Morgunblaðið - 12.02.1982, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1982
*
Upptök Skeidarár þar sem hún beljar af miklum krafti undan jöklinum. Myndina tók Ragnar Axelsson
ijósmyndari í gær.
Sjálfstæðis-
menn í Kópavogi:
Algjör eining
einn listi í vor
VIÐ RÆDDUM málin í einlægni strax eftir síðustu bæjarstjórnarkosn-
ingar og höfum átt ágæta samvinnu í bæjarstjórninni síðan. Þaó er því
algjör eining innan sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi og við bjóðum fram
einn lista í vor, sögðu þeir Richard Björgvinsson og Guðni Stefánsson í
viðtali við Mbl., en þeir eru bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Kópa-
vogi. Richard náði kjöri sem annar maður á D-lista flokksins, en Guðni
sem fyrsti á S-listanum. Sjálfstæðismenn í Kópavogi hafa nú ákveðið að
bjóða fram einn lista í komandi bæjarstjórnarkosningum og hafa þeir nú
þegar gengið frá prófkjörslista fyrir hið sameiginlega prófkjör allra flokka
í bænum 6. mars nk.
Um orsök þess að listarnir
urðu tveir fyrir kosningarnar
1978 sögðu þeir Richard og
Guðni, að óánægja hefði í byrj-
un orðið vegna niðurstöðu próf;
kjörs, sem þá var haldið. I
framhaldi af því hefði svo verið
hróflað við niðurstöðunum, sem
síðan leiddi af sér klofning
flokksins og áðurnefnda tvo
lista.
D-listinn hlaut tvo fulltrúa
kjörna 1978, en S-listinn einn.
Fyrir klofninginn og kosn-
INNLENT
ingarnar 1978 átti Sjálfstæðis-
flokkurinn aftur á móti fjóra
fulltrúa. í bæjarstjórn Kópa-
vogs sitja 11 fulltrúar, sjálf-
stæðismenn eru nú í minni-
hluta.
Að sögn þeirra Guðna og
Richards fer hið sameiginlega
prófkjör flokkanna í Kópavogi
nú fram að frumkvæði sjálf-
stæðismanna. Þeir sögðu
reynsluna af klofningnum 1978
ekki hafa breytt skoðunum sín-
um á gildi prófkjöra. Richard
sagði þó, að framkvæmd þeirra
hefði að mörgu leyti farið út í
öfgar. Guðni sagðist hlynntur
prófkjörum og telja, að fram-
kvæmd þeirra hefði fengið
nokkra eldskírn og vænta mætti
betri vinnubragða í framtíðinni.
Þeir sögðu prófkjörsreglur
sjálfstæðismanna í Kópavogi nú
„þrælbindandi", eins og þeir
orðuðu það. Ekki yrði á nokkurn
hátt hróflað við sex efstu sæt-
unum, ef viðkomandi hefðu
fengið 50% atkvæðamagn eða
meira, nema ef þeir samþykktu
slíkt sjálfir.
Þeir voru í lokin spurðir,
hvort þeir vildu spá einhverju
um útkomuna í komandi bæjar-
stjórnarkosningum, og sagði
Richard það hóflega bjartsýni
að reikna með að Sjálfstæðis-
flokkurinn fengi fjóra menn á
ný.
Þeir félagar sögðu í lokin, að
það væri skylda sjálfstæð-
ismanna að vinna saman að
heill bæjarfélagsins, þannig að
stefna flokksins gæti náð fram
að ganga í sem flestum málefn-
um.
Smygl í togara
TOLLGÆSLAN í Hafnarfirði
fann í gær smygl í togara í Hafn-
arfjarðarhöfn, 25 kassa af áfeng-
um bjór og tvær flöskur af sterku
áfengi. Smyglið var gert upptækt,
og er málið í rannsókn.
Skeiðará vex enn:
í athugun ad byggja
nýja varnargarda
Frá hórleifi (Hafssyni, blaóamanni
Morgunblaósins við Skeiðará, II. febrúar.
VATNSRENNSLIÐ í Skeiðará var orð-
ið rúmlega 2000 rúmmetrar á sekúndu
eftir hádegi í dag. Ef tekið er mið af
hlaupinu í Elliðaánum á dögunum, þá
er Skeiðará nú tíu sinnum stærri. í nótt
sem leið og í dag hefur áin tekið sneið
af efsta straumgarðinum sem gengur
út úr stóra varnargarðinum, frá Skafta-
fellsbrekkunni niður að brú.
Verkfræðingar Vegagerðarinnar,
þeir Einar Hafliðason og Loftur Þor
steinsson töldu enga hættu stafa af
þessu, enda lá áin ekki eins þungt á
görðunum nú í kvöld og morgun.
Áin hefur dreift nokkuð úr sér og
myndað djúpan ál nokkru vestar og
flæðir nú að mestu undir allri
brúnni, sem er 904 metrar að lengd.
Heimamenn í Skaftafelli og náttúru-
verndarmenn og almannavarna-
nefnd Skaftafellssýslu munu hafa
áhuga á að byggður verði stór
straumvarnargarður ofarlega við
Skaftafellsbrekkur, til að reyna að
beina ánni meira til vesturs í hlaup-
um. í undanförnum hlaupum hefur
áin ávallt tekið sneið af Skafta-
fellsbrekkum, og mesta hættan er að
áin komist undir garðinn þar sem
hann er næstur brekkunum. Þá væri
tjaldstæðið, mannvirki þar og gróð-
urlendi í stórhættu. Málið hefur ver-
ið tekið upp við stjórn viðlagatrygg-
ingar, þar sem vilyrði hefur fengist
fyrir kostnaðargreiðslu. Verkfræð-
ingar Vegagerðarinnar sögðu á hinn
bóginn að málið hefði verið rætt við
þá.
Deilan á Kleppi enn óleyst:
Nýtt fólk í stað þeirra
sem eru í verkfalli?
HVORKI gengur né rekur í kjaradeilu
ófaglærðs starfsfólks Kleppsspítala og
fjármálaráðuneytisins, en starfsmenn
gengu út og lögðu niður vinnu á hádegi
í gær eins og boðað hafði verið. Hélt
hópurinn þá til fjármálaráðuneytisins,
þar sem talsmenn fengu viðtal við
Ragnar Arnalds eftir nokkra bið. Á
fundinum sagðist fjármálaráðherra þó
ekki líta á hann sem samningafund,
enda væri starfsfólkið ekki samnings-
aðili í deilunni, það væru viðkomandi
stéttarfélög. Ræddi fjármálaráðherra
einnig um að svo kynni að fara að
annað fólk yrði ráðið í stöður verkfalls-
fólks.
Agata Agnarsdóttir, einn tals-
manna starfsmannanna sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gærkvöldi, að
í rauninni væri ekkert að gerast í
málinu eins og stæði, og ólíklegt að
deilan leystist alveg í bráð. Að öðru
leyti kvaðst hún vilja verjast frétta
að svo stöddu, sagði starfsfólk
myndu reyna að fá sér sal á leigu, til
að ræða stöðu mála. — Aðspurð
sagði hún að starfsfólk það, er nú
hefði lagt niður vinnu, myndi alls
ekki líða það að aðrir yrðu ráðnir í
störf þess, og myndu koma í veg
fyrir slíkt ef til kæmi.
Garðabær og Hafnarfjörður:
Ekki efnt til próf-
kjörs hjá sjálf-
stæðisfélögunum
SJÁLFSTÆÐISMENN í Garðmbæ og
Hafnarfirði hafa ákveðið að ekki verði
efnt til prófkjöra í bæjarfélögunum til
ákvörðunar um röðun á framboðslist-
ana fvrir komandi bæjarstjórnarkosn-
ingar. Frófkjör voru haldin á báðum
þessum stöðum fyrir síðustu kosn-
ingar.
Á fjölmennum fundi fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði
var tillaga um að fela uppstillingar-
nefnd röðun á bæjarstjórnarlistann
samþykkt með 38 atkvæðum, en alls
greiddu 54 atkvæði. Uppstillinga-
nefnd hefur þegar hafið störf, en
formaður hennar er Jóhann Berg-
þórsson.
í Garðabæ var tillaga sem fól í sér
skipun uppstillinganefndar sem
vinni að því að gera tiilögu til full-
trúaráðsfundar um skipan fram-
boðslistans samþykkt á fulltrúa-
ráðsfundi með 28 atkvæðum gegn 11.
Tillagan fól einnig í sér að uppstill-
inganefndin skuli leita eftir tillögun
flokksbundinna sjálfstæðismanna
með því að senda þeim seðla, sem
þeim er ætlað að skrifa 5—7 nöfn á.
Niðurstöður þeirrar könnunar verða
ekki kynntar opinberlega og þær á
engan hátt bindandi fyrir nefndina.
Eru tvfmælalaust til bóta
fyrir viðskiptavini okkar
— segir Bjarni Guðbjörnsson, bankastjóri Útvegs-
banka íslands, um hina nýju ábyrgðartékka bankans
„MÉR finn.st Jónas Haralz gera
heldur lítið úr þessu vandamáli. Inn-
stæðulausar ávísanir eru tvímæla-
laust vandamál og hafa verið, sem
bezt má marka af því, að frá áramót-
um og fram til 10. febrúar sl. hefur
verið lokað 132 reikningum hjá
bönkunum, og frá 27. janúar til 10.
febrúar sl. eru reikningarnir 49, að
langmestu leyti einstaklingar,“ sagði
Kjarni Guðbjörnsson, bankastjóri í
(Itvegsbanka íslands, í samtali við
Mbl., er hann var inntur álits á |>eim
ummælum Jónasar Haralz, for
manns Sambands viðskiptabank-
anna, að hinir nýju ábyrgðartékkar
IJtvegsbankans, sem m.a. er ætlað
að stemma stigu við fölsun tékka,
séu hvorki til hagsbóta fyrir við-
skiptavini, né bankana.
„Auk þessa eru vafalítið margir
reikningar enn opnir, sem ætti að
vera búið að loka vegna misnotk-
unar. Þá ber þess að geta, að það
er ekki mikið um innstæðulausar
ávísanir í bönkunum, þvi þeir geta
oftast fengið sitt með því að
skulda andvirðið hjá viðskiptavin-
um sínum, sem leggja þær inn.
Hins vegar er mikið af ávísunum
hjá einstaklingum úti í bæ, hjá
verzlunum, veitingahúsum, benz-
ínsölum og öðrum þeim, sem oft
þurfa að taka á móti ávísunum,
sem greiðslu.
Þess vegna er þessi tilraun, sem
Útvegsbankinn er að gera með því,
að gefa út ábyrgðarskírteini ekki
sízt til þess að koma til móts við
viðskiptavini bankans, til að auð-
velda þeim að sneiða hjá fölsuðum
og innstæðulausum tékkum.
Myndin og undirskrift handhafa á
ábyrgðarskírteinunum auðveldar
mjög að hafa eftirlit með tékka-
útgáfunni, auk þess sem bankinn
tekst að sjálfsögðu á hendur
nokkra ábvrgð í þessu sambandi,"
sagði Bjarni Guðbjörnsson enn-
fremur.
„Vegna ummæla Jónasar, veit
ég ekki til þess, að nokkur sam-
þykkt hafi verið gerð í stjórn Sam-
bands viðskiptabankanna um
hvaða leiðir bankarnir vilji fara í
þessu efni, svo í umboði þeirra tal-
ar Jónas Haralz ekki, þegar hann
fullyrðir, að þessi leið, sem Út-
vegsbankinn valdi, sé ekki heppi-
leg og muni hvorki verða til hags-
bóta fyrir viðskiptavini né Út-
vegsbankann. Fullyrðingar í þessu
efni að óreyndu, getur enginn
viðhaft, sem vill láta taka mark á
sér,“ sagði Bjarni Guðbjörnsson
ennfremur.
„Þá vil ég geta þess, að þær
skoðanir munu hafa komið fram á
fundi nú í febrúar í Samvinnu-
nefnd banka og sparisjóða, bæði
frá forstöðumanni Reiknistofu
bankanna og forstöðumanni
bankaeftirlits Seðlabankans, að
þetta væri spor í mjög rétta átt og
að minnsta kosti ætti að lofa þessu
að sýna sig áður en það yrði for-
dæmt,“ sagði Bjarni Guðbjörnsson
ennfremur.
Þá sagði Bjarni, að þeir í Út-
vegsbankanum þættust því vera
að fara inn á rétta braut og teldu
sig vera að koma verulega til móts
við viðskiptavini sína, sem í dag
sitja með mikinn fjölda falsaðra
og innstæðulausra tékka. „Það er
hins vegar alveg rétt hjá Jónasi
Haralz, að það er alltof mikill los-
arabragur á þessum málum hér á
landi, sem nauðsynlegt er að gera
bragarbót á. Enda hafa bankarnir
verið að ræða um þessi mál í ára-
raðir. Þetta kerfi okkar byggir á
þýzkri fyrirmynd, en svona
ábyrgðartékkar eru til í ýmsum
myndum víða í Evrópu. Við töld-
um hins vegar þetta þýzka kerfi
hafa það fram yfir t.d. það brezka,
að á ábyrgðarskírteinunum í
Þýzkalandi er mynd af viðkom-
andi, en ekki í Bretlandi. Það eyk-
ur tvímælalaust á öryggið. Þá vil
ég einnig geta þess, að við erum
með margar fleiri nýjungar á
prjónunum til að bæta þjónustuna
við okkar viðskiptavini. Má í því
sambandi t.d. nefna hin nýju
plús-lán okkar, sem eru nýjung
hér,“ sagði Bjarni Guðbjörnsson,
bankastjóri í Utvegsbanka íslands
að síðustu.