Morgunblaðið - 11.02.1982, Page 15

Morgunblaðið - 11.02.1982, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1982 15 ■ skoðun varaframkvæmdastjórans um frjálst útflutningsverð á grá- sleppuhrognum. Hann telur það útilokað, þar sem kaupendur er- lendis fáist ekki til að kaupa hrognin nema þeir hafi tryggingu fyrir því, að þeir hafi einhverja vernd fyrir lægra verði síðar. Um leið og varaframkvæmdastjórinn lýsir þessari skoðun sinni, setur hann fram kröfu sjávarafurða- deildar Sambandsins um stórkost- lega verðlækkun eftirá til handa SIS sjálfu. Eins og málum er nú komið fyrir viðskiptamenn Sambandsins á þessu sviði, er þó líklega ekki annað að gera en kyngja þessari verðlækkunarkröfu, enda er fram- leiðsla þeirra orðin næstum árs- gömul. En lærdómsríkt er þetta mál um „árangur og starf“ bákns- ins — sjávarafurðadeildar Sam- bandsins. Hverjir gleymdu ekki að selja? Hér fara menn líklega að spyrja, hverjir þeir eru þessir litlu útflytjendur, sem hafa staðið sig svo vel í samanburði við báknið mikla. Þetta eru m.a. Karl Ágústs- 800—900 um- sækjendur um 300 íbúðir í TILEFNI af auglýsingu um umsóknir um 176 íbúðir sem eru í byggingu við Eiðsgranda og endursölu- íbúðir síðari hluta árs 1982, hefur stjórn VB tekið sam- an eftirfarandi greinargerð. I nóvembermánuði síðastliðn- um auglýsti stjórn Verkamanna- bústaða í Reykjavík eftir um- sóknum um 14 nýjar íbúðir við Kambasel í Reykjavík og ótil- greindan fjölda af eldri íbúðum sem kæmu til endursölu fyrri hluta árs 1982. Miðað við fjöida þeirra íbúða sem komu til endur- sölu á sl. ári mátti gera ráð fyrir 40—50 endursöluíbúðum fyrri hluta ársins þannig að samtals kæmu 55—65 íbúðir til úthlutun- ar. Alls bárust 574 umsóknir um þessar íbúðir þannig að 8—10 umsóknir voru um hverja íbúð. Stjórn Verkamannabústaða hefur undanfarið fjallað um þessi mál og úthlutað íbúðunum við Kambasel og nokkrum endur- söluíbúðum þannig að tryggt yrði að þær íbúðir, sem losnuðu fyrstu mánuði ársins, stæðu ekki ónotaðar. Stjórnin ákvað ennfremur að taka þegar til úthlutunar allar væntanlegar endursöluíbúðir á árinu auk þeirra 176 íbuða sem nú eru í byggingu á Eiðsgranda. Þar sem talið var að flestir þeirra, sem sendu inn umsóknir í nóv.-des. sl., hefðu einnig áhuga á þessum íbúðum var ákveðið að þær umsóknir giltu áfram. Gert er ráð fyrir að 2—300 nýjar um- sóknir berist nú þannig að um- sóknafjöldi verði samtals um 8—900 og að alls verði úthlutað um 300 íbúðum, þannig að hlut- fallið milli umsækjenda og út- hlutana verði um 1:3. Umsóknarfrestur um þær íbúðir, sem nú eru auglýstar, er til 27. febr. nk. en síðan má búast við a.m.k. tveggja mánaða úr- vinnslutíma þannig að úthlutun lýkur væntanlega í maímánuði. Enda þótt fyrstu íbúðirnar við Eiðsgranda verði ekki tilbúnar fyrr en í árslok 1982 og þær síð- ustu ekki fyrr en fyrri hluta árs 1984, telur stjórn VB að með þessum aðgerðum verði áhyggj- um og óvissu létt af fjölda fólks auk þess sem greiðslutímabil kaupenda lengist. son, Raufarhöfn, Jón Ásbjörnsson, Reykjavík, Kjartan Friðbjarnar- son, Siglufirði, Bernharð Petersen, Reykjavík, Steinavör hf., Reykja- vík, Guðmundur Halldórsson, Húsavík o.fl. Vissulega hefur árið 1981 verið erfitt söluár fyrir grásleppuhrogn almennt séð. En söluárangurinn liggur fyrir og hefur verið opin- berlega staðfestur af Sambandinu sjálfu. Sölustofnun lagmetis Sölustofnun lagmetis hefur víst aldrei náð endum saman í rekstri sínum, enda þótt beinn og stór rík- isstyrkur um margra ára skeið sé meðtalinn. Með ýmsum aðferðum hafa forsvarsmenn þeirrar stofn- unar gengið í hinn svokallaða þróunarsjóð lagmetisiðnaðarins, sem grásleppukarlar landsins hafa að mestu safnað saman með því að borga til sjóðsins sérstakan skatt af framleiðslu sinni. Um Sölustofnun lagmetis segir varaframkvæmdastjóri sjávaraf- urðadeildar SÍS: „1*0 einungis 1% af ásökunum keppinauta Sölustofn- unar lagmetis um þeirra starfsemi sé sönn, er það nægjanlega alvar legt“ — væntanlega til að leggja Óttar Yngvarsson sto.fnunina niður eða a.m.k. einka- rétt hennar. Á þetta líka við sjávarafurdadeild SÍS? Ég tek undir þessi orð vara- framkvæmdastjórans, en bið hann ásamt öðrum forsvarsmönnum samvinnuhreyfingarinnar í land- inu, að hugleiða málsgreinina í þessari útgáfu: „Þó einungis \% af ásökunum keppinauta sjávarafurðadeildar SÍS um starfsemi deildarinnar séu sann- ar, ætti það að vera nægileg staðfest- ing á því, að starfsemin eigi ekki rétt á sér í þessu landi.“ Með orðalagi svipuðu því, sem varaframkvæmdastjórinn notar í Mbl.grein sinni, er framhaldið þannig: Fyrir alla muni svarið þessari ásökun ekki með enn einni fréttatilkynningunni um hvað þið ætlið að vera duglegir, þjóðin veit það. Svarið þessari gagnrýni með fréttatilkynningu, þar sem þið til- kynnið grásleppuhrognaframleið- endum, hvaða verð þið munuð greiða fyrir hrognatunnuna og hvenær. Sé verðið yfir $ 330, þá óska ég ykkur til hamingju með þann ár- angur, sem þið hafið náð. Að sjálfsögðu geng ég þá út frá því, að starfsemi ykkar verði að þakka slíkt verð. Ekki að hluti af því verði tekinn úr sjóðum, sem fram- leiðendur annarra vörutegunda hafa safnað i ykkar hendur með alls konar möndli með gengismun og skilaverð. Ábyrgð Sambandsins Áb.vrgð sjávarafurðadeildar SIS gagnvart grásleppukörlum lands- ins er einnig sú, að hafa ekki hreyft litla fingur um áratuga skeið til að létta af þeim hinni sér- stöku skattlagningu í ýmsa sjóði sjávarútvegsins, sem grásleþpu- karlarnir hafa greitt um langt árabil, án þess að fá nokkra aðild að þeim sömu sjóðum aðra en greiðsluskylduna til þeirra. Samtök grásleppuhrognafram- ' leiðenda hafa gert verulegar til- raunir til að fá afnumda þessa j sérstöku skattlagningu, en fram ' til þessa ekki með fullum árangri. Er einokun skilyrði árangurs hjá SÍS? Er ekki kominn tími til að Sam- bandið hætti söluafskiptum af grásleppuhrognum í þessu landi — og jafnvel af öðrum sjávaraf- urðum einnig? Það er fuilljóst, að starfsemi þessa risabákns getur ekki þrifist eðlilega nema með ríkistryggðri einokun, sbr. einok- un SH og SÍS á frysta fiskinum til Bandaríkjanna. — Þetta hafa þeir grásleppukarlar áþreifanlega fengið að reyna, sem veðjuðu á sambandsrisann. Af útbúnaði má nefna: leðurklætt stýrishjól, veltistýri, rafmagnslæst skottlok, rafmagns- rúður, stuðpúða á stuðurum, elektróniska digital klukku, öll gler lituð, hita í aftur- rúðu, læst mismunadrif, sjálfskiptinu, vökvastýri, aflhemla, sérstaklega bólstruð pluss sæti, auka ljósabúnað, deluxe hljóð- einangrun og m.m.fl. Verð með afslætti: LeBaron Wagon LeaBaron 4DR LeBaron 4DR 6 cyl Kr. 279.617 6 cyl Kr. 262.726 8 cyl Kr. 266.924 Við bjóðum þessa bfla á sérstöku verði, sem innifelur afslátt allt að kr. 20.000.00 frá fullu verði. (Verð miðuð við gengi pr. 04.02.82) wökull hf. Armula 36 Simi: 84366 / rCHRYSLER^ LE BARON ‘81 Enn einu sinni getum við boðið fáeina hverjar hinar mestu „lúxus drossíur” sem super deluxe Chrysler LeBaron ’81 4 dr hér er völ á, enda á LeBaron stóran hóp og station, á ótrúlegu verði. betta eru ein- aðdáenda á íslandi. I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.