Morgunblaðið - 11.02.1982, Síða 33

Morgunblaðið - 11.02.1982, Síða 33
A MORGUNBLAÐIÐ, FIMMÍÚDAGUR 11. FEBRÚAR 1982 33 umhugsunar: 10. grein t.d. 150—300 eða eitthvað ámóta, svo augljóst sé að viðkomandi njóti verulegs trausts, þótt hann sé lítt þekktur. 5) kjörnefndum væri einnig gert að kalla eftir uppástungum óflokksbundinna kjósenda um frambjóðendur og væru siíkar uppástungur líka studdar tilteknum fjölda meðmæl- enda, en þeir yrðu að vera fleiri en t.d. þar sem um flokksbundna kjósendur er að ræða. Það yrði síðan verkefni kjörnefndar að vinna úr þessu og gera sína tillögu að lista, sem lagður yrði fyrir stjórn og trúnaðarráð viðkomandi flokks, sem þá annaðhvort sam- þykkti eða hafnaði listanum í heild, en hefði ekki vald til að rugla og tefja málið með breyt- ingatillögum, sem aðeins myndu verða til að skapa hættu á óein- ingu ef einhverjir vildu reyna að ota sínum tota, sem svo algengt er. Með þessu væri aðeins reynt að stuðla að að tryggja sem bezt hagsmuni málefnisins og flokks- ins til að gera óskapnað úr vönd- uðum vinnubrögðum þraut- reyndra og velviljaðra manna, sem valist hafa til þess ábyrgð- armikla starfs, að sjá velferð flokks og málefnis farborða með heilladrjúgum hætti. „Prófkjörin“ sirkusfyrirbæri Það liggur í augum uppi, að ýmsar aðrar aðferðir en sú, sem hér er drepið á, eru ugglaust til- tækar, en hvað sem því líður er það augljóst, að kjörnefndirnar virðast vera grundvallaratriði, og að þær megi ekki gera óvirkar eða mikið til áhrifalausar með því að kefla þær bak og fyrir með þeim reglum, sem um „prófkjörin" hafa gilt, og sem illa hefir gengið að framkvæma svo vit sé í, a.m.k. eft- ir dæmum sem tiltæk eru um það efni. En tækifærin til að hafa áhrif á uppstillingu er þá í gegn- um að hafa tillögurétt við kjör- nefnd, sem er þá öryggisventillinn fyrir að hagsmunir málefnisins séu tryggðir. Stjórn og trúnaðar- ráðin eru síðan enn annar örygg- isventill til að tryggja að engin afglöp séu framin að því er velferð flokks og málefnis varðar, þótt ekki sé þar öllu sleppt lausu, en sterkt vald látið haldast hjá kjör- nefnd. „Prófkjörin" hafa því miður hingað til ekki, að dómi þess er hér ritar, sýnt sig að vera annað en hrein sirkusfyrirbæri, sem hafa valdið ómældum skaða með þvi m.a. að iáta hverfa af sjónarsviði stjórnmálanna á íslandi fjölmargt afburðafólk í stjórmálum, þjóð- inni til bæði vansa og ómælds tjóns, þótt það sé ekki frekar tí- undað hér, en ekki er að efa að margir þekkja þetta og eru sömu skoðunar um hversu hörmulega hefir þar til tekist í mörgum til- fellum. Að síðustu skal tekið svo djúpt í árinni að láta þau ummæli falla, að „prófkjörin", eins og þau hafa dunið á þjóðinni og flokkunum, eru slíkur gallagripur, að vart verður flokkað undir annað er áhrifaríka aðferð til að eyðileggja stjórnmálaflokka og leggja heil- brigða stjórnmálastarfsemi þann- ig í rúst, því með þeim eru hrein- lega brotin lögmál heilbrigðrar skynsemi eins og hér hefir verið reynt að sýna fram á. Kirkjukór Akraness Kirkjukór Akraness: Fjölbreytt sönglagaval á tveimur kórplötum ÚT ER komið hljómplötualbúm með Kirkjukór Akraness, ber það nafnið „Heyrirðu ei?“ Er hér um að ræða tvær hljómplötur. Á annarri plötunni eru veraldleg lög, íslensk og erlend, en á hinni eru jólalög og kirkjuleg tónlist. Hljómplöturnar eru sýnishorn af verkefnum kórsins undanfarin ár. Mikil gróska hefur verið í starfsemi Kirkjukórs Akraness. Fór kórinn m.a. í söngferð til ísrael og Ítalíu um jól og áramót 1977/1978. Vorið 1980 fór kórinn svo í söngferð til Austur- og Vestur-Þýskalands og söng þar m.a. í Tómasarkirkjunni í Leip- zig, í Hamborg og Lúbeck. Þá hefur kórinn haldið hljómleika á ýmsum stöðum á landinu á hverju ári, svo og flutt dagskrár í útvarpi og sjónvarpi. Síðasta verkefni kórsins var frumflutningur á Kantötu Leifs Þórarinssonar „Rís upp, ó Guð“ og er það verk að finna á plöt- unni. Stjórnandinn, Haukur Guðlaugsson, leikur einnig tvö verk á orgel eftir Pál ísólfsson. Upptöku önnuðust Máni Sig- urjónsson, Þórir Steingrímsson og Hörður Jónsson. Hljómplatan er framleidd hjá þýska fyrirtæk- inu Deutsche Grammophon. Auglýsingastofan Gylmir hann- aði umslagið og Prisma prentaði. Söngstjóri Kirkjukórs Akra- ness undanfarin 20 ár hefur ver- ið Haukur Guðlaugsson. Að loknu söngferðalagi Kirkjukórs Akraness til Austur- og Vestur-Þýskalands árið 1980 ákvað bæjarsjóður Akraness að styrkja sjóðinn um 500 þús. kr. til hljómplötuútgáfu. Skömmu síðar hófst undirbúningur fyrir upptöku og var tekið upp í Loga- landi í Borgarfirði og í kirkju Fíladelfíusafnaðarins í Reykja- vík. Að því loknu var komið efni á þrjár hliðar og því um að ræða hvort skera ætti niður á eina hljómplötu eða bæta við þannig að þær yrðu tvær. Var ákveðið að gefa út tvær plötur og var þá fengin ný kantata eftir Leif Þór- arinsson, en hún var frumflutt sl. sumar. Var hún send út í sambandi við úthlutun tónlistar- verðlauna Norðurlandaráðs. Titill plötunnar, Heyrirðu ei? er tekinn úr laginu „í fjarlægð" en á plötunni eru mörg kunn og vinsæl sönglög á allt öðrum nót- um en kirkjutónlist er og á vönd- uðu umslagi er lesmál á þremur tungumálum, ensku og þýsku auk íslensku. Orlofsnefnd húsmæðra held- ur kvöldvöku á Broadway ORLOFSNEFND húsmæðra í Reykjavík efnir til kvöldvöku í skemmtistaðnum Broadway þriðju- daginn 16. febrúar ’82 kl. 20.30 en húsið opnað kl. 20.00. Orlofsnefndin er orðin mjög þekkt af rekstri orlofsheimila fyrir íslenskar húsmæður. Vinsældir sumardvalanna fara sívaxandi, ekki síst eftir að konur gerðu sér Ijóst að lögin um orlof húsmæðra — er rétt- ur og viðurkenning á mikilvægi þeirra starfa fyrir þjóðfélagið sem unnin eru á heimilunum án launa. Steinunn Finnbogadóttir, formaður orlofsnefndarinnar í Reykjavík, mun kynna starfsemina. Eitt af því sem er hvað minn- isstæðast eru kvöldvökurnar, sem húsmæðurnar sjálfar standa að, með flutningi á hinu fjölbreytt- asta fróðleiks- og skemmtiefni. Þessi kvöldvaka sem nú verður haldin í Broadway á að vera eins konar svipmynd og sameiningar- tákn reykvískra húsmæðra á heimaslóðum. Öllum er heimilt að sækja kvöldvökuna. Nefndarkonur gátu þess að enginn þyrfti að efast um hvað orlofskonur væru miklir au- fúsugestir, en vildu líka taka fram að allir karlar væru jafn velkomn- ir. í þau skipti sem nefndin hefur efnt til slíkrar kvöldvöku hér í borginni, hefur verið fjölmenni og ástæða til að ætla að svo verði einnig nú. Að þessu sinni verður vakan mikið helguð tónlist og söng, má nefna að Selma Kaldalóns leikur lög eftir sig og föður sinn og mun Elín Sigurvinsdóttir söngkona flytja þau með henni, fallegar barnaraddir heyrast þarna, börn úr Melaskóla syngja undir stjórn Magnúsar Péturssonar. Hverskon- ar þjóðlegt efni er ríkjandi á kvöldvökum í orlofi húsmæðra og þarna verða sýndir þjóðdansar af Þjóðdansafélagi Reykjavíkur, Unnur Jensdóttir söngkona syng- ur við undirleik Jónínu Gísladótt- ur. Ein orlofskvenna frá sl. sumri syngur með aðstoð þeirra bræðra Gísla og Arnþórs Helgasonar. Þá má segja að „ljúfur Omar loftið kljúfi" — því að Ómar Ragnarsson mun lyfta sér og öðrum upp í lok- in. Forsala aðgöngumiða verður á skrifstofu nefndarinnar að Trað- arkotssundi 6, föstudaginn 12. febr. kl. 16.00—19.00 og á laugar- dag kl. 14.00—17.00. Einnig verður hægt að panta miða í símum sem auglýstir verða síðar. (Krétl frá < >rlofsn*>fnd.) Námskeið um kerfis- bundið varn- arviðhald SÆNSKA fyrirtækið Idhammar Konsult AB, sem er eitt stærsta og þekktasta ráðgjafar og þjónustufyr irtækið á Norðurlöndum á sviði kerfisbundins varnarviðhalds -(KV) (Planned Preventive Maintenance) hvað viðvíkur skipum, vélum, tækj- um og öðrum búnaði, mun halda námskeið hér á landi í næstu viku. Námskeið þetta er skipulagt af IK í samvinnu við innlenda aðila og mun það fara fram dagana 15. og 16. febrúar í Norræna húsinu. KV er samheiti yfir margskonar skipulag, skipulagsaðferðir og tækni sem þjónar þeim tilgangi að koma í veg fyrir bilanir áður en þær komast á alvarlegt stig og valda skemmdum eða framleiðslu- stöðvun, t.d. töpuðum veiðidögum þegar um fiskiskip er að ræða. KV byggist á nákvæmu eftirlitskerfi sem sett er upp fyrir hvert fyrir- tæki fyrir sig. í þeim tilvikum, sem um er að ræða stór fyrirtæki eða flókinn búnað, er æskilegt að hafa kerfið í tölvu. IK hefur hann- að sérhæft tölvukerfi í þessu skyni og mun notkun þess sýnd á nám- skeiðunum. Tvö námskeið munu haldin. Það fyrra er einkum ætlað framleiðslu- fyrirtækjum og ýmsum opinberum aðilum en það seinna er ætlað skipa- og útgerðarfélögum. Nám- skeiðin eru einkum ætluð stjóm- endum fyrirtækja, starfsmönnum sem bera ábyrgð á viðhaldi véla og búnaðar, vélstjórum, tæknimönnum og þeim sem annast tæknilega ráðgjöf til fyrirtækja. Fyrirlesarar á námskeiðinu verða þeir Kurt Hed og Richard Janson sem báðir eru starfsmenn Idhammar. Námskeiðin verða haldin á ensku. Þátttakendur munu fá ítarleg námskeiðsgögn ásamt kennslubók í varnarvið- haldstækni. Tekið er á móti þátttökutilkynn- ingum og veittar nánari upplýs- ingar í þessari viku kl. 14—17 hjá Radíóstofunni hf., Þórsgötu 14. (Kréttatilkynning.) Hafin taka myndar Natalíu (ulver (’ity, 9.febrúar. Al*. HAFIN ER að nýju taka kvikmynd- arinnar „Braínstorm", sem vinna var stöðvuð við er Natalie Wood, sem fór með annað aðalhlutverk myndarinnar, drukknaði við Santa ('atalina-eyju við Kaliforníu 29. nóvember sl. Kvikmyndatökunni verður lok- ið á þremur vikum, en að henni lokinni munu stjórnendur MGM-kvikmyndafyrirtækisins ákveða hvort ráðist verður í þriggja milljóna dollara brellu- gerð, sem er nauðsynleg til að Ijúka gerð kvikmyndarinnar. Mótleikari Wood í aðalhlut- verkum, Christopher Walken, sagði í dag að hans mat væri að ástæða væri til að heiðra minn- ingu Natalie Wood með því að fullgera kvikmyndina. I I I I 1 l l i i t Veistu hvaða lítsiónvarpstæki feest með útborgun fia kr.2-3þus • og eftirstöðvum til alltaðömánaða? t j.) i ils.iaðt r ■ in ttjiuii it.t'.s./ f e itr'a ‘ u. 4*1.91 n i i ofrt - i i i i 1 tlll J i so • i.( I í

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.