var sagt síð- ar hver hún var. Mér fannst sem hún væri hérna á neðri hæðinni og hún hló glaðhlakkalega upp til mín. Enginn draugagangur en sérkennilegt andrúmsloft Nei, það er enginn drauga- gangur í húsinu, en hingað hefur samt komið miðill, sem segir að það sé sérkennilegt andrúmsloft hérna og þetta finnur fólk einnig eftir að hafa stoppað stutta stund." Gunnlaug sagði að mikll vakn- ing væri meðal eigenda flestra húsanna í hverfinu til að halda þeim við og lagfæra. Aðspurð hvort þau hyggðust stofna sam- tök í líkingu við Torfusamtökin til varðveizlu húsanna, sagði hún: „Nei, við erum ekki árás- argjörn. Við viljum bara fá að vera í friði með okkar hús og fá að laga þau eftir okkar henti- semi.“ Þá sagðist hún telja að gömlu húsin yrðu friðuð. Bæjaryfirvöld hefðu hert reglur um heimildir til breytinga, en þó tekið mjög vel beiðni þeirra um þær breyt- ingar sem þau væru að fram- kvæma, en þó krafist nákvæmra teikninga áður en framkvæmd- irnar voru samþykktar. Gunnlaug sagði einnig: „Ég tel að timburhús séu að koma aftur. Það er til dæmis verið að byggja nokkur timburhús í nýja hverf- inu inni í firði í dag. Fólk finnur muninn á að búa í steinsteypu. Steinn hefur ekki góð áhrif. Auð- vitað er eldhætta meiri, en við gætum vel að eldvörnum. Ég horfi alltaf með aðdáun á hús sem þetta. Þau eru byggð með berum höndum. Hér er uppruna- lega byggingin byggð af vanefn- um, úr kassafjölum. Það var al- veg stórkostlegt þegar við vorum að rífa suðurhliðina. Einangrun- in var mestmegnis mosi og hey, en einnig fundum við fullt af gömlum fatnaði, jakka, húfur og allt mögulegt. Virðist sem allt tiltækt hafi verið gripið til þess að troða inn í milli sem einangr- un. “ Gunnlaug sagði marga kosti fylgja búsetu í gömlu húsi sem þessu. „Það skapar meiri fjöl- skyldutengsl þegar fólk býr þröngt. Ef við værum að byggja einhvern steinsteypukastalann þá yrði ég að vinna úti og það tel ég alls ekki hollt þegar börnin eru lítil. Þá hlaupa börnin heldur ekki inn í sérherbergin sín og skella hurðum, þegar skerst í odda. Þau verða að gera upp sín mál í baðstofustemmningunni. Ég er mest hrædd um að fá víð- áttubrjjálæði þegar við höfum stækkað húsið um helming," sagði hún i lokin. Á móti öllum friðunarstefnum og kvöðum. Eiginmann Gunnlaugar, Birgi Ólafsson og föður hans, Ólaf Magnússon, bar nú að garði. Birgir sagði, að ef vinnan við breytinguna á húsinu væri metin væri kostnaðurinn áreiðanlega áþekkur því og að byggja nýtt hús. „Auðvitað hefði verið ein- faldara að rífa gamla húsið og byKgja nýtt, en það vildum við ekki, enda getum við búið í gamla húsinu á meðan, innan í því nýja. Þau hjónin Birgir og Gunnlaug ásamt börnum sínum þremur og Ólafi föóur Birgis. Krakkarnir heita Sigríður, Ingibjörg, sem stendur fyrir framan föóur sinn, og ó milli Birgis og Gunnlaugar er Birgir Örn og lengst til hægri er Ólafur Magnússon. Þessa mynd tók Ingimundur Sveinsson arkitekt af húsinu áöur en framkvæmdir hófust við stækkunina, en hann og Þórarinn Þórarins- son arkitekt teiknuðu „nýja“ húsiö. Tangagata og lítið eitt um Félagsbakaríið: V „Bara daglegt líf venju- legs fólks sem bjó og býr í þessum húsum“ „Hér býr aðeins ein kerling göm- ul mjög,“ sagði Guðmunda Rós- mundsdóttir er við tókum hana tali þar sem hún stóð á útidyratröpp- unum á húsi sínu í Tangagötu 10. „Húsið er oröið hundgamalt, en ég veit ekki hversu gamalt, eða hverj- ir byggðu þaö. Við keyptum þaö, ég og seinni maður minn, árið 1954 á 30 þúsund krónur. Þá voru engir ofnar og ekkert í húsinu og við urðum að breyta heilmiklu til aö fá fleiri herbergi. Nú þarf aö fara aö laga húsið að utan, en ég er búin aö skipta um þak,“ sagöi hún. Guðmunda sýndi okkur húsa- kynni og minntu súöarherbergin á efri hæö um margt á gamla tiö og viö báöum Guömundu, sem er skemmtilega ræðin, að segja okkur eitthvaö frá gömlu, góöu dögunum. Félagsbakaríið, sem Guðmunda minnist veru sinnar í, enda hóf hún búskap þar á efstu hæö árið 1927 og bjó síðan í húsinu, líklega á öllum hæðum, allt fram til ársins 1954. „Auövitaö er margs aö minnast úr þessum húsum frá í gamla daga," sagöi hún, — „en elskurnar mínar, óg man bara ekkert eins og er, — já, eöa vil ekkert vera aö segja ykk- ur blaöamönnum frá því öllu sam- an.“ Guömunda sagöist hafa byrjaö búskap áriö 1927 á efsta loftinu í Félagsbakaríinu svonefnda, en þaö er stórt hús í miöju hverfinu. Aö sögn kunnugra liggur þetta fyrrum glæsilega hús nú undir skemmdum og litiö sem ekkert hefur veriö gert fyrir þaö. „Ég bjó þar síöan — lík- lega veriö á öllum hæðum — þar til ég giftist í annaö sinn og viö fluttum í þetta hús. Viö vorum hér 10 manns í heimili þegar mest var og auövitaö var þröngt, en þetta gekk ágætlega. Ég er nú oröin ein, börnin komin út

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.