Morgunblaðið - 11.02.1982, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 11.02.1982, Blaðsíða 30
TOPPSTAL • Plötulengdir eftir óskum kaupenda • Viö klippum og beygjum slétt efni í sama lit á kanta í þakrennur, skotrennur o.fl. • Viðurkennd varanleg PVF2-húð i lit • Hagkvæmt verð • Afgreiðslutími 1—2 mán. • Framleitt i Noregi. 'S BREIÐFJÖRÐS BLIKKSMIÐJA HF Leitió nánari upplýsinga aö Sigtúni 7 Simi:29022 Í>I$l4Ílííft naupmannanom FÆST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTAR- STÖÐINNI MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUUAX1UR 11. FEBRÚAR 1982 -----------------ILi ii.+ ........... Stjórnmálaskóli Sjálfstæðisflokksins hefst á mánudaginn: Þjálfun í félagsstörfum og fjölþætt stjórnmálafræðsla Stjórnmálaskóli Sjálfstæðisflokksins verður settur á mánudaginn kemur, hinn 15. febrúar. Skólinn hefur verið starfræktur undanfarin ár með góðum árangri, og hafa fjölmargir sjáifstæðismenn hvaðanæva að af landinu sótt skólann og leitað sér þar fræðslu í stjórnmálum og þjálfunar í funda- og félagsstarfi. Yfirleitt hefur skólinn verið heilsdagsskóli, þar sem kennsla hefur farið fram frá morgni til kvölds í eina viku. Nú er á hinn bóginn brugðið út af þessari venju, og er skólinn að þessu sinni kvöld- og helgarskóli. Skólinn verður sem fyrr segir settur á mánudaginn, og skólaslit verða laugardaginn 27. febrúar. Blað- burðar- fólk óskast Austurbær Laugavegur 101— 171 Þingholtsstræti Háaleitisbraut 102— 155 Vesturbær Melhagi Hringið í síma 35408 Mánudaginn 15. febrúar hefst skólinn með skólasetn- ingarræðu Geirs Hallgríms- sonar formanns Sjálfstæðis- flokksins, klukkan 20. Skóla- setning verður í Valhöll þar sem öll kennsla fer fram að undanskildum heimsóknum í fyrirtæki og stofnanir. Að lok- inni skólasetningu hefst svo kennsla í ræðumennsku, þar sem Fríða Proppé blaðamaður leiðbeinir. Þriðjudaginn 16. febrúar verður kennsla í almennum fé- lagsstörfum undir leiðsögn Erlendar Kristjánssonar sölu- manns, og Jón Magnússon lögfræðingur fjallar um stjórnskipan og stjórnsýslu. Miðvikudaginn 17. febrúar fjallar Inga Jóna Þórðardóttir framkvæmdastjóri um út- breiðslumál, og kennsla verður í utanríkis- og öryggismálum. Fimmtudaginn 18. febrúar heldur ræðunámskeið Fríðu Proppé áfram, og Geir H. Haarde hagfræðingur fjallar um stjórn efnahagsmála. Á föstudag er frí. Laugardaginn 20. febrúar byrjar skólinn klukkan 10 ár- degis. Þá fjallar Friðrik Soph- usson varaformaður Sjálf- stæðisflokksins um stefnu- mörkun og stefnuframkvæmd Sjálfstæðisflokksins. Að því loknu fjallar Sigurður Líndal prófessor um starfshætti og sögu íslenskra stjórnmála- flokka, og Margrét Einars- dóttir sér um kennslu í fund- arsköpum. Sunnudaginn 21. febrúar er ræðunámskeið hjá Fríðu Proppé, og Matthías Á. Mathiesen alþingismaður ræð- ir um kjördæmamálið. Á mánudag, 22. febrúar, fjallar Margrét Einarsdóttir áfram um fundarsköp, og Er- lendur Kristjánsson um al- menn félagsstörf. Þriðjudaginn 23. febrúar eru sveitarstjórnarmál á dagskrá hjá Sigurgeiri Sig- urðssyni bæjarstjóra, og Indr- iði G. Þorsteinsson rithöfund- ur ræðir um form og uppbygg- ingu greinaskrifa. Miðvikudaginn 24. febrúar er „staða og áhrif launþega- og atvinnurekendasamtaka" á dagskrá. Málshefjendur eru þeir Guðmundur H. Garðars- son viðskiptafræðingur, fyrr- um formaður Verslunar- mannafélags Reykjavíkur, og Þorsteinn Pálsson fram- kvæmdastjóri Vinnuveitenda- sambands íslands. Að loknum framsöguerindum verður efnt til pallborðsumræðna með þátttöku nemenda Stjórn- málaskólans. Fimmtudaginn 25. febrúar fjallar Davíð Oddsson oddviti borgarstjórnarflokks sjálf- stæðismanna um Sjálfstæðis- stefnuna, og farið er í heim- sókn í fundasal borgarstjórnar Reykjavíkur. Föstudaginn 26. febrúar er ræðumennska á dagskrá, leiðbeinandi er Fríða Proppé blaðamaður. Laugardaginn 27. febrúar er á dagskrá „Sjálfstæðisflokk- urinn — skipulag og starfs- hættir" — leiðbeinandi Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson framkvæmdastjóri. Þá er fjallað um þátt fjölmiðla í stjórnmálabaráttunni, og far- ið í heimsókn í Sjónvarpið. Skólaslit verða svo klukkan 18. Skólahald hefst alla daga klukkan 20 og því lýkur klukk- an 22.45, nema um helgar, á laugardögum er kennt frá klukkan 10 árdegis til 18, og sunnudaginn 21. frá 13.30 til 18. Innritun nemenda fer fram á skrifstofum Sjálfstæðis- flokksins, en takmarka verður nemendafjölda við 20 manns. raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar fundir — mannfagnaöir Stokkseyringafélagið í Reykjavík heldur kynningar- og skemmtifund á Hótel Sögu (Átthagasal) sunnudaginn 14. þessa mánaðar, húsiö verður opnaö kl. 7.30. Til skemmtunar verður m.a. stutt og góð kvik- mynd, Ómar Ftagnarsson kemur og skemmtir af hinni alkunnu snilli. Einnig koma heima- menn, þar á meöal Pálmar Eyjólfsson, tón- skáld með félaga sína vel þjálfaðan kvartett sem skemmtir einnig. Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti. S|álfstæöisfélagiö Ingólfur, Hverageröi Félagsfundur flmmludaginn 11. febrúar kl. 21.00 í Hótel Hverageröi. Dagskrá: 1 Prófkjörsreglur. 2 Önnur mál. Stjómin. Fulltrúaráð sjálfstæðisfé laganna í Reykjavík Fimmtudaginn 11. febrúar verö- ur haldinn fundur í fulltruaraði sjálfstæðisfélaganna í Reykja- vík. Fundurinn verður aö Hótel Sögu, Súlnasal og hefst kl. 20.30. Dagskrá: Olafur B. Thors form. kjörnefndar kynnir tillögu nefndarinnar aó lista Sjálfstæöis- flokksins vió borgarstjórnarkosningarnar í mai. Arni Sigfússon, form. Heimdallar flytur ræóu. Fundarstjóri veröur Birgir isl. Gunnarsson alþingismaöur. Ritari veröur Sigríöur Arnbjarnardóttir kennari. Fulltrúaráðsmeölimir eru hvattir til aö fjöl- menna og minntir á aö taka meö sér full- trúaráösskírteini. Stjórnin. Akureyri Prófkjör sjálfstæðismanna Auglýst er eftir framboöum til prófkjörs vegna komandi bæjarstórn- arkosninga. Frambjóöandi skal vera félagi í einhverju sjálfstæöisté- laganna á Akureyri og hafa meömæli minnst 25 og mest 50 félags- bundinna sjálfstæöismanna og má hver maöur mæla meö 5 mönnum mest. Framboöum skal skilaö til formanns kjörstjórnar, Ragnars Steindórssonar hrl., Espilundi 2, fyrir miönætti, fimmtudaginn 18. febrúar nk. Kjörstjórnln. Heimdaiiur Viöverutími stjórnarmanna Anders Hansen veröur til viötals fyrir félags menn í dag, fyrir hádegi, á skrifstofu Heim dallar í Valhöll, Háaleitisbraut 1, sími 82098 EFÞAÐERFRÉTT- NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.