Morgunblaðið - 12.02.1982, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1982
5
KOLBKÚN NOKDAL varð bíleigandi í bingói Hvatar í veitingahúsinu Broadway
á miðvikudagskvöldið. Ilúsfyllir var og spilað um ágæta vinninga, en hámarki
náði spenningurinn þegar í boði var ný Lada-bifreið, sem blasti við á sviðinu allt
kvöldið. Bingó fékk Kolbrún, sem hér er á miðri mynd með dóttur sinni Dagmar
og híllinn góði í baksýn.
Bessí Jóhannsdóttir (t.h.) formaður Hvatar afhenti henni bílinn. Og til vinstri
standa bingóstjórar kvöldsins, Asta Gunnarsdóttir og Theodóra bórðardóttir.
Kaffisala Dómkirkju-
kvenna á Loftleidum
NK. SUNNUDAG, 14. febrúar, verður
kvenfélag Dómkirkjunnar, sem ber hið
gamla heiti Kirkjunefnd kvenna
Dómkirkjunnar, með kaffisölu f Vík-
ingasal Hótel Loftleiða og hefst hún kl.
3 síðdegis, að lokinni messu í Dóm-
kirkjunni, er hefst kl. 2.
Þar prédikar Einar Birnir fram-
kvæmdastjóri, en sr. Þórir Stephen-
sen þjónar fyrir altari. Ingveldur
Hjaltested syngur einsöng í mess-
unni við undirleik dómorganistans
Marteins H. Friðrikssonar. Dómkór-
inn leiðir almennan söng, en eins og
algengt hefur verið í síðdegismess-
um í vetur, þá verður lögð mikil
áhersla á þátttöku safnaðarins í
söngnum, og foreldrar fermingar-
barna flytja bæn og ritningartexta.
Strætisvagn verður að venju við
kirkjudyr að messu lokinni til að
flytja þá, sem þess óska, út á Hótel
Loftleiðir. Hann fer í bæinn aftur
upp úr kl. 4. Svo verða einnig ferðir í
bæinn með Vífilsstaðavagninum,
sem fer frá hótelinu kl. 3.35 og 4.35.
Auk kaffisölunnar verða konurnar
með lítið „söluhorn", þar sem þær
selja ýmsa handgerða muni, blóm,
páskaföndur o.fl.
Ágóðinn rennur til þeirrar merku
starfsemi, sem konurnar vinna. Allir
unnendur Dómkirkjunnar vita,
hvern hlut þær eiga að því hvernig
hún er búin í dag, en þær hafa líka
unnið að mannúðar- og liknarmálum
fyrir fatlaða, þroskahefta og aldr-
aða. Nú eiga þær í pöntun nýja
kyrtla handa söngfólkinu og vinna af
alefli að eflingu orgelsjóðsins, sem
stofnaður var fyrir frumkvæði innan
Kirkjunefndarinnar. Hvar sem gott
málefni hefur þurft stuðning innan
kirkju eða utan, þar hafa Kirkju-
nefndarkonur ætíð verið reiðubúnar
til aðstoðar. Ég er þess því líka full-
viss, að Dómkirkjufólk muni að
venju fjölmenna til kaffisölunnar á
Hótel Loftleiðum á sunnudag til að
njóta þar góðs samfélags yfir rausn-
arlegum veitingum um leið og góðu
starfi er stuðningur veittur.
Þórir Stephensen
Stefnuskrárráöstefna
Vöku haldin um helgina
NÚ UM helgina verður haldin árleg
stefnuskrárráðstefna Vöku, félags lýð-
ræðissinnaðra stúdenta. Að þessu sinni
verður ráðstefnan haldin að Hótel
Esju, og byrjar fyrri daginn kl. 12.00,
en seinni daginn kl. 13.00.
Undanfarnar vikur hafa fasta-
nefndir Vökumanna starfað að und-
irbúningi hinna ýmsu málaflokka
sem mynda samstæða stefnu. Tillög-
ur nefndanna verða lagðar fram og
ræddar í hópum fyrri daginn, en
seinni daginn verða almennar um-
ræður.
Á ráðstefnunni verða ekki einung-
is þeir Vökumenn sem hafa staðið í
eldlínunni síðastliðinn vetur, heldur
munu stuðningsmenn og kjörnir
fulltrúar koma saman til þess að
styrkja þá kjölfestu sem Vökustarfið
myndar í stúdentahreyfingunni.
Stefnuskrárráðstefnan mun taka
til meðferðar helstu málaflokka sem
eru á döfinni hjá stúdentum. Sérstök
Fyrirlestur í kvöld:
íYÓðleÍKsjjættir
í fyrirlestraröðinni Fróðlciksþættir
um Grænland mun dr. Kolf Kjell-
ström, deildarstjóri við Nordiska
muséet í Stokkhólmi tala um gift-
ingarsiði eskimóa róstudagskvöldið
12. febr. kl. 20.30 í Norræna húsinu.
Rolf Kjellström varði doktorsrit-
gerð um þetta sama efni, en hann er
mannfræðingur og hefur sérhæft
sig í menningu og lifnaðarháttum
þjóða, sem byggja heimskautasvæð-
in, einkum sama og eskimóa. Fyrir-
lesturinn er fluttur á sænsku.
áhersla er lögð á háskólamálefnin,
en eins og kunnugt er hefur Vaka
verið leiðandi í þeirri umræðu sem
fram hefur farið í menntapólitík
meðal stúdenta. Nægir þar að minn-
ast á málefni Vöku til hátíðarnefnd-
ar 1. des. sl.
Vökumenn hafa einnig verið leið-
andi í stúdentahreyfingunni síðast-
liðið ár á öðrum sviðum. Hagsmuna-
mál stúdenta hafa tekið stórstígum
breytingum til batnaðar undir hand-
leiðslu Vökumanna.
Það er vonandi að um þessa helgi
takist aftur að móta framhald og
festu sem einkennt hefur Vökustarf-
ið undanfarið. Allir stuðningsmenn
Vöku eru boðnir velkomnir að Hótel
Esju um þessa helgi, til þess að taka
þátt í að móta farsæla framtíð stúd-
enta við Háskóla íslands. Allar frek-
ari upplýsingar eru veittar í síma
Vöku 2S465, eða í félagsheimilinu að
Skólavörðustíg 12, 3. hæð.
Atli Eyjólfsson, formaður Vöku
um Grænland
iLT-,"J»erinn 15. febr. heldur
Mariuu__0 __ , .
Ivars Silis fyrirlestur og
skyggnur frá hinni fornu veiði-
mannamenningu sem nú er að líða
undir lok í Thule, nyrsta byggða
bóli á Grænlandi. Fyrirlesturinn er
fluttur á dönsku.
Miðvikudaginn 17. febr. heldur
dr. Björn Þorsteinsson fyrirlestur
og nefnir Saga Grænlendinga.
Fyrirlestrarnir byrja kl. 20.30 og
aðgangseyrir er kr. 10.
UTSOLUMARKAÐURINN
Sýningarhöllinni Bíldshöfða
í fullum gangi.
Opið í dag frá 1—7 e.h.
Opið á morgun frá 10—4 e.h.
(Já, til kl. 4 e.h.)
0FSALEGT
VÖRUÚRVAL
★ Fatnaður á herra, dömur, unglinga og börn.
★ Efni, geysi fjölbreyttar gerðir, s.s. ullarefni -
tweed - gaberdine - kakhi - denim - watt - rifl.
flauel o.m.fl.
★ Hjómplötur, kassettur. Æðisgengið úrval.
Mörg hundruð titlar. Aldrei annað eins sést.
★ Hljómtæki - bíltæki - bílahátalarar - bílloftnet
- kassettur - ferðatæki - heyrnartæki — sjón-
vörp - reiknivélar - klukkur - vasadiskó
o.m.fl.
★ íþróttavörur - undirfatnaður - sloppar.
Stór-
kostlegar
verð-____
lækkanir
Karnabær allar deildir
StGÍnar hf- Belgjagerðin
Ólafur H. Jónsson ni.
Olympía o.fl.