Morgunblaðið - 12.02.1982, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1982 1 1
Bræðrafélag
Laugarnessóknar:
Erindi um áhrif
trúar á geðheilsu
ALMENN samkoma verður í
Laugarneskirkju í kvöld, föstudag
12. febrúar, og hefst hún kl. 20:30.
Er hún á vegum Bræðrafélags
Laugarnessóknar. Esra Pétursson
geðlæknir mun þar flytja crindi sem
hann nefnir „Áhrif trúar á geðheilsu
manna", og að erindinu loknu verða
leyfðar fyrirspurnir og umræður.
Esra Pétursson læknir lauk
prófi í læknisfræði frá Háskóla ís-
lands árið 1946 og hefur verið sér-
fræðingur í tauga- og geðsjúkdóm-
um frá árinu 1958. I frétt frá
Bræðrafélaginu er vonast til að
sem flestir sjái sér fært að hlýða á
erindi læknisins og leggja orð í
belg í umræðunum.
Þessi mynd er tekin á æfingu Kammersveitar Reykjavíkur, en stjórnandi hennar er Paul Zukofsky. Það er Sigrún Gestsdóttir sem þarna syngur
einsöngslög eftir Hugo Wolf í útsetningu Igor Stravinsky. l.jósm. Kmilía.
Tónleikar í minningu Igor Stravinsky
Kammersveit Reykjavíkur:
Stjórnandi tónleikanna er Paul Zukofsky
í TILEFNI af því að 100 ár eru
liðin frá fæðingu Igor Stravinskys,
sem að margra dómi er eitt af höf-
uð tónskáldum þessarar aldar, þá
heldur Kammersveit Reykjavíkur
tónleika sunnudaginn 14. febrúar í
Gamla bíói. Þar verða einvörð-
ungu flutt verk eftir Stravinsky,
sem spanna 30 ára tímabil eða frá
árunum 1938—1968.
Á tónleikunum verður fluttur
konsertinn Dumbarton Oaks,
sem aldrei hefur verið fluttur
hér á landi áður. Þá verða flutt
tvö einsöngslög eftir Hugo Wolf
í útsetningu Stravinskys, ein-
söngvari í þessum lögum er Sig-
rún Gestsdóttir. Stravinsky út-
setti þessi lög þremur árum áður
en hann dó eða árið 1968. Einnig
verður flutt verkið Elegy eða
Harmaljóð, sem Stravinsky
samdi í minningu John F.
Kennedys, en það er fyrir ein-
söngvara og þrjár klarinettur,
en það er Rut L. Magnússon sem
syngur. Önnur Elegy verður
flutt á tónleikunum en hún er
fyrir einleikslágfiðlu, en þetta
verk samdi Igor Stravinsky í
minningu gamals vinar síns sem
var víóluleikari. Loks verður
flutt verkið Septett fyrir klarin-
ett, fagott, horn, fiðlu, lágfiðlu,
celló og píanó.
Það er Paul Zukofsky, sem
stjórnar þessum tónleikum en
hann er staddur hér á vegum
Tónlistarskólans í Reykjavík en
þar stjórnar hann og leiðbeinir
skólahljómsveitinni. Síðastlið-
inn laugardag hélt Paul Zuk-
ofsky einleikstónleika á vegum
Tónlistarfélagsins í Reykjavík,
en hann er kunnur fiðluleikari.
Rut Ingólfsdóttir, félagi í
Kammersveit Reykjavíkur, kvað
sveitina afar ánægða með að
hafa fengið Paul Zukofsky til að
stjórna þessum tónleikum og
sagði að alltaf væri jafn gott að
njóta liðveislu hans.
Tónleikar Kammersveitarinn-
ar verða klukkan 4 á sunnudag.
Esra Pétursson geðlæknir flytur er
indi um trú og geðheiisu á fundi
Bræðrafélags Laugarnessóknar í
kvöld.
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
er einn traustasti hornsteinn íslenzkra peningamála.
Hann byggir á sterkri lausafjárstöðu og öflugum vara-
sjóði auk ríkisábyrgðar.
Búnaðarbankinn velur ekki sérstök nöfn á lánveitingar
sínar. Hvers konar innlánsviðskipti við bankann á
veltu- eða sparisjóðsreikningum skapa þá gagn-
kvæmni, sem er æskileg forsenda fyrir lánveiting-
um.
Búnaðarbankinn leggur áherzlu á hraða og öryggi í
öllum afgreiðslum.
Það er greiðfært með öll erindi í Búnaðarbankann.
7 afgreiðslustaðir í Reykjavík.
Viðtöl um lánveitingar og önnur viðskipti við útibú bankans í Reykjavík annast útibússtjórar
(eða staðgenglar þeirra):
Krlstlnn Bjarnason
Austurbæjarútibú við Hlemm
Jóhanna Pálsdóttir
Melaútibú Hótel Sögu
Stefán Thoroddsen
Vesturbæjarútibú Vesturgötu
Morltz W. Sigurðsson
Háaleitisútibú Hótel Esju
Slgurður Nlkulásson Jón Sigurðsson
Miðbæjarútibú Laugavegi 3 Seljaútibú Stekkjarseli 1
Viðtöl í aðalbanka annast bankastjórar og aðstoðarbankastjórar
árdegis alla starfsdaga bankans.
Traustur banki
BÚNADARBANKI
ISLANDS
REYKJAVÍK
er góð trygging
OOOt Hf