Morgunblaðið - 11.02.1982, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1982
47
• Hinn harðskeytti línumaður KR-inga, Jóhannes Stef-
ánsson, brýst í gegnum vörn FH og skorar.
• Kristján Arason FH var hreint óstöðvandi í leiknum
í gærkvöldi, sýndi snilldarleik og skoraði átta mörk.
Gífurlegum baráttuleik KR
og FH lauk með jafntefli
„Hef hug á þvi
að hætta að
leika með Víkingi*
- segir Þorbergur Aöalsteinsson
FG IIEF mikinn hug á því að
hætta að lcika með meistara-
flokki VHiings eftir þetta -
keppnistímahil. I>að er orðið
alltof mikið að æfa sex sinnum
í viku og þurfa að sinna fullri
vinnu um leið. I>etta er hægt í
þrjú, fjögur ár en ekki miklu
lcngur. Ég hcf mikinn áhuga á
því að taka að mér þjálfun hjá
2. deildarliði og hugsanlega að
lcika líka mcð því, sagði stór
skyttan hjá Víking, l>orbergur
Aðalsteinsson, er Mbl. ræddi
við hann í gær.
— horbergur sagðist hafa
áhuga á að lcika erlendis,
máski á Npáni. Hann sagðist
hafa fcngið tilboð frá liðum í 2.
dcild í Vesturl»ýskalandi en
hann hefði ekki áhuga á að
leika þar aftur.
— I>R.
GÍFURLEGUM baráttuleik KR og
FH í 1. deild íslandsmótsins í hand-
knattleik í gærkvöldi lauk með jafn-
tefli, 22—22. Staðan í hálfleik var
10—9 fyrir FH. Svo jafn var leikur
liðanna að allan síðari hálfleikinn
var jafnt á öllum tölum. Gífurleg
spenna var í leiknum sem var vel
leikinn af hálfu beggja liða.
FH-ingar náðu forystunni í
leiknum þegar 2. mín. 58 sek. voru
til leiksloka. Þá skoraði Kristján
Arason mjög örugglega úr víta-
kasti og staðan var 22—21. Sókn
KR-inga rann út í sandinn og FH
hafði boltann þegar rúm ein mín-
úta var til leiksloka. Kristján
Arason var tekinn úr umferð
mestan hluta síðari hálfleiksins
og var tekinn stíft undir lok leiks-
ins. Þegar ein mínúta var eftir
reyndi Hans Guðmundsson mjög
ótímabært skot úr vonlausu færi
og KR-ingar fengu boltann. Hauki
Ottesen tókst svo að fiska vítakast
í síðustu sókn KR. Og úr vítinu
skoraði Björn Pétursson sem kom
eingöngu inná í leiknum til að
Staðan í
1. deild
STAÐAN í I. deild íslandsmótsins í
handknattleik er nú þessi:
Víkingur 10 8 0 2 233-179 16
FH 10 7 1 2 249-232 15
Þróttur 10 7 0 3 222-197 14
KR 10 6 1 3 214-205 13
Valur 10 4 0 6 203-203 8
HK 10 2 17 176- 200 5
Fram 10 2 1 7 193-243 5
KA 10 2 0 8 189-220 4
taka víti og skoraði úr fjórum af
öryggi. FH náði ekki að nýta sér
þær fáu sekúndur sem eftir voru
af leiknum og stigin skiptust því
bróðurlega á milli liðanna og eftir
gangi leiksins má segja að það ha-
fi verið sanngjörn úrslit.
Alfreð Gíslason bar leik KR
liðsins alveg uppi og sýndi stór-
góðan leik. Þá sýndi Ragnar
Hermannsson snilldartakta í
sóknarleiknum og skoraði glæsileg
mörk úr horninu. Gísli Felix varði
mark KR með mikilli prýði allan
síðari hálfleikinn.
I liði FH sýndu þeir Kristján
Arason og Þorgils Óttar afbragðs
góðan leik og báru af öðrum leik-
mönnum. Þá átti Haraldur Ragn-
arsson mjög góðan leik í markinu
hjá FH og varði nokkrum sinnum
ótrúlega vel. Þar er mikið efni á
ferðinni.
Pálmi Jónsson átti góðan leik í
sókninni en lék ekki eins vel í
vörninni.
Bæði liðin sýndu mjög góðan
varnarleik og oft á tíðum brá fyrir
afbragðs línuspili hjá báðum lið-
unum. Mikill hraði var í leiknum
sem var hin besta skemmtun fyrir
fjölmarga áhorfendur sem á leik-
inn horfðu.
í STirmi MÁLI:
íslandsmólid 1. deild: KK — KII 22—22(9—10).
MÖKK KK: Alfreó Císlason 7, Itaanar ller
mannsMin 4, Kjörn 1’étursHon 4 v., Ilaukur
(■(‘irmundsNon 3, Jóhanncs Stefánsson 2, llauk
ur Ottesen 1, (íunnar (>íslason I.
MÖRK FH: Kristján Arason H, 5 v., l»orgils
Ottar Mathiesen 5, Pálmi Jónsson 3, Hans (>ud-
mundsson 3. Sæmundur Stefánsson 1, (>uð-
mundur Magnússon I, Valgarð Valgarðsson I.
BROTTVÍSANIR af velli:
Jóhannes og Friðrik l*orhjörnsson í KR 2 mín.
hvor. I*álmi Jónsson og llans í Kll 2 mín. hvor.
VARIN VÍTI:
llaraldur Ragnarsson varði víti frá Alfreð,
Kristján Arason skaut í stöng. —
KA skoraði fyrsta
markið á 8. mínútu
ÞRÓTTUR sigraði lið KA mjög ör
uK(,dega í I. dcildinni í gærkvöldi er
liðin léku á Akureyri. Þróttur sigraði
með 23 mörkum gegn 19, eftir að
staðan í hálfleik hafði verið 14—7
þeim í hag.
Mikill kraftur var í leik Þrótt-
ara í upphafi leiksins og komst
liðið þá í 8—1. Leikmönnum KA
gekk mjög illa að skora hjá Ólafi
Benediktssyni markverði sem
varði alls 16 skot í fyrri hálfleikn-
um. Það var ekki fyrr en á 8. mín-
útu leiksins sem KA skoraði sitt
fyrsta mark.
Leikurinn var allvel leikinn af
hálfu Þróttara sem voru allan
tímann betra liðið.
MÖKK KA:
Friðjón Jónsson <», I v., l‘orluifur Ananíasson 5,
Krlingur Kristjánsson 4, Sigurður Sigurðsson 3,
Jakoh Jónsson I.
MÖRK PROTTAR:
Sigurður Sveinsson 6, I v., (iunnar (iunnarsson
6, Olafur H. Jónsson 4, Páll Olafsson 3, (iísli
Oskarsson 3, Jens Jensson 1.
Brottvísanir af velli:
horleifur og Sigurður hjá KA í 2 mín. hvor.
Sigurður Sveinsson, l»rótti í 2 mín.
MISHEPPNIIÐ VÍTI:
Tvö hjá KA. Olafur lk*n. varði víti hjá l»orleifi en
Friðjón skaut yfir.
sor.
Evrópukeppni bikarhafa í handknattleik:
Þróttur leikur báða
leikina hér á landi
NÚ HEFUR endanlega verið gengið
frá því að við leikum báða leiki
okkar í átta liða úrslitum í Evrópu-
bikarkeppni bikarhafa hér á landi,
sagði Gunnar Gunnarsson, formaður
handknattleiksdeildar Þróttar, er
Mbl. ræddi við hann í gær.
Það voru að nást samningar við
ítalina og þeir eru okkur nokkuð
hagstæðir. Við greiðum helming
af ferðakostnaði þeirra, uppihald
þeirra hér á landi svo og kostnað
við dómara, sagði Gunnar.
Leikdagar eru ákveðnir 21. og
22. marz í Laugardalshöllinni. Nái
lið Þróttar að sigra í þessum leikj-
um er liðið komið í 4-liða úrslit.
Þann 29. marz verður svo dregið í
4-liða úrslitin. Liðið sem mætir
Þrótti heitir Pallamano Tacca.
— ÞR
lokin
Spennaí
- en sigur Vals var þó sanngjarn
VALIIR sigraði ÍR 85-82 í úrvals-
deildinni í körfuknattleik í gær
kvöldi, staðan í hálfleik var 43-35
fyrir Val, sem vann þama frekar ör
uggan sigur. Nokkur spenna hljóp
þó í leikinn undir lokin er góður
endasprettur IR-inga saumaði veru-
lega að Valsmönnum.
ÍR hafði forystu framan af fyrri
hálfleik, hittni leikmanna bara
þokkaleg og Valsmenn, sem léku
án Johns Ramsey, virtust finna
sig illa. En það átti eftir að breyt-
ast, þeir náðu betri tökum á leikn-
um er á hálfleikinn leið og náðu
mest tíu stiga forystu. í byrjun
síðari hálfleiks virtust ÍR-ingar
hreinlega hættir, staðan var orðin
55-39 fyrir Val en ÍR-ingar fóru að
saxa á forskotið. Það gekk mjög
vel og var staðan orðin 78-72 fyrir
HK færði Val sigur
VALSMENN geta öllum öðrum en
sjálfum sér þakkað fyrir sigurinn, sem
þeir unnu á IIK að Varmá í I. deild
Islandsmótsins í handknattleik í
ga'rkvöldi. Þegar aðcins 5 mínútur
voru til lciksloka leiddi IIK, 15—14,
cn vopnin sncrust illilcga í höndum
þcirra lokakaflann. Tvcir lcikmanna
liðsins voru reknir úl af mcð örstuttu
millibili fyrir að „hanga í“ V’als-
mönnum og það gerði útslagið. Vals-
mcnn gcngu á lagið og komust yfir í
fyrsta sinn í leiknum, 16—15 og bættu
síðan marki við. HK tókst tvívegis að
minnka muninn í eitt mark, en allt
k«m fyrir ekki. Valur vann oruggan, en
ekki að sama skapi sanngjarnan sigur,
20—17.
Leikurinn í gær er táknrænn fyrir
breytta tíma í herbúðum Vals-
manna. Liðið er ekki svipur hjá sjón
miðað við undanfarin ár og sannast
sagna hafði maður það á tilfinning-
unni að leikmenn héldu hlutina
ganga upp af sjálfu sér. Það var ekki
fyrr en HK var komið í 4 — 1 eftir 12
mín. leik að Hlíðarendadrengirnir
tóku að bíta á jaxlinn. Það dugði
skammt því HK-liðið gerði það einn-
ig. Valsmönnum tókst að jafna met-
in, 5—5, upp úr miðjum hálfleik, en
HK hafði örugga forystu er blásið
var til hiés, 9—7.
Það sama var uppi á teningnum
meginhluta síðari hálfleiksins. HK
leiddi alltaf örugglega og Valsmenn
eyddu mestum tímanum í að
hneykslast á eigin klaufaskap. eða
þá að dómararnir, sem komust í
heitdina vel frá leiknum, fengu horn-
auga. Inntakið í þessu öllu saman,
nefnilega handboltinn, gleymdist al-
veg. Ef ekki hefðu komið til þessi
klaufalegu mistök HK-manna í lokin
hefði reyndin orðið önnur en Vals-
sigur. — SSv.
Val er 4 mínútur voru eftir og
85-80 er 25 sekúndur lifðu leiks.
En ÍR vantaði herslumuninn og
því fór sem fór.
Torfi og Ríkharður báru mjög af
hjá Val og þess má geta, að Valde-
mar Guðlaugsson átti sinn lang-
besta leik fyrir liðið. Jón Stein-
grímsson stóð einnig fyrir sínu.
Jón Jör. og Kiddi bróðir voru best-
ir hjá ÍR, Stanley frekar daufur,
sérstaklega er á leikjnn.leið.
STIC VALS: Torfi Magnússon 27 (23 í f.h.),
Ríkharóur Hrafnkelsson 24, Jón Steingrímsson
13, Valdemar Ouðlaugsson 12, Kristján ÁgúsLs-
son 6, (.uðbrandur Lárusson 2 og Ix ifur (iústafs-
son I stig.
STKi ÍR: Bob Stanley 24, Jón Jörundsson 23,
Kristinn Jörundsson 11, lljörtur Oddsson H,
llelgi Magnússon, Henedikt Ingþórsson og
Oskar Raldursson 4 hver, Ragnar Torfason og
Sigmar Karlsson 2 hvor.
— gg-
Heimsmet
í 3000 m
Bandaríska stúlkan Mary Decker
setti heimsmet í 3.000 metra hlaupi
innanhúss í Los Angeles um helgina.
Hljóp Decker á 8:47,3 mínútum, sem
er 3,5 sekúndum betri tími en fyrra
heimsmetið, sem norska hlaupa-
drottningin Grete Waitz setti fyrir
tveimur árum. Met Decker, sem er
23 ára, er sjöunda innanhússheims-
metið sem bandarískur frjálsíþrótta-
maður setur á þessu keppnistíma-
bili.