Morgunblaðið - 11.02.1982, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ., FltófcmiDAGUR 11. FEBRÚAR 1982
31
Mæli eindregið
með Stjórn-
málaskólanum
- segir Ólafur H. Sverrisson
„ÉG hef starfad í SjálfsUeðisflokknum
alveg síðan ég var sextán ára, og alltaf
a-tlað mér að fara á Stjórnmála-skól-
ann, en tímaskortur og vmsar aðsta-ð-
ur ollu því að ég lét ekki verða af því
fyrr en í hitteðfyrra" sagði Ólafur H.
Sverrisson háskólanemi, er Morgun-
hlaðið ræddi við hann um skólann. „f
stuttu máli má segja, að skólinn hafi
verið betri en ég hafði gert mér vonir
um, og ég get hiklaust mælt með því að
fólk sæki hann" sagði Olafur.
„Skólinn er ekki eingöngu fyrir
sjálfstæðismenn, heldur geta allir
sótt hann, þó ég geri ráð fyrir að þeir
sem fylgi Sjálfstæðisflokknum að
málum eða grundvallarlífsskoðunum
sjálfstæðismanna, hafi mest út úr
þvi. Þarna koma sérfræðingar um
hin ýmsu mál, og komið er inn á
flesta þætti stjórnmálanna, stjórn-
skipunina og efnahagsmálin. Ég
sagði sérfræðingar, og það er víst
síst of sterkt að orði kveðið, því í
flestum tilvikum eru þetta fremstu
menn þjóðarinnar hver á stnu sviði.
Það er óneitanlega gaman og fróð-
legt að fá tækifæri til að ræða við
þá, hlusta á fyrirlestra þeirra og fá
að leggja fram fyrirspurnir. Tíminn
er að vísu oft stuttur, en þetta voru
gagnlegir tímar.
Þá er það ræðumennskan og fund-
arsköpin, það geta víst allir lært
meira í þeim fræðum, og æfingin
kemur sér alltaf vel. Þeir sem ætla
sér að reyna að komast til einhverra
áhrifa í stjórnmálum eða í félagslífi,
þeir geta vafalítið mikið lært á
Stjórnmálaskólanum, en hann er
ekki síður fyrir alla hina, sem áhuga
hafa, og vilja aöeins fylgjast með“
sagði Ólafur að lokum.
Sé alls ekki
eftir þvf að hafa
farið í skólann
- segir Lovísa Sigurdardóttir
„Ég fór nú bara í skólann vegna
þess að ég sá hann auglýstan, og mér
datt í hug að ég gæti haft gagn af þessu
námi" sagði lx>vísa Sigurðardóttir,
menntaskólakennari, er blaðamaður
Morgunblaðsins spurði hana hvernig
það hefði atvikast að hún sótti nám í
Stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins.
„Ég hafði að vísu eitthvað hugleitt
þetta áður, en lét svo skyndilega verða
af því" sagði Lovísa ennfremur.
„Það sem ég var að sækjast eftir
var almenn fræðsla um stjórnmál í
landinu, en haföi á hinn bóginn
minni áhuga á kennslu í ræðu-
mennsku og fundarsköpum. Svo fór
þó að ég haföi mikið gagn af þeim
þætti, eins og ég hygg raunar að allir
hafi, það er alltaf gott að þjálfa sig í
að koma skoðunum sinum á fram-
færi, og æfa sig í að tala úr ræðustól.
— Um skólann vissi ég hins vegar
lítið sem ekkert fyrirfram, en hann
olli mér síður en svo vonbrigðum.
Þarna var áhugasamur hópur að
fræðast um áhugamál sín, og fyrir-
lesararnir voru allir í fremstu röð.
Það var sérstaklega ánægjulegt að
eiga þess kost að hlýða á erindin, og
spyrja fyrirlesarana síðan út úr á
eftir. Skólinn var annars dálítið
strembinn, þetta var heils dags skóli
í eina viku þegar ég sótti hann, en
það var vel þess virði.
Ég get hiklaust mælt með Stjórn-
málaskólanum, og hvet alla þá sem
hafa hugleitt að fara á hann, að láta
nú verða af því. Þetta er ekki aðeins
fyrir þá allra áhugasömustu í póli-
tíkinni, heldur fyrir alla þá sem
áhuga hafa á íslensku þjóðlífi,
stjórnmálum og efnahagsmálum, ég
held að flestir finni þarna eitthvað
við sitt hæfi.
Landsbankinn stofnar sjóð
til styrktar skákmönnum
BANKAKÁÐ Landsbanka íslands
hefur ákveðið að veita 100.000 kr.
til stofnunar sjóðs, er styrki ís-
lenska skákmenn.
í fyrsta lagi er ákveðið að veita
hverjum þeim íslenskum skák-
manni, sem nær alþjóðlegum
meistaratitli og þeim er nær
stórmeistaratitli, ákveðna pen-
ingaupphæð. í öðru lagi skal
veita fé úr sjóðnum til styrktar
skákmótum sem haldin eru fyrir
skákmenn 20 ára og yngri, sem
eru nemendur í grunnskólum eða
framhaldsskólum.
I bréfi til Skáksambands ís-
lands frá bankaráði Landsbanka
íslands segir m.a. „Með stofnun
sjóðs þessa vil Landsbanki ís-
lands stuðla að auknum áhuga á
skákíþróttinni meðal skólanema
og jafnframt hvetja til afburða
árangurs á því sviði."
Plús-mínus, nýtt sjúkra-
braud á markað hérlendis
HANDVERKSBAKARAR munu n.k. laugardag setja á markað hér á
landi nýja athyglisverða brauðtegund, sem nefnist plús-mínus
sjúkrabrauð, en brauðtegund þessi er þýzk, og er sett á markað að
undangengnum rannsóknum og tilraunum sérfræðinga á sviði
maga- og meltingarsjúkdóma, segir í frétt frá Handverksbökurum.
í þýzkum blöðum, sem borizt
hafa Handverksbökurum, eru
viðtöl við lækna, sem fara lof-
samlegum orðum um brauðið,
og ennfremur eru viðtöl við
fólk, sem reynt hefur þessa
tegund brauða og fer um hana
lofsamlegum orðum, segir
ennfremur í frétt frá Hand-
verksbökurum.
Áhrifin af neyzlu plús-mín-
us-sjúkrabrauðsins eru einkum
fólgin í því, að sjúk meltingar-
færi styrkjast. Ennfremur
hafa brauðin góð áhrif á melt-
ingu heilbrigðs fólks, svo sem
íþróttamanna.
Hráefnið í plús-mínus-
sjúkrabrauðin eru blönduð í
Vestur-Þýzkalandi, undir stöð-
ugu eftirliti fullkominnar
rannsóknastofu. Þaðan fá
Handverksbakarar mjölblönd-
una tilbúna, þannig að aðeins á
eftir að blanda í hana vatni og
lífrænu geri. Meðferð og lögun
brauðsins er mjög vandmeðfar-
in og munu Samtök Hand-
verksbakara fylgjast náið með
að við framleiðslu brauðsins
hérlendis, verði í einu og öllu
farið eftir fyrirmælum fram-
leiðanda mjölblöndunnar.
Þannig hyggjast Hand-
verksbakarar tryggja, að þau
brauð, sem framleidd verða
hérlendis, standist fyllilega'þá
einkunn og þau ummæli, sem
læknar og aðrir sérfræðingar
hafa látið fara frá sér um
brauðið. Þá munu samtökin
leita eftir samstarfi og sam-
vinnu heilbrigðisstétta- og yf-
irvalda til þess að geta sinnt
þessu eftirliti.
Að sögn Handverksbakara
reikna þeir ekki með neinni
stórsölu í þessu brauði, heldur
líti þeir á sölu þess, sem nauð-
synlega þjónustu við lands-
menn.
í dag, íimmtudag, kynnum vlð íorrit fyrir
VIЧKIPTAMANNA-
ROITHflT.n
Er innheimtan hjá þér í ólestri? Eru skuldir orðnar tveggja
eða þriggja mánaða gamlar þegar þœr eru greiddar
vaxtalaust? Forrit Tölvubúðarinnar hf. fyrir viðskipta-
mannabókhald hentar íslenskum fyrirtœkjum sérstaklega
vel. Það rúmar allt að 5.000 viðskiptamenn á skrá.
Nótuinnskrift fer fram beint á eyðublað á skerminum.
Ef óskað er, dregur tölvan aí lager um leið og nótan er
skriíuð út. Vörusala, innborganir, söluskattur, akstur,
burðargjald, víxilvextir o.s.írv. er allt íœrt sjálfkraía á
í j árhagsbókhald.
Tölvan prentar út reikningsyíirlit mánaðarlega og reiknar
dráttarvexti. Hvenœr sem er má íá upplýsingar um hvern
viðskiptamann á skerminn ásamt öllum hans viðskiptum. s|
Ýmsar skýrslur og útprentanir má fá úr forritun, svo sem
viðskiptamannabók, nafnalista, stöðulista og dráttarvexti. U
Rétt lausn íelst í réttu íorriti.
Verið velkomin kl. 2-6 í dag og kynnið ykkur_
íorrit okkar.
TOLVUBUDIN HF
Laugavegi 20. Simi 2 5410
Veistu hvaða litsjonvarpstæki
býöstmeö
alltað5ámábyigÖ?