Morgunblaðið - 22.01.1982, Page 19

Morgunblaðið - 22.01.1982, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1982 19 Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli: Yfírvinna greidd en bónusgreiðslum hætt Launagreiðslufyrirkomu- lagi því er verið hefur við lýði í Fríhöfninni á Keflavíkur flugvelli í eitt ár, hefur nú verið breytt. Fá starfsmenn nú yfirvinnu og vaktaálag greitt eins og aðrir launþeg- ar, en fyrra kerfi, bónuskerfi, Borgarráði þótti ljósritun- arvél of dýr Á fundi borgarráðs fyrr í vik- unni var (elld tillaga um að kaupa Ijósritunarvél fyrir Félags- málastofnun Rcykjavíkur. Þótti meirihluta borgarráðs ljósritunarvél sú, sem kaupa átti, vera of dýr, en hún átti að kosta 124 þúsund krónur, eða 12,4 milljónir gamalla króna. Sigurjón Pétursson forseti borgarstjórnar var sá eini er studdi tillöguna um kaupin. Ljósritunarvél var keypt á síðasta ári til Félagsmála- stofnunar, sem að mati starfs- fólks þar er ekki nægilega full- komin. Var því ætlunin að koma henni fyrir í einu af úti- búum stofnunarinnar, en kaupa nýja í staðinn. var þannig upp byggt að starfsmenn voru á föstum launum, en yfirvinna og vaktaálag var greitt í sam- ræmi við hagnað og veltu fyrirtækisins. Guðmundur Karl Jónsson lög- fræðingur, framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að ástæð- ur þess að ákveðið var að hverfa aftur að fyrra fyrirkomulagi, væru margar. Svona samningur hefði ekki áður verið gerður innan ríkiskerfisins, og hefði því ýmsar hliðar sem ekki hefðu reynst vel er frá leið. Þungt hefði til dæmis vegið að uppgjör er á sex mánaða fresti, og voru menn því að fá greidda í júlí yfirvinnu er þeir unnu í janúar og svo framvegis. „Slíkt virkar ekki hvetjandi," sagði Guðmundur, „og sú ástæða og fleiri urðu til þess að ákveðið var að hverfa til fyrra fyrirkomu- lags.“ Guðmundur sagðist þó telja að reynslufyrirkomulagið hefði gefist vel á ýmsa lund. Til dæmis hefði komið vel í ljós hver væri raun- veruleg starfsmannaþörf. Fyrir breytinguna hefðu starfsmenn á lager og í verslun verið 37 og stundum 38, en nú væru þeir 26, fastráðnir starfsmenn, og yrði þeim ekki fjölgað. Sjálfstæðishúsið á Akureyri: Tjónið metið á 4 milljónir kr. TJÓNIÐ í Sjálfstæðishúsinu á Akur eyri, sem varð við bruna þar rétt fyrir jólin, er mctið á 4 milljónir króna að sögn Gunnars Kagnars stjórnarfor manns Akurs. Knn er óvíst um fram- tíð hússins, en Gunnar sagði, að ákvörðun yrði tekin um það núna um helgina. Hugmyndir eru uppi um að Prófkjör Alþýðu- flokksins í Rvík: Tólf bjóða sig fram PROFKJÖR Alþýðuflokksins í Reykjavík, fyrir borgarstjórnar kosningarnar í maí nk., fer fram 13. og 14. febrúar nk. Tólf manns hafa boðið sig fram í prófkjörinu, af þeim sjö í 1.—6. sæti. Eftirtaldir verða á próf- kjörslistanum og hafa boðið sig fram í tilgreind sæti; 1.—6. sæti: Bjarni P. Magnússon, Bragi Jósepsson, Marías Sveinsson, Sigurður E. Guð- mundsson, Sjöfn Sigurbjörns- dóttir, Skjöldur Þorgrímsson og Snorri Guðmundsson. 2.—6. sæti: Grétar G. Nikulásson, 3.—6. sæti: Guðríður Þor- steinsdóttir og Jón Hjálmars- son, 4.-6. sæti: Guðmundur Haraldsson og 5.-6. sæti Ásta Benediktsdóttir. Framhaldsskólinn í Neskaupstað. Neskaupstaður: Fjárveitingu til Fram- haldsskólans mótmælt koma á fót skemmtistað í Alþýðuhús- inu á Akureyri. Gunnar Ragnars sagði í gær, að ekki væri unnt að segja neitt um framtíð Sjálfstæðishússins á þessu stigi. Fundur væri boðaður nú um helgina og yrði þar væntanlega tek- in ákvörðun um hvað gert yrði við húsið. í Akureyrarblaðinu Degi, 19. janúar sl., er sagt að Sigurður Sig- urðsson framkvæmdastjóri Sjálf- stæðishússins jog Júníus Björg- vinsson sem rekur matsölupa í Hót- el Varðborg hafi í hyggju að taka Alþýðuhúsið á leigu og setja þar upp skemmtistað. I viðtali við Dag segir Sigurður, að hugmynd þeirra sé að reka staðinn a.m.k. fyrst í stað með árshátíðir og þorrablót í huga, þ.e. ekki sem opinn skemmtistað. Hótel Varðborg mun annast mat- reiðsluna. „Allinn", eins og Alþýðu- húsið er nefnt meðal Akureyringa, tekur 150—180 manns að sögn Sig- urðar. H/KJARSTJORN Neskaupstaðar, skólanefndarmenn og starfsfólk Framhaldsskólans í Neskaupstað hefur sent menntamálaráðherra, fjár málaráðhcrra og þingmönnum Aust- urlands ályktun, þar sem lýst er yfir mikilli óánægju með þær fjárveit- ingar, sem ætlaðar eru til Fram- haldsskólans í Ncskaupstað á fjárlög- um þessa árs. í ályktuninni segir, að áætlað fjármagn dugi hvergi til að taka í notkun það skólahús, sem stað- ið hefur fokhelt frá 1980, en skólinn starfi nú í bráðabirgðahúsnæði víða um bæinn. Framhaldsskólinn í Neskaupstað var stofnaður á sl. ári. Skólanum er ætlað að vera kjarnaskóli iðn- og tæknimenntunar á Austurlandi og starfar m.a. samkvæmt lögum um iðnfræðslu sem segja að iðnskóli skuli vera í hverju kjördæmi lands- ins. Skólinn mun einnig sinna námi tengdu sjávarútvegi, en náms- brautum á því sviði hefur enn ekki verið sinnt sem skyldi í íslenskum framhaldsskólum. Mikilvægt er að skólum við sjávarsíðuna sé gert kleift að bæta þar um, enda til van- sæmdar að aðalatvinnuvegi þjóðar- innar skuli svo illa sinnt innan skólakerfisins. Framhaldsskólinn í Neskaupstað býður einnig upp á nám á styttri bóknámsbrautum, m.a. heilsugæslubraut í tengslum við Fjórðungssjúkrahús Austur- lands í Neskaupstað. Austurland þarfnast menntaðs fólks, ekki síst á sviði iðnaðar og sjávarútvegs. I því sambandi má nefna þá orku- og iðnaðaruppbygg- ingu sem er í undirbúningi í fjórð- ungnum. Með markvissara skipu- lagi sjávarútvegs krefst sá at- vinnuvegur einnig sérmenntaðs fóiks í ríkari mæli en fyrr. Fundurinn fagnar myndarlegum fjárframlögum til Menntaskólans á Egilsstöðum, en honum og Fram- haldsskólanum í Neskaupstað er ætlað að vera kjarnaskólar fram- haidsnáms á Austurlandi. Þessir tveir skólar, ásamt öðrum skólum með framhaldsnám í fjórðungnum, hafa með sér nána samvinnu og verkaskiptingu. Fundurinn bendir á að það getur orðið afdrifaríkt austfirsku at- vinnulífi ef þeirri stofnun, sem annast á verkmenntun í fjórðungn- um, er ekki gert kleift að gegna hlutverki sínu. Því beinir fundur- inn því til menntamálaráðherra, fjármálaráðherra og þingmanna Austurlands að þeir leiti leiða til þess að viðbótarfjárveiting fáist til Framhaldsskólans í Neskaupstað svo hægt verði að bæta starfsað- stöðu nemenda og kennara á næsta skólaári, segir í ályktuninni. 400 beiðnir um leit að horfnu fólki í Póllandi 0' INNLENT RAUÐA krossinum hafa borist um 400 beiðnir um ad hafa upp á horfnu fólki í Póllandi. Tekist hefur að greiða úr 90 þessara mála. Alþjóða- ráð Rauða krossins hefur boðað til fundar í Genf mánudaginn 18. janú- ar um alþjóðlegt Rauða krossstarf í Póllandi. Að loknum fundinum um Pól- land verður haldinn fundur um Kampútseu en þar hefur Alþjóða- samband Rauða krossfélaga tekist á hendur að halda uppi heilsu- gæzlu þar til heilbrigðisyfirvöld og Rauði kross landsins eru fær um að annast þau mál sjálf. Jón Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Rauða kross íslands, situr fundina af hálfu íslenzka Rauða krossins. * Islendingar 231.608 1. desember sL: Landsmönnum fjölg- aðá um 2.823, eða 1,23% Fann einhver gullhring? í frétt Mbl. á þriðjudaginn um týndan hring misritaðist heimil- isfang eiganda hringsins. Heimil- isfangið er Básendi 4 og síminn 86207. Ef einhver hefur fundið gullhring í Skipholti með áletrun- inni ORJ er hann beðinn að hringja í ofangreint númer eða skila honum að Básenda 4. sember sl. voru íslend- samkvæmt bráðabirgða- Íslands. Hafði þeim írá I. desembcr árið 3%. Á höfuðborgar i 122.806 manns 1. afði fjölgað um 1.941 áður, eða um 1,61%. I*Reykjavík voru samtals 84.469 manns 1. desember sl. og hafði fjölg- að um 1.020 frá sama tíma árið á undan, eða um 1,22%. í öðrum sveit- arfélögum á höfuðborgarsvæðinu voru samtals 38.337 manns og hafði fjölgað um 921 frá sama tíma árið á undan, eða um 2,46%. Á Suðurnesjum, Kjalarnesi og í Kjós bjuggu 14.093 manns 1. des- ember sl. og hafði fjölgað um 359 frá árinu á undan, eða um 2,61%, sem er mesta fjölgun milli ára á einu svæði. Á Vesturlandi bjuggu 14.093 manns 1. desember sl. og hafði fjölg- að um 122 á árinu á undan, eða um 0,82%. Á Vestfjörðum bjuggu 10.518 manns 1. desember sl. og hafði fjölg- að um 72 frá árinu á undan, eða um 0,69%. Á Norðurlandi vestra bjuggu sam- tals 10.713 manns 1. desember sl. og hafði fjölgað um 56 frá árinu á und- an, eða um 0,53%. Á Norðurlandi eystra bjuggu samtals 25.890 manns iri, 1. desember sl. og hafðSkfjölgað um 190 frá árinu á undan, eð^uriý),74%. Á Austurlandi Aiuggu samtals 12.940 manns 1. ^æsmiber sl. p>g hafði fjölgað um 41Trá*rræári, eða um 0,32%. Á Suðurlandi bjuggu samtals 19.656 manns 1. desembergl. og hafði fjölgað urOl eða um 0,14%. Samkvæmt tölum hagl’tölunnar er Kópavogur annað stærsfa bæjarfé- lag landsins á eftir Reykjavík, en 1. desember sl. bjuggu í Kópavogi 13.977 manns. Á Akureyri bjuggu 1. desember sl. 13.594 manns og í Hafn- arfirði bjuggu samtals 12.281 maður 1. desember sl. rfJgS fl f^yrni ; ^sTmunna Tónleikar á Akranesi LAIJGARDAGINN 23. janúar halda Unnur Jónsdóttir söng- kona og Jónína Gísladóttir pí- anóleikari tónleika í Tónlistar skólanum á Akranesi, og hefj- ast þeir kl. 15.00. Á efnis- skránni eru m.a. verk eftir Áma Thorsteinsson, Sigvalda Kaldalóns, Brahms, Dupare, Rarhmaninoff og Rossini. Unnur Jónsdóttir er fædd í Reykjavík. Hún stundaði nám við Söngskólann í Reykjavík og i London. Hún er nú söngkona við Tónlist- arskólann á Akranesi. Jónína Gísladóttir er fædd* í Reykavík. Hún stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og er núna píanó- kennari og undirleikari við JNýja Tónlistarskólann ööngskólann í Reykjavík. Þær Unnur og Jónína héldu tójileika í Norræna húsinu 10. janúar sl. fyrir fullu húsi. Aðgöngumiðar að tónleik- unum, laugardaginn 23. janú- ar, verða seldir við inngang- inn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.