Morgunblaðið - 11.02.1982, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1982
21
Landry og Baldwin á ljóða-
tónleikum annað kvöld
EIN kunnasta söngkona Kanada,
Rosemarie Landry, kemur fram á
Ijódatónleikum hjá Tónlistarfélag-
inu í Austurbæjarbíói á föstudags-
kvöld. A efnisskránni eru söngvar
eftir Gounod, Debussy, Hugo Wolf,
Poulenc og Richard Strauss, en und-
irleikari Rosemarie Landry er Dalt-
on Baldwin. Þetta er í fyrsta sinn
sem Kosemarie Landry kemur fram
á tónleikum hér, en Dalton Baldwin
hefur um árabil tekið verulegan þátt
í tónlistarlífi hér og er þess skemmst
að minnast er hann lék undir söng
Elly Ameling á tónleikum í Háskóla-
bíói sl. haust.
Rosemarie Landry er frönsku-
mælandi Kanadabúi. Hún hefur
stundaö söngnám í ættlandi sínu
og Frakklandi, og hefur m.a. lært
hjá Gérard Sousay. Hún er sögð
jafnvíg á ljóðasöng, óratóríusöng
og óperusöng og hefur sungið víðs-
vegar í Kanada og Frakklandi. Þá
hefur Rosemarie Landry sungið og
kennt á hinu alþjóðlega ljóðasöng-
móti, sem reglulega er haldið í
Princeton í New Jersey.
Innan skamms heldur Rose-
marie Landry sína fyrstu ljóða-
tónleika í Lundúnum og í New
York, en í vor fara þau Dalton
Baldwin í tónleikaför til Japan.
Ljóðatónleikarnir verða í Aust-
urbæjarbíói á föstudagskvöld og
hefjast kl. níu.
Rosemarie l.andry
rviðtalstími
I borgarfulltrúa
| Sjálfstæðisflokks-
| ins í Reykjavík
IBorgarfulltrúar Sjaltstæðísflokksins veröa til viötals i
Valhöll, Háaleitisbraut 1, á laugardögum frá kl.
14.00—16.00.
IEr þaö tekiö á móti hvers kyns fyrirspurnum og
ábendingum og er öllum borgarbúum boöiö aö not-
_ færa sér viötalstima þessa.
Laugardaginn 13. tebrúar veröa til viötals Ótafur B.
Thors og Ragnar Júlíusson.
Ferðamannafjöldinn jókst í janiiar:
Farþegar frá 45 löndum
í JANÚAR komu til landsins 5.854
ferðamenn, 3.262 Islendingar og
2.592 menn af öðrum þjóðernum.
Eru það 615 fleiri ferðamenn en í
sama mánuði í fyrra, en þá komu
2.948 íslendingar og 2.291 útlend-
ingur.
Ferðamenn komu alls frá 45
löndum, flestir frá Bandaríkjun-
um, 1.005. Frá Svíþjóð komu 348
menn, frá Danmörku 345 og 219
frá Noregi. Þá komu 176 frá Bret-
landi og 97 frá Vestur-Þýskalandi.
Frá Chile komu 12, 1 frá Egypta-
landi, Panama, Vatíkaninu,
Grikklandi, Kenýa og Líbanon, 2
komu frá Guatemala, 2 frá Perú, 2
frá Tékkóslóvakíu og Columbíu.
Þá komu einnig 2 frá Fijieyjum og
2 frá Zimbabwe.
Dalton Baldwin
Stortíðindi fyrir
húsbyggjendur
Með nýrri aðferð við að setja upp milliveggi og klæðningu á loft og útveggi má vinna
verkið á helmingi skemmri tíma og þriðjungi ódýrara en með hefðbundnum hætti.
Hver hefur efni á að láta hjá líða að kynna sér kosti MÁT-kerfisins?
— Hvernig efni í grindur sparast um allt að helming og gerekti og efni kringum
hurðir að fullu.
- Hvernig vinna sparast bæði við uppsetningu og málun, lagningu á rafrörum
og ísetningu á hurðum.
— Hvernig líming og negling verður að mestu ónauðsynleg og sparast því efnið
og auðvelt verður að breyta og nota viðinn að nýju.
- Hvernig hljóðeinangrun verður betri og auðveldari.
Þar skiptir líka máli að enginn eining í MÁT-kerfinu vegur meira en 14 kg. og að
auðvelt er fyrir einn að setja einingarnar saman.
Láttu ekki hjá líða að koma og kynna þér hvað hér er að gerast.
Gerum tilboð í uppsetningu.
Framleióandi:
M4T?
Unubakka 18-20 Þorlákshöfn Sími 99-3900
IÐNVERK HF
BYGGINGAÞJÓNUSTA NÓATUNI 17 SIMI 2S945
■SHDARH
ÆV1NTÝRI82
Á HÓTEL
Borðapantanir I
í síma 22322
><^>LOFTLEI<>UM
í Blómasalnum dagana
4.—12. febrúar.
Pantiö borö tímanlega.
iCEFOOD
Islensk
matvælí h.f
Hafnarfiroi
kynnir
sina
framleioslu
viö
samvinnu
Hotel
Loftleiölr
Velkomin
Aöalfundur
Aðalfundur Félags ísl. stór-
kaupmanna verður haldinn
fimmtudaginn 11. febr. nk.
að Hótel Sögu, Súlnasal, kl.
12.00.
I Formaður FÍS, Einar Birnir,
setur fundinn. Aöalfundurinn
hefst síöan meö hádegis-
veröi. Aö honum loknum flyt-
ur Geir Hallgrímsson, for-
maöur Sjálfstæöisflokksins,
ermdi og svarar ryrirspurnum.
II Aöalfundarstörf verða síðan í hliðarsal og
hefjast kl. 14.00, samkv. 18. gr. laga félags-
ins.
1. Skýrsla stjórnar.
2. Skýrslur um störf nefnda.
3. Lagöir veröa fram endurskoöaðir reikn-
ingar félagsins og fjárhagasáætlun fyrir
næsta starfsár.
4. Greint frá starfsemi Lífeyrissjóös
verzlunarmanna og fjárfestingarsjóös
stórkaupmanna.
5. Lagabreytingar — ákvöröun árgjalda
fyrir næsta starfsár — Samningur um
aöild aö VSÍ.
6. Kjör þriggja meðstjórnenda.
7. Kosning tveggja endurskoöenda og
tveggja til vara.
8. Kosiö í fastanefndir sbr. 19. gr. laga fé-
lagsins.
9. Ályktanir og önnur mál.
Félagsmenn eru hvattir til aö fjölmenna.
Félag íslenzkra stórkaupmanna.