Morgunblaðið - 11.02.1982, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 11.02.1982, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1982 17; 30% reglan úr sögunni? UTLIT er fyrir að 30%-reglan, sem beitt hefur verið til skerðingar á verzl- unarálagningu eftir gengisfellingar, sé nú úr sögunni. Sú hugmynd kom upp í verðlags- ráði, að þessari reglu yrði beitt við gengisfellinguna 14. janúar s.l., en hugmyndin fékk engan hljómgrunn í nefndinni. Sömuleiðis kom fram tillaga í ríkisstjórninni um að nota 30%-regluna, en hún var felld fyrir atbeina framsóknarmanna og sjálfstæðismanna. Þessari reglu hefur lengi verið beitt við formlegar gengisfellingar og síðast á árinu 1978. Verzlunarráð íslands, Félag íslenzkra stórkauj)- manna og Kaupmannasamtök Is- lands höfðuðu þá mál, til að fá þess- ari skerðingu hnekkt. Málið vannst í Bæjarþingi Reykjavíkur, en því var vísað til Hæstaréttar. Þar var ekki tekin efnisleg afstasða til málsins, því Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu, að stefnendur hefðu ekki hagsmuna að gæta. Málssókn hefur án efa haft sitt að segja, því að viðhorf manna hafa nú breytzt. Tudor rafgeymanámskeið Dagana 23.—24. febrúar höldum viö námskeiö í meðferö og vali á rafgeymum. Námskeiöiö er einkum ætlaö þeim sem þurfa aö umgangast rafgeyma sem notað- ir eru í viövörunarkerfum, neyöarkerfum og slíku, ásamt lyftararafgeymum. Aukin þekking á rafgeymum, hvernig þeir starfa og hvernig á aö viöhalda þeim tryggja hámarksendingu þeirra. Missiö ekki af þessu einstæöa tækifæri og látiö skrá ykkur strax. Nánari upplýsingar í síma 86810. Skorri hf. Meðaltals- Stór útsala Dömudeild Bómullarefni frá kr. 20—30 m. Ullarefni br. \xk frá kr. 30—40 m. Handklæði 30 kr. Þurrkur 10 kr. Kaffidúkar 85 kr. Herradeild Dönsk undirföt Stuttar buxur 30 kr. Hlírabolir 30 kr. Hálferma bolir 40 kr. Síðar buxur 40 og 60 kr. Venusskyrtur 80 kr. Skyrtur 95 kr. Rúllukragapeysur 90 kr. Ullarpeysur 150 kr. Allt selt fyrir ótrúlega lágt verð. Egill 3acobsen Austurstræti 9 prósentan hverfur í NÝJASTA fréttabréfi Verzlunar ráðs íslands gotur að líta eftirfar andi málsgrein: — Rétt er að vekja athygli innflytjenda á því, að fjár máíaráðuneytið hefur ákveðið, að frá og með 1. janúar 1982 sé óheim- ilt að greiða toll af vöruúttekt úr tollvörugeymslu hverju sinni sam- kvæmt meðaltalsprósentu. Tr, Mjög ódýr massív furuhúsgögn lituð og ólituð Aðflutningsgjöld, sem greidd verða af vörum vegna úttektar úr tollvörugeymslu skulu reiknuð út með sama hætti og gildir um toll- afgreiðslu vara, sem geymdar eru í vörugeymslu farmflytjenda. Alþjóðleg sam- vinna um að- stoð við inn- heimtu við- skiptaskulda VEKZI.IINAKKÁÐ íslands hefur gerzt þátttakandi í samvinnu verzlunarráða víðs vegar um heim um að aðstoða fyrirtæki við innheimtu á viðskiptakröf- um. Að sögn Kjartans Stefánssonar, blaðafulltrúa Verzlunarráðs íslands, getur félagi í Verzlunarráðinu, sem lent hefur í erfiðleikum við að inn- heimta viðskiptaskuld erlendis leitað til ráðsins, sem hefur milligöngu um að verzlunarráð í viðkomandi landi, ríki, héraði eða borg skrifi fyrirtæk- inu og skori á það að gera skil á greiðslum. — Reynslan hefur sýnt, að menn taka gjarnan við sér við slíka áminningu, og hefur það oft gefizt betur, en að fara dómsmála- leiðina. Þessi samvinna er gagnkvæm, og mun Verzlunarráð Íslands því taka að sér, sé þess óskað, að áminna inn- lend fyrirtæki, sem reynzt hafa skuldaseig við viðskiptavini erlendis. Sigvaldi Þorsteinsson, lögfræðingur ráðsins, hefur þetta mál með höndum og mun hann veita allar nánari upp- lýsingar. HUSGÖGN Langholtsvegi 111. Sími 37010 og 37144

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.