Morgunblaðið - 12.02.1982, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1982
Seldu liðlega 100 Mazda
bfla á bflasýningu
BÍLABORG HF., sem hefur um-
boð fyrir Mazda hér á landi, hélt
bílasýningu um sídustu helgi, þar
sem sérstaklega var kynntur nýr
Mazda 929 bíll, sem er að koma á
markaðinn.
Að sögn Steins Sigurðssonar,
sölustjóra hjá Bílaborg, gekk
sýningin mjög vel og á henni
seldust liðlega eitt hundrað bíl-
ar.
— Það seldist auðvitað mest
af nýja bílnum, en það fór einnig
nokkuð af hinum tegundunum,
323 og 626, sagði Steinn. Steinn
sagði, að fjöldi gesta hefði verið
ívið meiri, en á sýningum undan-
fa,rin ár. — Við erum því bara
ánægðir með árangurinn, sagði
Steinn Sigurðsson ennfremur.
Hótel Loftleidir:
Franskur matreiðslumað-
ur kynnir Nouvelle cuisine
STERK, framandi ostaangan bar
fyrir vit blaðamanna á Hótel Loft-
leiðum, en þar var verið að kynna
franska viku, þar sem frönsk matar
gerðarlist verður í hávegum höfð. Af
því tilefni hefur hótelið fengið
hingað franskan matargerðarmeist-
ara, Jean-Francois Lemercier, en
hann mun ásamt Haraldi Bene-
diktssyni, yfirmatsveini Loftleiða,
hafa veg og vanda af að metta gest-
ina þessa viku, sem verður frá
13.—21. febrúar.
A matseðlinum, sem verður sex
rétta, verður boðið upp á bæði
kjöt- og fiskrétti, snigla og nýjan
ostarétt. Þá verður ein nýjung á
matseðlinum, en það er sérstakur
milliréttur „Sorbet a L’Armagnac,
sem borinn verður gestum, þá
verða kynntar nýjar súpur og eft-
irréttir. I hádeginu á sunnudag
verður svo boðið upp á sérstakt
franskt, kalt borð og í hádeginu
virka daga verður kalt borð með
frönsku ívafi. Verði á öllum þess-
um máltíðum verður mjög stillt í
hóf, að sögn Emils Guðmundsson-
ar hótelstjóra.
Matreiðslumaðurinn, Jean-
-Francois Lemercier, á sjálfur
veitingahús í borginni Marquise í
Norður-Frakklandi. Hann er ís-
lendingum nokkuð kunnur, því
BSRB með opið
hús á 40 ára
afmælinu
BANDALAG starfsmanna ríkis
og bæja á 40 ára afmæli sunnu-
daginn 14. þessa mánaðar. í tilefni
af afmælinu hefur stjórn BSRB
kaffiveitingar í opnu húsi að
Grettisgötu 89 á sunnudaginn
klukkan 14—19. Sama dag verður
sýning í húsakynnum samtak-
anna. Sýningin verður opin áfram
næstu daga. Allir félagsmenn
BSRB og aðrir velunnarar BSRB
eru velkomnir með gesti.
þeir hafa sótt veitingahús hans og
konu hans, en það var fyrir tilstilli
íslenska sendiráðsins í París og
viðskiptaráðuneytisins, sem Jean-
-Francois Lemercier var fenginn
hingað til að kynna franskan mat.
Aðspurður kvað hann miklar
breytingar hafa orðið á franskri
matargerðarlist á undanförnum
árum. Ný kynslóð matargerðar-
manna hefði komið fram og inn-
leitt margar nýjungar, þar á með-
al svokallað Nouvelle cuisine.
Þessi tegund matargerðarlistar er
byggð á gömlum Asíuhefðum, þar
sem notaðar eru breyttar mat-
reiðsluaðferðir, sem hafa meðal
annars í för með sér, að ilmur og
bragð nýtist betur og hráefnið
breytist minna í meðförum. Þann-
ig kvað hann hina yngri mat-
reiðslumenn nýta gömul og klass-
ísk hráefni til að útbúa eitthvað
nýtt.
Ólafur Stephensen, auglýs-
ingameistari Flugleiða, bætti við,
að til þess að hægt væri að njóta
þessarar tegundar mátargerðar-
listar, þá þyrfti opið hjarta, opinn
munn og glas af góðu víni!
Franska vikan verður haldin í
Blómasal Hótels Loftleiða og mun
franski sendiherrann opna vikuna.
A fimmtudagskvöldinu verður svo
sælkerakvöld, þar sem franski
viðskiptafulltrúinn verður yfir-
sælkeri.
A frönsku vikunni koma fram
skemmtikraftar frá París, það eru
þau Guy Deschainters og Jacque-
line Roberts, sem skemmta munu
gestum meðal annars með söng og
hvers kyns gríni.
Einnig verður boðið upp á tísku-
sýningu, þar sem kynntur verður
fatnaður frá Ted Lapidus, Pierre
Balmain og Rodier, en það eru
Modelsamtökin, sem sýna. Þá
verður förðunarsýning, þar sem
kynntar verða franskar snyrtivör-
ur frá Yves Saint Laurent, Jean
D’Avez og Charles of the Ritz. í
Víkingaskipinu verða svo kynnt
ilmvötn, snyrtivörur og postulín
frá Frakklandi.
Ekki má gleyma ostunum, en
boðið verður upp á franska osta
svo lengi sem birgðir endast, en
það er franska sendiráðið á ís-
landi, sem býður.
Emil Guðmundsson hótelstjóri ásamt Jean-Francois Lemercier, hinum
franska matreiðslumeistara.
Sérstakt Fisk-
matsráð skipað
yfir Fram-
leiðslueftirlit
sjávarafurða
Sjávarútvegsráðuneytið hefur nú
skipað sérstakt Fiskmatsráð og á
það að vera ráðuneytinu og forstjóra
Framleiðslueftirlits sjávarafurða til
ráðgjafar um framleiðslumál, eftirlit
og mat á sjávarafurðum.
Hið nýja Fiskmatsráð á einnig
að endurskoða starfshætti, verk-
lag og reglu Framleiðslueftirlits
sjávarafurða eftir því sem þurfa
þykir og gera tillögur um breyt-
ingar á lögum og reglugerðum um
Framleiðslueftirlitið eftir því sem
ráðuneytinu sýnist nauðsynlegt.
Þá á það að fylgjast með starf-
semi Framleiðslueftirlitsins og
taka fyrir til umfjöllunar þau
vandamál og ágreiningsmál, sem
upp koma hverju sinni.
Fiskmatsráð skal í störfum sín-
um hafa samráð og samvinnu við
forstjóra Framleiðslueftirlitsins,
að því er segir í fréttatilkynningu
sjávarútvegsráðuneytisins.
í Fiskmatsráð voru skipaðir eft-
irtaldir menn: Halldór Þorsteins-
son, forstöðumaður fiskeftirlits-
deildar Sambandsins, og er hann
jafnframt formaður ráðsins, Jón-
as Bjarnason, settur forstjóri
Rannsóknastofnunar fiskiðnaðar-
ins, Hjalti Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna, Einar M. Jó-
hannesson, eftirlitsmaður hjá
Sölusambandi ísl. fiskframleið-
enda og Hafþór Rósmundsson,
starfsmaður Sjómannasambands
íslands.
Baldur Jónsson, deildarstjóri í
sjávarútvegsráðuneytinu, er ritari
ráðsins.
Blaó-
burðar-
fólk
óskast
Austurbær
Laugavegur
101—171
Þingholtsstræti
Hringið í síma
35408
r
Viðtalstími
1
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæöisflokksins veröa til viötals í
Valhöll. Háaleitisbraut 1. á laugardögum frá kl.
14.00—16.00.
Er þaö tekiö á móti hvers kyns fyrirspurnum og
ábendingum og er öllum borgarbúum boöiö aö not-
færa sér viötalstíma þessa.
Laugardaginn 13. febrúar verða fil viötals Ólafur B.
Thors og Ragnar Júlíusson.
L
Boðagrandi
Höfum til sölu, glæsilega 5 herb. 125 fm íbúö á
fyrstu hæö. Góöur bílskúr fylgir.
Fasteignasalan Hátún,
Nóatúni 17.
Símar 21870 og 20998.
2ja herb. íbúð
við Álfaskeið
í Hafnarfiröi til sölu. íbúöin er á efstu hæð, meö
suðursvölum, góöri sameign í kjallara og frystiklefa.
Bílskúr fylgir. Verö kr. 600 þús.
Árni Gunnlaugsson hrl.
Austurgötu 10, Hafnarfiröi,
sími 50764.