Morgunblaðið - 13.12.1981, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1981
Hervæðingin í Nicaragua:
Sovétmenn leggja
til hergögn fyrir
milligöngu Kúbu
Hræðslan mest við orrustuþotur
BANDARÍSKIR herfrædingar og leyniþjónustustarfsmenn hafa að sögn
Richard Hallorans, hlaðamanns við The New York Times, samið skýrslu
um víðtæka hervæðingu í Nicaragua og þá hernaðaraðstoð, sem Sovétrík-
in og fylgiríki þeirra í AusturEvrópu veita þessu Mið-Ameríkuríki fyrir
milligöngu Kúbumanna.
Sérfræðingarnir segja, að með
hernaðaraðstoðinni sé að því
stefnt, að Nicaragua verði, undir
forystu hinnar vinstrisinnuðu
ríkisstjórnar sandínista, öflug-
asta ríkið í Mið-Ameríku. Að
mati sumra sérfræðinga er lang-
tímamarkmiðið með hernaðar-
uppbyggingunni að geta ógnað
jafnt olíulindum Mexíkó í norðri
og Panamaskurði í suðri.
Til þess að hervæða Nicaragua
hafa Sovétmenn efnt til mestu
hergagnaflutninga til Kúbu frá
því í Kúbudeilunni 1962. Frá
upphafi þessa árs hafa Sovét-
menn flutt um 56 þúsund lestir
af vopnum til Kúbu. Sérfræð-
ingarnir telja, að stærstur hluti
þessara nýju vígtóla hafi verið
ætlaður kúbanska hernum. Hins
vegar hafi Fidel Castro getað
látið stjórnvöldum í Nicaragua í
té gömul hertæki eftir að hann
fékk hin nýju.
Bandaríkjastjórn er sögð hafa
mestar áhyggjur af því, ef til
Nicaragua verði fluttar MIG-17
og MIG-21 sovéskar orrustuþot-
ur frá Kúbu. Að sögn háttsetts
bandarisks embættismanns hafa
Kúbumenn nýlega fengið 17
MIG-21 þotur af endurbættri
gerð frá Sovétríkjunum og þar
með einnig tækifæri til að ráð-
stafa eldri þotum til Nicaragua.
Þá hafa bandarískir embættis-
menn einnig látið í ljós það álit,
að líklega liði ekki á löngu, þar
til flugmenn frá Nicaragua, sem
nú eru i þjálfun í Búlgariu eða
öðrum kommúnistaríkjum í Evr-
ópu, snúi til Kúbu og nái þar i
orrustuþotur og flytji heim með
sér til Nicaragua. Er talið, að
þetta muni gerast með vorinu.
Fyrir liggja í Washington
loftmyndir frá Nicaragua, sem
sýna, að þar er verið að lengja
brautir að minnsta kosti þriggja
flugvalla, svo að þaðan megi
starfrækja fullkomnustu orr-
ustuþotur. Sovétmenn hafa látið
Nicaraguastjórn i té loftvarna-
byssur og litar eldflaugar til að
verja þessa flugvelli. Þá skýra
serfræðingarnir frá því í skýrslu
sinni, að stjórn Nicaragua hafi
gert hernaðarsamvinnusamning
við stjórnina í Víetnam. Sam-
kvæmt honum hafi ráðamenn í
Hanoi heitið því að senda 1000
þyrlur til Nicaragua, sem
Bandaríkjamenn hafi skilið eftir
í Víetnam á sinum tíma.
Sérfræðingar eru alls ekki á
einu máli um það, hvort þessi
mikla hernaðaruppbygging í
Nicaragua auki likur á því, að
her landsins verði beitt í ná-
grannaríkjunum. Til þess skorti
stjórnina þar margt, en þó eink-
um orrustuflugmenn og flug-
virkja auk manna til að stjórna
flugstjórnar-, ratsjár- og fjar-
skiptatækjum. Jafnframt er þó
vakin athygli á því, að önnur ríki
í Mið-Ameríku séu svo illa varin,
að með fáeinum MIG-orrustu-
þotum megi setja, þeim erfiða
kosti.
Sovétmenn hafa ekki aðeins
sent vopn til Nicaragua heldur
einnig hernaðarráðgjafa og
sömu sögu er að segja um önnur
Herfræðingar telja að Castro hafi
getað látið Nicaragua gömul her
tæki í té eftir að hann fékk ný
send frá Sovétríkjunum.
kommúnistaríki. Háttsettur
bandarískur embættismaður
komst svo að orði fyrir skömmu
um Managua, höfuðborg Nicar-
agua: „Hún er orðin alþjóðleg
miðstöð, þangað hafa hópast
Austur-Þjóðverjar, Búlgarir,
Norður-Kóreumenn, Sovétmenn,
Kúbumenn og jafnvel félagar í
PLO.“
Talið er, að 4000 til 6000 Kúbu-
menn séu í Nicaragua. Hlutverk
þeirra mun vera að þjálfa her
landsins, en AusturÞjóðverjar
eru að þjálfa öryggislögregluna.
Sérfræðingar segja, að mönnum
í her Nicaragua hafi fjölgað frá
því að vinstri stjórnin komst til
valda fyrir tveimur og hálfu ári
úr 7000 í um 80 þúsund, og nú
megi lýsa hernum sem blöndu af
venjulegum herafla og „militíu",
það er vopnuðum liðssveitum til
styrktar stjórnvöldum. Virðist
markmiðið vera, að í Nicaragua
verði um 50 þúsund manna her-
afli og 200 þúsund manna „mil-
itía“-sveitir.
Að sögn sérfræðinga hafa
bækistöðvar sjö stórra her-
stjórna sést í landinu. Sumar
þeirra eru sniðnar að sovéskri
fyrirmynd. Her Nicaragua ræð-
ur yfir um 25 gömlum sovéskum
skriðdrekum. Svo virðist sem
ætlunin sé að nota þá til að
halda íbúum landsins í skefjum,
þar sem frumskógar í Mið-
Ameríku eru síður en svo kjör-
lendi fyrir skriðdreka og tækin
því tæplega til innrása í önnur
lönd. Þá hafa Nicaraguamenn
einnig fengið vopn til varnar
gegn skriðdrekum, fallbyssur,
sprengjuvörpur, vélbyssur og
trukka frá kommúnistarríkjun-
um.
Mest af hergögnunum berst
frá Kúbu og eru þau yfirleitt
flutt með skipum til hafnarborg-
anna Puerto Cabezas á norð-
austur-strönd Nicaragua og
Bluefields á suðaustur-strönd-
inni. Nokkur brögð hafa verið að
því, að sögn sérfræðinga, að létt
vopn hafi verið flutt áfram frá
Nicaragua til E1 Salvador. Segj-
ast sérfræðingarnir hafa fundið
að minnska kosti fimm leiðir á
landi, sem notaðar séu til að
flytja vopn frá Nicaragua til
vinstri sinnaðra skæruliða í E1
Salvador. Auk þess séu vopn
flutt á milli landanna með skip-
um og flugvélum. Að sögn sér-
fræðinganna hefur nýlega verið
tekinn upp sá háttur við loft-
flutninga á vopnum frá Nicar-
agua, að þyrlur hefji sig á loft
þar í dagsbirtu og hagi síðan
flugi sínu þannig, að þær lendi í
El Salvador við sólsetur. Eftir að
þær hafa verið tæmdar fljúga
þær síðan í skjóli nætur aftur til
Nicaragua.
(Byggt á grein eftir Richard llalloran
hjá The New York Times frá 2. detc
ember sl.)
Lundia hillukerfið er úr massívri furu og með
óendanlega uppsetninga möguleika.
Hlýr mokkafatnaðuraðeins 1000 kr. útborgun
Gjafavörur: franskt postulín, trévörur og
jólaskraut.
Klub stólar aðeins kr. 254
Viö bjóðum fjölbreytta vöru fyrir
alla aldurshópa.
Falleg hönnun sameinar gagn og gildi.
Gott verö og afborgunarskilmálar, þar aö
auki erum við í miðju Bankastræti.
.... í fáum orðum sagt, Gráfeldur býður
þér gleðileg jól. ^
GRÁFELDUR W
Þingholtsstræti 2, Reykjavík Símar: 26540 og 26626