Morgunblaðið - 11.02.1982, Side 10

Morgunblaðið - 11.02.1982, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1982 Hvað segja hjúkrunarfræðingar um kjaramálin? Karítas K. Sigurðardóttir og Soffía Jakobsdóttir. Olga HákonsNon, Ingveldur Haraidsdóttir og Ingibjörg Jónsdóttir. „Vinn 120% vinnu allt árið til að framfleyta mér og börnunum“ Rætt viö Maríu Teresu Jónsson hjúkrunarfræðing á skurðstofu Landspítalans „Kg vinn 120% vinnu allt árió, til að hafa ofan í mig og börnin mín þrjú. Ég tel að meðan ekki er hægt að lifa af laununum á mannsæmandi hátt, þá sé eitthvað mikið að,“ sagði María Theresa Jónsson hjúkrunar fræðingur á skurðstofu Landakots. Ert þú vongóð um að gengið verði að kröfum ykkar? „Ég vona í lengstu lög að ekki þurfi að koma til uppsagna hjúkr- unarfólks og hlustað verði á okkur, því það er svo lengi búið að lofa okkur hærri launum, en nú eru laun okkar tvöfalt lægri en lækna," sagði María Theresa. „Hnikum hvergi kröfum okkar“ Rætt við Olgu Hákonsson hjúkrunarfræðing á Landspítalanum „Kaupið er allt of lágt og vinnu- álagið of mikið á deildunum, meðal annars vegna þess að hjúkrunar fræðingar fást ekki til starfa vegna lágra launa auk þess sem það eru of fáar stöðuheimildir hjúkrunarfræð- inga á spítolunum. Vinnuaðstaða er líka að mörgu leyti ekki nógu góð, vegna þessa þá krefjumst við hærri launa,“ sagði Olga Hákonsson hjúkrunarfræðingur á Landspítalan- um. Hvernig finnst ykkur hafa verið tekið undir kröfu ykkar um að byrjunarlaun hækki úr 11. launa- flokki í 16. launaflokk? „Okkur finnst undirtektir dræmar og yfirvöld hafa sýnt lít- inn skilning á þeirri miklu ábyrgð, sem hvílir á hjúkrunarfræðingum, þess hvers starfið krefst en við þurfum sífellt að vera að endur- mennta okkur, vegna örrar tækni- þróunar." Ert þú ánægð með aðalkjara- samninginn, sem gerður var við hjúkrunarfræðinga á ríkisspítöl- unum? „Nei, ég er ekki ánægð með 3,25% launahækkun. Hjúkrunar- fræðingar eru nú þegar orðnir mjög á eftir öðrum stéttum í laun- um, og þetta lítilræði bætir það engan veginn upp.“ Er mikill kurr l hjúkrunarfræð- ingum? „Já, ég hef aldrei orðið vör við jafn mikinn einhug hjúkrunar- fræðinga um að bæta kjör sín og nú.“ Ert þú vongóð um að semjist? „Nei, það er ég ekki, einfaldlega vegna þess að þær, sem eru í samninganefndinni, hafa sagt okkur að þær fái engar undirtektir hjá viðmælendum sínum.“ Hvað heldur þú að gerist? „Ef ekki verður gengið að kröf- um okkar, þá er ég alveg viss um að farið verður út í fjöldauppsagn- ir, því við erum mjög ákveðnar að hnika hvergi kröfum okkar," sagði Olga Hákonsson. „Við erum búnar að segja upp“ Rætt við Karítas R. Sigurðardóttur og Soffíu Jakobsdóttur hjúkrunar- fræðinga á Borgarspítalanum „Yfirvöld ættu að koma hingað og fylgjast með störfum hjúkrunarfræð- inga, svo þeir skilji betur um hvað verið er að semja. Laun okkar eru allt of lág miðað við vinnuálag, ábyrgð og menntun hjúkrunarfræð- inga, sögðu þær Karítas R. Sigurð- ardóttir og Soffía Jakobsdóttir hjúkrunarfræðingar á lyflæknisdeild A 6 Borgarspítalanum. „Hér á deildinni eru aðeins not- uð 20 rúm af 32 vegna skorts á hjúkrunarfræðingum og er þetta bara eitt dæmi af mörgum um hjúkrunarfræðingaskortinn. Við erum orðnar afar þreyttar á því ástandi, sem ríkt hefur í mál- um okkar hjúkrunarfræðinga og til að knýja á um betri kjör höfum við sagt upp.“ Teljið þið að farið verði út í verkfall? „Miðað við það sem á undan er gengið, þá erum við ekki allt of bjartsýnar á að þessi mál verði leyst fljótt og átakalaust," sögðu þær Soffía og Karítas. „Gerist aldrei neitt fyrr en allt er komið í hnút“ Rætt við Jóhann Marinósson svæfingarhj úkrunarf ræðing á Landakoti „Launin eru allt of lág og ég verð að vinna tvöfalda vinnu til að geta lifað af laununum og séð fjölskyldu minni farborða," sagði Jóhann Mar inósson svæfingarhjúkrunarfræðing- ur. Hvað er það fleira sem gerir hjúkrunarfræðinga óánægða en launin? „Það er hið gífurlega vinnuálag, því það vantar hjúkrunarfræðinga á spítalana. Þar eð hjúkrunar- fræðingar vita af þessari mann- fæð, þá sækja þeir síður í þessi störf og fara í önnur störf, sem eru betur launuð." Hver er skýringin á þessum lágu launum hjúkrunarfræðinga að þínu mati? „Ríkisvaldið hefur gengið á lag- ið, því það hefur vitað að við vilj- um í síðustu lög grípa til þeirra aðgerða að ganga út af sjúkrahús- unum, því við vitum að þá skapast neyðarástand." Telur þú að samið verði fljót- lega við ykkur? „Ég vona það, en reynslan er nú samt sú, að það gerist aldrei neitt fyrr en allt er komið í hnút,“ sagði Jóhann Marinósson. „Ef til fjöldaupp- sagna kemur getum vid sótt um aðstoð í sam- norrænan sjóð hjúkrunarfræðinga“ segir Ingibjörg Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum „Okkar starf er lægra metið til launa en starf gjaldkera í bönkum enda þótt þeir handfjatli aðcins pen- María Theresa Jónsson og Jóhann Marinósson. Skipaskrá Siglingamálastofnunar: skip, en rúmlestatala skipastóls- síðustu áramót aðeins 2 skip um ins aukist um 7.155 brl. 880 brl. að stærð. 1267 opnir vélbátar á skrá Fiskiskipastóllinn stækkaði um 2000 brl. 1981 ÍJT ER komin „Skrá yfir íslensk skip 1982“, sem Siglingamálastofn- un ríkisins gefur út miðað við 1. janúar ár hvert. Efni skipaskrárinnar, sem miðast við 1. janúar 1982, er í stórum dráttum óbreytt frá und- anförnum árum, en flest árin hefur verið bætt við ýmsu viðbót- arefni í sértöflum aftan við sjálfa aðalskrána. Vegna sam- anburðar milli ára, hefur þessu viðbótarefni verið haldið óbreyttu, því að gildi þessa nýja efnis eykst, þegar hægt er að gera samanburð sömu atriða frá ári til árs, og hefur reyndar líka slíkur samanburður verið gerður í skipaskránni sjálfri eða inn- gangi hennar til yfirlits. íslenski togaraflotinn er 1. janúar 1982 alls 93 skip, einn síðutogari á skrá, 348 brl., en skuttogarar eru orðnir 92 talsins, alls 44.426 brl. íslenskum skut- togurum hefur fjölgað um 6 skip. í heild er íslenski togaraflotinn þannig 6 skipum og 2.509 brl. stærri en fyrir ári. íslenskur skipastóll 1.janúar 1982 Fjöldi og rúmlestatala allra ís- lenskra skipa 1. janúar 1982 er í töflu í skránni, og eru niðurstöð- ur þær, að í íslenskum skipastól eru nú alls 950 þilfarsskip, og þau eru 194.482 brúttólestir að stærð. Þilfarsskip undir 100 brl. að stærð eru 561, samtals 15 0°“ brl. Fiskiskip 100—499 brl. eru alls 286 skip, samtals 72.257 brl., fiskiskip 500—999 brl., eru alls 28, samtals 22.137 brl. íslenskum þilfarsskipum hefur því á árinu 1981 fækkað um 20 Islensk þilfarsfiskiskip eru nú alls 841 að fjölda til og samtals 108.571 brl. að stærð. Allur ís- lenski þilfarsfiskiskipastóllinn var 1. janúar 1981 866 skip, samtals 106.487 brl. Þilfarsfiskiskipum hefur því fækkað um 25 skip á árinu, en fiskiskipastóllinn stækkað um 2.084 brl. Opnir vélbátar eru alls 1267 á skrá hjá Siglingamálastofnun ríkisins, samt»'s 4.117 brl. að st.æ-’ ... sxrá yfir þessa opnu vélbáta er ekki birt í töflum þess- arar skipaskrár. Skip í smíóurn 1. janúar 1982 Erlendis voru í smíðum um Innanlands voru um áramótin umsamin og í smíðum 12 skip, al|s áætluð samtals um 2.413 brl. að stærð. Af þessum skipum eru 10 stálfiskiskip og 2 fiskiskip úr áli. Skrokkah tveggja stálfiski- skipanna voru smíðaðir erlendis (í Svíþjóð og í Noregi). Skip smíðuð 1945 og fyrr eru nú aðeins 56 skip, samtals 1.777 brl. af alls 950 skipum samtals 194.482 brl. Af þessum skipum eru 719 skip, alls 175.507 brl. smíðuð árið 1960 og síðar og 397 skip, samtals 106.912 brl. eru smíðuð árið 1970 og síðar. Ekki er þó kunnugt um smíðaár 6 lít- illa fiskiskipa, sem eru 46 brl. samtals að stærð og eins annars skips 11 brl. að stærð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.