Morgunblaðið - 11.02.1982, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1982
• Þeir berjast um titilinn besti skíöa-
maður heims. Ingemar Stenmark á
efri myndinni og Bandaríkjamaðurinn
Phil Mahre á neðri myndinni.
Enn ein skrautfjöðurin
í hatt Ingemar Stenmarks
HEIMSBIKARKEPPNIN á skídum hófst á fullri ferð á nýjan leik í
fyrrakvöld í Kirchbcrg í Austurríki. Keppt er í stórsvigi og sigraði
sænski kóngurinn Ingemar Stenmark glæsilega á samtals 2:52,06
(1:25,03 og 1:27,03). Annar varð heimshikarhafinn Phil Mahre á
2:52,98 (1:26,05 og 1:26,96). í þriðja sætinu var frekar lítt kunnur
kappi frá Luxemborg, Marc Girardelli á 2:54,05 (1:25,52 og 1:28,53).
Kjórði var Hans Enn frá Austurríki og landi hans Wolfram Ortner
varð fimmti.
Steve Mahre, tvíburabróðir
Phil Mahre, sem sigraði óvænt í
stórsvigi heimsmeistarakeppn-
innar í Schladming á dögunum,
gerði ekki betur en að hreiðra
um sig í 14. sætinu að þessu
sinni. „Ég veit ekki hvernig
þetta gengur fyrir sig, helst mér
detti í hug að ég geri betur á
harðfenni, en brautin í Schlad-
ming var miklu harðari en
brautin hér í Kirchberg," var
haft eftir Steve Mahre.
Staðan í stigakeppninni er nú
þessi:
stig
Áhugamaðurinn Stenmark
hefur þénað vel yfir
30 milljónir króna á
síðustu átta árum
1. Phil Mahre Bandar., 282
2. Ingemar Stenmark Svíþj. 204
3. Andreas Wenzel Licht. 95
4. Steve Podborski Kan. 94
5. Harti Weireither Austurr. 78
6. Erwin Resch Austurr. 76
7. Joel Gazpoz Sviss 74
8. Marc Girardelli Lux. 72
9. Franz Klammer Austurr. 71
10.—11. Steve Mahre Bandar. 67
10.—11. Peter Muller Sviss 67
Á N/ESTUM öllum átta ára ferli sín-
um hefur Ingemar Stenmark talist
áhugamaður í íþróttinni. I>að var
ekki fyrr en eftir vetrarleikana í
l-ike Placid um árið að hann fékk
svokölluð B-réttindi, sem gerðu
hann að atvinnumanni í íþróttinni.
En af áhugamanni verður að segjast
eins og er, að Stenmark hefur grætt
furðu mikið á fþróttinni.
Bara með því að leyfa notkun á
nafni sínu og sjálfum sér í auglýs-
ingar, hefur Stenmark grætt tæp-
lega 30 milljónir íslenskra króna á
síðustu 8 árum. í vetur mun hann
hala inn um 3 milljónir. Stenmark
er ekki við eina fjölina felldur í
auglýsingamálunum. Alls hefur
hann auglýst 23 vörumerki:
Elan (skíði), DCL (þýskir skíða-
stafir), Caber (ítalskir skíðaskór),
Invicta (ítalskir skíðavettlingar),
Cerutti (ítalskur fatnaður), Cebe
(frönsk gleraugu), Algots (sænsk-
ar yfirhafnir), Saab (sænskir bíl-
ar), SKF-box (sænskar skíðabind-
ingar), Skiing (bandarískt skíða-
tímarit), Snöresor (sænsk ferða-
skrifstofa), Thule (sænskar far-
ar.gursgrindur), Aktiv Maskin
(sænskir vélsleðar), Tignes
(franskur skíðastaður), Stenmark
Slalomskola (sænskur mynd-
bandaþáttur), Gilett (bandarískar
rakvélar), Maroc (mandarínur),
Enpe (sænskt smjör), Gevalía (það
er kaffið) og Caprininus (sænskur
veiðistaður).
Kvenfólkið keppti í stórsvigi í
Oberstaufen í Vestur-Þýska-
landi, Maria Epple frá Þýska-
landi sigraði, Christine Cooper
varð önnur og Erika Hess frá
Sviss varð þriðja.
• Þrjár bestu í kvennaflokki. Systurn-
ar Maria og Irene Epple og Erika Hess,
sem er aöeins 19 ára gömul
„Búió að hreinsa út
í okkar herbúóum"
- segir Jón Pétur Jónsson Valsmaöur
„ANDRÍIMSLOFTIÐ hjá okkur er sagði Jón Pétur Jónsson, fyrrum
nú mjög gott, betra en í háa herrans landsliðsmaður í Val, í samtali við
tíð, enda er búið að hreinsa til,“ Morgunblaðið í gær, en Mbl. innti
„Eg vil ekkert tjá
mig um þessi máláá
- sagöi Boris
ÉG VIL ekkert tjá mig um þessi mál.
Það var ákvörðun stjórnar hand-
knattleiksdeildar Vals að ég myndi
hætta að þjálfa meistaraflokk fé-
lagsins en halda áfram með yngri
flokkana, sagði Boris Akhashow,
fyrrum þjálfari meistaraflokks Vals í
handknattleik, þegar hann var innt-
ur cftir því hvað hefði verið í vegin-
um fyrir góðum árangri hjá meist-
araflokki Vals í handknattleik.
Jón Karlsson liðsstjóri hafði
Iiinsvegar þetta um málið að
segja:
— Ég var mjög fylgjandi því að
breyting yrði gerð á þjálfaramál-
Akbasow
um meistaraflokks, og þeir menn,
sem stjórnað höfðu, yrðu látnir
fara frá. Liðinu gekk mjög illa og
það var því réttlætanlegt að gera
breytingu. Ég hef ekki skýringu á
takteinum af hverju illa gekk. En
strax í leiknum á móti FH mátti
greina breytingu til batnaðar
þrátt fyrir að sá leikur hafi ekki
unnist. Ég hef enga trú á því að
Valsliðið falli niður í 2. deild. Liðið
á eftir að sigra bæði HK og KA og
það mun verða nóg, sagði fyrrum
liðsstjóri Valsmanna, Jón Karls-
son.
— ÞR.
hann þá eftir stöðunni innan hand-
knattleiksdeildarinnar eftir að sov-
éski þjálfarinn Boris Akbashow var
látinn víkja úr sæti sínu. Stefán
Gunnarsson tók stöðu hans og þrem-
ur dögum síðar tapaði Valur 25—26
fyrir FH suður í Hafnarfirði. Sýndi
Valsliðið betri leik en í langan tíma
þrátt fyrir tapið.
„Ef litið er á tölur úr leiknum
gegn FH, kemur í ljós að 17 af 25
mörkum eru skoruð af skyttum
liðsins, það held ég að hafi ekki
gerst hjá Val í tvö ár. Ástæðan er
sú, að skyttum hefur ekki verið
hjálpað. Þær tvær æfingar sem
við náðum eftir að Boris var látinn
hætta og þar til við lékum í Hafn-
arfirði lögðum við áherslu á ein-
faldari leikkerfi, kerfi sem við
þekktum og henta okkur betur. Ég
tel að árangurinn hafi ekki látið á
sér standa þrátt fyrir að FH hafi
sigrað," sagði Jón Pétur og bætti
svo við að lokum:
„Það var einhugur í okkar röð-
um að stíga þetta skref, við gátum
ekki komist neðar en við vorum
komnir og það mátti ekki bíða
lengur með aðgerðir. Við höfðum
engu að tapa lengur." 88-
• Jón Pétur Jónsson
Ron Saunders
hættir hjá
Aston Villa
RON Saunders, framkvæmdastjóri
Engiandsmeistara Aston Villa, sagði
starfi sínu lausu í gærdag, eftir að
hafa lent í mikilli deilu við forseta
félagsins, Ron Bendall.
Saunders, sem verið hefur fram-
kvæmdastjóri Aston Villa síðastliðin
sjö og hálft ár, hættir aðeins níu
mánuðum eftir að hafa gert liðið að
deildarmeisturum í fyrsta skipti síð-
an 1910. En í vetur hefur liðinu
gengið mjög illa og er nú í 15. sæti 1.
deildar af 22 liðum sem þar leika.
MÍ í frjálsum
innanhúss
Innanhússmeistaramót íslands I
frjálsíþróttum 1982 verður haldið
dagana 20. og 21. febrúar nk. Stjórn
F'rjálsíþróttasambandsins sér að
venju um framkvæmd mótsins, og
ber að skila þátttökutilkynningum
ásamt þátttökugjöldum, kr. 20 á
grein, á skrifstofu FRÍ í síðasta lagi
miðvikudaginn 17. febrúar. Mótið
hefst í Laugardalshöll kl. 11 þann
20. Keppni í stangarstökki fer fram
síðar og samhliða verður keppni I
drengjaHokki MÍ 15—18 ára.
i
'i