Morgunblaðið - 22.01.1982, Page 25

Morgunblaðið - 22.01.1982, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1982 25 skynja menn í dag og þjóðarleið- togar eru farnir að hlusta á hvað hún hefir til málanna að leggja. Fundir og ráðstefnur eru haldnar á vegum hennar, og þeir sem ráða málum þjóðanna eru farnir að sitja fundi hennar og hlusta á það sem hún hefur til málanna að leggja. Ef til vill eygja þeir þar, þrátt fyrir allt, von, í heimi, sem á stundum virðist vera svo vonlaus. A leiðinni heim Ráðstefnunni í Croydon á Eng- landi lauk með því að ráðstefnu- gestum voru flutt orð úr I. Pét- ursbréfi, en þar segir: „Ástundið frið og keppið eftir honum." Á heimleiðinni, eða á leiðinni út á Heathrow-flugvöll, urðu ráð- stefnugestir áþreifanlega varir við, að víða ríkir ófriður, og jafn- vel bræður berjast. írski lýðveld- isherinn hafði sprengt upp verslun eina og fjölmargir saklausir borg- arar særðusi. illa. Daginn áður vorum við einmitt staddir á sömu slóðum og virtist allt umhverfið og þeir menn, sem tilheyrðu því, vera friðsamlegir og góðsamir. En um það er ekki spurt, þá er stríð er háð. Þessi atburður kom okkur til að hugsa til umræðna frá deginum áður, en þá var fjallað um réttinn til að lifa, sem er undirstaða, grundvöllur allra mannréttinda. Sá réttur er öllum mönnum gef- inn. Skylda okkar er að vinna að því að hann sé ekki fótum troðinn. Kristur sjálfur lagði áherslu á, að hver einstaklingur skipti óendan- lega miklu máli. Maðurinn, sem sköpun guðs, hefur rétt á að lifa, helst farsælu lífi. Það gerir hann með því að elska náungann og elska guð. Það gerir hann með því að breiða út frið á meðal manna, á meðal þjóða. Því sælir eru frið- flytjendur. Á bak við orðin fornu, kveðjuna sem hin kristna kirkja er í sífellu að flytja, er líf og sannleikur. Þessi orð þekkja allir kristnir menn. Þau eru kveðjur, sem hlaðnar eru merkingu. Þau eru orð sem benda til vonar. Þessi orð eru: „Friður sé með yður.“ Hjónaband þeirra Lárusar Björnssonar og Péturínu Jó- hannsdóttur hefur varað í 66 ár, vegferð þeirra hefur verið góð einsog ævikvöld þeirra nú. Það var þann 10. des. 1979, á níræðisafmæli Lárusar, að ég var kvaddur fram að Bakka í Vatnsdal til að skíra þar barn. Lárus var langafi þess og skyldi halda því undir skírn þó blindur væri. Mér varð að orði: Getur þú þetta Lárus minn? Sagði hann þá hýrleitur: Ég er alvanur. Mátti nú ekki á milli sjá hvor var færari við barns- skírnina, ég fast kominn að sjö- tugu og Lárus níræður. Fallega hélt hann á barninu við barm sér, er svaf vært. Mér komu í hug orðin, sá má sér barn í barmi geyma, sem bera vill af sinni þjóð. Pétur Þ. Ingjaldsson 22 tonn fram- leidd af papriku í fyrra Kartöfluuppskeran árið 1981 er áætluð 106.403 tunnur, sem var tæplega 70 þúsund tunnum minni uppskera en árið áður. Uppskerai; brást að verulegu leyti við Eyjafjörð og á Austurlandi. Þá brást einnig uppskera gulrófna að mestu. Framleiðsla á helstu tegundum grænmetis var mjög hliðstæð á síðasta ári og á árinu 1980. Upp- skera tómata reyndist vera um 520 lestir, af gúrkum fengust 395 lestir, hvítkál var um 344 lestir, blómkál 125 lestir, gulrætur 116 lestir og paprika 22 lestir, segir í fréttabréfi landbúnaðarins. Tækniskóli íslands: 54 nemendur luku lokaprófum í fyrra Jörgen Frank Michelsen og Guðrún Pálsdóttir Minnast aldarafmælis Jörgen Fr. Michelsens AFKOMENDUR hjónanna Guðrún ar Pálsdóttur og Jörgen Frank Michelsens munu á laugardags- kvöld minnast aldarafmælis Jörgen Franks, en hann kom til Sauðár- króks frá Horsens á Jótlandi árið 1907. Fyrstu tvö árin vann hann sem úr- og gullsmiður hjá Jóhannesi Norðfjörð, sem þá var úrsmiður þar. Síðar setti hann upp eigið verkstæði þar og rak það til ársins 1945 ásamt verslun með hreinlæt- isvörur, úr, skartgripi, reiðhjól o.fl. Tíunda júní 1910 kvæntist hann Guðrúnu Pálsdóttur, sem var eyfirskrar ættar. Eignuðust þau 12 börn og eru 9 þeirra á lífi. Jörgen Frank fékkst við búskap, sem var honum mikið áhugamál, átti kýr, hesta og hænsni, svín, endur, gæsir og kanínur. Hann var slökkviliðsstjóri í 25 ár og aðal- hvatamaður að því að línuveiðar- inn Skagfirðingur var keyptur til Króksins. Þá gerðu þau hjón til- raunir með geymslu garðávaxta, sem varð til þess að kartöflu- geymsla var byggð í Kirkjuklauf. Afkomendur Michelsenshjón- anna, sem töldu sig Skagfirðinga, minnast aldarafmælisins i Bú- staðakirkju laugardagskvöldið 23. janúar. T/EKNISKÓLI íslands er nú á 18. starfsári, segir í frétt frá skólanum. Regiulegir nemendur voru nær 400 við upphaf skólaárs, þar með taldir nemendur í útstöðvum við iðnskólana á Akureyri og á ísa- firði, en ' Vestmannaeyjar voru ekki með í þetta sinn. Fastráðnir kennarar auk rekt- ors eru 16. Reglubundna stunda- kennslu stunda jafnan u.þ.b. 50 kennarar, og fjöldi gestafyrir- lestra er á hverju ári nálega annað eins. Lokaprófum frá skólanum árið 1981 luku nemendur sem hér segir: Meinatækni 19, byggingatækni- fræði 9, útgerðartækni 16, iðn- fræði í rafmagni 7, iðnfræði í vél- um 2 og iðnfræði í byggingum 1. Raungreinadeildarprófi luku 56, 1. hluta véltæknifræði 7 og 1. hluta raftæknifræði 12. Skrá yfir þá sem brautskráðust með lokapróf 19. des. 1981: Byggingatæknifræðingar: Guðni Guðnason, Gunnar M. Karlsson, Gunnlaugur Kristjáns- son, Gylfi Magnússon, Hörður Al- bertsson, Höskuldur Heiðar Ás- geirsson, Sigurður Valur Ást- bjarnarson, Sigurður Einarsson, Skúli Ágústsson. Iðnfræðingar eða tæknar í: rafmagni: Grettir Grettisson, Gunnar Hermannsson, Ingvar Garðarsson, Kristinn Björnsson, Magnús Kristinsson, Sævar Ríkarðsson, Ástvaldur Erlingsson. vélum: Karl Geirsson, Eiríkur Einars- son. byggingum: Orn Haraldsson. Fenner Reimar og reimskífur Akureyri, 12. janúar. KNDURHÆFINGARSTÖÐ Sjálfs- bjargar á Akureyri var flutt í hið nýja og rúmgóða stórhýsi félagsins, Bjarg í Bugðusíðu I í byrjun október sl. Þar fer fram einstaklingsmeðferð sjúklinga samkvæmt tilvísunum lækna alla virka daga kl. 8—17, og verður sú starfsemi rekin áfram eins og verið hefir. Hins vegar er nú verið að hefja nýjan þátt starfseminnar, sem er fjölbreytt líkamsrækt til að koma í veg fyrir atvinnusjúkdóma. Á tím- anum kl. 17—19 fara fram hóp- þjálfunarnámskeið, sem stjórnað er af lærðum sjúkraþjálfurum. Áhersla verður lögð á almenna uppbyggjandi þjálfun, slökun og j þjálfunarsalnum. Sjálfsbjörg Akureyri: Almenn líkams- og for- vörn gegn atvinnusjúkdómum bakþjálfun auk fræðslu um starfsstellingar, vinnutækni og yf- irleitt allt það, sem hjálpar fólki að viðhalda eðlilegu líkamsástandi. Á tímanum kl. 19—22 og laug- ardögum kl. 14—17 er stöðin opin fyrir almenna líkamsrækt gegn að- gangskortum, sem seld eru á staðnum og kosta 250 krónur (mánaðarkort). Til þessara tveggja þátta í starfsemi Endurhæf- ingarstöðvarinnar eru allir vel- komnir, en hópþjálfunarnámskeið- in verða í 8—10 manna hópum. í 120 fermetra sal hefir verið komið fyrir þjálfunartækjasam- stæðu af norskri gerð, og eru tækin talin mjög fullkomin og örugg. Hún er hönnuð af Olav Evjent, norskum sjúkraþjálfara og víð- kunnum sérfræðingi í meðferð baksjúkdóma. Hann var og afreks- maður í frjálsum íþróttum og hefir verið viðriðinn þjálfun norska landsliðsins í þeim greinum árum saman. Með þessum tækjum er hægt að æfa heila hreyfiferla með æskilegu álagi. Auk þeirra eru í salnum eða í tengslum við hann sólbaðstofur, nuddstofur og ýmis- leg rafmagnstæki til margs konar styrkingar og meðferðar líkamans. Leiðbeinendur verða íþrótta- kennari og afreksfólk í íþróttum, sem jafnframt er sérmenntaðir sjúkraþjálfarar, en nám í sjúkra- þjálfun tekur nú 4 ár við Háskóla Islands. Eftirlit og kennsla verður því í eins góðu lagi og unnt er, og Bjarg er eini staðurinn á Akureyri, utan sjúkrahússins, þar sem sjúkraþjálfarar starfa, en þeir, ásamt læknum, eru þeir einu, að því er best er ,vitað, sem sam- kvæmt lögum hafa leyfi til að með- höndla sjúkdóma í hreyfikerfi, sjúkraþjálfarar þó aðeins eftir til- vísun frá læknum. Því má bæta við, að í Bjargi er jafnan sérþjálfað fólk í blástursaðferð og hjarta- hnoði. Tilgangurinn með þjálfuninni er ekki sá að byggja „vöðvafjöll", heldur að hindra atvinnusjúkdóma og hjálpa fólki til að halda við eðli- legu líkamsástandi. Reynslan sýn- ir, að fólk getur orðið að sjúkling- um við vinnu sína eða tómstundir með einhliða beitingu eða of- eða vanbeitingu einstakra líkams- hluta. Oft má koma í veg fyrir slíkt, og þjálfunarstarfið á að miða að því. Það er líka stefna forráða- manna Endurhæfingarstöðvarinn- ar að ljúka meðferð atvinnusjúk- dóma með því að fylgja sjúkling- unum eftir út á vinnustaði og leita þar orsaka sjúkdómsins og upp- ræta þær, ef unnt er. Forstöðumaður Endurhæfingar- stöðvarinnar í Bjargi er Magnús Ólafsson, íþróttakennari og sjúkraþjálfari, læknir stöðvarinn- ar Magnús Ásmundsson og for- maður Sjálfsbjargar, félags fatl- aðra á Akureyri, er Skarphéðinn Karlsson. Sv.P. Starf.sfólk Kndurhæfingarstöðvar innar. frá vinstri: Ólöf Stoingríms- dóttir, nemi, liöskuldur llöskulds- son, sjúkraþjálfari, Sara Hafsteins- dóttir, sjúkraþjálfari, Magnús Olafs- son, forstöðumaður, Guðrún Sigur jónsdóttir, nemi, Svandís Hauks- dóttir, sjúkraþjálfari. — Á myndina vantar: Agneu Tryggvadóttur, Maríu llrólfsdóttur, aðstoðarstúlkur, og Yilhjálm Inga Árnason, sjúkraþjálf- ara. Ljósm. Mbl.: Sv.l*. Ástengi Fenner Ástengi Leguhús Vald Poulsen Suöurlandsbraut 10, aími 86499.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.