Morgunblaðið - 13.12.1981, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1981 3 7
Minning:
Ragnar Asgeirs-
son héraðslœknir
Vinir mínir fara fjöld,
feigóin þesttn heimtar köld,
ég kem á eftir, kannski í kvöld,
meó klofinn hjálm og rofinn skjöld.
brynju slitna, sundraó sveró.
og syndagjöld.
Þessi orð skáldsins frá Bólu
komu mér í hug, þegar ég í sumar
frétti lát æskuvinar míns og
skólabróður, Ragnars Ásgeirsson-
ar. Hann var fæddur að Sólbakka
við Önundarfjörð 14. desember
1911, og hefði því fyllt sjöunda
áratuginn á morgun.
Foreldrar hans voru Ásgeir
Torfason, skipstjóri og verk-
smiðjustjóri að Sólbakka og
Ragnheiður Eiríksdóttir frá
Hrauni á Ingjaldssandi. Ekki
skulu ættir þeirra raktar hér,
enda viðkunnar. Þegar Ragnar
hafði aldur til og að undirbún-
ingsnámi loknu, settist hann í
annan bekk Menntaskólans á Ak-
ureyri, og lauk þaðan stúdents-
prófi vorið 1933. Þaðan lá leiðin til
læknanáms við Háskóla íslands,
en þaðan lauk hann prófi 1940.
Saga hans á námsárum er einn-
ig saga margra annarar áhuga-
samra námsmanna. Unnið hörð-
um höndum á sumrin til þess að
standa straum af vetrardvöl á
skólabekk. Það voru kátir, lífs-
glaðir og fjörugir félagar, sem þar
völdust saman úr öllum lands-
hornum í MA. Æringjar og óróa-
seggir, með hæfilegri kjölfestu al-
vörumanna. Það ljómaði af degi
fagurrar framtíðar.
Lífið beið bjart framundan. í
þessu andrúmslofti bundust menn
órofa vináttuböndum. Ragnar var
þar hvers manns hugljúfi, fagur
ungur maður, traustvekjandi,
enda falin umsjónarmennska í
heimavistum.
Skólaárin liðu, ár áhyggjuleysis,
æskubreka og glaðværðar.
Og þá tók við lífið sjálft með
Leiðrétting
í minningargrein í hlaðinu í gær
um Þórunni Sigurgeirsdóttur, kaup-
konu, urðu þau mistök að í fyrir-
sögn stóð Sigurðardóttir. Um leið
og þetta leiðréttist, eru aðilar
beðnir afsökunar á þessu.
Góður rækjuafli
á Vestfjörðum
ÓVENJULEGA góður rækjuafli
var á veiðisvæðum Vestfjarðabáta
í nóvember. Samkvæmt tölum ísa-
fjarðarskrifstofu Fiskifélags ís-
lands kemur fram að heildarafl-
inn í mánuðinum var 906 lestir, og
er það afli 47 báta. í fyrra var afli
í sama mánuði 936 lestir en þá
stunduðu 56 bátar þessar veiðar.
Mestur var aflinn í ísafjarð-
ardjúpi í mánuðinum, 528 lestir.
öllum sínum þunga. Sitt lífspróf
stóðst hann með ágætum. Áður
fyrr myndi á því skírteini staðið
hafa „cum laude".
Ragnar var héraðslæknir í þrem
læknishéruðum, Reykjafjarðar —
Flateyrar og ísafjarðar, en í því
síðast talda dvaldi hann lengst,
röskan aldarfjórðung. í öllum
þessum héruðum sjást enn spor
hans, er komu fram í félagshyggju
hans, í sveitarstjórnarstörfum,
samvinnufélagastörfum og öllu
því, sem til framfara og góðs
máttu leiða. rótfesti bernsku og
æskuára helzt til hinzta dags. Svo
gilti og um vináttu, þótt vík væri
milli vina.
Lendur Sólbakka og Hvilftar
liggja saman, enda lágu þar gagn-
vegir. Stórir barnahópar voru á
báðum heimilum. Saman voru þau
í leik og í vinnu, er þeim óx fiskur
um hrygg.
Margt var sameiginlegt með
þessum heimilum, sérstaklega var
börnunum innrætt guðstrú og
manngildi. Þetta innræti bar
Ragnar með sér alla tíð. I lækn-
isstörfum sínum var hann farsæll,
enda með afbrigðum samvizku-
samur. Líknar- og læknishendur
hans björguðu fleiri mannslífum
en svo, að óviðkomandi viti. Það
vissi hann aðeins sjálfur, en var
þögull um.
Ragnar átti lífshamingju mikla,
en einnig andstreymi. Kvæntur
var hann Laufeyju Maríasdóttur.
Börn þeirra urðu fjögur, Ragn-
heiður Ása, Maria, Eiríkur og Þór-
ir Sturla, öll hin mannvænlegustu,
svo sem vænta mátti.
Síðustu fjögur árin, sem Ragnar
lifði, lá hann rúmfastur, lamaður
af völdum heilablæðingar. Var
það mikil raun honum sjálfum,
fjölskyldu hans, svo og vinum öll-
um.
Ekki verður skilist svo við þessi
fátæklegu orð án þess að minnast
á móðu hans, Ragnheiði, þessa
elskulegu ágætiskonu, sem öllum
vildi gott gera. Hún fylgdi nú
þriðja syni sínum til grafar á ní-
ræðisafmælisdegi sínum.
Stundum hryggist maður við
fráfall vina, en stundum er þökk
efst í huga. Svo var og hér. -En
eftir verða lífsárar minningar,
sem enginn geturt frá neinum tek-
ið. Frá öllum, sem þekktu Sól-
bakkaheimilið á dögum hjónanna
Ragnheiðar og Ásgeirs, streyma
þakkar- og samúðarhugir til eig-
inkonu, barna og allra ástvina.
Kær vinur er kvaddur um stund.
Sveinbjörn Finnsson
Beocenter 7002
Fjarstýrð hágæðasamstæða
Með því að ýta á einn takka á fjarstýringunni vír
sæti þínu getur þú fengið hljómlist frá hljómplötu/
segulbandstækinu eða útvarpstækinu. Stórir
ljósastafir í stjórnborðinu sýna þér stöðugt hvað
er í gangi. Hægt er að stýra tækinu með tölvunni
á tækinu sjálfu eða með fjarstýringu sem fylgir.
Komdu og skoðaðu — þú munt sannfærast.
Verð 18.254. Greiðslukjör.
Tölvuminni og tímatæki gera yður kleift að stilla
tölvuna innan 24 klst. þannig að tækið fari í gang
samkvæmt yðar óskum þ.e. t.d. kveikja á útvarp^
inu og taka upp á segulbandið.
Við álítum að viðskiptavinir okkar kunni heldur
betur að meta þetta.
x:
Bang&Olufsen
VERSUO í
SÉRVERSLUN
MEÐ
LITASJÓNVÖRP
OG HLJÓMTÆKI SKIPHOLTI 19 SlMI 29800