Morgunblaðið - 31.12.1981, Blaðsíða 16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1981
15
DAGSKRÁIN UM ÁRAMÓT
Hljódvarp á nýársdag kl. 16.20:
„Nú er kátt með
álfum öllumu
- þáttur í umsjá Jónínu H. Jóns-
dóttur og Sigríðar Eyþórsdóttur
Á dagskrá hljódvarps á nýársdag
kl. 16.20 er þáttur er nefnist „Nú er
kátt með álfum öllum“. Stjórnendur
eru Jónína H. Jónsdóttir og Sigríður
Eyþórsdóttir.
Tvö börn, Lind Einarsdóttir og
Helgi Hjörvar, flytja áramóta-
hugleiðingar sínar og Lind velur
til flutnings lag sem Manuela
Wiesier leikur á flautu, Vísu án
orða, eftir Guðmund Árnason af
plötunni Mannspil, sem kom út
fyrir skömmu. Sigríður Eyþórs-
dóttir les Þulu frá Týli eftir Jó-
hannes úr Kötlum. Helga Ás-
björnsdóttir (Lilla-Hegga) les
bréf, sem Þórbergur Þórðarson
skrifaði henni árið 1961, og Krist-
ín Lilliendahl syngur lagið Komdu
kisa mín, uppáhaldslag Þórbergs,
sem þau Lilla-Hegga sungu oft
saman. Fluttur verður stuttur
leikþáttur, „Huldufólk á gaml-
árskvöld", eftir Jónas Guðmunds-
son rithöfund. Sögumaður: Knút-
ur R. Magnússon. Ásta litla: Jón-
ína H. Jónsdóttir. Vala gamla:
Sigríður Eyþórsdóttir. Ennfremur
verða leikin álfalög.
Standandi á myndinni eru þau Jónína H. Jónsdóttir, Sigríður Eyþórsdóttir,
Knútur R. Magnússon og Þorbjörn Sigurðsson tæknimaður, en fyrir framan
þau situr Helga Ásbjörnsdóttir, öðru nafni Lilla-Hegga.
Sigurður Markan
Á nýárskvöldvöku hljóðvarps, sem
hefst kl. 20.40 er m.a. einsöngur:
Systkinin Markan, María, Elísabet,
Einar og Sigurður syngja nokkur lög
milli atriða, — sem Baldur Pálmason
kynnir. Á myndinni hér fyrir ofan eru
þau systkinin í hópi fjölskyldu og vina.
Fremst (f.v.) Einar Waage bassaleik-
ari, sonur Elísabetar, Stefanía Stef-
ánsdóttir, stjúpmóðir þeirra systkina,
Einar Magnússon, faðir þeirra, María
Markan, Elísabet. Aftar: Einar Mark-
an, Helma kona Einars, Ingibjörg
Kaldal, Kristjana, föðursystir þeirra,
Kristín Waage og Helga Weishappel,
dætur Elísabetar, Ingunn og Hansína,
vinkonur, Helga, elsta systirin. Aftast:
Fritz Weishappel, Gunnar Pétursson
og Markús Einarsson, elsti bróðirinn.
Kl. 22.30 í kvöld, gamlárskvöld, hefst í sjónvarpinu Aramótaskaup ’81. Höfundar þess eru leikararnir Gísli
Rúnar Jónsson, sem jafnframt er leikstjóri, Randver Þorláksson og Sigurður Sigurjónsson, en auk þeirra koma
svo ýmsir aðrir mætir menn fram, svo sem Þórhallur Sigurðsson, eða Laddi, sem er með þeim félögum hér á
myndinni. Að venju er litið á atburði liðins árs frá pínulítið öðru sjónarborni en venjulega.
Á dagskrá sjónvarps kl. 21.30 í kvöld, gamlárskvöld, er Jólaheimsókn í fjölleikahús. Frá jólasýningu í
fjölleikahúsi Billy Smarts. Á myndinni er kynnirinn Keat Harris, að ræða við ungan trúð.
Betisi
Kjarnason
(iunnar
Kyjólfsson
Árni
Tryftjvason
Ciísli
AlfreAsson
HljóÖvarp á laugardag kl. 11.20:
„Frænka Frankensteins“
- nýr framhaldsflokkur fyrir börn og unglinga
Frjálst útvarp
um áramót
Á dagskrá hljóðvarps kl. 00.10 er
Frjálst útvarp um áramót — áramóta-
skaup Kíkisútvarpsins.
— Við tökum þessa tilraun mjög
alvarlega, sagði Jónas Jónasson, for-
sjármaður FU. — Það fer eftir von-
um að það verður sitt af hverju sem
gerist í frjálsu útvarpi. Fyrir utan
aðalleikendurna tvo, Lilju Guðrúnu
Þorvaldsdóttur og Aðalstein Berg-
dal, er fólk tekið traustataki hér inn-
anhúss og hent inn í þetta. Höfundar
efnisins, sem eru blaðamaður og inn-
anhússmaður hér, vilja ekki láta sín
'getið-í-sambtmdi við frjálst útvarp: "
Laugardaginn 2. janúar kl.
11.20 hefst nýr framhaldsflokkur
í þremur þáttum fyrir börn og
unglinga, „Frænka Franken-
steins”. Höfundur er Allan Rune
Petterson, en Guðni Kolbcinsson
þýddi. Leikstjóri er Gísli Alfreðs-
son. í helstu hlutvcrkum eru Þóra
Friðriksdóttir, Bessi Bjarnason,
Gunnar Eyjólfsson og Arni
Tryggvason. Tæknimaður er Guð-
laugur Guðjónsson.
Fyrsti þáttur nefnist „Gangi
þér vel, Frankie sæll!“ Þar segir
frá því er Hanna Frankenstein
kemur til kastala ættarinnar
einhvers staðar í Transylvaníu.
I för nteð henni er Frans, ritari
hennar, sem varla getur talist
hugprýðin uppmáluð. Þegar
Hanna sér að kastalinn er kom-
inn í niðurníðslu, ákveður hún
að „flikka" dálítið upp á hann
og fá til þess aðstoð hjá vægast
sagt undarlegri mannveru, ef
mann skyldi kalla.