Morgunblaðið - 31.12.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1981
18
Hljóðvarp á laugardag kl. 19.3.‘
„Mér fínnst ég verda ungur aftur“
- Pétur Pétursson ræðir við Jón Pálsson sundkennara
Á dag.skrá hljóðvarps kl. 19.35
laugardag 2. janúar er viðtalsþátt-
ur, „Mér finnst ég verða ungur aft-
ur“. Jón l’álsson segir frá nýárs-
sundi í viðtali við Pétur Pétursson.
— Það voru íþróttafélögin sem
stóðu ár hvert fyrir þessu ný-
árssundi, sagði Pétur, en þá
þreyttu ungir menn sund hér í
höfninni, á milli Steinbryggjunn-
ar, sem kölluð var, niðurundan
þar sem Eimskipafélagshúsið
stendur núna á uppfyllingunni,
og yfir að Ziemsens-bryggju, og
verðlaunin voru afhent í svoköll-
uðu Salthúsi þarna við höfnina,
með tilheyrandi ræðuhöldum.
Synt var á nýársdag, oft í
15—22ja stiga frosti, og sund-
mennirnir treystu sér ekki til að
halda upp á jól eða áramót fyrr
en að loknu sundinu. Aðferðin
var frjáls, menn máttu synda
hvort sem þeir vildu bringusund,
hliðarsund eða baksund o.s.frv.
Það var árið 1922 sem Jón Pálss-
on vann fyrstu verðlaun en hann
tók oft þátt í þessu sundi ásamt
bræðrum sínum, þeim Ólafi og
Erlingi. Þessir sundgarpar voru
Jón Pálsson
synir Páls Erlingssonar, fyrsta
aðalsundkennarans hér í Reykja-
vík, en hann var bróðir Þorsteins
Erlingssonar skálds. Það má eig-
inlega segja að Reykvíkingar eigi
þessum bræðrum þremur, Jóni,
Ólafi og Erlingi, og föður þeirra,
Páli, að þakka sundkunnáttu
sína í dag.
— Ég var 17 ára gamall, þegar
ég synti þetta verðlaunasund,
sagði Jón Pálsson, — en var að-
eins 13 ára þegar ég tók fyrst
þátt í nýárssundi, í 18 stiga
frosti. í það sinn hreppti ég
þriðju verðlaun. Þá var Érlingur
bróðir minn í fyrsta sæti og Ólaf-
ur bróðir minn annar. Þetta var
nú ekki nema 50 metra sprettur
sem syntur var; það var varla
hægt að hafa það lengra í svona
kulda og sjávarhitinn rétt yfir
frostmarki. Ég tók alls sjö sinn-
um þátt í nýárssundinu.
- O -
I Morgunblaðinu 5. jan. 1922
segir svo frá þessum atburði:
„Nýárssundið var háð á ný-
ársdag í leiðinlegu veðri. Var þar
þó samankomið allmargt áhorf-
enda. Þátttakendur voru 10 tals-
ins. Vegalengdin sem synt var
var 50 metrar og varð Jón Páls-
son sundkennari Erlingssonar
hlutskarpastur og synti þessa
vegalengd á 37>/s sek. Fara hér á
eftir nöfn hinna þátttakendanna
og hraði þeirra: Pétur Árnason
38>/5, Ólafur Árnason 39V5, Óskar
Bergmann 41, Pétur Halldórsson
414/5, Gestur Friðbergsson 42,
Erl. Jónsson 47'A, Mart. Péturs-
son 47%, Friðrik Ólafsson 48%
og Friðrik Pálsson 50. Þrír þátt-
takendur syntu bringusund, 3
skriðsund, 2 hliðarsund og 2 yfir-
handarsund. Nýársbikarinn,
hinn þriðji í röðinni var afhentur
sigurvegaranum, tvo sem á und-
an eru gengnir hefir bróðir hans,
Erlingur yfirlögregluþjónn unn-
ið. Hefir hann sett met á nýárs-
sundi og er það 334/5 sek. Sjávar-
hitinn var 0,6 stig þegar sundið
fór fram og lofthitinn 4,0 stig.
Aldur sundmanna er 17—20 ár.
— Er þetta í 11. skifti sem ný-
árssund er háð og hefir félagið
„Grettir" staðið fyrir því að und-
anförnu, en nú hefir íþróttafé-
lagið „Gáinn" tekið við. En
hversvegna láta sundmennirnir
sumarið líða svo, að aldrei sé
þreytt kappsund? Án þess að am-
ast á nokkurn hátt við nýárs-
sundinu, virðist það þó liggja
nær að not.a besta tímann til úti-
íþrótta, sumarið, fremur en vera
að binda hið eina kappsund sem
hér er háð árlangt, við nýárs-
dag.“
Á laugardagskvöld kl. 22.30
endursýnir sjónvarpið bresku
bíómyndina Tom Jones, sem
gerð er árið 1963 og byggð á
sögu eftir Henry Fielding. Leik-
stjóri er Tony Rirhardson, en í
aðalhlutverkum Albert Finney,
Susannah York, Hugh Griffith
og Dame Edith Ewans. —
Kvikmyndahandbókin: Tvær
stjörnur. — Á myndinni er AÞ
bert Finney í hlutverki aðalsögu-
persónunnar, Tom Jones.
ÚTVARP DAGANA 31/12 - 2/i
FIM41TUDAGUR
31. desember
Gamlárskvöld
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.20 Leikfimi.
7.30 Morgunvaka. llmsjón: Páll
lleiðar Jónsson. Samstarfsmað-
ur: Guðrún Birgisdóttir. (8.00
Fréttir. Dagskrá. Morgunorð:
Dr. Þórir Kr. Þórðarson talar.
Forustugr. dagbl. (útdr.). 8.15
Veðurfregnir. Forustugr. frh.)
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: Jól
í Ixikum. Fjórði og síðasti þátt-
ur Hildar Hermóðsdóttur.
9.20 Ix'ikfimi. Tilkynningar.
Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.30 Tónleikar. Þulur velur og
kynnir.
11.00 ,,/Ettjarðarást“, smásaga
eftir Jóhönnu Brynjólfsdóttur.
Höfundur les.
11.20 Létt tónlist. Ýmsir flytjend-
ur.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar.
Á tjá og tundri. Kristín Björg
Þorsteinsdóttir og Þórdís Guð-
mundsdóttir velja og kynna
tónlist af öllu tagi.
15.00 Nýárskveðjur. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veð-
urfregnir.
(Hlé)
18.00 Aftansöngur í Hallgríms-
kirkju. Prestur: Séra Karl Sig-
urbjörnsson. Organleikari: Ant-
onio Corveiras.
19.00 Fréttir.
19.25 „Þjóðlagakvöld". Einsöngv-
arakórinn syngur með félögum í
Sinfóníuhljómsveit íslands
þjóðlög í útsetningu Jóns Ás-
geirssonar sem stjórnar flutn-
ingnum.
20.00 Ávarp forsætisráðherra, dr.
Gunnars Thoroddsen.
20.20 l.úðrasveit Reykjavíkur leik-
ur. Björn R. Einarsson stj.
21.(M) Heyrði ég í hamrinum. Þátt-
ur af álfum. Umsjón: Oskar
Ingimarsson.
21.15 Opið hús á Akureyri. Ingi-
mar Eydal og félagar mæta,
ásamt mörgum kunnum Akur
eyringum. Móttökustjóri: Gest-
ur Einar Jónsson.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Gamlar glæður. Minn-
ingabrot úr skemmtanalífinu:
Revíusöngvar, gamanvísur og
dægurlög frá fyrri hluta aldar-
innar. llmsjón: Kristín Á.
Olafsdóttir.
23.00 Brennumúsík. Jón Örn Mar
inósson velur og kynnir.
23.30 „Brennið þið vitar". Karla-
kórinn Fóstbræður og Sinfóníu-
hljómsveit íslands flytja lag
Páls ísólfssonar. Róbert A.
Ottósson stjórnar.
23.40 Við áramót. Andrés Bjöms-
son útvarpsstjóri flytur hugleið-
ingu.
23.55 Klukknahringing. Sálmur.
Áramótakveðja. Þjóðsöngurinn.
(Hlé).
(M).10 Frjálst útvarp um áramót.
Áramótaskaup Ríkisútvarpsins.
01.00 Frjálsar veðurfregnir.
01.10 Hljómsveitin Friðryk leikur
í útvarpssal á nýársnótt.
01.40 Gömlu stjörnurnar. Adda
Örnólfsdóttir rabbar um dæg-
urlagastjörnur fyrri ára og leik-
ur plötur með þeim.
02.10 Poppótt tilvera. Halldór
Árni snýr plötum á nýársnótt.
03.00 Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR
1. janúar
NÝÁRSDAGUR
9.30 Sinfónía nr. 9 í d-moll op.
125 eftir Ludwig van Beet-
hoven. Flytjendur: Anna Tom-
owa-Sintow, Agnes Baltsa, Pet-
er Schreier, José van Dam,
Söngfélag Vínarborgar og Fíl-
harmoníusveitin í Berlín.
Stjórnandi: Herbert von Kara-
jan. Þorsteinn Ö. Stephenscn
les þýðingu Matthíasar Joch-
umssonar á „Óðnum til gleð-
innar" eftir Schiller.
11.00 Messa í Dómkirkjunni.
Biskup íslands, herra Pétur Sig-
urgeirsson, prédikar. Séra Þórir
Stephensen þjónar fyrir altari.
Organleikari: Marteinn H. Frið-
riksson.
Hádegistónleikar.
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tónleikar.
13.00 Ávarp forseta íslands, Vig-
dísar Finnbogadóttur — Þjóð-
söngurinn. (Hlé.)
13.35 Operutónleikar. Þýskir og
austurrískir listamenn syngja
og leika.
14.30 Auðlindirnar og þjóðin, —
hvernig eigum við að nýta land-
ið og hafið á næstu árum?
Gunnar G. Schram stjórnar um-
ræðuþætti á nýársdag.
15.15 Píanóleikur í útvarpssal.
Edda Erlendsdóttir leikur.
a. Sónata í A-dúr op. 120 eftir
Franz Schubert.
b. Noveletta nr. 8 op. 21 eftir
Robert Schumann.
15.45 „Móðurjörð hvar maður
fæðist“. Þorsteinn frá Hamri
velur og flytur ættjarðarljóð.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 „Nú er kátt með álfum öll-
um“. Stjórnendur: Jónína H.
Jónsdóttir og Sigríður Eyþórs-
dóttir. Efni m.a.: Tvö börn, Lind
Einarsdóttir og Helgi Hjörvar,
flytja áramótahugleiðingar sín-
ar. Helga Ásbjörnsdóttir (Lilla-
llcgga) les bréf, sem Þórbergur
Þórðarson skrifaði henni árið
1961. „Huldufólk á gamlárs-
kvöld“, stuttur leikþáttur eftir
Jónas Guðmundsson rithöfund.
Sögumaður: Knútur R. Magn-
ússon. Ásta litla: Jónína H.
Jónsdóttir. Vala gamla: Sigríður
Eyþórsdóttir. Ennfremur verða
leikin álfalög.
17.00 Operutónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands í Háskóla-
bíói 12. nóvember sl. — síðari
hluti. Einsöngvarar: Dorriet
Kavanna og Kristján Jóhanns-
son. Stjórnandi: Páll P. Páls-
son. Flutt verða atriði úr óper
um eftir Wolf-Ferrari, Puccini
og Verdi. — Kynnir: Jón Múli
Árnason.
18.00 Öldruð kona í Grímsey. Jök-
ull Jakobsson ræðir við Ingu
Jóhannesdóttur, 97 ára. (Áður
útvarpað 21. júlí 1971.)
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.25 Frá Þingvöllum. Séra Eirík-
ur J. Eiríksson, fyrrverandi
þjóðgarðsvörður, flytur erindi.
20.00 Iáig unga fólksins. Hildur
Eiríksdóttir kynnir vinsælustu
lög þáttarins 1981.
20.40 Kvöldvaka
a. Pétur í Holti. Hallgrímur
Jónasson rithöfundur segir
sögu tólf ára drengs, sem sækir
lyf handa móður sinni um jóla-
leytið.
b. Lofsöngur um þá hógværu og
tvö önnur kvæði úr Sjödægru
Jóhannesar úr Kötlum. Anna
Magnúsdóttir á Siglufirði les.
c. í skóla hjá skáldum. Valgeir
Sigurðsson talar við Soffíu
Eygló Jónsdóttur í Kópavogi,
sem segir m.a. frá kynnum sín-
um af Þorbergi Þórðarsyni og
Þorsteini Valdimarssyni.
d. Vísur jólasveins. Markús
Jónsson á Borgareyrum í Rang-
árþingi fer með frumortan brag.
e. Talað við börnin. Jónas
Jónsson fyrrum kennari frá
Brekknakoti flytur tölu úr
gömlu samkvæmi.
f. Einsöngur. Systkinin Mark-
an: María, Elísabet, Einar og
Sigurður syngja nokkur lög
milli atriða, — sem Baldur
Pálmason kynnir.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Orð
kvöldsins.
22.35 „Hver má sér fyrir álfum
skýla". Lesið úr Ijóðum Jóhann-
esar úr Kötlum og þjóðsögum
Jóns Árnasonar. Umsjón: Þórir
Steingrímsson. Lesari með hon-
um: Saga Jónsdóttir.
23.00 Kvöldgestir — þáttur Jónas-
ar Jónassonar.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
L4UG4RD4GUR
2. janúar
7.00 Veðurfrcgnir. Fréttir. Bæn.
7.20 Leikfimi.
7.30 Tónleikar. Þulur velur og
kynnir.
8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgun-
orð: Arnmundur Jónasson talar.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Tónleikar.
8.50 Leikfimi.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
9.30 Oskalög sjúklinga. Kristín
Sveinbjörnsdóttir kynnir. (10.00
Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.)
11.20 Barnalcikrit: „Frænka
Frankensteins“ eftir Allan
Rune Petterson. 1. Þáttur:
„Gangi þér vel Frankie sæll“.
Þýðandi: Guðni Kolbeinsson.
Leikstjóri: Gísli Alfreðsson.
Leikendur: Þóra Friðriksdóttir,
Bessi Bjarnason, Baldvin Hall-
dórsson, Valdemar Helgason,
Árni Tryggvason, Klemenz
Jónsson og Jón Sigurbjörnsson.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.35 íþróttaþáttur. Umsjón: Her-
mann Gunnarsson.
13.50 Vinsælustu dægurlögin á ný-
liðnu ári. Páll Þorsteinsson
kynnir.
15.40 íslenskt mál. Guðrún Kvar
an flytur þáttinn.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veð-
urfregnir.
16.20 Klippt og skorið. Stjómandi:
Jónína H. Jónsdóttir.
17.00 Síðdegistónleikar: Samleik-
ur í útvarpssal. Flytjendur:
Óskar Ingólfsson, Snorri S.
Birgisson, Kolbeinn Bjarnason,
Friðrik Már Baldursson, James
Kohn, Guðrún Þórarinsdóttir
og Paula Parker.
a. Fjögur íslensk þjóðlög í út-
setningu Þorkels Sigurbjörns-
sonar.
b. „IVP“ eftir Karólínu 'Ei-
ríksdóttur.
c. „Elegy“ op. 44 eftir Alexand-
ar Glasunoff.
d. Sónata í f-moll op. 120 eftir
Johannes Brahms.
18.00 Söngvar í léttum dúr. Til-
kynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 „Mér finnst ég verða ungur
aftur.“ Jón Pálsson segir frá ný-
árssundi í viðtali við Pétur Pét-
ursson.
20.00 Lúðrasveit verkalýðsins
leikur í útvarpssal. Stjórnandi:
Ellert Karlsson.
20.30 Úr Ferðabók Eggerts og
Bjarna. Fimmti þáttur Tómasar
Einarssonar. llm rannsóknir og
fleira. Rætt er við dr. Svein Jak-
obsson jarðfræðing. Lesarar:
Snorri Jónsson og Valtýr
Oskarsson.
21.15 Töfrandi tónar. Jón Gröndal
kynnir tónlist stóru dans-
hljómsveitanna (The Big
Bands) á árunum 1936—1945.
Tíundi þáttur: Sammy Kay,
Larry (’linton og Hall Kemp.
22.00 Fritz Wundcrlich syngur lög
úr óperettum með Sinfóníu-
hljómsveit Graunkis; Garl
Michalski stj.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.35 „Vetrarferð um Lappland"
eftir Olive Murrey Chapman.
Kjartan Ragnars sendiráðu-
nautur les þýðingu sína (8).
23.00 Danslög.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
. i 'i j'i» i'w