Morgunblaðið - 11.02.1982, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1982
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MANUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
jrvjk kd. JT* u [l
Þorleifur Kr. Guðlaugsson skrifar:
„Hagfræði ríkisstjórnarinnar
er eitt dæmalaust hneyksli“
Velvakandi góður.
Efnahagsmálapakkar ríkis-
stjórnarinnar! Það má nú segja
að það séu þeir pakkar sem vert
er um að tala — en til hvers þeir
eiga að vera, er mér orðið ljóst og
hverjum þeir eiga að koma til
góða.
Þessi hagfræði ríkisstjórnar-
innar er eitt dæmalaust hneyksli
sem okkur er boðið til kaups. Jú,
það verður að viðurkenna það
sem komið hefur fram þessu
varðandi. Lítilsháttar lækkun á
iandbúnaðarvörum varð — sem
kemur fram sem hefndarráðstöf-
un — því svo margt annað hefur
lækkað í verði, til að bæta upp
útgjöld ríkissjóðs í sambandi við
niðurgreiðsluna.
Ráðherra einn gerði mikið úr
því hvað tollalækkun á heimilis-
tæki væri mikil. Það leit út fyrir
að þar væri stórt spor stigið í
réttlætisátt fyrir alla. En svo
kom bara á daginn að aðrir skatt-
ar voru lagðir á, sem fólk verður
að borga, og vega þyngra en
lækkunin á heimilistækjunum. Á
það er einnig að líta að þessi um-
rædda lækkun á heimilistækjum
kemur líklega fáum til góða því
flestir eiga þessi tæki auðvitað.
Hækkunin á bensínverði einu,
sem ríkisstjórnin er að innheimta
og gerð er tvisvar á lausri viku,
eða átta dögum, mun verða
þyngri byrði en þótt heimilistæk-
in hefðu verið látin halda verði
sínu. Það fer að verða svo, að
hægt verður að líkja ríkisstjórn-
inni við þjóf. Meðan hún réttir að
manni smáhlunnindi fer hún i
vasa manns og rænir tvöfalt
hærri upphæð. Eg ætla ekki að
telja allar hækkanirnar sem orð-
ið hafa síðan á áramótum, því
það verður áreiðanlega ekki pláss
til að koma því öllu á prent. Ég
veit líka að allir eru búnir að
finna óþyrmilega fyrir þeim — og
ekki síst láglaunafólk.
Vill ekki einhver úr Alþýðu-
bandalaginu svara því, hvort
gengisfelling nú sé kjarabót, þeg-
ar Alþýðubandalagið gerir hana
— því nú þegja þeir um hana en
þegar smá gengisfelling var gerð
og sjálfstæðismenn voru í stjórn,
ætluðu alþýðubandalagsmenn
hreint vitlausir að verða.
Nú er greinilega að koma að
því að íslendingar verða ekki
samkeppnisfærir á mörkuðum
erlendis, vegna tilkostnaðar og
skattaálags. Við þurfum að fá svo
hátt verð fyrir útflutningsvörur
okkar að enginn vill kaupa. Hvar
verðum við þá á vegi staddir, ís-
lendingar?
Vilja valdhafarnir ekki sjá
hvað er að gerast, eða hvað?
Ég ætla ekki að hafa þetta
lengra núna þó tilefni sé til
langrar upptalningar á heimsku-
pörum núverandi ríkisstjórnar.
Þorleifur Kr. Guðlaugsson.
Húsmóðir skrifar:
Hvaða stefna hefur beðið meira
skipbrot en kommúnisminn?
Sá veldur miklu sem upphafinu
veldur, segir gamalt máltæki. Þeir
trúboðar heimskommúnismans
hér, sem enn eru uppistandandi,
ættu að standa þjóðinni reikn-
ingsskil gerða sinna og rifja upp
fimm slagorðin sem sýna áttu
blessun kommúnismans mannkyn-
inu til handa. Þeir verða að taka
afleiðingar gerða sinna eins og aðr-
ir. Klappkórar fylgdu hverjum
fundi. George Orwell lýsir þeim
dásamlega í bók sinni, þar sem
fjöldakórinn gargaði í síbylju eina
setningu í lengri tíma. Það er engin
furða þótt Steini Steinarr leiddist
stundum í sellu nr. 5. Slíkt andríki
hefur ekki átt við hann.
Það er mannlegt að skjátlast en
að iðrast einskis er forkastanleg
forheimskun, því sannleikurinn
þorfinni. Með þeirri skammsýn-
isheimsku að svelta Hitaveituna
um fjármagn er beinlínis verið
að vinna að því að kippa fótun-
um undan þessu fyrirtæki Reyk-
víkinga og afleiðingin verður sí-
aukin kynding með olíu og þar
með geysilegt fjárhagslegt tap
fyrir okkur Reykvíkinga. Ég
held að í þetta skipti hafi AUa-
kemur alltaf í ljós þótt síðar verði.
Hvaða stefna hefur beðið meira
skipbrot heldur en kommúnism-
inn? í dag hefur Rússum tekist að
láta kommúnista í Póllandi leggj-
ast á bræður sína og annað skyld-
fólk. Kremlstjórnin getur sagt að
þetta séu innanríkismál Pólverja
en hótanir hennar segir sína sögu
sem minnast verður.
Þótt ástandið sé e.t.v. verst i
Póllandi þá lifir almenningur í hin-
um kommúnistaríkjunum síður en
svo í vellystingum. Þegar orku-
skortur hrjáir Rúmena skyldi mað-
ur ætla að ástandið væri ekki gott í
Danmörku ef stjórnvöld væru svip-
uð þar. Allstaðar er skortur á lífs-
nauðsynjum í Sovétríkjunum með-
al almennings — líka í Rússlandi,
og þó hafa Rússar getað blóðmjólk-
ballarnir í ríkisstjórninni ráðið
ferðinni sem oftar, það er eina
skýringin sem ég finn á þessari
einkennilegu ákvörðun. Hita-
veita Reykjavíkur hefur lengi
verið þyrnir í augum þeirra sem
fyrirmyndarfyrirtæki í eigu al-
mennings — það þola þeir ekki
og róa þess vegna að því öllum
árum að eyðileggja það.“
að leppríki sín um áratugi. Svo
hafa þeir líka þegið gjafakorn frá
Bandaríkjunum.
Þegar svona er komið þá eiga
gömlu kommúnistarnir að iðrast og
lýsa sig andvíga skipulaginu. Biðja
fyrirgefningar og frábiðja sér og
öðrum, að í skólunt landsins skuli
enn finnast kennarar sem halda
áfram að flytja þessa falskenningu
og reyna að innræta hana hálf-
stálpuðum unglingum. Freda
Udley, George Orwell, Steinn
Steinarr og hvað þeir nú allir heita,
sem gengið hafa af trúnni og iðrast
mistaka sinna — þeirra verður
minnst í sögunni sem mikilmenna.
Það ríkir meiri fögnuður á himnum
yfir einum ranglátum sem iðrast
en 99 réttlátum, stendur þar.
Ég vona að þeir séu ekki margir
hér á landi sem segja eins og ungl-
ingurinn sagði, að ástandið í Pól-
landi væri bara verkamönnum að
kenna. Islenzkir verkamenn bera
vonandi gæfu til þess að trúa ekki
svona fólki fyrir sínum málum. Viö
getum ekki beitt neinum refsiað-
gerðum gegn Rússum — en við get-
um sýnt fyrirlitningu okkar á að-
gerðum þeirra með því mað krefj-
ast þess að áróðursblaðið Novostny
komi ekki út hér á meðan her-
stjórnin er í Póllandi. Borgarablöð-
in hér, sem hafa verið að týna úr
því fróðleik fyrir lesendur sína,
ættu að geta fundið hann ein-
hverstaðar annars staðar.
Húsmóðir
Svarið
er nei
Svar við fyrirspurn:
„Greiða Reykvíkingar
niður SVR-gjöld
Seltirninga?
Svarið er nei. Bæjarsjóður
Seltjarnarness greiðir sam-
kvæmt samkomulagi 3,18 pró-
sent af árlegum rekstrarhalla
SVR, án tillits til þess hvort sá
halli er mikill eða lítill.
Eiríkur Ásgeirsson.
Coats Dr ima
tvinninn hentar í öli efni.
195 litir á 100 yarda spólum.
Fæst í verzlunum um land allt.
coats Dríma
Heildsölubirgðir.
Davíó S. Jónsson og Co, h.f.
Sími 24333.
dpplG
%
Apple-tölvu- og forritakynning
kl. 4-6
Fimmtud. 11. febrúar:
Visi Calc — Visiplot
Forrit sem reiknar stór dæmi á sekúndum, sem tæki
þig daga eða vikur. Tilvaliö fyrir áætlanagerð.
Föstud. 12. febrúar:
Viðskipta-
mannabókhald
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Vinsamlega mætið tímanlega.
verslið I
SÉRVERSLUN
MEÐ
LITASJÓNVÖRP
OG HLJÓMTÆKI
SKIPHOLTI 19 SÍMI 29800