Morgunblaðið - 11.02.1982, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1982
Einar Rafn Helga María Helgi Inga Rósa Magnús
Haraldsson Aðalsteinsdóttir Halldórsson Þórdardóttir Þórdarson
l'all
l’étursson
Ragnar Omar
Steinarsson
Egilsstaðir:
Sameiginlegt prófkjör 20. og 21. febrúar
AÐ FRUMKVÆÐI Sjálfstæðis-
flokksins hafa eftirtaldir flokkar á
Egilsstöðum nú sameinast um próf-
kjör helgina 20. og 21. febrúar,
vegna sveitarstjórnarkosninganna í
vor: Alþýðubandalag, Framsóknar
flokkur og Sjálfstæðisflokkur.
Þeir sem gefa kost á sér til
prófkjörs á vegum Sjálfstæðis-
flokksins eru:
1. Einar Rafn Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri, 35 ára. Kvæntur
Guðlaugu Ólafsdóttur, húsmóð-
ur, og á 5 börn.
2. Helga María Aðalsteinsdóttir,
ritari, 39 ára. Hún er gift
Magnúsi Ingólfssyni, fulltrúa,
og eiga þau 4 börn.
3. Helgi Halldórsson, yfirkennari,
30 ára. Kvæntur Bertu A. Tul-
iníus, kennara, og eiga þau 2
börn.
4. Inga Kósa Þórðardóttir, kennari,
27 ára. Hún er gift Guðmundi
Steingrímssyni, kennara, og
eiga þau 2 börn.
5. Magnús Þórðarson, bókhaldari,
52 ára. Kvæntur Margréti Ein-
arsdóttur og eiga þau 4 börn.
6. Páll Pétursson, húsasmíða-
meistari, 44 ára. Kvæntur Sig-
urlaugu Björnsdóttur, húsmóð-
ur, og eiga þau 2 börn.
7. Kagnar Omar Steinarsson, tann-
læknir, 35 ára. Kvæntur Emilíu
Sigmarsdóttur og eiga þau 3
börn.
Björn Bjarnason rektor og Bjarni Eiríksson formaður skólafélagsins við
upphaf þorravökunnar. Ljósm. Krisijín.
Kristinn Sigmundsson kennari söng einsöng og sést hér í hluta nemenda.
Menntaskólinn við Sund:
Uppákomur og hóp-
vinna á þorravöku
ÞORRAVAKA Menntaskólans við
Sund hófst í gær, en þá er brugðið út af
hefðbundnu fyrirkomulagi við kennslu
og nemendur og kennarar vinna ýmis
verkefni saraan. Þá verða einnig margs
konar uppákomur, en þorravakan
stendur fram í næstu viku.
Erling Erlingsson tjáði Mbl. að
nemendur og kennarar ynnu í hóp-
vinnu að ýmsum verkefnum og væri
markmiðið að menn kæmust sem
best til botns í viðkomandi máli, en
ekki væri ætlast til að menn skiluðu
greinargerðum. Velja menn það
verkefni sem þeir helst hafa áhuga á
og sem dæmi nefndi hann að sumir
fjölluðu um fíkniefni, aðrir um
Grjótaþorpið, geimnýlendur, stríðs-
ógn af völdum kjarnorkuvopna og
vígbúnað o.fl. Sagði Erling kennara
og nemendur starfa þannig hlið við
hlið og jafnvel helgasta „vígi" kenn-
aranna, kennarastofan, væri nú opin
nemendum.
Hópvinnan fer fram kl. 9 til 13 og
síðan tekur við uppákoma. Á föstu-
dag mun t.d. Þórarinn Eldjárn
kynna verk sín, Alþýðuleikhúsið
kynnir verk Vitu Andersen, en að
loknum þessum uppákomum geta
menn ráðið tíma sínum. Sagði Erl-
ing að í gær hefði t.d. sá hópur er
fjallaði um hippatímabilið skoðað
myndbandaupptöku af Woodstock-
tónleikunum og hægt væri að skoða
lánað og heimatilbúið efni í mynd-
bandakerfi sem væri nú í skólanum.
Þá er kl. 15 dag hvern sýning frá
Fjalakettinum. Þriðjudaginn 16.
febrúar verður skólinn opinn öllum
er vilja kynna sér starfsemi hans og
verða gestir leiddir í allan sannleika
af sérstökum leiðsögumönnum.
Þorravakan hófst í gær með
ávarpi Björns Bjarnisonar rektors
og Bjarna Eiríkssonar formanns
skólafélagsins. Kristinn Sigmunds-
son söng einsöng og kór skólans und-
ir stjórn Guðmundar Óla Gunnars-
sonar. Þorravökunefnd 6 nemenda
og 5 kennara hefur skipulagt vök-
una.
5-
Thermo
únúF
Glæsibæ, simi 82922.
Brunkappinn mikli Franz
Klammer skíðar á Blizz-
ard.
Marie Theresa Nadig
vann heimsbikarinn tvö
ár í röð á Blizzard.
Blizzard Thermo-skíöin fara nú sigurför um heiminn. Til dæmis
valdi hiö merka ítalska skíöablaö SKI þau beztu skíöin í ár.