Morgunblaðið - 11.02.1982, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1982
Skýrslum um mannrétt-
indabrot ber ekki saman
Amnesty International segir fórnarlömb ofbeldis í E1 Salva-
dor helmingi fleiri en bandaríska utanríkisráduneytid
Now Vork, 10. fcbrúar. Al*.
BANDARÍKJADEILD Amnesty International hefur sent Ronald Reagan,
Kandaríkjaforseta, skeyti, þar sem upplýsingar utanríkisráduneytisins, þess
efnis að ofbeldi sé á undanhaldi í El Salvador, eru dregnar í efa. Segjast
samtökin fá daglega fréttir af mannréttindabrotum í landinu á sama tíma og
ráðuneytið tilkynnir Bandarfkjaþingi að „í El Salvador sé í síauknum mæli
farið að virða alþjóðalög um mannréttindi".
í skeytinu segja samtökin
ennfremur að tölur ráðuneytisins
um fórnarlömb ofbeldisins stang-
ist á við þær upplýsingar, sem þau
hafa undir höndum. I skýrslu
ráðuneytisins eru fórnarlömbin
talin vera 6.116, en Amnesty segj-
ast hafa upplýsingar um u.þ.b.
12.000, sem myrtir hafa verið á
síðasta ári. Yfirmaður rómversk/-
Systkini hvítasunnu-
konunnar heim-
sóttu hana á spftala
Moskvu, 10. fcbrúar. Al*.
LYDIA Vashchenko, sovézka
hvítasunnukonan sem hcfur verið
í hungurverkfalli í bandaríska
sendiráðinu í Moskvu um langa
hríð og dvelur nú í sjúkrahúsi í
Moskvu, hitti í dag systkini sín
sem komu flugleiðis frá Síberíu að
hcimsækja hana á spítalann.
Sögðu systkinin að Lydia væri
furðu brött miðað við aðstæður.
Lydia Vashchenko var sett á
spítala í sl. mánuði. Eins og
margsinnis hefur komið fram í
fréttum fór hún í mótmælasvelti
til að reyna að knýja fram beiðni
sína um að fá að flytjast frá Sov-
étríkjunum.
Systkini Lydiu sögðu að hún
myndi halda með þeim heim til
Chernogorsk í Síberíu, en ekki
væri afráðið hvenær það yrði og
færi það eftir heilsufari systur-
Guatemala:
Fjögur samtök vinstri-
sinna sameinast
(.ualt-mala borL', 10. fcbrúar. Al*.
FJOKIK hópar vinstrisinnaðra
skæruliða í Guatemala greindu frá
því í dag að þeir hefðu sameinazt til
þess' að þeim yrði betur ágengt í bar
áttunni gegn herforingjastjórn
Komeo Lueas Garcia og komið
henni frá völdum. Dreinblöð og
bæklingar þessa efnis voru hvar
vetna í Guatemala-borg og víðar í
landinu í dag. Kváðust forsvars-
menn samtakanna ekki hætta bar
áttunni fyrr en þeir hefðu komið
fram vilja sínum og sett á stofn
marxíska stjórn í landinu.
Mjög ókyrrt hefur verið í
Guatemala síðustu daga, sl. nótt
var rafmagnslaust í höfuðborginni
í klukkustund eftir að skæruliðar
höfðu sprengt sprengjur víðs veg-
ar og m.a. við orkuver í Antigua,
43 km vestur af Guatemala-borg.
Fréttaskýrendur segja, að verði
sú raunin á að skæruliðahóparnir
fjórir geti unnið saman, muni það
verða til að auka enn á hryðjuverk
og ólgu í landinu og herstjórnin
kunni að eiga í vök að verjast.
Þessar fjórar fylkingar hafa fram
til þessa á stundum barizt inn-
byrðis.
Jörgensen lýsti því yfir á fund-
inum og síðar í sjónvarpi, að íhlut-
un Bandaríkjamanna í E1 Salva-
dor væri „stórhættuleg, tilgangs-
laus og í alla staði röng". Enn-
fremur sagði forsætisráðherrann
að Bandaríkin ættu að vera sam-
kvæmari sjálfum sér í utanríkis-
stefnu sinni. Taldi hann stuðning
Bandaríkjamanna við herfor-
ingjastjórnina í E1 Salvador vera
með öllu forkastanlegan. Dró
Jörgensen enga dul á að stefna
Bandaríkjamanna legðist þungt á
mörg Evrópuríki, ekki hvað síst
Danmörku.
Paul Schluter gagnrýndi Jörg-
ensen harðlega fyrir þessi um-
mæli. Taldi hann að þau væru
vanhugsuð og þjónuðu þeim til-
gangi einum að lýsa eigin skoðun á
Ronald Reagan. „Það er víst að
Sovétmenn munu vitna í þessi um-
mæli Jörgensens og nota þau sér
til framdráttar," segir Schluter.
Sovéska fréttastofan Tass brá
hart við, og vitnaði strax í ræðu
Jörgensens þar sem hann sagði
íhlutun Bandaríkjamanna í E1
Salvador vera stórhættulega, til-
gangslausa og í alla staði ranga.
„Við erum að sjálfsögðu öll á
móti því að mannréttindi séu fót-
um troðin, án tillits til hvar það er
gert, en það er gróft þegar Anker
Jörgensen lætur sem ekki sé neinn
munur á sögulegum bakgrunni
hins óviðunandi ástands í Tyrk-
landi, Póllandi og E1 Salvador,"
sagði Paul Schluter. „Arás hans á
Bandaríkin verður túlkuð sem við-
urkenning á ástandinu í Póllandi."
kaþólsku kirkjunnar í E1 Salvador
segir 11.725 hafa verið myrta á
sama tímabili.
Fjórir þingmenn demókrata
hafa lagt fram tillögu á Banda-
ríkjaþingi þar sem lagt er til að
Ronald Reagan leiti eftir vopna-
hléi í E1 Salvador. Ráðuneyti
Reagans hafnaði í vikunni tillög-
um um viðræður og sagði slíkt að-
eins mundu færa skæruliðum
vinstrisinna landið á silfurfati. Að
sögn þingmannanna er stefna for-
setans ekki betri en svo að með
sama áframhaldi verði ekki hjá
íhlutun bandaríska hersins kom-
ist.
Sex þjóðvarðliðar hafa verið
handteknir í E1 Salvador, ásakaðir
um morðin á bandarísku nunnun-
um fjórum, sem myrtar voru í des-
ember 1980. Nöfn mannanna hafa
enn ekki verið upplýst, en að sögn
varnarmálaráðuneytisins mun
málið verða gert almenningi heyr-
inkunnugt innan fárra daga. Hafa
mennirnir verið færðir fyrir dóm í
borginni Zacotecoluca.
Kambódía:
Kjörinn formaður
ráðherraráðsins
Kant'kok, 10. febrúar. Al*.
CIIAN SY, áhrifamaður í Kambódíu
sem dvaldi fimmtán ár í Víetnam,
hefur verð kjörinn formaður ráð-
herraráðs Kambódíu, sem er sam-
svarandi forsætisráðherraembætti,
að því er fréttastofa Kambódíu
kunngerði í dag.
Sagði fréttastofan að Chan Sy
hefði verið kjörinn á fjórða og síð-
asta þingdegi. Formannssætið í
ráðherraráðinu hefur verið autt
síðan Pen Sovann lét af því starfi
og öðrum trúnaðarstöðum í des-
ember sl. „af heilsufarsástæðum".
Jörgensen harð-
lega gagnrýndur
Sendi Ronald Reagan tóninn á fundi með
erlendum fréttamönnum í Kaupmannahöfn
Kaupmannahofn, 10. fcbrúar. Frá Ib Björnbak, fréttaritara Morgunblaðsins.
PAUL SCHLUTER, formaður danska íhaldsflokksins, hefur gagnrýnt Anker
Jörgensen, forsætisráðherra, harðlega fyrir ummæli, sem hann lét falla í
garð Ronald Keagans, Bandarfkjaforseta, á fundi með erlendum frétta-
mönnum.
Varað við
engisprett-
um óðum
í grænt
Melbourne, 10. febrúar. Al*.
FERÐAMENN sem sækja heim
smáeyna Flinders, sem er út af
syðsta odda Ástralíu, hafa verið
sérstaklega varaðir við að koma
grænklæddir til eyjarinnar.
Ástæðan fyrir þessari athyglis-
verðu aðvörun er sú, að á eynni
lifir sægur af engisprettum, sem
eru svo hrifnar af öllu grænu, að
þær hafa gert aðsúg að græn-
klæddu fólki og beinlínis gleypt
fötin utan á þeim. Einnig hafa
engispretturnar lagzt á og hámað
í sig græn gluggatjöld og jafnvel
reynt að leggja sér til munns
græna málningu.
Tommy Manotoc með yngri systur sinni, Patriciu, eftir að hann losnaði úr
haldi. (Sfmamjrnd AP)
Tengdasonur Marcosar komiim f leitirnar:
Var fangi komm-
únista í fjallahér-
uðum í 41 dag
Manila, 10. febrúar. Al*.
HINN umdeildi tengdasonur Ferdinands E. Marcos, forseta Filippseyja,
íþróttakappinn Tommy Manotoc, kom í gærmorgun í leitirnar eftir að
hafa verið saknað í 41 dag. Hvarf Manotocs þótti á sínum tíma afar
grunsamlegt og var jafnvel talið að forsetinn hefði látið ráða hann af
dögum fyrir tilstuðlan eiginkonu sinnar, sem aldrei var sátt við ráðahag
hinnar 26 ára gömlu dóttur þeirra, Imee, er hún ákvað að giftast Manot-
oc. Forsetahjónin voru á móti giftingunni þar sem þau héldu því fram að
skilnaður Manotocs við fyrri konu hans væri ólöglegur.
Manotoc sást síðast 29. desem- skyldu Manotocs um að vera
ber á veitingastað í Manila með
konu sinni. Upphófst þegar mikil
leit, en án árangurs. Foreldrar
og ættingjar Manotocs héldu því
fram 'að Marcos forseti væri
ábyrgur fyrir hvarfinu en á
blaðamannafundi, sem sýndur
var beint í sjónvarpinu, lýsti
Manotoc því yfir að ásakanir
foreldra hans á hendur Marcos
forseta ættu ekki við rök að
styðjast. Að öðru leyti vildi
Manotoc ekki tjá sig um sam-
band sitt við forsetann, sagði
það vera þeirra einkamál.
Á fundinum sagði hann frá því
að honum hefði verið rænt af
fimm skæruliðum kommúnista,
sem héldu honum föngnum í
fjallahéruðunum austur af Man-
ila. Það voru starfsmenn leyni-
þjónustu hersins, sem höfðu upp
á honum. I árás þeirra á aðsetur
skæruliðanna fimm tókst þeim
að fella einn þeirra, en fjórir
komust undan.
„Ég veit að nöfn margra hafa
verið svert í fjarveru minni og
að heiðarleiki yðar hefur verið
dreginn í efa,“ sagði Manotoc í
bréfi til forsetans. „Ég vil aðeins
að hið rétta komi í ljós, yður og
landinu öllu til heilla." Ekki var
minnst á dóttur forsetans í bréf-
inu.
Fjölskylda Manotocs heldur
fram pólitísku hlutleysi sínu, en
aðilar, sem fylgja andstæðingum
forsetans, tengjast henni. Tveir
þeirra hafa verið sakaðir um að
taka þátt í starfsemi skæruliða.
Forsetafrúin hafði áður sakað
andstæðinga forsetans og fjöl-
um
völd að hvarfinu. Síðar skellti
hún skuldinni á kommúnista.
Foreldrar Manotocs hafa lýst
undrun sinni á þeim vinnubrögð-
um stjórnarinnar að láta þau
ekki vita um afdrif sonarins fyrr
en 18 tímum eftir að honum
hafði verið bjargað. Vissu þau
ekkert um hann, fremur en áður,
fyrr en andlit hans birtist á
sjónvarpsskjánum.
Er Manotoc var að því spurður
á blaðamannafundinum hvort
hann teldi forsetafrúna standa
að einhverju leyti að baki hvarf-
inu, svaraði hann því til, að
spurningin væri einum of nær-
göngul til að hann gæti svarað
henni. Síðan bætti hann við:
„Það er enginn vafi á því að ég
þekkti ekki mennina sem rændu
mér né ástæður þeirra."
Mannræningjarnir náðu Man-
otoc á sitt vald, er þeir óku í veg
fyrir bifreið hans. Var honum
síðan haldið í 10 daga á stað,
sem hann gat ekki gert sér grein
fyrir hvar var. Þaðan var hann
fluttur upp til fjallanna, austur
af Manila. Að eigin sögn gat
hann aldrei gert sér fyllilega
grein fyrir því hverjir það voru,
sem rændu honum, þar sem
hann var ýmist með bundið fyrir
augu eða þá að andlit hans sneri
að vegg.
Kona, sem verið hefur tals-
maður Þjóðfrelsisfylkingarinnar
á Filippseyjum, hafði samband
við fréttamenn eftir að Manotoc
kom í leitirnar og neitaði alfarið,
að kommúnistar hefðu nokkuð
verið við ránið á honum riðnir.
Sovétnjósnari dæmdur í Sviss
Zúrich, 10. lebrúar. Al*.
SOVÉTMAÐUR, grunaður um að vera félagi í KGB, var í dag dæmdur
til þriggja ára fangelsis í Sviss, en hann var ákærður fyrir að hafa
misnotað Sviss sem bækistöð til að safna gögnum og leynilegum upplýs-
ingum um íran. Þriggja manna dómur kvað upp úrskurðinn að tillögu
saksóknara.
Kona Kruminsch, Katarina
Nummert, fyrrum barnakenn-
ari, var ákærð fyrir að hafa ver-
ið í vitorði með manni sínum og
var hún dæmd til 2Vfe árs fang-
elsisveru.
Hjónin voru handtekin á Zur-
ich-flugvelli í júlímánuði og
voru þá áleið til Vínarborgar.
Saksóknari telur að þau hafi
notað Sviss sem bækistöð fyrir
njósnastarfsemi sína í upp und-
ir fjögur ár og hafi tekið á móti
leynilegum fyrirskipunum frá
Moskvu samkvæmt flóknum
leynilykli að minnsta kosti sex
sinnum. Katarina Nummert er
fædd í Austur-Þýskalandi og
var áður barnaskólakennari.
Kruminsch er fæddur í Lett-
landi, hann mun hafa verið í
KGB síðan 1970 og hlaut þjálfun
í Moskvu og Austur-Berlín.