Morgunblaðið - 11.02.1982, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1982
7
Flyt ykkur öllum hugheilar þakkir, ættingj-
um mínum og vinum, sem heiöruöu mig
með heimsóknum, gjöfum og skeytum á
níræðisafmæli mínu hinn 30. janúar 1982.
Guð blessi ykkur öll.
Dýrfinna Jónsdóttir,
Eyvindarhólum.
000 MILWARD
• Hringprjónar
• Fimmprjónar
• Tvíprjónar
• Heklunálar
Framleitt úr
lóttri álblöndu
Heildsölubirgöir:
Davíð S. Jónsson&cohf.
Sími 24-333.
Bókfærsla I
Námskeið um Bókfærslu I verður haldið í fyrirlestrasal
félagsins að Síðumúla 23, dagana 16.—19. febrúar nk.
kl. 13:30—18:30.
Fjallad veröur um sjóöbókafærslur, dagbóka-
færslur og færslur í vlöskiptamannabækur. Sýnt
verður uppgjör fyrlrtækja og rædd ýmis ákvæöi
bókhaldslaganna.
Námskeiöiö er sniöiö fyrir einstaklinga sem hafa
litla eöa enga bókhaldsmenntun; vilja annast
bókhald smærri fyrirtækja; eöa þá sem eru aö
fara út á vinnumarkaðinn.
Tollskjöl
verðútreiknlngar
Námskeið um tollskjöl og verðútreikninga veröur
haldið í fyrirlestrasal félagsins að Síðumúla 23, dag-
ana 16.—19. febrúar nk. kl. 09—12.
Fjallað verður um:
— helstu skjöl og eyðublöð viö tollafgreiðslu og
notkun þeirra.
— meginþættl laga og reglugerða er gilda við
tollafgreiöslu vara.
— grundvallaratriði tollflokkunar,
— helstu reglur viö veröútreikninga.
Gerð verða raunhæf verkefni.
Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem stunda
innflutning í smáum stíl. Einnig er námskeiöiö
kjörið fyrir þá sem eru að hefja eða hyggjast
hefja störf viö tollskýrslugerð og verðútreikninga.
Þátttaka tílkynninst til Stjórnunarfélags
íslands í síma 82930.
SUðRNUNARFÉLAG fSIANOS
SÍÐUMÚLA 23 105 REYKJAVÍK SÍMI 82930
Leiöbeinandi:
Karl Garðarsson
viðskiptafræöingur
ÁRSHÁTÍÐ
Stangaveiðifélags Reykjavíkur verður haldin í Súlnasal Hótel
Sögu annað kvöld kl. 20. Húsið opnaö kl. 19.
Allra síöustu miöarnir verða seldir í skrifstofu félagsins aö
Háaleitisbraut 68, sími 86050 frá kl. 13—19 í dag.
Skemmtinefnd SVFR.
Þessi ósanni hræðsluáróður
átti sér engar forsendur:
Blekkinga-
leiknum
mikla erlokk
Hver er stefnan?
Fjaðrafokið er mikið innan Alþýðuflokksins þessa dagana, því að
verið er að undirbúa framboð í tilefni af sveitarstjórnakosningun-
um í vor. Frambjóðendur keppast við að láta Ijós sitt skína, en
því meira sem þeir segja, þeim mun fávísari verða kjósendur um
stefnu Alþýðuflokksins. Vekur athygli, að jafn mörg sjónarmið
geti rúmast í jafn fámennum flokki, og jafn ólíkar skoðanir geti
birst í jafn litlu blaði og Alþýðublaðinu. Hafi farið fram keppni
meðal frambjóðenda í Alþýðuflokknum um frumlegustu hugdett-
una í kosningabaráttunni, hlýtur Siguröur E. Guðmundsson að
vera sigurvegarinn. Vonandi færir framtak hans honum sem flest
atkvæði.
Átökin
í Alþýðu-
flokknum
Fyrir dyrum stondur
prnfkjor meðal alþýðu-
flokksmanna í Keykjavík
og skulu í því valdir menn
til setu á framboðslista
flokksins við borgarstjórn-
arkosningarnar í vor. Erfitt
er að átta sig á því, hvaða
þýðingu það hefur að kjósa
menn til setu á þessum
lista, ef mið er tekið af
þeim ummælum eins af
borgarfulltrúum Alþýðu-
bandalagsins að hlutskipti
krata og framsóknar
manna í borgarstjórn sé
helst að líkja við „flökku-
hunda", og þá segir l’jóð-
viljinn, að kratar og fram-
sóknarmenn hafi verið
„prúðir og gæfulegir", þeg-
ar höfundur „flökku-
hundakenningarinnar"
flutti ræðu í Breiðholtinu,
enda hafi þoir talið „Al-
þýðubandalagið hafa sýnt
ábyrgð við stjórn borgar
innar...“
Flest bendir til þess, að
þeir, sem fremstir eru í
baráttunni fyrir sæti á
framboðslista krata, ætli
sér að kosningum loknum í
vor að halda áfram að
syngja Alþýðubandalaginu
lof og dýrð. Að minnsta
kosti er einsýnt, að Sigurð-
ur E. Guðmundsson ætlar
sér að afsanna glundroða-
kenninguna með því að
framfylgja „flökkuhunda-
kenningunni". Kemur
þetta greinilega fram í
grein, sem hann ritaði í DV
á mánudaginn.
Atökin í Alþýðuflokkn-
um eru svo sannarlega háð
á einkennilegunt forsend-
um, ef grein Sigurðar E.
Guðmundssonar er honum
til framdráttar í prófkjörs-
baráttunni. Kjarninn í
grein Sigurðar er þessi:
„Þýski nasistaflokkurinn
fékk vilja sínum framgengt
og allir þekkja afleiðingar
þess. Hér á landi átti hann
marga aðdáendur og fylgis-
menn sem í stríðsbyrjun
töldu heppilegast að hverfa
inn í Sjálfstæðisflokkinn.
Skyldi það vera einskær
tilviljun að á þeim árum
tók hann að hamra á því
meir en nokkru sinni fyrr,
að glundroði og fjölflokka-
lýðra-ði væri eitt og hið
sama, heppilegast væri að
einn flokkur réði sem
mestu í krafti öflugs meiri-
hluta."
Að lifa í
blekkingunni
Grein Sigurðar E. Guð-
mundssonar heitir: Þessi
ósanni hra-ðsluáróður átti
sér engar forsendur:
Blekkingaleiknum mikla
er lokið. Hin langa fyrir
sögn sýnir, að höfundi er
mikið niðri fyrir, honum er
það mikið kappsmál að
koma því til skila, líklega
helst til alþýðubandalags-
manna og framsóknar
manna, að kratar láti ekki
íhaldið hræða sig, þeir
muni sko halda áfram að
afsanna glundroðakenn-
inguna með því að vera
tryggir húsbændum sínum
í Alþýðubandalaginu.
I*eir menn !ifa svo sann-
arlega í blekkingunni, sem
halda, að það kjörtímabil,
sem nú er að líða, og sanv
starf vinstri manna í borg-
arstjórn Keykjavíkur hafí
afsannað réttmæti glund-
roðakenningarinnar.
Stöðnunina á flestum svið-
um borgarlífsins má rekja
til ósamlyndisins milli
þí'irra, sem með meirihlut-
ann fara. Kaunar sýnast
|>eir ekki hjartanlega sam-
mála nema um eitt: að
hækka álögurnar á borg-
arbúa.
Eins og áður segir, gegn-
ir það mikilli furðu, ef jafn
dæmalaus sjónarmið og
þau, er Sigurður E. Guð-
mundsson heldur á loft,
eru mönnum til framdrátt-
ar í prófkjöri innan Alþýðu-
fíokksins. Kratar státa nú
mjög af því, að prófkjör
þeirra sé öllum opið. I>að
skyldi þó ekki vaka fyrir
Sigurði E. Guðmundssyni
að laða framsóknarmenn
og kommúnista til þátttöku
í prófkjörinu og til fylgis
við sig með grein sinni?
Bæði Þjóðviljinn og Tím-
inn fara þessa dagana
hörðum orðum um Jón
Baldvin Hannibalsson, rit-
stjóra Alþýðublaðsins, en
hann hefur látið í Ijós þá
skoðun, að það sé krötum
ekki endilega fyrir bestu
að binda trúss sitt um of
við framsóknarmenn og
kommúnista. Hins vegar
eru menn með viðhorf Sig-
urðar E. Guðmundssonar á
allt öðrum bás hjá Tíman-
um og Þjóðviljanum.
Uppljóstrunin
Grein Sigurðar E. Guð-
mundssonar segir alls ekk-
ert um uppruna glundroða-
kenningarinnar, hún er
engin skýring á henni.
Hins vegar felst í henni
mikil uppljóstrun um stöðu
hans í hinum stóra og fjöl-
menna Alþýðuflokki: Hann
hefur látið undan hræðslu-
áróðri framsóknarmanna
og kommúnista. Hann
treystir á samvinnu við þá
en ekki afl og sjálfstæða
skoðun Alþýðuflokksins.
Fyrir sjálfstæðismenn væri
mjög heppilegt, að Sigurð-
ur E. Guðmundsson fengi
sem mest fylgi í prófkjöri
Alþýðuflokksins um helg-
ina.