Morgunblaðið - 11.02.1982, Blaðsíða 48
Sini á ritstjóm
og skrifstofu:
10100
FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1982
Framfærslu-
vísitala hækkar
um 0,5-0,55%
vegna benzínhækkana
BKNZÍN hækkaði í tvígang í síðustu
viku um samtals 11,8%, fyrst um
0,50 krónur úr 8,45 krónum í 8,95
krónur og síðan um 0,50 krónur úr
8,95 krónum í 9,45 krónur. í seinna
tilfellinu rann hækkunin óskert til
ríkisins, þar sem um hækkun vega-
gjalds var að ræða.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unhlaðsins hafa þessar tvær
hækkanir í för með sér
0,50—0,55% hækkun á fram-
færsluvísitölunni, sem tekur gildi
1. marz nk., en til viðbótar því hef-
ur benzínverðshækkunin svo enn
frekari hækkanir í för með sér á
vísitölu, þegar áhrifa hennar fer
að gæta í samhandi við aðra liði,
sem hækka munu vegna aukins
kosfnaðar af völdum benzínkaupa.
Ríkið tekur í dag liðlega 60% af
verði hvers einasta benzínlítra, en
CIF-verð hvers lítra er aðeins um
28%'. Þá er dreifingarkostnaður
liðlega 11%, verðjöfnunargjald
um 1,3% og tillag til innkaupa-
jöfnunarreiknings um 2,8%.
Horft frá Kkaftafelli niður yfir Skeiðará. Vel sést hvernig áin er farin að breiða úr sér og fellur nú við varnargarðana austanmegin. í fjarska sést á
brýrnar. Símamynd frá RAX
Sjálfstæðisflokkurinn:
Borgarstjórn-
arlistinn ákveð-
inn í kvöld
í KVÖLD, fimmtudagskvöld 11.
febrúar, verður haldinn fundur í
fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í
Keykjavík og þar gengið frá fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir
borgarstjórnarkosningarnar í maí
nk. Fundinn átti að halda sl. þriðju-
dagskvöld, en var þá frestað vegna
erfiðra samgangna og óveðurs.
Hann verður haldinn í Súlnasal Hót-
el Sögu og hefst hann kl. 20.30.
í upphafi fundar kynnir Ólafur
B. Thors, formaður kjörnefndar,
tillögur kjörnefndar að listanum.
Er hann hefur verið kynntur og
afgreiddur mun Árni Sigfússon,
formaður Heimdallar, flytja ræðu.
I fréttatilkynningu frá skrif-
stofu fulltrúaráðsins eru fulltrúar
hvattir til að fjölmenna á fundinn
og þeir minntir á að taka með sér
fulltrúaráðsskírteini og framvísa
þeim við innganginn.
Frá sameiginlegum fundi starfsfólks á Kleppi og Kópavogshæli.
Leggjum niður
störf á hádegi
STAKFKFÓLK Kleppsspítala og Kópavogshælis efndi í gær til sameiginlegs
fundar þar sem rædd var staðan í kjaramálum þeirra, en starfsfólkið, sem
vinnur að meðferð vistmanna á jressum stofnunum, hefur hótað að leggja
niður vinnu sína á hádegi í dag. A fundinum var samþykkt eftirfarandi:
Að hverfa ekki frá fyrri ákvörð-
un og leggja niður störf fimmtu-
daginn 11. febrúar kl. 12 á hádegi
hafi ekki verið komið til móts við
kröfur okkar fyrir þann tíma.
Starfsfólk mun halda uppi neyð-
arþjónustu svo framarlega sem
ekki verði um mannaráðningar að
ræða meðan á vinnustöðvun
stendur.
Þá var á fundinum skipuð sam-
eiginleg samninganefnd fyrir
hönd starfsfólks þessa á Klepps-
spítala og Kópavogshæli. Kröfur
starfsfólksins eru m.a. þær að
tekið verði upp starfsheitið með-
ferðarfulltrúi og að það verði allt
í sama stéttarfélagi.
Allir togarar BUH
á nauðungaruppboð?
I’OSTGÍRÓSTOFAN hefur óskað uppboðs á togurum Bæjarútgerðar Hafnar
fjarðar vegna 3,6 milljóna kr. skuldar fyrirtækisins vegna orlofsgreiðslna. Á
fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar sl. þriðjudag var lagt fram erindi frá BÚH
um að bæjarsjóður leggi fram 1,5 m.kr. til að forðast uppboðið. Samþykkt var
á fundinum (illaga sjálfstæðismanna að fela bæjarstjóra að kanna hvort hægt
væri með samningum við Póstgíróstofuna að komast hjá uppboðinu. Halda á
aukafund þegar niðurstaða liggur fyrir.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins, Árni Grétar Finnsson,
Guðmundur Guðmundsson og Ein-
ar Þ. Mathiesen, lögðu fram grein-
argerð á fundinum um stöðu BÚH
og kemur þar fram að skuldir
fyrirtækisins hafi vaxið um 200% á
síðustu 2 árum og telja þeir að bæj-
arstjórn hafi of lengi frestað að
takast á við fjárhagserfiðleika út-
gerðarinnar. Skuldir BÚH og b/v
Júní skv. bráðabirgðauppgjöri fvrir
árið 1981 nema nú 127 milljónum
króna. Sjálfstæðismenn lögðu til á
fundinum að bæjarstjóra yrði falið
að kveðja til sérfróða aðila til að
gera úttekt á rekstri og stöðu BÚH
og gera tillögur um hvernig bæta
megi fjárhagsstöðu fyrirtækisins
og að hætt verði að láta BÚH halda
eftir af kaupi starfsfóiks greiðslum
á útsvari þess og fasteignagjöldum
til bæjarsjóðs, en fá innheimtu-
deild bæjarins til að annast það.
Tillögum þessum var frestað, en
samþykkt fyrrgreind tillaga þeirra
um að leitað yrði samninga við
Póstgíróstofuna.
Skeidarárhlaup:
Stígandin svipuð
og f síðasta hlaupi
Skaftafelli, frá Uórlein Olaf.ssyni blm. Mbl.
VATNSRENNSLI í Skeiðará var komið í 1650 rúmmetra á sekúndu nú síðdegis.
Alls eru nú runnir fram milli 500 og 600 gígalítrar af vatni, en það er um
fjórðungur þess vatns er rann fram í síðasta Grímsvatnahlaupi. Ain hefur haldið
áfram að grafa frá austustu brúarstöplunum í dag, en yfirleitt rutt að þeim aftur.
Þá byrjaði að brotna úr jöklinum í dag þar sem áin kemur undan honum við
Jökulfell og eru ísjakar þar nú víða strandaðir.
Sigurjón Rist vatnamælingamað-
ur sagði í dag, að stígandin í hlaup-
inu væri enn svo til eins og í síðasta
hlaupi. Einar Hafliðason verkfræð-
ingur hjá Vegagerð ríkisins sagði er
Mbl. ræddi við hann, að enn hefði
ekkert óvænt gerst við varnargarð-
ana, enda hefði hlaupið ekki enn náð
hámarki, en starfsmenn Vegagerðar
ríkisins fylgjast nú mjög náið með
hlaupinu, bæði með brúarmann-
virkjunum og varnargörðum.
Aurburður eykst nú jafnt og þétt í.
ánni og í dag hafa verið tekin sýni,
sem nú er verið að efnagreina. Lagði
feikilegan daun af ánni í dag, enda
var logn og hið fegursta veður í
Skaftafelli.
Pilturinn sem þefadi af eiturefnum:
Ber merki varan-
legs heilaskaða
PILTIIRINN, sem lagður var inn á Borgarspítala hætt kominn eftir að hann
hafði þefað af eiturefnum, er nú kominn til nokkurrar meðvitundar. Eitur
áhrifin af „sniffinu" höfðu þau áhrif að hjarta hans stöðvaðist, en læknum
tókst að cndurlífga hann. Pilturinn virðist bera merki varanlegs heilaskaða.
Samkvæmt upplýsingum lækna
á Borgarspítalanum virðist sem
pilturinn fylgi stundum er talað er
yfir honum og horfi á þegar talað
er við hann. Hann getur hins veg-
ar ekki hreyft sig eða nærst og
telja læknar hann bera merki var-
anlegra heilaskemmda. Þær éru
afleiðing stöðvunar hjartans í
nokkrar mínútur, þ.e. þann tíma
sem heilinn hefur ekki fengið
nægt blóð. Hjartastoppið er vegna
hjartsláttartruflana, en truflanir
á hinu fína rafkerfi hjartans geta
t.d. orðið af völdum eitrunar.
Nokkrum skólafélaga piltsins hef-
ur verið leyft að heimsækja hann.
Þá greindi læknir Borgarspítal-
ans frá því að í kjölfar þessa at-
burðar hefði komið hópur skóla-
systkina piltsins og hlýtt á fyrir-
lestur eins aðstoðarlæknis á spít-
alanum um hættu af völdum fikts
af þessu tagi. Læknirinn taldi fá-
títt að slík eitrun drægi menn til
dauða, en hins vegar gæti hún
valdið skemmdum á taugakerfi og
lifur, sem oft væri erfitt að greina.
Gæti það t.d. komið fram í minn-
isleysi og minnkandi einbeit-
ingarhæfni. Þá taldi hann að svo
virtist sem hræðsla hefði gripið
um sig meðal unglinga og atburð-
ur þessi hefði greinilega orðið til
viðvörunar.