Morgunblaðið - 11.02.1982, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1982
Akranes:
Jón Hálfdánar
son efstur í
Friðriksmótinu
SVONEFNDll Kriðriksmóti í skák
lauk á Akranosi nýverið, en mót þessi
hafa verið haldin frá því Friðrik
Olafsson jjaf Akurnesingum bikar til
að efla skákáhuga þar í bæ. Önnuðust
Iþróttabandalag Akraness og Taflfélag
Akraness mótið.
Alls kepptu 26 skákmenn í tveim-
ur flokkum, 14 í eldri flokki og 12 í
yngri flokki. í fyrsta saeti í eldri
flokki varð Jón Hálfdánarson með
12‘/Í! vinning, annað sæti hlaut
Bjarni Einarsson með 11 'k og þriðji
varð Vigfús Runólfsson sem hlaut 10
vinninga. í yngri flokki var Rósant
Birgisson, 10 ára, hlutskarpastur,
Árni Böðvarsson, einnig 10 ára, varð
annar og þriðji varð Árni Þór Hall-
dórsson. Mót þetta er haldið á hverju
ári og var mótið í ár hið fjölmenn-
asta til þessa.
Okkar þjónustu máttu treysta FALKINN
SKÐURLANDSBRAUT8
Á hinn bóginn hafa bankarnir
haft aðrar leiðir í þessu sambandi
til athugunar og munu halda þeim
athugunum áfram, sagði Jónas H.
Haralz bankastjóri að síðustu.
SKATTFRAMTÖLUM SKILAÐ
Síðasti skiladagur skattframtala var í gær og var stöðug umferð á skrifstofu skattstjórans í Reykjavík allan
umferðin hægt í Tryggvagötu þar sem skrifstofan er til húsa, en frestur var til miðnættis.
daginn og jókst er á daginn leið. Gekk
Ljósm. Kmilía.
Ekki nóg með það heldur er fé
borgað út í verzlunum, sem tíðkast
hvergi nokkurs staðar annars
staðar.
Fölsun tékka er því mikið
vandamál hér á landi. Hins vegar
hefur útgáfa innistæðulausra
tékka stórlega minnkað og má
nánast segja, að hún sé ekkert sér-
stakt vandamál lengur. Það stafar
af starfsemi Reiknistofu bank-
anna, þar sem allir tékkar eru
gerðir upp daglega, sagði Jónas H.
Haralz.
Höfdabakkabrúin form-
lega vígð í sumar
HÖFÐABAKKABRÚIN verður form-
lega vígð á sumri komanda þegar lokið
hefur verið við endanlegan frágang og
malbikun á aðkeyrslu að henni og und-
irgöng beggja vegna hennar.
Nú hefur verið fyllt að henni og
því hægt að aka yfir hana og að sögn
gatnamálastjóra verður ekki amazt
við því að ekið sé yfir brúna, sé þess
nauðsyn.
Verðstöðvun fallin úr gildi?
Túlkunin á mis-
skilningi byggð
- segir verðlagsstjóri
„TÚLKUN sú, er fram kemur í
fréttabréfi Verzlunarráðs Islands
um framkvæmd laga um verðlags-
mál, er á misskilningi byggð,“
sagði Georg Ólafsson, verðlags-
stjóri, í samtali við Mbl. er hann
var inntur álits á frétt á viðskipta-
síðu Mbl., þar sem fram kemur sú
skoðun Verzlunarráðs íslands, að
verðstöðvun sé fallin úr gildi.
Að öðru leyti vildi Geórg ekki
tjá sig um málið fyrr en að lokn-
um fundi Verðlagsráðs, sem hald-
inn verður á morgun, föstudag.
Topp merkín í skiðavörum
— Þessi losarabragur í meðferð
tékka hefur því verið til athugun-
ar og menn velt fyrir sér hvernig
koma mætti í veg fyrir hann. Það
hefur hins vegar verið álmenn
skoðun innan bankanna, eins og ég
sagði áður, að sú leið, sem Út-
vegsbankinn hefur ákveðið að
fara, sé ekki heppileg. Hún er
hvorki til hagsbóta fyrir við-
skiptavini né bankana. Það eru því
engar fyrirætlanir uppi í bönkun-
um, að taka upp þessi vinnubrögð.
Tæplega 50% raforkuskerðing til Áburðarverksmiðjunnar:
„ÞAÐ ER alveg Ijóst, að þessi raf-
orkuskerðing til okkar hefur í fór
með sér fjárhagslegt tjón fyrir fyrir
tækið. Það er hins vegar erfitt að
meta það nákvæmlega á þessari
stundu," sagði Hjálmar Finnsson,
forstjóri Áburðarverksmiðju ríkis-
ins, í samtali við Mbl., er hann var
inntur eftir áhrifum þess, að raf-
orkuafhending hefur verið mjög
skert til verksmiðjunnar, eins og
annarrar stóriðju.
„Þá hafa verið mjög villandi töl-
ur um þá skerðingu, sem við höf-
um orðið fyrir. Hið rétta í málinu
er, að hámarksraforka til okkar er
um 18,5 megawött, en hún hefur
nú verið skert um 9 megawött, eða
tæplega 50%,“ sagði Hjálmar
Finnsson.
Hjálmar sagði ennfremur, að
fyrirtækið myndi þrátt fyrir þessa
raforkuskömmtun halda uppi
fullri framleiðslu. „Við gerum það
með því, að kaupa ammoníakið
erlendis frá, sem óhjákvæmilega
hefur í för með sér kostnaðarauka
fyrir fyrirtækið. Hins vegar er al-
veg ljóst, að okkur tekst ekki að
halda uppi fullri framleiðslu, ef til
frekari orkuskömmtunar kemur.
Við erum raunverulega komnir að
þeim mörkum, sem við komumst
án þess að draga saman fram-
leiðsluna," sagði Hjálmar Finns-
son.
Að síðustu kom það fram hjá
Hjálmari Finnssyni, forstjóra
Áburðarverksmiðju ríkisins, að
ársframleiðsla verksmiðjunnar
undir venjulegum kringumstæð-
um væri í námunda við 43 þúsund
tonn og færi sú framleiðsla fram
jafnt og þétt allt árið um kring, en
hins vegar færi salan að mestu
fram í mánuðunum apríl, maí og
júní.
Bankarnir hyggjast ekki
taka upp ábyrgðartékka
- segir Jónas H. Haralz, formadur Sambands viðskiptabanka
„VIÐ í samtökum bankanna höfum
mikið rætt um þau vandamál, sem
komið hafa upp vegna misnotkunar
og fölsunar á tékkum hér á landi, en
það er hins vegar ekki skoðun ann-
arra banka, að þessi ákveðna leið sé
heppileg,“ sagði Jónas H. Haralz,
bankastjóri Landsbanka íslands og
formaður Sambands viðskiptabank-
anna, í samtaii við Mbl., er hann var
inntur eftir því hvort aðrir bankar
hefðu í hyggju að taka upp svokall-
aða ábyrgðartékka eins og Útvegs-
banki Islands hefur nú gert.
— Hér á landi er mjög mikið
um notkun tékka, mun meira
heldur en gengur og gerist erlend-
is. Þá virðast ekki vera neinar
reglur hjá verzlunum og öðrum
um móttöku tékka. Menn þurfa
ekki að sýna persónuskilríki, eða
að sanna á annan hátt rétt sinn,
eins og gert er í öðrum löndum.
Halda uppi fullri framleiðslu með
ammoníakskaupum erlendis frá