Morgunblaðið - 12.02.1982, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1982
pinr0iiwMal»ll»
Utgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, simi 83033. Áskrift-
argjald 100 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 6 kr. eintakiö.
Kjarnorkuhótanir
kommúnista
Allsnarpar umræður urðu um öryggismál íslands á Alþingi síð-
astliðinn þriðjudag. í þeim var enn einu sinni staðfest, hve
einangrað Alþýðubandalagið er, þegar rætt er um öryggi og sjálf-
stæði íslensku þjóðarinnar. Raunar þarf þessi einangrun ekki að
koma á óvart, þegar til þess er litið, að stefna flokksins í þessum
mikilvæga málaflokki gæti verið samin af hugmyndafræðingum Var-
sjárbandalagsins, en þeirra heitasta ósk varðandi ísland felst í slag-
orðinu: „Island úr NATO. Herinn burt.“ Ólafur R. Grímsson, þing-
flokksformaður Alþýðubandalagsins og skoðanabróðir Belski,
ofursta, sem fjallar um öryggismál íslands í málgagni Rauða hersins,
hélt því ótrauður fram, að ísland væri „frumskotmark á fyrstu
klukkustundum kjarnorkuvopnastyrjaldar". í tilefni af þeim orðum
sagði Benedikt Gröndal, málsvari Alþýðuflokksins, að málflutningur
Ólafs R. Grímssonar minnti sig á það, þegar Brynjólfur Bjarnason,
hinn aldni kommúnistaleiðtogi, hótaði Islendingum á sínum tíma með
(kX) milljónum manna, sem þá voru undir oki heimskommúnismans.
Og Benedikt Gröndal sagði: „Ég held að menn ættu ekki að vera að
hóta Sovétkjarnorkuárásum á ísland jafnoft og háttvirtur þingmaður
gerði ...“
„Ég er skákmaður,
en ekki pólitíkus“
VIKTOR Korrhnoi kom hingað til
lands síðdegis í gær og eftir að
hafa rætt við blaðamenn á Hótel
Loftleiðum hélt hann til Kjar
valsstaða, þar sem hann skýrði
skákir í þriðju umferð Reykjavík-
urskákmótsins. Héðan heldur
hann til Ítalíu á þriðjudag og tek-
ur þar þátt í alþjóðlegu skákmóti.
Korchnoi var fyrst spurður hvað á
daga hans hefði drifið síðan ein-
víginu um heimsmeistaratitilinn
gegn Anatoly Karpov lauk í nóv-
ember.
„Ég hef lítið teflt síðan einvíginu
lauk, en er hins vegar nýkominn
frá Bandaríkjunum þar sem ég
hjálpaði til við að kynna kvikmynd,
sem tekin var í Merano af júgó-
slavneskum vini mínum. Myndin
gæti heitið „Korchnoi talar og tefl-
ir“, því það er jú þetta tvennt, sem
einkum fer fram í myndinni. Hún
er 40—50 mínútna löng og því helzt
til of löng fyrir sjónvarp, en of
stutt fyrir kvikmyndahús. Myndin
hefur þó verið seld til nokkurra
sjónvarpsstöðva í Evrópu og ég
vona að hún verði sýnd hér á landi.
Að sjálfsögðu vinn ég stöðugt að
því að fá lausn á vandamálum fjöl-
skyldu minnar og í Bandaríkjunum
hitti ég að máli þingmenn og aðra
áhrifamenn, m.a. Henry Jackson.
Friðrik Ólafsson hefur lagt mikið
af mörkum til að leysa þessi vanda-
mál og samkvæmt loforði, sem yf-
irvöld í Rússlandi gáfu honum eiga
kona mín og sonur að fá að fara úr
landi í vor og ég vona að það gangi
eftir.
Ég tala við Bellu konu mína í
síma einu sinni tvisvar í viku, en
það var svolítið einkennilegt, að ég
reyndi að ná sambandi við konu
mína síðasta mánudag og aftur á
þriðjudaginn, en án árangurs. Ég
ætla að reyna að ná sambandi við
hana meðan ég dvel hér í Reykjavík
og vona, að ekkert alvarlegt hafi
gerzt, erfiðleikarnir eru nógir fyrir.
Igor sonur okkar er í vinnubúðum í
Síberíu. Sovétmenn hafa lofað því,
að er hann verður látinn laus í lok
maí fái fjölskylda mín að fara úr
landi."
„Ég get ekki annað
en vonað það bezta“
— Ertu vongóður um að svo
verði?
„Ég veit það ekki, ég get ekki
annað en vonað það bezta. Annars
hafa Sovétmenn notað öll brögð til
að sverta persónu mína. Þá hafa
þeir sagt, að ekki sé nema eðlilegt,
að fjölskylda mín hafi ekki fengið
að fara úr landi, þar sem ég hafi
aldrei sótt formlega um leyfi fyrir
3. umferðin á Kjarvalsstöðum:
Sáttfýsi í öndvegi
og fáar baráttuskákir
I ræðu sinni sagði Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, að sér blöskraði málflutningur talsmanns kommúnista. Hann
mótmælti þeirri skoðun, að það væri tæknibúnaður hér á landi, sem
skapaði hættu á því, að ísland dragist inn í átök stórvelda. Sagðist
Geir þeirrar skoðunar, að lega íslands væri svo hernaðarlega mikil-
væg, að landið drægist inn í átök, ef til þeirra kæmi og vegna hennar
hvíldi óhjákvæmilega sú skylda á stjórnvöldum á íslandi og íslensku
þjóðinni að gera nauðsynlegar gagnráðstafanir. Ólafur Jóhannesson,
utanríkisráðherra, sagði um ræðu Ólafs R. Grímssonar, að hún væri
„orðin nokkuð gömul Iumma“, sem hann hefði nú endurtekið nokkuð
oft. Líkti utanríkisráðherra formanni þingflokks Alþýðubandalagsins
við hinn „ágæta riddara Don Kíkóta, sem var alltaf að berjast við
vindmyllurnar".
Umræður þessar urðu í kjölfar þess, að Friðrik Sophusson, varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins, mælti fyrir tillögu sinni, Benedikts
Gröndals og Jóhanns Einvarðssonar um ráðunaut í öryggis- og varn-
armálum. Það er dæmigert fyrir málefnafátækt kommúnista í örygg-
ismálum, að þeir geta ekki tekið til máls um ráðningu embætt-
ismanns, án þess að halda á loft hótunum sínum um að Sovétmenn
muni gera kjarnorkuárás á ísland. Fer því víðs fjarri, að kommúnist-
ar byggi skoðanir sínar um öryggi og sjálfstæði Islands á fræðilegum
og skynsamlegum forsendum. Um leið og minnst er á varnir íslands
fer gamla platan af stað hjá kommúnistum og yfirborðskenndur
áróðurinn brýst út í síbylju. Nú tala kommúnistar að vísu ekki lengur
um menningarleg spillingaráhrif frá Keflavíkurflugvelli, þess í stað
einbiína þeir undir forystu Ólafs R. Grímssonar á tækjakost og búnað
varnarliðsins og láta sem þeir hafi fengið staðfestingu fyrir því, að
tækin séu eins og segulstál fyrir kjarnorkusprengjur Kremlverja.
Óþurftariðja og hótun kommúnista er hin sama, hvort heldur Brynj-
ólfur Bjarnason, aðdáandi Stalíns, eða Ólafur R. Grímsson standa í
ræðustól á Alþingi íslendinga.
Bensínhækkanir
Fyrir tilstuðlan ríkisstjórnar íslands hækkar verð á bensíni nú
orðið svo ört, að bifreiðaeigendur ná ekki einu sinni að tæma
tankinn á bílum sínum milli hækkana. Á sama tíma fer verðlag á
bensíni lækkandi úti í hinum stóra heimi. Sérfróðir aðilar þora auð-
vitað ekki að fullyrða neitt um það, hvort við íslendingar njótum
þeirra verðlækkana nokkurn tíma, enda er það ríkishítin, sem hér
hefur forgang og stærstur hluti af bensínverði rennur í hana.
Þorleifur Kr. Guðlaugsson gerir „hagfræði" ríkisstjórnarinnar að
umtalsefni í Velvakandadálki Morgunblaðsins í gær. Hann hittir
naglann á höfuðið, þegar hann segir: „Hækkunin á bensínverði einu,
sem ríkisstjórnin er að innheimta og gerð er tvisvar á lausri viku, eða
átta dögum, mun verða þyngri byrði en þótt heimilistæki hefðu verið
látin halda verði sínu. Það fer að verða svo, að hægt verður að líkja
ríkisstjórninni við þjóf. Meðan hún réttir að manni smáhlunnindi fer
hún í vasa manns og rænir tvöfalt hærri upphæð. Ég ætla ekki að
telja allar hækkanirnar sem orðið hafa síðan á áramótum, þvi það
verður áreiðanlega ekki pláss til að koma því öllu á prent. Ég veit líka
að allir eru' búnir aÓ finiíá 'oþyrmilega fyrir þeim —: og ekkl sísf
FRIÐSEMD ríkti með skák
mönnum á Kjarvalsstöðum í
gærkvöldi og viðureignum efstu
manna lyktaði flestum með jafn-
tefli. Mikill fjöldi áhorfenda var á
Kjarvalsstöðum, greinilegt að góð
byrjun íslenzku titilhafanna hefur
laðað að áhorfendur. Og þeir urðu
vitni að því er fyrsti íslenzki titil-
hafinn beið lægri hlut. Jón L.
Arnason tapaði fyrir V-Þjóðverjan-
um Kindermann eftir að hafa náð
vænlegri stöðu. „Ég spennti bog-
ann of hátt,“ sagði Jón L. í samtali
við blaðamann.
Sú skák sem fyrirfram vakti
mesta athygli var viðureign Helga
Ólafssonar og Svíans Schneiders;
efstu mannanna eftir 2 umferðir.
Þeir sömdu jafntefli eftir 28 leiki.
„Ég náði betri stöðu og við rann-
sóknir kom í ljós, að ég missti af
vinningsmöguleikum. En staðan
var ákaflega óljós og spennt,“ sagði
Helgi eftir á.
Sú skák, sem mesta athygli vakti
meðal áhorfenda var viðureign
Guðmundar Sigurjónssonar og
stigahæsta manns mótsins, sovéska
útlagans Lev Alburts. Mikill fjöldi
áhorfenda fylgdist með skákskýr-
ingum Viktor Korchnois, sem taldi
að Guðmundur stæði betur. Guð-
mundur bauð Alburt að vinna
skiptamun, en Alburt hafnaði. Það
þótti Korschnoi djarflega gert, var
ánægður með að Guðmundur skyldi
tefla svo stíft til vinnings og leggja
allt undir. „Ég hefði gert hið sama,“
sagði Korschnoi. En Alburt hafnaði
fórn Guðmundar og honum tókst að
bjarga sér fyrir horn. „Guðmundur
Jón L. Árnason tapaði í gærkvöldi, fyrstur íslenzkra titilhafa.
Leifur og Ásgeir Þór
standa í meisturunum
Skák
Margeir Pétursson
íslensku þátttakendunum á
Reykjavíkurskákmótinu gekk með
ólíkindum vel í annarri umferðinni
sem tefld var í fyrrakvöld. f 16 skák-
um tefldu saman íslendingur og út-
lendingur og fóru leikar svo að
okkar menn unnu þrjár skákir, töp-
uðu þremur, en átta skákum lauk
með jafntefli og tvær fóru í bið. Sér
lega góður árangur, því erlendu
keppendurnir voru miklum mun
stigahærri en íslenskir andstæðingar
þeirra í nærri öllum þessum skák-
um.
Sumir landa okkar sem hafa
sáralitla reynslu í alþjóðlegum j
keppnum hafa komið mjög
skemmtilega á óvart í fyrstu
tveimur umferðunum. Þannig hef-
ur Leifur Jósteinsson gert jafn-
tefli við tvo stórmeistara, þá Guð-
mund Sigurjónsson og Westerinen
frá Finnlandi. Jafnvel var talið að
Leifur ætti unnið tafl á Finnann
um tíma, en hann náði að bjarga í
horn með þráskák. Þá hefur Ás-
geir Þór Árnason staðið sig mjög
vel, en hann hefur gert jafntefli
við Bandaríkjamennina Burger,
alþjóðameistara, og Mednis,
stórmeistara. í annarri umferð-
inni héldu síðan þeir Jónas P. Er-
lingsson og Hilmar Karlsson
tveimur dönskum alþjóðameistur-
um á mottunni, þeim Höi og Iskov.
Af þessu sést að fýrirfram verð-
ur enginn íslendinganna dæmdur,
þó við útlending sé að etja og
stigamunurinn mikill. Jafnframt
ýtir þessi ágæta byrjun undir von-
ir um að einhverjir okkar manna
nái áföngum að alþjóðlegum titl-
um.
Þótt margir stórmeistarar sem
höfðu tilkynnt þátttöku hafi setið
heima eru engu að síður margir
öflugir skákmenn mættir til leiks.
Sterkasta af gestunum má án efa
telja þá Byrne og Alburt frá
Bandaríkjunum, Ivanovic frá
Júgóslavíu og Adorjan frá Ung-
verjalandi.
Byrne sýnir ávallt mjög vand-
aða taflmennsku og í annarri um-
ferðinni stillti hann liði sínu upp á
mjög lærdómsríkan hátt gegn
JigUjJjaai'ólkJ; .