Morgunblaðið - 12.02.1982, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1982
Aukin aðstoð
við Salvador
YVa.shini'ton, II. rehrúar. Al*.
REAÍJAN-stjórnin hyggst biðja Þjóð-
þingið um 52 milljóna dollara fjár
veitingu til hernaðaraðstoðar handa
El Salvador á næsta ári, helmingi
hærri upphæð en upphaflega var far
ið fram á samkvæmt opinberum
heimildum.
Samkvæmt heimildunum er
þetta aðeins bráðabirgðabeiðni og
nær víst að beðið verði um aukna
aðstoð ef borgarastríðið harðnar.
Hluti fjárins verður ef til vill
notaður til að útvega flugher E1
Salvador A-37-herþotur sam-
kvæmt heimildum í Pentagon.
Bandaríkjamenn hafa ekki hingað
til sent stjórn iandsins herflugvél-
ar.
Embættismaður nokkur sagði
að skæruliðar hefðu tiltölulega lít-
ið svæði á valdi sínu en hefðu sýnt
hæfni í skyndiárásum.
Jafnframt ítrekaði talsmaður
bandaríska landvarnaráðuneytis-
ins að Bandaríkjastjórn væri sem
fyrr andvíg samningum um lausn
í El Salvador.
Hann sagði að réttur Salva-
dormanna til að ráða sjálfir fram-
tíð sinni yrði að engu hafður með
slíkum samningaviðræðum er
mundu leiða til aðildar skæruliða
að ríkisstjórn. Bandaríkjastjórn
styður pólitíska umbótaþróun sem
hefst í marz með kosningum til
stjórnlagaþings.
Viimustöðvun í
Suður-Afríku
Grímubúnir skæruliðar leita í almenningsvagni á leiðinni inn í bæinn llsulutan í El Salvador. Reagan-stjórnin hefur
beðið Bandaríkjaþing um að samþykkja aukna hernaðaraðstoð við stjómina í El Salvador.
Smith sakar Mugabe
um áreitni við hvíta
Salisbury, II. febrúar. AIV
Jóhannesarborg, II. febrúar. Al\
TIIGIR þúsunda verkamanna í
SuðurAfríku lögðu niður vinnu í
hálftíma í dag, fimmtudag, til að
mótmæla dauða hvíta verklýðsleið-
togans Neil Aggett í fangelsi og mót-
Eru sígarettur
geislavirkar?
Koston, 11. febrúar. Al\
TVEIR bandarískir vísindamenn
halda því fram, að rannsóknir á
geislavirkni sígarettureyks hafi
setið mjög á hakanum síðustu ár
in og sé það að ófyrirsynju, því
að líídegt sé, að hún geti valdið
krabbameini.
Bandaríkjamennirnir, sem
eru læknar að mennt, segja, að
í sígarettum og sígarettureyk
sé „ákaflega mikið af poloni-
um, mjög geislavirku efni, sem
rekja má til fosfóráburðar,
sem borinn er á tóbaksplönt-
urnar. Sá, sem reykir hálfan
annan pakka af sígarettum á
dag, verður fyrir jafn mikilli
geislun í lungum árlega og sá,
sem lætur taka 300 röntgen-
myndir af brjóstkassanum,"
segir i áliti læknanna, sem
birtist í læknatímariti (Journ-
al of Medicine) á Nýja Eng-
landi.
LEGUKOPAR
Legukopar og fóöringar-
efni í hólkum og heilum
stöngum.
Vestur-þýzkt úrvals efni.
Atlas hf
mælafundir voru haldnir í nokkrum
háskólum. I>að hefur ekki komið
fyrir áður að hvítur maður, sem ör
yggislögreglan hefur haft í haldi,
hafi látizt.
Aggett fannst hengdur í klefa
sínum í aðallögreglustöðinni í Jó-
hannesarborg á fimmtudaginn.
Aggett, sem var 28 ára, var sveita-
læknir, en hann var ritari félags
afrískra verkamanna í matvæla-
og niðursuðuiðnaði í Transvaal
þegar hann var handtekinn.
Líkkrufning hefur farið fram og
rannsókn var fyrirskipuð á með-
ferðinni sem hann fékk í fangelsi,
en stjórnvöld hafa haldið niður-
stöðunum leyndum.
Verkalýðsleiðtogar blökku-
manna efndu til vinnustöðvunar-
innar og flestir þeir verkamenn,
sem lögðu niður vinnu, voru
blökkumenn sem starfa í verk-
smiðjum í Pretoria, Port Eliza-
beth, East London, Jóhannesar-
borg, Höfðaborg, Pietermaritz-
burg og Durban.
Stærsta fyrirtæki Suður-
Afríku, námafélagið Anglo-
American Corporation, harmaði
dauða Aggetts í yfirlýsingu og lét
í ljós samúð með verkamönnum.
Forstöðumaður samstarfsstofn-
unar aðila vinnumarkaðarins,
Hank Botha, skoraði á vinnuveit-
endur að sýna umburðarlyndi og
bað verkamenn að beita ekki
ofbeldi. Botha skoraði sérstaklega
á fyrirtæki að kalla ekki í lögregl-
una, sem er oft til kvödd í vinnu-
deilum.
IAN SMITH fyrrum forsætisráðherra,
hefur sakað stjórn Robert Mugabe um
skipulagsbundna áreitni í garð hvíta
minnihlutans í Zimbabwe. Hann spáði
því að æ fleiri hvítir menn mundu
flytjast úr landi.
Hann sagði að það væri stefna
ríkisstjórnarinnar að grafa undan
hvíta minnihlutanum og einn liður í
því væru nýlegar handtökur hvítra
manna fyrir meint samsæri um að
steypa ríkisstjórninni eða njósnir í
þágu Suður-Afríku. Við þetta bætt-
ust munnlegar árásir á hvíta menn
„fyrir allt sem aflaga fer í landinu".
Allt að 1.800 hvítir menn flytjast
úr landi í hverjum mánuði og Smith
kvað þessar tölur „óræka sönnun"
staðhæfinga sinna um stefnu
stjórnarinnar gegn hvítum
mönnum.
Smith hélt því fram að það væru
aðallega hvítir menn sem létu í ljós
andúð á þeim yfirlýsta vilja Mugabe
forsætisráðherra að koma á „eins-
flokks-einræði".
Því reynir stjórnin að grafa und-
an hvíta minnihlutanum til að
veikja andstöðuna og búa í haginn
fyrir einsflokksstjórn, Jafnvel þótt
það komi niður á efnahagnum,"
sagði hann.
Undanfarna fimm mánuði hafa
minnst 15 hvítir menn verið hand-
teknir samkvæmt undantekningar-
ákvæðum, þeirra á meðal einn af
þingmönnum Smiths, Wally Strutt-
aford, fyrrverandi járnbrautar-
starfsmaður.
Annar þingmaður, Denis Walker
fyrrum trúboði, flúði til London
þegar hann frétti að lögregla ætlaði
að handtaka hann líka.
Smith endurtók ásakanir um að
HUSSEIN Jórdaníukonungur. sem
flaug með ( aspar Weinberger land-
varnarádherra í eftirlitsferð til jórd-
anskra herstöðva í dag, sagði frétta-
mönnum að hann vildi fá handarískar
Hawk-eldflaugar, en ætlaði ekki að
segja upp samningi um kaup á svipuðu
loftvarnakerfi frá Rússum.
Hussein lét einnig í ljós áhuga á
bandarískum F-16-orrustuþotum,
sem ísraelsmenn hafa keypt af
Bandaríkjamönnum.
Weinberger, sem kom til Jórdaníu
frá Saudi-Arabíu og Oman, kvaðst
fús til að að fara fram á það við
Moskvu, II. IVhrúar. Al\
LVDIA Vashrhenko, ein af hvítasunnu-
fólkinu, sem haldið hefur til í kjallara
handaríska sendiráðsins í Moskvu í
þrjú og hálft ár, var í dag útskrifuð af
sjúkrahúsi í Moskvu þar sem hún hcf
ur verið til meðferðar í tvær vikur.
Hún og móðir hennar höfðu fastað frá
jólum og var hún flutt nauðug viljug á
sjúkrahúsið þegar Bandaríkjamennirn-
ir voru farnir að óttast um líf hennar.
Þegar Lydia yfirgaf sjúkrahúsið
tóku á móti henni bróðir hennar og
systir, sem komið höfðu frá átthög-
unum í Síberíu, og var þeim öllum
þremur ekið í bandaríska sendiríjðið
-3,1 !. ; '!»<>!> Í0 ! ic S gvfflm
Struttaford hefði verið pyntaður í
fangelsi.
Hann sagði að afturför hefði orðið
í heilbrigðis- og menntamálum og í
löggæzlu.
Aðspurður hvort hann mundi
íhuga brottför sagði Smith að svo
kynni að fara ef hann teldi að fólk,
einkum konur og börn, nyti ekki
lengur öryggis og ástandið almennt
versnaði svo mjög að hann teldi það
ekki þess virði lengur að búa í land-
inu.
Bandaríkjaþing að hömlum yrði af-
létt svo að Jórdanir gætu fengið
bandarísku eldflaugarnar.
En bandarískir embættismenn
kváðust vona að Hussein keypti ekki
sovézkar Sam-6 eldflaugar sam-
kvæmt samningi sem hljóðar upp á
229 milljónir dollara sem írakar
lána Jórdönum.
Hussein gaf í skyn að hann hefði
sigrazt á mótbárum Bandaríkja-
manna gegn vopnakaupunum í
Sovétríkjunum þegar hann sagði
fréttamönnum að ekki væri í ráði að
sovézkir ráðunautar kæmu til Jórd-
aníu til að kenna meðferð Sam-
flauganna.
til fundar við foreldra þeirra og tvær
systur. Lydia segist ætla að fara aft-
ur til Chernogorsk í Síberíu, þar sem
hún á önnur átta systkini, og sækja
þar um brottfararleyfi úr landi. Með
því sagðist hún vera að fara eftir
þeim reglum, sem stjórnvöld segðu
aö giltu um þessi mál. Ef henni yrði
hins vegar aftur neitað um brottfar-
arleyfi sagðist hún mundu fara í
hungurverkfall á nýjan leik.
Móðir Lydiu, Augustina, sem er 52
ára gömul, fastar enn í sendiráðinu,
nærist aðeins á ávaxtasafa, og segist
munu halda því áfram þar til hún,
maður hennar og 13 börn fái að fara
úr landi.
t» n<> ,fcnynt::;u!fí>vin .fHTöyrii
1 fíiuíummííJ óí
Hussein vill fá
Hawk-flaugar
A/.ran, Jórdaníu, 11. febrúar. Al\
Moskva:
Hvítasunnukona
heim af spítala