Morgunblaðið - 12.02.1982, Page 1
56 SÍÐUR
31. tbl. 69. árg. FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
lögreglu í Varsjá
Varsjá og VínarÍM»rg. 11. febrúar. AP.
MKIRA en 150 logregluflutningabílar
óku í dag löturha'gt í gegnum Varsjá, að
því er virtist í þeim tilgangi einum að
sýna hver hefði völdin í landinu. Að sögn
sjónarvotta fór bílalestin svo hægt, að
það tók hana alla rúmlega hálfa klukku-
stund að komast fvrir sama hornið. Bfl-
arnir voru búnir vélbvxsum og lögreglu-
menn búnir skjöldum stóðu á þeim.
l-etta er í fyrsta sinn síðan á fyrstu dög-
unum eftir setningu herlaga í Póllandi,
að bflalest lögreglunnar ekur í gegnum
borgina.
Almenn óánægja hefur nú brotist út
í landinu í kjölfar stórfelldra hækkana
vöruverðs, sem tóku gildi um síðustu
mánaðamót. Hafa hækkanirnar gert
lífið þungbært, sér í lagi fyrir ungt
fólk. Sem dæmi um hækkanirnar, sem
eru allt upp í 400%, má nefna, að
stofusófi, sem áður kostaði 3.480 zloty,
hefur hækkað i 10.700 zloty. Meðallaun
í Póllandi eru um 7.000 zloty. Ógern-
ingur er að fá ýmsan varning í landinu
nema með afarkjörum. T.d. er ekki
mögulegt að kaupa einstaka hluti í
matarstell, heldur verður að kaupa
heilt stell. Mjólk, sem ekki selst, og
svonefndar Bologna-pylsur, sem
skemmast eftir nokkurra
geymslu, er heldur hent en að selja á
niðursettu verði.
Aðstoðarforsætisráðherra Póllands,
Jerzy Odzowski, gaf í dag í skyn, að
skömmtunarmiðar kynnu að hafa ver-
ið falsaðir í tilraunum fólks til að
verða sér úti um aukna matvöru.
Odzowski benti á, að nauðsynlegt væri
að gera skömmtunarmiðana þannig úr
garði, að ógjörningur væri að falsa þá.
„Þeir hafa nú gildi á við peninga og
ættu þar af leiðandi að vera gerðir úr
svipuðum efnum,“ sagði Odzowski.
Hann viðurkenndi ekki, að falsaðir
miðar hefðu fundist, en lagði ríka
áherslu á að verslunarmenn ættu að fá
þjálfun í að þekkja falsaða miða frá
hinum raunverulegu.
Otlagar innan Samstöðu hafa fengið
leyfi dönsku stjórnarinnar til að
sleppa 10.000 blöðrum fylltum helíum
á Borgundarhólmi, þannig að þær ber-
ist áleiðis til Póllands. I hverri hlöðru
er 24 síðna bæklingur með ræðustúf-
um erlendra leiðtoga. Gera útlagarnir
sér vonir um, að 8.000 blöðrur nái alla
leið til Póllands, en ekki eru nema um
60 km á milli.
Josef Glemp erkibiskup sneri aftur
til Póllands í dag eftir vikudvöl í Róm,
þar sem hann ræddi við landa sinn,
Jóhannes Pál páfa II. „Ég kem tóm-
hentur," sagði Glemp við komuna til
Varsjár. „Páfi veit að við verðum að
ráða fram úr okkar vandamálum á eig-
in spýtur. Því kem ég aðeins með bless-
un hans.“
Spænskir
yfirmenn
fyrir rett
Madrid, II. febrúar. Al*.
IIKRIN.N tilkynnti í dag að þrír hátt-
settir herforingjar, auk 29 annarra úr
hernum og eins óbreytts, yrðu dregnir
fyrir herrétt þann 19. febrúar, ákærð-
ir fyrir aðild að tilraun, sem gerð var
til að hylta ríkisstjórninni fyrir nær
ári síðan.
Krafist hefur verið 30 ára fang-
elsisdóms yfir þeim Antonio Tej-
ero, Jaime Milans de Bosch og Al-
fonso Armada, sem höfuðpaurum
samsærisins. Armada, sem var her-
fræðilegur ráðunautur Juan Carlos
Spánarkonungs um nokkurra ára
skeið, er talinn hafa skipulagt til-
ræðið.
Spænska varnarmálaráðuneytið
hefur tilkynnt, að varúðarráðstaf-
anir verði með allra mesta móti við
réttarhöldin. Réttarhöldin fara
fram í höfuðstöðvum hersins í út-
jaðri Madrid. A milli hinna ákærðu
og þeirra 600, sem sérstaklega hef-
ur verið boðið að vera viðstaddir
réttarhöldin, verður skothelt gler.
Ennfremur er gert ráð fyrir að her-
menn verði á víð og dreif um áheyr-
endasalinn. Gert er ráð fyrir að 69
manns úr röðum hersins muni bera
vitni við réttarhöldin.
Brezki auðkýfingurinn Roland (,,Tiny“) Rowland, yfirmaður Lonrho-
samsteypunnar, sem mun hlaupa undir bagga með Sir Freddie Laker.
Sir Freddie Laker kemur til aðalstöðva brezku fiugmálastjórnarinnar til
viðræðna um stofnun nýs fiugfélags.
Laker stoftiar nýtt félag
með brezkum auðkýfíngi
Hefur líkast til starfsemi í aprílmánuði
1/ondon, 11. febrúar. Al*.
„ÞAÐ EINA sem getur stöðv-
að okkur nú er að flugmála-
stjórn leggi ekki blessun sína
yfir samning okkar,“ sagði
Freddie Laker kampakátur,
er hann hitti fréttamenn að
máli í dag. Nú er næsta víst
að hann og breski iðnjöfurinn
Rowland („Tiny“) Roland,
taki höndum saman um stofn-
un nýs flugfélags, „Flugfélag
fólksins“ eins og þeir ætla að
nefna það.
Laker og Roland hafa verið á
stöðugum fundum síðustu daga,
en Roland segir hugmyndinni
hafa skotið upp um síðustu helgi,
strax eftir gjaldþrotsyfirlýsing-
una. „Þetta er fullkomið dæmi um
Hermenn gengu í lið með
stjórnarandstæðingum
Borgin Hama í Sýrlandi enn í umsátri
reisnarmönnunum, andstæðingum
Damaskus, II. febrúar. Al'.
STTJÓRNVÖLD í Sýrlandi hafa nú
loks viðurkennt að her landsins hafi
einangrað borgina Hama f kjölfar
óeirða undanfarna viku. Á sama
tíma hafa Sýrlendingar borið fram
opinbera kvörtun við Bandaríkja-
menn og sakað þá um að blanda sér
í innanríkismál Sýrlendinga. Var
sendiherra Bandaríkjanna í Sýrlandi
kallaður í utanríkisráðuneytið og
honum afhent formleg kvörtun.
í skýrslu um ástandið, sem AP-
fréttastofunni barst í dag frá upp-
stjórnarinnar, sem eru undir for-
ystu strangtrúaðra múhameðstrú-
armanna, segir, að her landsins
hafi haldið uppi stöðugri skothríð
á borgina og hafi eldflaugum verið
beitt. Segjast stjórnarandstæð-
ingar hafa náð borginni á sitt
vald, „frelsað hana“, eins og það er
orðað í yfirlýsingunni.
Ennfremur segir þar, að meira
en 50 opinberir starfsmenn hafi
verið teknir af lífi. Þá segja upp-
reisnarmenn, að 47. herdeild sýr-
lenska hersins, sem stödd var í
borginni, er óeirðirnar brutust út,
hafi gengið þeim á hönd og virt
skipanir yfirboðara sinna að vett-
ugi. Talið er, að mörg hundruð
manns hafi látið lífið í átökunum,
sem staðið hafa i átta daga.
Fréttamönnum hefur ekki verið
veitt leyfi til að heimsækja borg-
ina. Að sögn stjórnvalda vilja þau
ná „síðasta uppreisnarseggnum“,
áður en af því geti orðið. Ferða-
menn, sem staddir voru í Hama er
ólætin hófust, hafa staðfest fregn-
ir vestrænna diplómata um
ástandið, en stjórn landsins segir
þær vera uppspuna frá rótum.
hvernig einkaframtakið hjálpar
einkaframtakinu," sagði Laker.
Vonir standa til að félagið hefji
rekstur sinn í aprílmánuði og
mun það byggja á sama grunni og
Laker Airways. Ódýrar ferðir yfir
Atlantshafið verða aðalsmerki
þess. Að sögn þeirra sem best
þekkja til, mun ekki standa á leyfi
bresku flugmálastjórnarinnar og
Laker muni verða kominn á loft á
ný innan fárra vikna.
Rowland („Tiny“) Roland rekur
eitt arðbærasta fyrirtæki Bret-
landseyja, Lonrho Conglomerate,
sem skiptist í næstum eitt þúsund
dótturfyrirtæki. Á snærum sam-
steypunnar er alls kyns rekstur,
allt frá gullgreftri í Afríku og til
hins virta vikublaðs, Observer.
Velta samsteypunnar á síðasta
ári var 2,46 milljarðar sterlings-
punda.
Roland gerir sér vonir um að
kaupa 10 af DC-10 þotum Lakers
til að koma rekstrinum af stað, en
alls átti Laker 20 vélar er hann
varð gjaldþrota. Bandaríski Ex-
port/Import-bankinn lánaði Lak-
er á sínum tíma 86 milljónir dala
og veitti vilyrði fyrir 61 milljón til
viðbótar. Bankinn hefur nú sent
fulltrúa sinn til Englands til að
tryKKÍ3 fyrsta veðrétt i fimm af
DC-10 þotum Lakers.
Laker lýsti því yfir í gær að
viðbrögð Margaret Thatcher við
bón starfsfólk Laker-flugfélags-
ins um að ríkissjóður tryggði
fyrirtækinu áframhaldandi
rekstrargrundvöll hefðu verið
hárrétt.
Freddie Laker og Rowland Rol-
and hafa þekkst í aldarfjórðung.
Sögðu þeir í viðtali við frétta-
menn að flugvélar nýja félagsins
myndu bera nafn Lakers á stélinu
eins og áður, en á hliðum þeirra
stæði „Flugfélag fólksins“
(People’s Airlines). Roland er ekki
ókunnugur flugvélum. Hann á 30
flugvélar í Afríku, auk þess sem
hann á ríkulega útbúna
Grumman-þotu, sem hann notar
til skrifstofustarfa á ferðalögum.
Sprenging
í Essen
KsM'n. ||. rchrúar. Al*.
FJÓRIR slösuðust hættu-
lega í dag er sprengja úr
síðari heimsstyrjöldinni
sprakk er grafið var ofan af
henni við lagningu nýs bíla-
stæðis í Essen. Önnur
sprengja, sem kom í ljós við
sprenginguna, var gerð
óvirk. Ekki er vitað hvaðan
hin 225 kílóa sprengja kom
upprunalega.
Mikill viðbúnaöur