Morgunblaðið - 12.02.1982, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1982
17
Mikill fjöldi áhorfenda fylgdist með skákskýringum Viktor Korchnois.
Mynd Mbl. Kristján.
þau. Þetta er alrangt, eins og svo
margt annað. Ég sótti um leyfi
fyrir mitt fólk þegar árið 1977 og
slík umsókn hefur verið send yfir-
völdum oftar. í maí árið 1978 var
sonur minn kallaður í herinn, en
neitaði að gegna herþjónustu.
Hann fór huldu höfði þar til hann
var handtekinn í nóvember árið
1979 og dæmdur til 2 árs vistar í
vinnubúðum í Síberíu. Meðan þeir
halda syni mínum föngnum er ekki
hægt um vik hjá mér, en ég endur-
tek, að ég bind vonir við Friðrik
Ólafsson og hans viðleitni til að fá
fjölskyldu mína lausa. Hann hefur
sýnt hugrekki."
„Þar er skákin pólitík
eins og allt annað“
— Sovétmenn sendu ekki þátt-
takendur á Reykjavíkurskákmótið
nú eins og þeir hafa alltaf áður
gert. Eigi að síður eru meðal þátt-
takenda fimm landflótta Sovét-
menn, sem tefla nú fyrir Bandarík-
in. Hversu margir eru þeir sovézku
skákmenn, sem yfirgefið hafa föð-
urland sitt?
„Fyrir hinn vestræna heim er
skákin skák og pólitíkin er pólitík.
í Rússlandi er skákin pólitík eins
og allt annað. Ég er skákmaður, en
ekki pólitíkus. Á Reykjavíkur-
skákmótinu er Lev Alburt meðal
þátttakenda, en hann flúði Sovét-
ríkin á svipaðan hátt og ég. Þriðji
skákmaðurinn, sem strokið hefur
frá Rússlandi á þennan hátt er
Kanadameistarinn Ivanov. Við eig-
um það sameiginlegt að vera
skákmenn, en ekki pólitíkusar.
Þeir Zaltsman, Gurevich, Kogan
og Shamkovic, sem taka þátt í
Reykjavíkurskákmótinu, foru frá
Rússlandi á „löglegan" hátt í gegn-
um ísrael, en búa nú í Bandaríkj-
unum. Hversu margir þeir sterku
skákmenn eru, sem hafa yfirgefið
Sovétríkin þori ég ekki að segja
um.“
— Hvers vegna tókst þú ekki
þátt í Reykjavíkurskákmótinu?
„Því miður gat ég ekki tekið þátt
í mótinu hér. Viku áður en mér var
boðið hingað hafði ég. lofað þátt-
töku á skákmóti í Róm. Mótið hér
hefði gefið mér meiri möguleika,
hér eru margir stórmeistarar og
hér eru meiri peningar í veði. En
loforð er loforð. Ég ákvað þó að
þiggja boð Skáksambandsins um að
koma hingað og skýri meðal annars
skákir á Reykjavíkurmótinu. Einn-
ig vonast ég til að hitta Friðrik
Olafsson, bæði til að ræða skák og
mál fjölskyldu minnar,“ sagði Vikt-
or Korchnoi að lokum. — áij
hafði ávallt betri stöðu, en náði ekki
að knýja fram sigur," sagði
Korchnoi.
En hvað sagði Guðmundur um
skákina? „Mér fannst ég vera að
innbyrða vinninginn, en Alburt er
snjall skákmaður og hann fann
bestu varnarleikina. Ég er í raun
mjög hissa að hann skyldi hanga á
jafnteflinu. Hann tók ekki skipta-
muninn. Ef hann hefði gert það, þá
hefðu peðin orðið óstöðvandi. Mér
fannst ég tefla nokkuð vel, en Al-
burt slapp fyrir horn; ég varð að
sætta mig við helv. jafnteflið,"
sagði Guðmundur og brosti.
Friðrik Ólafsson og Júgóslavinn
Abramovic sömdu um jafntefli eftir
24 leiki og Margeir Pétursson og
ungverski stórmeistarinn Adorjan
sömdu jafntefli eftir aðeins 17 leiki
og viðburðasnauða skák. Adorjan
hefur ekki hætt á að falla í yfirlið
vegna skákarinnar við Margeir, en
það hefur tvívegis komið fyrir hann
á skákferlinum vegna yfirþyrmandi
spænnu! Haukur Angantýsson gerði
jafntefli við pólska stórmeistarann
Kuligowski.
Sá skákmaður sem mesta athygli
hefur vakið fyrir góða frammistöðu
er Leifur Jósteinsson. í gær gerði
Leifur jafntefli við danska alþjóð-
lega meistarann Carsten Hoi og
sömdu þeir jafntefli eftir 18 leiki,
en áður hafði Leifur gert jafntefli
við tvo stórmeistara. Þá er Ásgeir
Þór Árnason ósigraður, eftir viður-
eignir við 2 alþjóðlega meistara og
einn stórmeistara.
Aðeins einn íslenzkur skákmaður
vann viðureign sína við erlendan
meistara í gærkvöldi. Sævar
Bjarnason, nýbakaður skákmeistari
Reykjavíkur, vann V-Þjóðverjann
Grunberg.
Að loknum þremur umferðum
eru fjórir skákmenn jafnir og efstir
með 2'Æ vinning; Helgi Ólafsson,
Schneider, Svíþjóð, Kindermann,
V-Þýzkalandi og Forintos, Ung-
verjalandi. Bandaríkjamaðurinn
Gurevic hefur hlotið 2 vinninga og á
biðskák, sem hann líklega vinnur.
Þá koma 11 skákmenn með 2 vinn-
inga, Friðrik Ólafsson, Margeir
Pétursson, Guðmundur Sigurjóns-
son, Haukur Angantýsson, Abrom-
ovic, Alburt, Byrne, Wedberg,
Adorjan, De Firmian og Burger.
Tony Miles mun nú á ieið til Ind-
ónesíu til að taka þátt í skákmóti
þar, en hann hafði sem kunnugt er
boðað komu sína á Reykjavíkur-
skákmótið. En í Indónesíu hafa og
orðið forföll. Sem kunnugt er af
fréttum, varð mikill uppsteytur á
flugvellinum í Jakarta, höfuðborg
Indónesíu þegar sovéskur njósnari
var handtekinn. Alexander Fin-
enko, starfsmaður Aeroflot, var
tekinn fastur þegar hann var að
kveðja vin sinn, njósnarann. Fin-
enko reiddist mjög og kom til átaka.
Rússar urðu æfir og hafa nú bann-
að Yuri Averbach, einum æðsta
manni sovéska skáksambandsins að
tefla á mótinu. Svo sem kunnugt er
hafa Sovétmenn lengi predikað, að
ekki skuli blanda saman íþróttum
og pólitík!
19m82
X.REYKJAVIKUR
SKÁKMDTIÐ
Úrslit skáka í 3. umferð
sem tefld var í gærkvöldi:
Schneidor SvíþjóA — llcl|ji OUfs«on ' j—‘ t
KriArih (HafNson — AbramovH' JúgosUviu ' j—' t
(iudm. Sigurjónsson — Ia*v Alburt IíSA 'i-'i
Kobort Kvrnt l'SA — W t>dbcrij Svíþjóó ‘t—'j
Mwgeir Pétunsson — Adorjan l’ng. x/t—H
Shamkovich PSA — llelmerH Noregi bHVskák
(iurevich USA — Jóhann lljartarson l~ö
ForintoH l'ng. — Sahovic l'SA 1—0
KuligowKki Pólland — Haukur AneantýKson
Kindermann V I>ýHkal. — Jón L. Arnason 1—0
Magnún Solmundarson — l)e Firmian HSA 0—l
K. Krey Mexikó — Ivanovic Júgóslaviu 0—1
Westerinen Finnl. — Klvar (iuðmundsson */»—'/»
Kráhenbuhl Sviss — Mednis USA V*—»/t
Ásgeir l>ór Árnanon — /altsmann MSA */t—xh
Itajovic Júgóslaviu — Kurger USA 0—1
Kogan USÁ — Jónas I*. Kriingsson biðnkák
(\ Iloi lUnmörku — Lcifur Jóstein.sson -*/j
llorvath ('ngverjal. — Stefán Hriem ' j—Vt
Kaiszauri Svíþjód — Dan Hansson biðskák
Karl Imrsteins Bischoff V-I*ýskal. W—' j
Henedikt Jonasson — Iskov lUnmörku biðskák
tioodman Bretlandi Jóhann Örn |— 0
llilmar Karlsson — Jóhannes (i. Jónsson
Savage l'SA — Jóhann I»órÍH 1—0
Nævar Bjarnason — (.rúnberg 1—0
JúIíuh FiójonsHon — Kóbert Haróarson hiÓskák
Þriðja umferð-
in var mögur hjá
íslendingunum
ÞAÐ VAR fátt um fína drætti
hjá íslensku þátttakendunum f
þridju umferð Reykjavíkur
skákmótsins. Aðeins einn sigur
vannst gegn útlendingi, það var
Reykjavíkurmeistarinn nýbak-
aði, Sævar Bjarnason, sem hélt
uppi heiðri íslands og lagði
vesturþýzka meistarann Grtin-
berg að velli.
Það var líka kominn tími til
að Sævar færi að láta að sér
kveða á mótinu, því hann tapaði
tveimur fyrstu skákum sínum.
Sævar vann peð snemma tafls
og náði síðan að króa drottningu
andstæðings síns inni:
Svart: Griinberg (V-Þýzkal.)
Hvítt: Sævar Bjarnason
28. Bb4! — Hxc6, 29. bxc6 —
Hxb4, 30. c7 — Hc4, 31. c8-D+ —
Kh7, 32. Kg2! — Hxc2, 33. Hhl +
- Bh6, 34. Hxh6+! — Kxh6, 35.
I)h8+ — Kg5, 36. Dh4+ og svart-
ur gafst upp, því hann er mát í
næsta leik.
Á tveimur borðum voru ís-
lendingar þó mjög nálægt því að
ná sigri. Það voru skákir Guð-
mundar Sigurjónssonar við Al-
burt og Ásgeirs Þ. Árnasonar
við Zaltsman.
í þessari stöðu bauð Guð-
mundur upp á skiptamunsfórn,
sem andstæðingur hans þáði þó
ekki. Miklum vöngum var hins
vegar velt yfir fórninni í skák-
skýringasalnum þar sem engu
minni spámaður um endatöfl en
Viktor Korchnoi réði ríkjum;
Svart: Alburt (Sovétr.)
Sjá stödumynd
efst í næsta dálki.
Hvítt: Guðmundur Sigurjónsson
28. a4!? — d2, 29. Hdl — Bc2, 30.
Ke2 — Bxa4!
Eftir 30. — Bxdl+, 31. Kxdl
nær svarti hrókurinn ekki að
stöðva hvítu peðin á kóngsvæng,
eins og Korchnoi fullvissaði
áhorfendur um í skákskýringun-
um.
31. Hxd2 — Hxd2+, 32. Kxd2 —
Bb3, 33. Kd3 — Bd5, 34. g3 —
Bg2, 35. b6 — Kf6, og með því að
skunda með kóng sinn yfir á
drottningarvænginn, tókst Al-
burt naumlega að hanga á jafn-
tefli.
Ásgeir Þór hefur staðið sig vel
á mótinu til þessa, en hefði get-
að staðið sig enn betur ef hann
hefði ekki brennt af eftir að
hafa teflt skínandi vel gegn
bandaríska alþjóðameistaran-
um Zaltsman.
Svart: Zaltsman (Bandar.)
Hvítt: Ásgeir Þór Árnason
Hér getur hvítur unnið með
því að leika 36. c4 eða 36. c3, því
hvítur hefur sælu peði meira,
auk þess sem í svo opinni stöðu
er biskup mun sterkari en ridd-
ari. Ásgeir lék hins vegar:
36. Be6? — Rf2+, 37. Kgl — Rdl,
38. a3 — a5, 39. axb4 — axb4, 40.
b3 — Re3, 41. Kf2 — Rxc2 og
stuttu síðar var jafnteflið sam-
ið.
unga þýzka meistaranum Bi-
schoff. Þegar við grípum hér niður
í skákina fannst Byrne vera kom-
inn tími til að láta til skarar
skríða:
Svart: Byrne (Bandaríkjunum)
Hvítt: Bischoff (V-Þýzkalandi)
24. — c4!, 25. dxc4 — bxc4, 26. Re5
— Bxe5, 27. Bxe5 — Rb4, 28. Be4 —
Hd2, 29. Bxh7+ — Kxh7, 30. He2 —
Dd5+, 31. Kgl — Hxe2, 32. Dxe2 —
cxb3, 33. cxbjB — Hc2!
Þrátt fyrir öll uppskiptin er
svarta staðan nú gjörunnin vegna
veikrar kóngsstöðu hvíts.
34. Dfl — Rd3, 35. b4 — De4 og
hvítur gafst upp, því hann á ekk-
ert svar við hótuninni 36. — De3+.
í innbyrðis uppgjöri Svíanna
Dan Hansson og alþjóðameistar-
ans Tom Wedberg, gerði hinn síð-
arnefndi út um taflið á mjög
skemmtilegan hátt; en hann hafði
svart og átti leik.
Svart: Wedberg (Svíþjóð)
33. — e3!, 34. hxg4 — fxg2, 35. Kxg2
— Hxf2+ og hvítur gafst upp.
Jón L. Árnason tefldi bráð-
skemmtilega og spennandi skák
við David Goodman frá Englandi í
annarri umferðinni. Skákin á sér
reyndar nokkra forsögu frá byrj-
anafræðilegu sjónarmiði, því hinn
kunni skákrithöfundur og stór-
meistari, Raymond Keene, beitti
sömu byrjun og Goodman nú gegn
Jóni á móti í London í fyrra. Þá
fékk Jón yfirburðatafl, sem hann
klúðraði í tap. Svo vill til að Good-
man er mágur Keene og þrátt
fyrir að hann endurbætti tafl-
mennsku mágs síns, náði Jón að
koma fram hefndum.
Hvítt: Jón L. Árnason
Svart: Goodman (Englandi)
Robatsch-vörn
1. e4 — g6, 2. d4 — Bg7, 3. Rc3 —
Bg7, 4. f4 — Rc6, 5. Be3 — Rf6, 6.
h3 — 0-0, 7. g4 — e5, 8. dxe5 —
dxe5, 9. f5 — h6!?
Framhaldið í áðurnefndri skák
þeirra Jóns og Keene varð 9. —
gxf5, 10. exf5! - Rd4, 11. Bg2 -
De7,12. Dd2 - Hd8,13. Df2 - h6,
. + . V i "•'IIVSM X ivr.i jiut.yo Lii.ony rwvjiii
Hvítt llansson (Svíþjóð)
14. 0-0-0 - c5, 15. Rge2 - a5, 16.
Rg3 — a4, 17. g5 og hvítur hefur
mjög sterkt frumkvæði.
10. Rf3 — De7, 11. g5!?
Djarfur leikur. 11. Bd3 kemur
vel til greina.
— hxg5, 12. Bxg5 — Db4, 13. a3! —
Dc5
Auðvitað ekki 13. — Dxb2, 14.
Ra4.
14. Dd2 — Rd4, 15. Dg2 — Rh5, 16.
0-0-0 — c6, 17. Rh4 — b5, 18. Be2
18. Bd3 og siðan Hdfl kom einn-
ig til greina.
- Rf4!, 19. Bxf4 — exf4, 20. Bd3 —
b4?!
Það reynist afdrifarikt að láta
af hendi c4-reitinn. 20 — f3!? eða
eða 20 — a5! komu sterklega til
álita.
21. Ra l — Da5?
Yfirsjón. 21. — De7 gaf meiri
varnarmöguleika.
Sjá stöðumynd
efst í næsta dálki
22. Rxg6!
Sundrar svörtu kóngsstöðunni.
Ef 22. — fxg6, þá 23, Bc4+ i. > ,
— bxa3, 23. Re7+ — Kh7, 24. e5 —
Bh6, 25. f6+ — Bf5?
Meiri möguleika gaf 25. — Kh8.
26. Rxf5 - Rxf5
Eftir 26. — f3+, 27. Rxh6+ er öllu
lokið.
27. De4!
En alls ekki 27. Bxf5?? - Kh8
og svartur stendur vel.
— Hg8, 28. Dxf5 — Hg6, 29. Dd7 —
axb2+, 30. Kbl — Dxa4, 31. Bxg6+
— Kh8, 32. c3! — fxg6, 33. Db7 —
He8, 34. Db4 — Dal+, 35. Kc2 —
Da6, 36. f7 og i þessari vonlausu
átöðu féll svartiir átima.
I t’
Lu PMI