Morgunblaðið - 12.02.1982, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1982
3
Guðmundur G. Halldórsson útflytjandi á Húsavík:
Sambandið undirbýður grá-
sleppuhrognamarkað erlendis
MYNDIN er af Gudlaugi Guð-
rnannssyni frá Borgarnesi, sem lést
af slysförum er flutningabfll valt á
Kjalarnesi sl. mánudag. Gudlaugur
var 51 árs og lætur hann eftir sig
konu og fimm börn.
Þrjú innbrot
í Reykjavík
BROTIST var inn á þremur stöðum í
Reykjavík aðfaranótt flmmtudags.
Farið var inn í Alþýðuprentsmiðj-
una við Vitastíg og urðu þar nokkr-
ar skemmdir, í versluninni Vaðnesi
við Klapparstíg var stolið talsverðu
af matvælum og tóbaki og hurðir
skemmdar og í Karnabæ við Lauga-
veg var skemmdur peningakassi og
stolið 600 krónum, en ekki var vitað
hvort tekinn var fatnaður.
Tók niðri út
af Keflavík
OTTÓ N. 1‘orláksson, einn togara
Bæjarútgerðar Reykjavíkur, tók niðri
um helgina, er skipið var á leið á mið-
in. Ohappið varð við Hólmsberg, út af
Keflavík, í leiðiniegu veðri, 8 til 9
vindstigum af vestan.
Magnús Ingólfsson skipstjóri
sagði í samtali við blaðamann Morg-
unblaðsins í gær, að skipið eða
skipverjar hefðu aldrei verið í
neinni hættu, en gera þyrfti lítils-
háttar við skipið, sem nú væri inni í
Reykjavíkurhöfn.
í STIJTTU máli snýst deilan um
það hvort viðhafðir skuli venju-
legar viðskiptareglur eða hvort
auðhring eigi að haldast uppi að
sniðganga þær, sagði Guðmund-
ur G. Halldórsson, útflytjandi á
Húsavík, í samtali við Mbl., en
skiptar skoðanir munu nú meðal
útflytjenda grásleppuhrogna og
sjávarafurðadeildar SÍS um
hvort hverfa eigi frá áður
ákveðnu verði, sem hefur verið
330 dalir fyrir tunnuna, eða
ekki. Guðmundur G. Halldórs-
son rakti gang mála á þessa
lund:
Fyrir skömmu var hér einn af
stærri erlendum kaupendum grá-
sleppuhrogna og kom hann daginn
sem haldinn var aðalfundur fram-
leiðenda grásleppuhrogna, 17. janú-
ar. Við komu sína spurði hann mig
hvað mikið ég teldi að væri óselt af
framleiðslu ársins 1981, hver skoðun
mín væri á notagildi hennar og hvað
ég héldi um útlit veiða á þessu ári.
Var rætt um þessi mál með það
fyrir augum að þessi kaupandi
myndi kaupa nokkurt magn af því
sem er óselt. Minnti ég á að gildandi
verð væri 330 dalir fyrir tunnuna
CIF og sagði ég því myndi ekki
verða breytt, en sú var einnig yfir-
lýsing viðskiptaráðuneytisins. Hinn
erlendi kaupandi kvaðst þá vilja
ræða málið nánar við Ólaf Jónsson,
aðstoðarframkvæmdastjóra sjávar-
afurðadeildar SÍS, áður en til niður-
stöðu kæmi um viðskipti milli mín
og hans.
Síðan ákváðum við að hittast
tveimur dögum síðar og þá var af-
staða hins erlenda kaupanda orðin
önnur og var ástæðan eftirfarandi:
Ólafur Jónsson hafði hvatt til þess
að efnt yrði til fundar í Kaup-
mannahöfn sem allra fyrst að því
tilskyldu að tryggt væri að allir
helstu kaupendur í Danmörku og
Þýskalandi sæktu hann, svo og allir
helstu útflytjendur frá íslandi, full-
trúi viðskiptaráðuneytisins, Björn
Guðjónsson, formaður Samtaka
grásleppuhrognaframleiðenda.
Ég var samþykkur þessu svo
fremi að ég sæti fundinn eða maður
i minn stað og fór hinn erlendi gest-
ur síðan af landi brott. Næsta dag
hringir Stefán Gunnlaugsson í
viðskiptaráðuneytinu til mín og seg-
ir að Ólafur hafi sagt sér að ekki
komi til greina að fleiri útflytjendur
færi en hann frá SÍS og 1 aðili ann-
ar og að ég mætti ekki fara. Það var
því strax ljóst að hér var eitthvað
gruggugt á seyði og bætti það held-
ur ekki úr skák að Ölafur hafði lýst
því yfir að framkvæmdastjóri Sam-
taka grásleppuhrognaframleiðenda,
Guðmundur Lýðsson, yrði ekki með
í ferðinni, þar sem ekki væri hætt-
andi á að hafa hann með. Astæða
þess að svo fáir myndu fara væri sú
að fundurinn yrði annars þyngri í
vöfum. Útkoman varð sú að fundinn
sóttu Stefán Gunnlaugsson deildar-
stjóri í viðskiptaráðuneytinu, Ólaf-
ur Jónsson frá SÍS, Kjartan Frið-
bjarnarson útflytjandi, Björn Guð-
jónsson, en einnig Guðmundur
Lýðsson.
Strax að fundi loknum flaug
Kjartan heim, hinir síðar. Þegar
„VAFALAIIST verður almcnnur
barnalífeyrisaldur hækkaður upp í 18
ár, en hann hcfur verið 17 ár hingað
til, um ieið og almannatryggingalög-
unum verður breytt, en þeim verður
að breyta til að Tryggingastofnun
ríkisins beri að hafa milligöngu um
greiðslur meðlaga til barna 17—18
ára samkvæmt nýju barnalögunum,"
sagði Gunnar Möller í tryggingaráði.
fundur var boðaður um málið í
viðskiptaráðuneytinu kom í ljós að
Ólafur var með það sem hann kallar
tillögur um gífurlega verðlækkun
bæði á því sem eftir er af fram-
leiðslu 1981 og framleiðslu þessa
árs. Þegar ljóst var að engar tillögur
eða hugmyndir um breytingar feng-
ust svo mikið sem ræddar læddist sá
grunur að mönnum að búið væri að
semja án þess að Stefán Gunn-
laugsson deildarstjóri og þátttak-
andi seljenda, Kjartan Friðbjarn-
arson, vissu. Útflytjendur risu því
allir sem einn gegn því gerræði sem
Ólafur hafði haft í frammi. Guð-
mundur Lýðsson mætti á þessum
fundi við sjötta mann og nú brá svo
við að nú sögðust þeir aðeins vera að
hlusta. Enda kom fljótlega í ljós
þegar Guðmundur gerði félögum
sínum í stjórn Samtaka grásleppu-
hrognaframleiðenda grein fyrir
ferðinni að hann hafði fallist á að
styðja Ólaf gegn því að Ólafur sæi
svo um að grásleppusjómenn kæm-
ust ekki á snoðir um það að Guð-
mundur væri þátttakandi í þessum
leik. I staðinn átti Guðmundur, þ.e.
Samtökin, að hljóta þá umbun að
SÍS myndi leggja því lið að Guð-
mundur Lýðsson og Samtök
grásleppuhrognaframleiðenda
er Mbl. spurði hann af hverju greiðsl-
ur meðlaga til þessa aldurshóps væru
ekki hafnar, en hin nýju barnalög
sem tóku gildi fyrir skemmstu kváðu
m.a. svo á um.
Gunnar sagði að nýju barnalögin
næðu ekki til breytinga á trygg-
ingalögunum, sem Tryggingastofn-
un ríkisins starfar samkvæmt en
unnið hefði verið að samræmingu
fengju að ráðsmennskast með þau
hrogn er seld yrðu innanlands.
Atferli þeirra félaga í Kaup-
mannahöfn spurðist fljótt út og reis
strax mikil mótmælaalda og reiði í
sjómönnum í þeirra garð. Ég krafð-
ist þess að ekki væri að gert í mál-
inu fyrr en framleiðendur fengju að
vita sannleikann í málinu og segja
álit sitt á ferðinni. Næsta dag voru
menn boðaðir á fund hjá SIS og
mættu þar flestir útflytjendur.
Fundinum lyktaði eins og fyrr, að
menn töldu þetta vítaverð vinnu-
brögð og óafsakanleg, þau gengju á
svig við venjur og lög. Síðan hefur
málið verið á umræðustigi og mót-
mælin drifið að. Síðast í dag var
fundur þar sem ég lagði fram
ákveðnar tillögur sem ég taldi að
gætu leyst hnútinn. A það á eftir að
reyna hvert verður framhald máls-
ins, en eins og málið er nú statt
telur Ólafur Jónsson mig höfuð-
andstæðing í þessu máli og það er
táknrænt að um þessar mundir
minnist Samvinnuhreyfingin 100
ára afmælis síns, hreyfing, sem
stofnuð var í Þingeyjarsýslu til að
koma í veg fyrir einokun og koma á
verslunarfrelsi, en nú berst sama
hreyfing við að koma þessu á aftur.
þeirra og kvaðst hann vænta þess
að frumvarp til breytinga á trygg-
ingalögunum sæi dagsins ljós bráð-
lega, ef það væri ekki nú þegar
komið fram.
Þá sagði Gunnar aðspurður um
hvort fleiri þættir barnalaganna
kölluðu á breytingar á trygginga-
lögum, að þar væri eingöngu um
smáatriði að ræða.
Breyta þarf almannatryggingalögum
— til að Tryggingastofnun annist meðlagsgreiðslur til 17—18 ára